Vestfirska fréttablaðið - 16.02.1984, Page 1
7. tbl. 10. árg.
vestfirska
16. febrúar 1984
FRETTABLASZS
Þorramatur
Eigum allt í trogið
Einnig tilbúna þorrabakka
Sinarffuéfiinrtsson
gími 7200 - lfl$ Bo tunjáíVtk
Theódór Norðkvist um rækjumálin:
Óskfljanlegt gullgrafarabrjálæði
■ Undanfarið hafa verið uppi
I miklar speglasjónir um það
■ hve margir rækjubátar komi til
| með að leggja upp á ísafirði í
I sumar. í fyrrasumar voru þeir
| um tuttugu, en að sögn Eiríks
I Böðvarssonar hjá Niðursuðu-
I verksmiðjunni má reikna með
J töluverðri fjölgun. Sumir hafa
! nefnt töluna 30, en á þessu
■ stigi er þó ógerlegt að segja til
I um það með nokkurri vissu. Þá
I er vitað að Guðbjörgin sótti um
| rækjuveiðileyfi og Hraðfrysti-
I húsið í Hnífsdal um rækju-
I vinnsluleyfi (óafgreitt þegar
J síðast var vitað) með það í
I huga að senda Pál Pálsson á
■ rækju.
— búist við mikilli fjölgun rækjubáta í sumar
ríkið. Svo látum við bara Albert
koma með pennastrikið og strika
út. Þetta er svoleiðis gullgrafa-
brjálæði í þessu að maður skilur
þetta ekki. Maður hélt nú að
íslendingar og ráðuneytið væru
búnir að læra af reynslunni og
færu varlega í þetta. Það veit
enginn hvernig þetta verður. en
ég ætla bara að vona að þetta fari
ekki allt til andskotans. Við kunn-
um ekkert að skipuleggja okkar
búskap. ef einhvers staðar verður
eitthvað. þá er öllum hleypt á það
og svo hefur enginn neitt. Ef þeir
fara að þrengja að okkur. þá
getur vel verið að við biðjum bara
um þorskkvóta og komum okkur
upp frystingu."
Theódór sagði að þá sárvantaði
hráefni og væru þess vegna að
segja upp fólki. Hins vegar er gert
ráð fyrir að eitthvað rætist úr
þegar Hafþór kemur um mánaða-
mótin. en þrjár verksmiðjur hafa
sem kunnugt er tekið hann á
leigu. O. N. Olsen. Rækjuverk-
smiðjan Hnífsdal og Rækjustöð-
in. Settar verða frystivélar í skip-
ið. þannig að það geti verið 3 — 4
vikur á veiðum í einu. Síðan verð-
ur rækjan þídd upp og unnin í
verksmiðjunum þremur.
..Þetta er algjört kaos og vit-
leysa að verða," sagði Theódór
Norðkvist hjá O. N. Olsen þegar
við spurðum hann um horfurnar
næsta sumar. ,,Ætli það verði
ekki svona 15 nýjar verksmiðjur,
það kallar á svona 5 báta á hverja
verksmiðju, sem þýðir 75 báta í
viðbót við þá 50 sem voru í
fyrra," sagði Theódór.
„Síðan er ráðuneytið búið að
taka rækjuna eina útúr, þannig að
hún dregst ekki frá kvóta þorsk-
bátanna, sem þýðir að búast má
við að mikið af togaraflotanum
fari á þetta líka. Þetta endar nátt-
úrulega með því að enginn hefur
neitt og allir verða að segja sig á
L--_ ............
Úr Rækjustöðinni
ÁTVR íhugar staðsetníngu að Aðalstræti 20A;
Eins og köld vatnsgusa
„Þaö má því með sanni
segja að áform Á.T.V.R. um aö
taka þátt i' byggingu húss undir
starfsemi sína á öðrum stað í
kaupstaðnum, heldur en um
hefur verið samið, komi eins
og köld vatnsgusa yfir þá aðila
aðra, sem að stjórnsýsluhús-
inu standa.“
Þetta segir m.a. í fundargerð
bæjarráðs ísafjarðar frá 26.
janúar s.l., eftir að fram höfðu
komið óskir frá Jóni Kjartans-
syni, forstjóra Á.T.V.R., um að
bæjaryfirvöld tækju afstöðu til
hugsanlegrar staðsetningar á-
fengisverslunar í húsi því er
Guðmundur Þórðarson, bygg-
ingameistari hyggst reisa við
Aðalstræti 20A.
Bæjurráð mótmælir þessum á-
formum. „ef það verður til þess
að seinku eða jafnvel koma í veg
fyrir byggingu stjórnsýsluhúss við
Hafnarstræti. þur sem ríkissjóður
hefur með samningum frá 27. maí
1983, skuldbundið sig til að taka
þátt I hönnun, byggingu og
rekstri." Þess má geta að I stjórn-
sýsluhúsinu er gert ráð fyrir að
áfengisverslun fái 220 ferm. hús-
næði á jarðhæð til sinnar starf-
semi.
í bréfi Jóns Kjartanssonar til
bæjarstjórnar segir m.a. að bæjar-
fógeta hafi verið kynnt málið og
hann lýst sig samþykkan staðsetn-
ingu útsölunnar ef til kæmi.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
171 íbúi á Flateyri hefur
skrifað undir mótmælaskjal til
Alþingis og ríkisstjórnar, þar
sem hinum háa raforkukostn-
aði er mótmælt og farið fram á
aðgerðir til úrbóta. Að sögn
Reynis Traustasonar, sem stóð
að undirskrifta söfnuninni á-
samt fleirum, skrifuðu 98,3%
þeirra sem til náðist undir
skjalið.
„Það voru háir reikningar sem
var samþykkt að svara fyrirspurn
Jóns Kjartanssonar með spurn-
ingu þess efnis hvort ríkissjóður
hygðist falla frá aðild sinni að
stjórnsýsluhúsinu.
Guðmundur Þórðarson hefur
ekki enn fengið byggingarleyfi.
enda á eftir að rýma hluta af lóð
þeirri sem honurn var úthlutað.
bárust síðast. kannski þeir hæstu
sem sést hafa. og fólki bregður
náttúrulega við slíkt I janúar."
sagði Reynir þegar hann var
spurður hvort eitthvað sérstakt
hefði ýtt söfnuninni af stað.
Mótmæli Flateyringa hljóða
þannig:
„Við undirritaðir íbúar á Flat-
eyri mótmælum þeim gífurlega
háa raforkukostnaði sem er að
j Fjárhags- j
j áætlun |
S samþykkt S
I Fjárhagsáætlun fyrir ísa- I
I fjarðarkaupstað var sam- J
| þykkt aðfaranótt föstudags !
| í síðustu viku. Miklar um- |
I ræður urðu um áætlunina |
| og skoðanir skiptar um |
| hvernig best væri að laga |
| fjárhagsstöðu bæjarsjóðs. I
I Á bls. 7 er getið helstu I
I niðurstaða áætlunarinnar I
I og rætt við fulltrúa meiri- I
J og minnihluta.
sliga alla, þrátt fyrir þá ófullnægj-
andi lækkun sem gildi tók um
síðustu mánaðamót. Bendum við
á þá byggðaröskun sem óbreytt
ástand hlýtur að hafa í för með
sér verði ekki gripið til róttækrar
lækkunar á raforkuverði. Ekki
teljum við að lán til orkusparandi
aðgerða leysi vandann, heldur sé
eina raunhæfa lausnin að lækka
raforkuverð til húsahitunar veru-
lega. Skorum við því á Alþingi og
rikisstjórn að lagfæra þetta mis-
rétti sem fyrst og standa við áður
gefin fyrirheit.
Undirskriftasöfnun á Flateyri:
Hátt raforkuverð heíur í
för með sér byggðaröskun
Tilrauna-
akstur í vor
Á nýsamþykktri fjárhagsá-
ætlun er 200 þúsund krónum
veitt til tilraunaaksturs milli
byggðakjarnanna. Verður reynt
að framkvæma þennan akstur í
aprfl-maí, að sögn Reynis Ad-
olfssonar formanns bæjarráðs.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að margir eiga oft í erfið-
leikum með að komast milli
bæjarhluta. og gildir það kannski
helst um börn og unglinga. Þann-
ig verður vart ekið inn í fjörð án
þess að mætt sé nokkrum putta-
lingum á leiðinni. Með tilrauna-
akstrinum er ætlunin að kanna
hvernig best megi leysa þetta
samgönguvandamál í framtíðinni.
Tilraunin mun standa yfir í 2 — 3
mán.. en síðan verða gerðar til-
lögur um framtíðarskipan þessara
mála í bæjarfélaginu.
j Slæmt
j samband
j við um-
j heimiim
2 Þrumuveður er talin
■ hugsanleg ástæða þess að
1 tækjahús Pósts og síma
2 við norðanverðan Arnar-
! fjörð brann á föstudags-
■ morguninn. Á þessum
I slóðum urðu menn varir
I við þrumur og eldingar
I bæði á fimmtudagskvöld
j og föstudagsmorgun. Ekki
I mundi Erling Sörensen,
1 umdæmisstjóri Pósts og
2 síma, eftir að svona tækja-
I hús hefði brunnið áður, en
I þau eru víða um Vestfirði.
| Viðgerðarmenn komust
I ekki á staðinn fyrr en um
1 kl. 6.30 á mánudagsmorg-
j un. Til stóð að fljúga vest-
! ur á laugardaginn, en
2 unnið hafði verið alla nótt-
* ina að undirbúningi. Ófært
■ var hins vegar 'a laugar-
I daginn og var þá brugðið á
I það ráð að fljúga frá
I Reykjavík til Stykkishólms
1 og taka síðan flóabátinn
2 Baldur þaðan. Hann flutti
2 síðan menn og búnað alla
■ leið í Arnarfjörð. Síðan var
I unnið báöum megin fjarð-
I arins að því að koma upp
I radíósímasambandi yfir
1 fjörðinn, en slíkt samband
2 átti ekki að setja upp fyrr
2 en í vor. Fyrir velvilja
■ bóndans á Auðkúlu fengu
I símamenn að nota verk-
| færaskemmu hans tll
1 bráðabirgða, þannig að
2 ekki þarf að byggja nýtt
J tækjahús fyrr en í vor, og
■ munaði það miklu að sögn
I Erlings Sörensen. Sjá nán-
I arábls. 2.
—Jl