Vestfirska fréttablaðið - 07.06.1984, Blaðsíða 1
Kynning föstudag frá kl. 16:00—18:00
PRÉTl L : fABLAi DIS
' ' ' Alla leid með EIMSKIP Sími 3126 i'; ;i *
á London lambi og K grænum baunum
Kynningarafsláttur
Sinarffuðfctwsson
Qími 7200 - lfl$ Sol untjalOík
I Ér framhaidsfíugið ieyfiiegt? I
Arnarflugmenn efast, en Hörður Guðmundsson telur sér heimilt að fljúga með farþega á Vestfirðina
Sumaráætlun Arnarflugs
gekk í gildi 15. maí s.l. og
stendur til 15. sept. Ekki er um
miklar breytingar frá í fyrra að
ræða, nema ferðum til Flat-
eyrar/ Suðureyrar er fækkað
um eina. Flogið verður mið-
vikudaga, föstudaga og sunnu-
daga, en mánudagsferðir felld-
ar niður vegna lélegrar nýt-
ingar.
Til Bíldudals verður flogið á
þriðjudögum, fimmtudögum
og föstudögum og á Hólmavík
og Gjögur á mánudögum og
fimmtudögum.
Til flugs á þessa staði notar
Arnarflug Twin Otter og
Cessnu 402.
Örn Helgason, deildarstjóri
innanlandsflugs, tjáði blaðinu
að flugið í vetur hefði gengið
vel, 12% aukning hefði orðið í
farþegaflutningum fyrstu
fjóra mánuði ársins. þannig að
þeir væru búnir að vinna upp
þá fækkun sem varð í fyrra frá
árinu þar á undan. Öm sagðist
þakka þetta betra tíðarfari, ó-
verulegum hækkunum á far-
gjöldum og helgarpökkum
sem þeir Arnarflugsmenn
seldu nú í fyrsta skipti til
Reykjavíkur.
Örn var spurður hvort þeir
Arnarflugsmenn hefðu þá
nokkur áform uppi um að
draga úr þjónustu við Vest-
firðinga á næstunni:
„Nei, ég held að það sé ekki.
En um það er þó ómögulegt að
segja fyrr en kemur í ljós
hvernig árið kemur út í heild-
ina.“
— Nú hafa Flugleiðir í
samvinnu við Flugfélagið
Ernir hafið framhaldsflug á
suðurfirðina, hvaða augum
lítið þið það?
„Vissulega teljum við þetta
hafa áhrif á okkar flug og veita
okkur samkeppni. Við erum í
sjálfu sér óhressir með þetta
því Flugleiðir gera þetta án
þess að hafa leyfi til þess að
því er ég best veit. Þeir hafa
ekki neitt áætlunarleyfi frá
ísafirði til Flateyrar, Suður-
eyrar og Bíldudals, þannig að
þeir hafa raunverulega enga
heimild til að flytja þarna far-
þega á milli.“
— En Flugfélagið Ernir?
„Nei, ekki heldur. Þeir hafa
samning við Póst og síma um
að flytja póst á þessari leið, en
ekki farþega.“
— Hafið þið hugsað ykkur
að kæra þetta?
„Við höfum lagt inn fyrir-
spurn til ráðuneytisins um
þetta. Henni hefur ekki verið
svarað ennþá, en það verður
væntanlega gert. Hins vegar
erum við hlynntir bættum
samgöngum aíls staðar, en þá
er eðlilegast að réttar leiðir séu
farnar.“
Öm taldi framhaldsflugið
ekki hafa dregið marga far-
þega frá þeim enn sem komið
væri.
FULLKOMLEGA
LÖGLEGT
„Það er þeirra túlkun, við
erum búnir að fljúga á þessum
leiðum í 15 ár og alltaf flutt
farþega með,“ sagði Hörður
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélagsins Ernis,
þegar við bárum ummæli Arnar
Helgasonar undir hann.
„Við þurfum ekki flugfélag
suður í Reykjavík til að segja
okkur hvert við eigum að
fljúga,“ sagði Hörður og kvað
það tekið fram í samningum að
þeim væri heimilt að nýta allt
afgangsrými í vélunum. „Við
erum með fulla heimild til þess
að fljúga á þessa staði.“
Sumarið dunar
Anna
Áslaug
með
tónleika
Anna Áslaug Ragnarsdóttir,
sem búsett er í Miinchen, er nú á
tónleikaferð um Vestfirði. í
kvöld kl. 21:00 mun hún gleðja
Flateyringa með leik sínum og
kl. 17:00 á mánudag, annan í
Hvítasunnu, mætir hún til leiks
á Patreksfirði, en þar hefur hún
ekki spilað síðan hún lék undir
með Karlakór fsafjarðar fyrir
margt löngu, þá barn að aldri.
Á fjölbreyttri efnisskránni eru
m.a. lög eftir Scarlatti, Haydn,
Chopin og Sonata Pathétique
eftir Beethoven.
Anna Áslaug mun síðan leika
fyrir ísfirðinga og Bolvíkinga og
verður nánar sagt frá því síðar.
Sól glóði um höf og lönd á
þriðjudaginn, svo engin bömd
héldu blaðamönnum Vf innan-
dyra daglangt. Myndavélin var
þrifin og tærnar eltar útundir
hafbláan himin. Það var líf og
fjör í bænum, enda engin þörf að
kvarta þegar sólin skín, nema
maður þurfi að vera inni. Uppá
sjúkrahústúni var léttklætt fólk
að snyrta og hreinsa, og auðvit-
að gat myndavélin ekki á sér
setið. Vonandi verður sólin jafn
frökk að skína oftar í sumar.
Hótel Isafjörður:
Auglyst
sem
Eddu-
hótel
í sumar
Stjórn Hótels fsafjarðar hf.
er nú að ganga frá samningi við
Ferðaskrifstofu ríkisins um
rekstur hótelsins til áramóta.
Enda þótt Ferðaskrifstofan hafi
nú um skeið annast reksturinn
hefur ekki verið gerður um hann
bindandi samningur fyrr en nú.
í þessum samningi felst m.a.
að hótelið verður auglýst sem
Eddu-hótel í sumar og kvaðst
Gestur Halldórsson, stjórnar-
formaður hótelsins, telja það
mjög jákvætt að komast inn í þá
auglýsingaherferð. Vonuðust
þeir til að þetta skilaði sér í
auknum straumi gesta.
Gestur sagðist telja rétt að
semja svona við FR og koma
rekstrinum þannig í fastar
skorður meðan unnið væri að
lausn á fjárhagsvanda hótelsins.
Af þeim vettvangi er það helst
tíðinda að stjórninni hefur bor-
ist bréf frá Ferðamálasjóði þar
sem hann lýsir sig reiðubúinn til
að verða við málaleitan stjórn-
arinnar, gegn vissum skilyrðum.
Málið er á viðkvæmu stigi og
því þykir ekki rétt að tíunda þau
skilyrði hér, en þingmenn kjör-
dæmisins munu á næstunni
verða boðaðir til viðræðna um
málið.