Vestfirska fréttablaðið - 16.02.1984, Page 8
Arsþing IBI í næstu viku
Ársþing íþróttabandalags ís-
firöinga verður haldið á Hótel
ísafirði í næstu viku og verður
þar kosin ný stjórn og nýr
formaður. Fráfarandi formaður
er Tryggvi Guðmundsson, lög-
fræðingur.
ÍBÍ samanstendur af átta fé-
lögum og er nokkurs konar
samnefnari fyrir þau. Hlutverk
þess er einkum að sjá um hina
formlegu hlið íþróttastarfsins,
s.s. að sækja ráðstefnur og
þing, og veita styrk bæjarins við-
töku og deila honum á milli
félaga og sérráða, en þar fer
hið eiginlega íþróttastarf fram.
ÍBÍ verður 40 ára á næstunni
og af því tilefni er fyrirhugað að
halda afmælismót í sem flestum
greinum, að sögn Tryggva
Guðmundssonar.
vestíirska 1
mETTABLAÐID
'1
I
Skólanefiid Grunnskóla Isafjarðar:
Leggur tíl að gnumskólamir á ísafirði verði sameinaðir
Skólanefnd Grunnskóla ísa-
fjarðar hefur skilað inn álits-
gerð varðandi húsnæðismál og
framtíðarskipan Grunnskólans
á ísafirði. Tillögur nefndarinnar
hafa vakið mikla athygli því
þær gera ráð fyrir að allt nám á
grunnskólastigi, 1. — 9. bekk-
ur ásamt forskóladeild, fari
fram á Eyrinni, þ.e. í því hús-
næði sem þar er fyrir hendi
ásamt nauðsynlegum viðbót-
um. Þá er mælt með einni yfir-
stjórn. í þessu sambandi legg-
ur nefndin til að kannað verði
viðhorf Hnífsdælinga til þess
að Barnaskólinn í Hnífsdal
verði lagður niður.
I álitsgerðinni segir að kostir
sameiningar skólanna undir eina
yfirstjórn séu fleiri en ókostir.
Nefnd eru m.a. eftirtalin atriði:
— Öll skipulagsmál varðandi
húsnæði og vinnutíma skólabarna
ættu að batna
— Fyllsta samræmis yröi gætt í
náminu. bæði innan hvers nárns-
árs. svo og frá fyrsta námsári til
hins síðasta.
— Betra skipulag næðist við gerð
stundaskrár.
— Skólatími yrði samfelldari.
— Meiri nýting fengist í fag- og
sérkennslu.
— Skólatiminn yrði jafnlangur
hjá öllum nemendum. þ.e. 9 mán.
— í húsrýmisáætlun Péturs
Bjarnasonar. fræðslustjóra (sem
fylgir álitsgerðinni) kemur greini-
lega í Ijós að mun hagkvæmari
nýting fæst á skólahúsnæðinu við
sameiningu. ekki hvað sist ef unn-
ið væri að því að allir skólarnir
þrir nytu þess lágmarkshúsnæðis
og aðstöðu. sem fyrir er mælt í
normum um húsnæðisþörf
grunnskóla.
Má leiða getum að
því að það sem sparaðist fjárhags-
lega i að fullnægja kröfum
þriggja eininga kæmi einni stærri
einingu til góða í betri útbúnaði
og aðstöðu.
Ennfremur segir í álitsgerðinni
að með sameiningu skólanna
megi ætla að starfsaðstaða kenn-
ara gjörbreytist. Þannig ættu nt.a.
geymslu- og vinnurými kennara
að aukast við endurskipulagningu
húsnæðisins.
Jafnframt fengjust
fagkennslustofur og skólabóka-
safn. Þá segir að gera megi ráð
fyrir að breytingar verði til hins
betra varðandi skrifstofuhald
skólanna. þ.e. að ráðinn verði
skólaritari. sem auk almennra
skrifstofustarfa við skýrslugerð
o.þ.h. aðstoðaði kennara við vél-
ritun og frágang verkefna, svo og
tækjavörslu.
í niðurlagi álitsgerðarinnar seg-
ir síðan orðrétt:
,.Er ekki að efa að bætt skipu-
lag skólahalds á ísafirði undir
einni yfirstjórn með auknu og
endurbættu húsnæöi hlýtur að
koma nemendum Grunnskólans
á Isafirði til góða. en sú niður- I
staða vegur þyngst á vogarskálun- J
um. hvað varðar þá ákvörðun J
skólanefndar. er fram kemur í
tillögunni."
Áiitsgerðin verður nú send
skólastjórum til umsagnar og síð-
an á hún eftir að fara í gegnum
bæjarstjórn.
Saga ísafjarðar:
Stefiit að útgáfii fyrsta bíndis í haust
Skíði:
Atli Einars-
son vann
Grænagarðs-
bikarinn
Laugardaginn 4. febrúar s.l.
var keppt um Grænagarðsbik-
arinn. Keppnin fór fram á
Seljalandsdal og voru skráðir
keppendur 9, og luku allir
keppni. Brautir lagði Hovard
Saude, hinn norski skíðaþjálf-
ari, og voru hlið 45.
Úrslit urðu þessi:
1. Atli Einarsson 1.3I.82
2. Einar V. Kristjánsson 1.33.50
3. Rúnar Jónatansson 1.35.75
4. Guðjón Ólafsson 1.35.80
5. Arnór Magnússon 1.36.81
6. Árni Sigurðsson 1.4I.82
7. Samúel Gústafsson 1.43.64
8. Sigrún Grímsdóttir l.46.14
9. Þorlákur Baxter * 1.49.73
Jón Þ. Þór, sagnfræðingur,
hefur nú í nokkur ár unnið að
ritun sögu ísafjarðar á veg-
um Sögufélags ísfirðinga, en
kostnað bæjarsjóðs. Fyrsta
bindi er nú tilbúið til prentunar
og er stefnt að útgáfu þess fyrir
næstu jól. Fróðir menn telja að
rit þetta verði mikill fengur,
ekki bara fyrir ísfirðinga, held-
ur einnig fyrir sagnfræðina.
Þetta fyrsta bindi. sem verður
um 400 bls. að lengd. fjallar um
tímabilið frá landnámi til I866.
Þar verður m.a. að finna ná-
kvæma örnefnaskrá með korti af
sögusviðinu. Einnig er ætlunin að
hafa þar kort af fiskimiðum í
Djúpinu. Jón Páll Halldórsson.
formaður sögufélagsins. taldi að
hér hefði verðmætum fróðleik
verið bjargað á síðustu stundu.
þar sem hann hefði verið að
hverfa yfir móðuna miklu í
farangri gamalla manna.
Þá er í ritinu fjallað um land-
nám í Skutulsfirði, Eyrarhrepp á
fyrri öldum, Eyrarhrepp á 18. öld.
verslun á eyrinni fyrir og á einok-
unaröld og frá I787 tii 1816. og
síðan um ísafjörð sem löggiltan
verslunarstað 1816 — 1866. Þá er
rakin fólksfjölda- og byggðaþró-
un. fjallað er um fyrsta landnáms-
manninn og upphaf þéttbýlis-
myndunar. Nokkurra frægustu
klerka á Eyri er getið og fyrstu
lögboðnu bæjarstjórnarkosning-
unum er lýst. Aftast er síðan
heimildaskrá.
Að sögn Jóns Páls er i ritinu að
finna töluvert af nýjum upplýs-
ingum. Til dæmis varpar höfund-
ur ljósi á það af hverju ísafjörður
glataði kaupstaðarréttindum sín-
um, en skýringar á því hafa hing-
að til verið byggðar á getsökum.
Annað bindi er þegar komið á
rékspöl, en gert er ráð fyrir að
minnsta kosti þremur bindum.
Af annarri starfsemi Sögufélags
ísfirðinga er það að segja, að
Ársrit þess verður tilbúið til dreif-
Vegagerðin skrifar bréf
til bæjarstjómar:
Vilja taka
frá pláss fyrir
hugsanlegan
göngu- og
hjólreiðastíg
Gísli Eiríksson, umdæmis-
verkfræðingur Vegagerðar rík-
isins á ísafirði, hefur sent bæj-
arstjórn bréf varðandi gang-
stíg/hjólreiðastíg meðfram
Skutulsfjarðarbraut. Um á-
stæður skrifanna sagði Gísli í
samtali við blaðið að þeir hjá
Vegagerðinni hefðu viljað
tryggja að í skipulagi yrði gert
ráð fyrir plássi undir hugsan-
legan göngu- og hjólreiðastíg
þarna. „Menn eru á góðri leið
með að eyðileggja þann mögu-
leika,“ sagði Gfsli og nefndi að
samkvæmt upphaflegum áætl-
unum í sambandi við nýúthlut-
aðar lóðir á Stakkanesi hefði
verið girt fyrir þennan mögu-
leika. „Það eru engin plön uppi
um að gera þetta,“ sagði Gísli,
„við vildum bara sjá til þess að
þessum möguleika væri haldið
opnum.“
Hann sagði að enn vantaði
greinargerð með aðalskipulagi
kaupstaðarins og þar væri
sjálfsagt að taka fram hve
breitt svæði svona vegur ætth
„Þetta er fyrst og fremst skipu-
lagsmál," sagði Gísli.
ingar í mánuðinum. I því verður
m.a. að finna grein um Sögufél-
agið 30 ára og um byggð í Ögur-
nesi og Ögurvík. Ennfremur er
fjallað um Vatnsveitufélag Flat-
eyringa og Friðrik Axel Axelsson,
forföður~Helga bakara og Arn-
gríms Fr. Bjarnasonar. Þá er þar
grein um Eimskipafélag Vest-
fjarða og tveir þættir úr sögu
Súgandafjarðar.
i
f
PENINGALYKTIN
KOMINTIL
BOLUNGARVÍKUR
( gærmorgun voru fjórir
loðnubátar komnir til Bolung-
arvíkur með samtals 2.900
tonn af loðnu og þróarrými
nokkurn veginn orðið fullt.
Penlngalyktin mun því vera
farin að kltla þefkirtla þeirra
Bolvíklnga, og víst má telja
að hún veit á gott.
Elín Þorbjarnardóttir er
enn biluð og hefur viðgerð
tekið mikið lengri tíma en bú-
ist var við. ( gærmorgun fór
hún til Bolungarvíkur til frek-
ari viðgerðar. — Vegna þessa
hefur lítill afli borist á land og
kláraðist allt hráefnl í lok síð-
ustu viku. Það hefur því engin
vinna verið hjá Fiskiðjunni
Freyju það sem af er viku, en
þó var búist við að einn
vinnudagur næðist í vikunni,
því línubátar hafa verið að
róa. Á þriðjudaginn var fólki
sagt upp kauptryggingunni.
Afli línubáta hefur verið
þokkalegur, en gæftaleysi
háð þeim. Okkur er sagt að
rækjuveiðar í Djúpinu hafi
gengið frekar treglega.
Og þá er að segja af togur-
unum.
BESSI landaði um 60 tonnum
á þriðjudag.
GUÐBJARTUR kom með 55
tonn af þorski í gær eftir viku-
veiðar.
PÁLL PÁLSSON kom með
100 tonn í gær.
JÚLÍUS GEIRMUNDSSON
landar í dag 65 tonnum.
GUÐBJÖRG er á veiðum.
DAGRUN og HEIÐRÚN hafa
einnig verið viku á veiðum og
voru væntanlegar tll hafnar
nú seinnipart viku.
ELfN ÞORBJARNARDÓTTIR
er í Bolungarvík til viðgerðar
einsog áður greindi.
GYLLIR landaði um 70 tonn-
um í vikunni og var obbinn af
því þorskur.
FRAMNES I. er á veiðum.
SLÉTTANES landaði í gær 60
tonnum af þorski.
Vegna símasambandsleys-
is tókst okkur ekki að afla
frétta frá suðurfjörðunum, og
verður það að bíða næsta
blaðs.
BILALEIGA
Ncsvegi 5 — Siiöavík — 94-6972-6932
(ircnsásvegi 77 — Kevkjavík — 91 -37688
Sendum bflinn
Opió allan sólarhringinn