Vestfirska fréttablaðið - 02.02.1984, Side 2
Enn af Einari
vestfirska
FRETTABLASZS
Vikublað, kemur út á fimmtudögum kl. 18:00 — Skrifstofa
Hafnarstræti 14, sími 4011 — Opin virka daga frá kl. 10:00 —
12:00 og 13:00 — 17:00 — Blaðamaður Rúnar Helgi
Vignisson, sími 3325 — Útgefandi og ábyrgðarmaður Árni
Sigurðsson, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100 — Verö í
lausasölu kr. 22,00 —. .Auglýsingaverð kr. 110,00 dcm. —
Smáauglýsingar kr. 210,00 — Áskriftarverö er
lausasöluverð, reiknað hálfsárslega eftirá — Prentun:
Prentstofan ísrún hf. sími 3223.
Forsetaembættið
Illa gengur að koma saman nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveld-
ið ísland sem stofnað var á Þingvöllum snemmsumars
1944. Á því sama ári var kjörin nefnd til þess að undirbúa
stjórnarskrá fyrir lýðveldið. Sú nefnd hefur starfað með
hríðum æ síðan. Nokkur skriður komst á málið í fyrra og
var nokkur hvalablástur um það í fjölmiðlum, en sú um-
ræða hefur síðan dottið í dúnalogn eins og svo oft endra-
nær.
A þessu afmælisári lýðveldisins ber að kjósa því forseta.
Enn er of snemmt að segja til um það, hvort frú Vigdís
Finnbogadóttir gefur aftur kost á sér eða hvort aðrir fara í
framboð. Eru uppi ýmsar raddir um þetta og bendir margt
til þess að svo fari, að ekkert verði kosið og ríkjandi forseti
verði sjálfkjörinn.
Annars er einkennilegt hve hljótt hefur verið um þetta
mál í opinberri umræðu. Sumir líta á forsetakjör eins og
eitthvert feimnismál og aðrir telja það hreinlega móðgandi
að tala um að bjóða fram gegn hverjum þeim þjóðhöfð-
ingja vorum sem situr hverju sinni. Slík afstaða er byggð á
röngum skilningi á grundvallaratriðum lýðræðisskipulags-
ins.
Þegar gengið er til kosninga um forseta íslands vita allir,
að hann er kosinn til fjögurra ára. Kjósendur hafa þá um-
boð til þess að kjósa einhvern til að gegna embættinu í
fjögur ár. Fari svo að því kjörtímabili loknu, að ríkjandi
forseti bjóði sig einn fram, eins og gerzt hefur nokkrum
sinnum, er hann talinn sjálfkjörinn og engar kosningar fara
fram.
Hér er farið rangt að. Þeir sem kusu tiltekinn forseta fyrir
4 árum geta þannig fengið framlengt og aukið umboð sitt
og ráðið því hver verði forseti næstu 8,12,16 eða 20 árin.
Pá leiðréttingu verður að gera á stjórnarskrá landsins, að
ævinlega verði efnt til kosninga um forsetaembættið jafn-
vel þótt frambjóðandi sé aðeins ríkjandi forseti. Áfram-
haldandi seta tiltekins manns í þessu embætti á ekki að
ráðast af því hvort einhver annar gefur kost á sér til fram-
boðs eða ekki. Kjósendurnir sem kusu ríkjandi forseta
fjórum árum áður eiga ekki að ráða því hver verður forseti
næstu fjögur árin. Þá er verið að veita þeim ótrúleg forrétt-
indi, en „sjálfkjörinna forseti er í rauninni umboðslaus.
Hann hefur ekki umboð frá þjóðinni til að gegna embætti
og getur ekki fengið það nema með sigri í kosningum. Með
því fyrirkomulagi sem nú er viðhaft er það í rauninni hr.
N. N. sem hætti við að bjóða sig fram sem „kýs“ forseta til
næstu fjögurra ára.
Hér er á ferðinni alvarleg veila í stjórnskipunarlögum lýð-
veldisins. Með þessu fyrirkomulagi er verið að svipta þjóð-
ina hluta af lýðréttindum hennar og slík réttindaskerðing
samræmist ekki hugmyndum vorra tíma um lýðræði.
Þessi umræða er á engan hátt tengd núverandi forseta
Islands. Hverjum og einum sem gegnir embætti æðsta
manns þjóðarinnar ætti að vera það kappsmál að leita um-
boðs þjóðarinnar í kosningum til að skipa það embætti.
Þjóðhöfðingjanum er ekkert vandara en alþingismönnum
og sveitarstjórnarmönnum að standa frammi fyrir kjósend-
um á fjögurra ára fresti og hljóta dóm þeirra. Eða hvað
þætti mönnum um þá hugmynd, að alþingismenn eða
sveitarstjórnarmenn væru „sjálfkjörnir“ á meðan þeir vilja
sitja?
Vald og tign ráðamanna þjóðarinnar kemur frá fólkinu
sjálfu í lýðræðislegum kosningum og þangað verða þeir að
sækja mátt sinn og megin. Hvers konar „sjálfskjör“ er al-
varleg tilraun til að grafa undan hornsteinum lýðræðisins.
Keppti í 17 stiga frosti á laugardag
— 12 hættu vegna kuldans
Þriðjudaginn 24. janúar s.l.
var í Storvreda 10 km. skíða-
ganga og var þangað boðið 24
keppendum frá Finnlandi, Nor-
egi, Svfþjóð og fslandi. Þeir
Einar Ólafsson og Gottlieb
Konráðsson kepptu fyrir ís-
lands hönd. Sigurvegari varð
Tomas Wassberg, Svíþjóð,
Einar var nr. 14,1,11 mín á eftir
Wassberg, og Gottlieb átjándi,
57 sek á eftir Einari.
Daginn eftir kepptu þeir félag-
ar í Filipstad í 13 km. göngu. 17
keppendur luku keppni. mln
1. B. Kohlberg Svíþ. 34,22
2. J. Ottoson Svíþ. 34.24
3. T. Mogren Svíþ. 34.38
4. T. Wassberg Svíþ.
11. Einar Olafs. ísl. 36,07
15. A. Koivisto Fin.
16. GottliebKonr.lsl. 37,12
Laugardaginn28. janúar tóku
þeir félagar þátt í OL-test í Vája.
Mjög kalt var, — 17°C, en það er
mesta frost sem keppt er í á þessu
svæði, Svíþjóð og Noregi. 50
keppendur voru ræstir en 12
Verðkönnun
á Flateyri
Hin árlega verðkönnun Flat-
eyringa var framkvæmd 9. des.
s.l. Könnunin tók til þriggja
búða, Kaupfélags Önfirðinga,
verslunar Greips, og Brauð-
gerðarinnar. Kannaðir voru 27
vöruflokkar og gerður saman-
burður á verði fyrra árs.
Meðaltalshækkun á milli ára
var 84% 1 Kaupfélaginu. 78% 1
verslun Greips og 89%, í Brauð-
gerðinni.
1 athugasemdum með könnun-
inni segir að í des. 1980 og ‘81
hafi það tekið verkamann á fisk-
vinnutaxta 8.5 klst. að vinna fyrir
22 vöruheitum í könnun inni, 1
stk. af hverri. í des. ‘82 tók það
10.1 klst. og í desember s.l. 13,9
klst. Eitthvað virðist kaupmáttur-
inn hafa rýrnað í tímans rás.
hættu vegna kuldans, þannig að
38 luku keppni og af þeim voru
tveir dæmdir úr leik fyrir að
skauta að markinu en slíkt er
bannað fyrstu og síðustu 200 m.
Sigurvegari varð Gunde Svan,
Svíþjóð á 40,41 mín. Einar varð
sautjándi á 43,34 og Gottlieb þrít-
ugasti á 45,45 mín. Þá er þess að
geta að Tomas Wassberg var með
tímann 43,14 mín., en hann, á-
samt Arto Kovisto Finnlandi, var
dæmdur úr leik. Þá hafði göngu-
kappinn Benny Kohlberg flýtt sér
svo að heiman að hann gleymdi
skíðunum og varð að fá þau lán-
uð hjá samherjum sínum.
Þetta var síðasta keppni sem
þeir Einar og Gottlieb taka þátt í í
Svíþjóð að sinni, því á þriðjudag-
inn fóru þeir til Davos í Sviss og
keppa þar í 15 km. göngu á
laugardaginn. Þar má búast við
öllum sterkustu skíðamönnum
heims, að Rússum frátöldum, og
verður fróðlegt að heyra úrslitin
þaðan.
Mánudaginn 6. febrúar fer ís-
lenska gönguliðið til Sarajevo og
miðvikudaginn 8. febrúar verða
Vetrarólympíuleikarnir settir.
VERKALYÐSFELAGIÐ BALDUR
Allsherjar
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trúnað-
armannaráðs Verkalýðsfélagsins Baldurs
fyrir árið 1984.
Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar
og trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 16:00
laugardaginn 11. febrúar n.k. Tillögur eiga að
vera um 8 menn í stjórn félagsins og auk
þess um 25 menn til viðbótar í trúnaðar-
mannaráð og fimm varamenn þeirra.
Tillögum skal skila til kjörstjómar félagsins á
skrifstofu þess í Alþýðuhúsi ísfirðinga,
Norðurvegi 1, ísafirði ásamt meðmælum 65
fullgildra félagsmanna.
STJÓRNIN
r
■ Smáauglýsingar......n
BAHÁ'I TRÚIN
Upplýsingar um Bahá'i
trúna eru sendar skriflega,
ef óskað er. Utanáskrift:
Pósthólf 172, Isafirði. Opið
hús að Sundstræti 14, sími
4071 öll fimmtudagskvöld
frákl. 21:00 til 23:00.
AL ANON FUNDIR
fyrir aðstandendur fóiks,
semfengis á við áfengis-
vandamál að stríða, eru kl.
21:00 á mánudagskvöldum
að Aðalstræti 42, Hæsta-
kaupstaðarhúsinu.
Upplýsingar veittar í síma
3411 á sama tíma.
AA FUNDIR
Kl. 21:00 á þriðjudagskvöld-
um og kl. 11:00 á sunnu-
dögum að Aðalstræti 42,
Hæðstakaupstaðarhúsinu.
Sími3411.
AA DEILDIN
TIL SÖLU
Subaru 1600 4x4.
Árgerð 1978. Ekinn 60.000
km. Bíll í góðu standi.
Upplýsingar gefur Tryggvi í
síma 4133 og 3328.
TIL SÖLU
Uggi ÍS 310, sem er 2,2
smálestir. 20 hesta vél. 60
grásleppunet geta fylgt.
Upplýsingar í síma 94—3046
eftir kl. 19:00.
TIL SÖLU
Chevrolet Malibu Classic,
árgerð 1978. Skipti á ódýrari
bíl.
Upplýsingar í síma 4049.
TIL SÖLU
Daihatsu Charmant árgerð
1979. Einnig eldri Dodge
vörubíll.
Upplýsingar í síma 3424.
FORD BRONCO TIL SÖLU
Árgerð 1974 V8 bíll í topp
standi og á breiðum dekkj-
um. Skipti koma til greina.
Upplýsingar í síma 4107.
SKATTAFRAMTÖL
Veitum framtalsaðstoð fyrir
einstaklinga.
Upplýsingar í síma 4277 kl.
12:00—13:00 og 19:00—
20:00.
TIL SÖLU 18 feta ensk segl-
skúta Foxcup, 5 segl 4
hesta utandborðsmótor og
fleira fylgir. Svefnpláss fyrir
4, skipti á vélbát koma til
greina.
Upplýsingar í síma 94—6282
á vinnutíma og 94—6182 á
kvöldin.
TIL SÖLU
Honda SS—50 árgerð 1979.
Upplýsingar í síma 4023 í
hádegi og eftir kl. 17:00 á
kvöldin.
AA FUNDIR BOLUNGARVÍK
kl. 20:30 á fimmtudögum f
Kiwanishúsinu á Grundum.
AA DEILDIN
BfLLTILSÖLU
Mazda 626 1600 árgerð
1982, ekinn 20 þús. km.
Upplýsingar í síma 3193.
TIL SÖLU
BENZ árgerð 1969, verð
50.000.
Sumar og vetrardekk.
Upplýsingar í síma 4159 eftir
kl. 19:00.
TILSÖLU
Fjórhjóladrifinn Subaru
Station árgerð 1977, ekinn
57 þús. km. Nýsprautaður.
Verð 100 þús. Upplýsingar í
síma 4036.
TILSÖLU
Toyota Cressida, sjálfskipt
1978 módel. Og Mini 1973 í
góðu lagi.
Upplýsingar í síma 4272 eftir
kl. 19:00.
TIL SÖLU
Sifreiðin H 955 Simca 1508
GT árgerð 1978 ekinn
55.000 km. Verð 100—110
þús.
Upplýsingar í síma 4180 eftir
kl. 19:00.
Z
L
J