Vestfirska fréttablaðið - 02.02.1984, Side 3
vestfirska
rRETTABLADlD
Grafík fær góða dóma;
Erum orðnir rokkaðri
— segir Rafíi Jónsson
trymbill
Það eru ekki bara vestfirskir
skíðamenn sem spjara sig.
Margir vestfirskir hljómlistar-
menn hafa líka gert það gott,
einkanlega eftir að hafa hleypt
heimdraganum;
8. janúar s.l. gat að líta mikla
lofræðu um tónleika hljómsveit-
arinnar Grafík í Morgunblaðinu.
Eins og margir vita þá á Grafík
ættir sínar að rekja til ísafjarðar
og er alveg sjálfsagt að kalia hana
ísfirska hljómsveit, a.m.k. þegar
hún plumar sig.
Greinin í Mogganum er um-
fjöllun um tónleika sem Grafík
hélt í Safari mánuði áður. Þar
tróð flokkurinn upp með nýtt
prógram. frumsamda tónlist.
Nú vill svo til að skrásetjari var
einmitt staddur í Safarí þetta til-
tekna kvöld. Var sérstaklega gam-
an að sjá hve margir Vestfirðingar
létu sjá sig á staðnum þetta kvöld
og er ekki nema gott eitt um slíka
ræktarsemi að segja. Er skemmst
frá því að segja að Grafík var
afbragðs vel tekið og klöppuð
upp tvisvar.
Við höfðum samband við Rafn
Jónsson trommuleikara flokksins
og spurðum hann hvað þeir væru
Síðbúin umfjöllun um tónleika hljómsveitarinnar Grafík:
Leggur metnað í að flytja efni
sitt eins vel og hugsast getur
Þaö má naestum heita ótrúlegt
hversu mikið hefur veriö um tón-
leikahald nú í desember. Músik-
tilraunir eru í fullum gangi og
gera þaó gott. Pálmi Gunnars og
félagar stóöu og standa fyrir
nokkrum styrktartónleikum til
handa þroskaheftum. Bone
Symphony tróö upp á nokkrum
stööum, Linton var í Sigtúni 2.
desember og aó auki hafa veriö
nokkrir „sjálfstæðir“ tónleikar.
Misjafnlega hefur hljómsveitum
gengió aó halda tónleika og hefur
fólksfæö verió helsta vandamál-
ió. Safari hefur eitt sér, séö sór
fært um að halda lifandi tónlist
gangandi í sínum húsum, og á
þaö þakkir skiliö.
Einir af þessum ,sjálfstæöu“
tónleikum sem haldnir hafa veriö
upp á síökastiö voru tónleikar
Grafík í Safari 8. desember síöast-
liöinn. Viö mættum til leiks rétt um
miönætti og geröum ráö fyrir að
nokkuð væri liöiö á tónleikana. En
svo virtist hins vegar ekki vera, þvi
um leið og gengiö var inn í salinn
hóf Grafik spilamennskuna.
Greinileg spenna var í þeim 130
áhorfendum sem mættu þetta
kvöld, en slik mæting telst til hins
betra hjá minni nöfnum. Eöa er
Grafík kannski ekkert litiö nafn?
Um þaö efast ég stórlega eftir
þessa tónleika. Þeir fóru rólega af
staö, hljómurinn þokkalegur en
átti eftir að veröa mjög góöur og
spenna í andrúmsloftinu. í ööru
lagi lyfti flokkurinn sér til flugs, og
hvílíkt flugtak! Hljómsveitin er í
frábærri samæfingu. Allir eru þeir
pottþéttir hljóöfæraleikarar og
gera hlutina afbragösvel. Eftir
þetta lag slitnaöi strengur í gitarn-
um og varö smá biö. Hún setti
óróleika í fólkið og gjarnan heföi
mátt leika eitthvaö létt á trommur
og bassa á meöan. En biðina bætti
Grafík upp með frábæru lagi. Lag-
iö var fremur hratt, laglínan gríp-
andi og Helgi söngvari fylgdi laginu
í söng sínum. Dálítiö sem hann má
gera mun meira af. Meö þessu er
ekki veriö aö segja hann falskan.
Heldur aö hann talar/syngur text-
ann meö laginu án þess aö fylgja
laglínunni beint eftir.
Meö þessu sker hann sig dálítið
úr heildinni og að mér finnst, veikir
hann dálítiö. Annaö er þaö sem
Helgi hefur hins vegar framyfir hina
piltana. Hann er meiriháttar
skemmtilegur sviðsmaöur. Hann
hreyfir sig mikiö og skemmtilega
og tekst ágætlega aö láta þaö ekki
koma niöur á söngnum. Rúnar
Þórisson er einn af betri gítarleik-
urum landsins. Sóló hans voru
smekkleg og alveg laus viö yfir-
drifna fingraleikni. „Sándiö“ á gít-
arnum var mjög gott og gaman aö
heyra til manna sem kunna aö
beita því. Samspil Rafns Jónsson-
ar trommara og Arnar Jónssonar
bassa myndar mjög þéttan grunn
og gerist samspil þeirra vart betra.
Saman myndaöi Grafík ótrúlega
þétta mynd sem spilaöi frum-
samda tónlist af metnaöi. Eftir um
45 minútna leik þakkaöi sveitin
fyrir sig en var klöppuö kröftug-
lega upp. Eitt lag var spilaö, og
aftur gekk Grafík af sviöinu. En
æstir og hrifnir áhorfendur hróp-
uöu nafn flokksins af krafti, stapp-
aö var í gólfiö og stemmningin
kallaöi drengina aftur fram. Eitt lag
var leikiö til viðbótar svo hættu
þeir fyrir fullt og allt. Síöasta lag á
dagskránni fyrir uppklapp var
gamall Bitlasiagari og hann tileink-
aöur John Lennon, en tvö ár voru
liöin frá dauöa hans þetta kvöld.
Eftir á aö hyggja finnst mér
þetta hafa veriö einir bestu ís-
lensku tónleikar sem ég hef heyrt
lengi. Allt var í góöu lagi. Hljómur-
inn, tónlistin, flutningurinn, áhorf-
endur og síöast og ekki síst
stemmningin sem var pottþétt. Dá-
lítið sem ekki gerist á hverjum tón-
leikum hérlendis.
Og eftir þessa tónleika sýnist
mér í fljótu bragöi vera bara tvær
íslenskar hljómsveitir sem leggja
metnaö sinn i aö flytja gott frum-
samið efni eins vel og hægt er;
Bara-fiokkurinn og Grafík.
FM
Blaðadómurinn í Mogganum
með á prjónunum.
..Við erum að taka upp nýja
plötu og stefnum að því að hún
komi út með vorinu. Við erunt
búnir að taka upp fimm grunna.
en ætlum að bæta einhverju við
og velja svo það besta úr því.“
— Verður þetta stór plata?
..Ekkert frekar. það getur jafn-
vel verið að við höfum hana ..litla
stóra.“
— Hefur músíkin eitthvað breyst
hjá ykkur undanfarið?
,.Jú. ég held að við séum miklu
rokkaðri núna heldur en við höf-
um verið. Við erum nú án hljóm-
borðsleikara og við það verður
músíkin svolítið grófari."
— Ætlið þið ekki að fá ykkur
annan hljómborðsleikara?
..Það er ekki endanlega ákveð-
ið.“
— Komið þið til með að spila
hérna fyrir vestan næsta sumar?
..Já. við verðum allavega eitt-
hvað fyrir vestan."
— Nú hafið þið ekki fengið mjög
mikla umfjöllun í fjölmiðlum.
heldurðu að það hái ykkur í þeim
efnum að vera utan af landi?
„Ja. sumir hafa tilhneigingu til
að dæma okkur fyrirfram. setja
sveitamannastimpil á okkur. en
svo vekjum við líka vissa forvitni
fyrir að vera utan af landi. Við
erum ekkert stórnafn í poppinu af
því við höfum svo lítið spilað
hérna fyrir sunnan. Það má telja
þau skipti á fingrum sér sem við
höfum spilað hérna opinberlega.
Við þökkuðum fyrir og lögðum
á.
Ferðamál á Vestfjörðum:
Stofíiun ferðamálasamtaka næsta skrefíð
— segir Reynir Adólfsson hjá Ferðaskrifstofii Vestfjaröa
Hugmyndir eru nú uppi um
stofnun ferðamálasamtaka á
Vestfjöröum, en slík samtök
hafa þegar verið stofnuö á
Suður- og Vesturlandi.
Að sögn Reynis Adolfssonar
f ra m k væm d ast j óra Ferðask ri f-
stofu Vestfjaröa hafa bæjarstjóm-
ir Isafjarðar og Bolungarvíkur
þegar tekið jákvæða afstöðu til
málsins. í bréfi sem hann sendi
bæjarfulllrúum og er á leiö til
annarra sveitarstjórna. segir m.a.
að reynsla af þessurn samtökum
sé góð og að þeirsem best þekkja
feröamál á íslandi telji þetta eitt
af betri skrefum sem stigin hafa
verið nú seinni ár.
Þá segir í bréfinu að samtök
þessi mundu samhæfa þá sem
standa í feröaþjóntistu og annast
útgáfu á upplýsingum til ferða-
manna. Aðilar gætu orðið allir
þeir sem starfa að feröaþjónustu á
Vestfjörðum. — Vegna sam-
gönguerfiðleika á vetrum telur
Reynir heppilegt að ferðamálafé-
lög verði stofnuð á fjórum stöð-
uni í fjórðungnum og mundu þau
síðan mynda „Ferðamálasamtök
Vestfjarða." Þannig fengist best
virkni að vetri. en síðan yrðu
sameiginlegir fundir á sumrin.
Það er hugmynd Reynis að
stærstu aðilarnir mundu greiða
kr. 15.000 í félagsgjald til samtak-
anna á ári — þ.e. Flugleiðir. Arn-
arflug. ísafjarðarkaupstaður.
Stærri þéttbýliskjarnar og fyrir-
tæki. þ.e. Bolungarvík. Patreks-
fjörður. Ferðaskrifstofa Vest-
fjarða. Flugfélagið Ernir. Hótel
ísafjörður. Djúpbáturinn kr.
10.000. Aðrir aðilar kr. 2.000 til
5.000.
Á þennan hátt gætu safnast urn
200.000 kr„ sem ættu að nægja til
að gefa út ýmsar góðar og nyt-
samar upplýsingar á ári hverju.
segir í bréfinu.
Reynir sagði að hjá Ferðamála-
ráði hefði komið fram mjög ntik-
ill áhugi á því að skipaður yrði
ferðamálafulltrúi í öllum héruð-
um landsins. Þá yrðu laun hans
greidd úr Ríkissjóði. en rekstur
hans fjármagnaður af þessurn
ferðamálasamtökum. Hann gæti
þá verið í heilsársstarfi og sam-
ræmt og komiö frá sér upplýsing-
um um að sem sem fyrir hendi
væri á hverjum stað.
Reynir sagði að veruleg aukn-
ing hefði orðið á ferðamanna-
straumi á síðasta ári og búast
mætti við aukningu í framtíöinni.
Því væri brýnt að samræma að-
gerðir í ferðamálum innan fjórð-
ungsins.
Skíðamaður rakst
utaní staur:
Vantar púða
á staurana?
Það slys varð á Seljalandsdal
á sunnudaginn var, að ungur
skíðamaður rakst utaní Ijósa-
staur í hæðinni við efri lyftuna.
Meiðsli hans munu sem betur fer
ekki hafa verið alvarleg, en vekja
upp þá spurningu hvort ekki sé
rétt að setja púða utaná þessa
staura til að minnka hættu á
svona slysum. Slíka púða er að
finna á flestum skíðasvæðum er-
lendis og þykir sjálfsögð varúð-
arráðstöfun.
Björn Helgason, fþrótta- og
æskulýðsfulltrúi, sagði að í fyrra
hefðu púðar verið settir utaná
nokkra staura í efri lyftunni, þar
sem mest þörf hafi verið talin fyrir
þá þar. Hann sagði að komið hefði
til tals að setja púða á ljósastaurana
líka, en ekki orðið af ennþá. ..Við
munum að sjálfsögðu taka málið til
athugunar," sagði Björn.
Það er sjálfsagt að benda
mönnum á að skíðalyfturnar eru
DUÐIN
Tilboð vikunnar
Fiskbúðingar
á aðeins 62,50 kr/kg
áður 112,88 kr/kg
Minnum á
þorramatinn
góða
A
SUNDSTRÆTI 34*4013
j FASTEIGNA- j
j VIÐSKIPTI j
I Vegna mikillar sölu og j
I eftirspurnar undanfarið |
I vantar allar gerðir fast- I
I eigna á ísafirði og í Bol- I
I ungarvík á skrá. Sérstak- J
J lega 3 herbergja íbúðir.
I ÍSAFJÖRÐUR:
I Stórholt 13, glæsileg 4ra |
| herbergja íbúð ásamt bíl- |
I geymslu.
I Lyngholt 8, 138 ferm. ein- |
I býlishús ásamt bílgeymslu. |
| Laust 1. júní n.k.
■ Mjallargata 9, einbýlishús j
I úr timbri. Stór eignarlóð. |
| Laustl.maí.
I Tangagata 8a, 2ja herb. I
j íbúð á efri hæð.
I Hafraholt 18, raðhús ásamt I
I bílskúr. Skipti á húseign í I
I Hnífsdal koma til greina.
I Sundstræti 29, 2ja herb. |
| íbúð. Sérinngangur. I
J Fitjateigur 6, ca. 130 ferm. |
I einbýlishús. Getur losnað |
I fljótlega.
I Lyngholt 11, fokhelt einbýl- |
I ishús ásamt bílskúr.
j Silfurgata 12, lítið einbýlis- ■
J hús. Laust fljótlega.
I Góuholt 5, rúmlega fokhelt I
[ 135 ferm. einbýlishús ásamt J
J bílskúr.
I Urðarvegur 74, raðhús í I
I smíðum.
I Stekkjargata 4, lítið einbýl- |
I ishús. Selst með góðum |
I kjörum, ef samið er strax. I
j BOLUNGARVÍK:
| Traðarstígur 3, ca. 160 !
I ferm. einbýlishús ásamt bíl- |
I skúr og stóru rými í kjallara. |
| Laust eftir samkomulagi. I
I Skipti á íbúð á ísafirði eða í ■
I Reykjavík koma til greina.
| Stigahlíð 2, 2ja herb. íbúð |
| á jarðhæð.
I Þjóðólfsvegur 14,3ja herb. J
J íbúð á 2. hæð.
I Holtabrún 16, 4ra herb. I
I íbúð á 1. hæð.
I Heiðarbrún 4, 138 ferm. |
I einbýlishús ásamt bílskúr. I
! Arnar Geir !
i Hinriksson hdl. i
Silfurtorgi 1,
ísafirði sími 4144
opnar til 21:00 á kvöldin tvo daga
vikunnar, cn fáir hafa orðið til að
notfæra sér þá þjónustu það scm af
er árinu. Þá er þcss að gcta að á
þriðjudagskvöld hcfst á Dalnum
skíðanámskeið og verður Halldór
Antonsson leiðbeinandi.
Leiðrétting
Okkur varð það á í frétt
um Blómabúðina í síðasta
blaði að rangfeðra Ástu
Eggertsdóttur og biðjumst
við velvirðingar á því.
DÚÓ
Ef þú ert að leita að tvíbreiðum svefnsófa,
þá eru Dúó svefnsófarnir ein hentugasta
og hagkvæmasta lausnin.
Verð frá kr. 8.325,00
Húsgagnaverslun ísafjarðar, sími