Vestfirska fréttablaðið - 30.08.1984, Síða 8
fsfirsku fótboltastrákamir Garðinum á laugardaginn með
unnu frækilegan sigur á Vfði úr þremur mörkum gegn engu og
Hart barist um boltann við mark Víðis.
hafa nú skorað 10 mörk gegn
engu í tveim leikjum. Það munar
nú um minna.
Nú eru ísfirðingar komnir í
baráttu um fyrstu deildar sæti
og mega ekki slaka á, í þeim
leikjum sem eftir eru. Næsti
leikur er gegn Einherja fyrir
austan.
Þau mistök urðu í síðasta
blaði að sagt var að Guðmund-
ur Jóhannson hefði skorað
þrennu. Hið rétta er að það var
nafni hans Magnússon sem
gerði þrjú mörk og er hér með
beðist velvirðingar á þessum
mistökum.
vestfirska
FRETTABLADIÐ
Bridgefélag ísafjarðar
— 20 ára afmælismót
Um þessar mundir á Bridge-
félag ísafjarðar 20 ára afmæli. f
tilefni af þvi verður haldið af-
mælismót í tvímenningi (baro-
meter) dagana 15. og 16. sept-
ember. Vegleg peningaverðlaun
verða veitt auk verðlaunagripa.
Islandsmeistarar í tvímenn-
ingi þeir Jón Baldursson og
Hörður Blöndal hafa þegið boð
um þátttöku í mótinu og einnig
er búist við þátttöku annarra
toppspilara að sunnan. Mótið er
öllum opið. Þátttaka tilkynnist
til Arnars G. Hinrikssonar í
•r
síma 4144 eða á skrifstofu
Bridgesambands íslands í síma
91-18350 fyrir 10. sept. n.k.
Vetrarstarf Bridgefélagsins
hefst með tvímenningi fimmtu-
daginn 6. september klukkan
20:00 í Vinnuveri.
' íestfirska J
m ÍLÍ
hefur
heyrt
AÐ Súgfirðingar hafi sótt um
leyfi og styrk til smokk-
fiskveiða með flottrolli á
ísafjarðardjúpi. Margir
óttast að það geti haft í
för með sér stórfellt
seiðadráp.
AÐ það hafi vakið furðu ým-
issa manna hér í bæ
hvað úrvalið í „ríkinu“ er
lélegt. Einhverjum hefur
nú dottið í hug að tengja
þetta tillögum 19 manna
stjórnskipaðrar nefndar
sem fræg er orðin. Sú
nefnd átti að fjalla um á-
fengisvandann og mið-
uðu tillögur hennar að
því að torvelda mönnum
að ná í áfengi. Það getur
jú verið torvelt fyrir marga
að ná í sína sort í „ríkinu"
á Isafirði.
AÐ það sé búið að vera ákaf-
lega erfitt fyrir settan
fræðslustjóra að fá þak
yfir höfuðið hér á ísafirði.
Til stóð að fjármálaráðu-
neytið hlypi undir bagga
og keypti hús, en þegar
til átti að taka, kom í Ijós
að þeir vildu bara kaupa
hálft hús. Ekki vildi ég
búa í hálfu húsi.
Smokkfiskveiðarnar ganga
vel á Arnarfirði og víðar á
vesturfjörðunum en eru enn-
þá eitthvað tregari í Isa-
fjarðardjúpi.
Rækjutogarinn Hafþór
sem þrjár rjkjuvinnslur á
ísafirði gera út, á samkvæmt
nýjustu féttum að koma úr
slipp um 10. september. Um
það leyti verður Snorra
Sturlusvni skilað.
Enn skal á það minnst að
ekki er raunhæft að bera
saman aflatölur vegna þess
I____________________________
Kjördæmisþing Framsóknarflokksins:
Ratsjárstöð eða herstöð
Til nokkurra átaka kom á
kjördæmisþingi Framsóknar-
flokksins sem haldð var í Bol-
ungarvík um síðustu helgi. í
mótmælaskyni við fundarsköp,
gengu tveir fulltrúar og formenn
Framsóknarfélaga af þingi áður
en því var lokið, þeir Guðmund-
ur Jónas Krifstjánsson frá Flat-
eyri og Heiðar Guðbrandsson
frá Súðavík.
Á þinginu fluttu 11 fulltrúar
af 40, ályktun, þar sem lýst var
yfir andstöðu við byggingu rat-
sjávarstöðva á Vestfjörðum og
Norðausturlandi, og að staðið
yrði fast gegn slíkum áformum.
Fyrstur á mælendaskrá eftir að
þessi ályktun var flutt, var
Steingrímur Hermannsson for-
maður flokksins. Hann kom
fram með breytingatillögu þess
efnis, að í stað orðsins ratsjár-
stöðvar kæmi orðið herstöðvar.
„Þetta var ansi mikil breyting
á tillögu okkar, því það hlýtur
nú að verða töluverður munur á
ratsjárstöð og herstöð. I raun
var þarna bara um að ræða nýja
tillögu,“ sagði Guðmundur
Jónas Kristjánsson í samtali við
Vf. — „Við óskuðum því eftir
báðar tillögurnar yrðu bornar
fram, en það var ekki orðið við
þeirri ósk af fundarstjóra. Þegar
atkvæðagreiðslu um breytinga-
tillöguna var lokið, þá andmælti
Heiðar Guðbrandsson þessum
fundarsköpum og í mótmæla-
skyni gengum við af fundi,“
sagði Guðmundur Jónas.
Að sögn Benedikts Kristjáns-
sonar, fundarstjóra þingsins
voru öll fundarsköp höfð í
heiðri á fundinum. „Breyting-
artillaga Steingríms var sam-
þykkt með meirihluta atkvæða,
en eftir það vildi engin vera
flutningsmaður að aðaltillög-
unni og því var hún dregin til
baka,“ sagði Benedikt.
Pétur Geir Helgason:
Óheimilt að koma með lausan fisk
Það virðist vera nokkur brögð
að því að skip komi í land með
lausan fisk sem kallað er þ.e.a.s.
fisk sem ekki er í kössum eða
stíum sem samþykktar hafa ver-
ið af Ríkismati. Vf. hafði sam-
band við Pétur Geir Helgason
yfirfiskmatsmann á Vestfjörð-
um og spurði hvort það væri
heimilt að koma með þennan
fisk að landi.
„Það er óheimilt að koma
með lausan fisk sem kallað er.
Fisk sem ekki er í kössum eða
stíum sem samþykktar hafa
að sumir togarar fá að fiska
óheft eða því sem næst með-
an aðrir eru kallaðir inn þeg-
ar þeir hafa fengið tiltekið
magn sem þeim hefur verið
skammtað.
BESSI kom inn á manudag-
inn með 130 tonn af þorski.
GUÐBJARTUR kom inn á
laugardag til að gefa áhöfn-
inni helgarfrí. Aflinn var 45
tonn af þorski.
PÁLL PÁLSSON er á veið-
um og er væntanlegur inn um
helgina.
JÚLÍUS GEIRMUNDS-
SON landaði 87 tonnum af
þorski á manudaginn.
GUÐBJÖRG er á veiðum í
sínum fyrsta túr eftir sigling-
una.
HEIÐRÚN kom með 105—
110 tonn af þorski á mánu-
daginn.
— Kærurnar veltast í dómskerfinu
verið af ríkismati. Það er
reglugerðarbrot.“
—Hvað er gert við slíkum
reglugerðarbrotum?
„Menn hafa verið kærðir.
Flest ef ekki öll Vestfjarðaskip-
in hafa fengið á sig kærur á
liðnum árum og sum fleiri en
eina. Síðan veltist þetta í dóms-
kerfinu og ég hef ekki heyrt að
neitt hafi skeð svoleiðis að
maður er hættur að kæra þá
fyrir þetta.“
—En er einhver munur á því
að geyma fiskinn í stíum í lest
DAGRÚN er á veiðum. [
SÓLRÚN landaði í gær um (
30 tonnum af rækju. Helm- |
ingurinn af því var fullunnin I
útflutningsvara. [
ELÍN ÞORBJARNAR- |
DÓTTIR landaði á mánudag I
og þriðjudag 128 tonnum af J
þorski. |
FRAMNES I. landaði 113 I
tonnum af þorski á þriðju- [
daginn. .
SLÉTTANES er á veiðum. |
SÖLVI BJARNASON er á I
veiðum. J
TÁLKNFIRÐINGÚR kom á j
laugardaginn með 77 tonn og .
aftur í gær með tæp 100 tonn. |
SIGUREY landaði 175 I
tonnum á mánudaginn, af því [
voru 58 tonn af þorski.
SNORRISTURLUSON var I
með 23 tonn tæp, síðasta J
fimmtudag og er væntanlegur (
inn aftur á morgun. |
eða á millidekki ef sóma-
samlega er frá honum gengið?
„Þeir geta ekkert gengið
sómasamlega frá honum. Stíur
eru settar vegna þess að menn
öðluðust smátt og smátt þekk-
ingu á því að fiskurinn þyrfti að
vera í einhverjum hólfum til
þess að verja hann fyrir hnjaski
og þá um leið í ákveðinni þykkt,
þannig að það færi ekki yfir 60
sm. í lagi og sá útbúnaður er
ekki til á millidekkjum á þess-
um skipum. Þeir hafa verið með
þetta í bingjum, allt upp í einn
og hálfan til tvo metra á hæð. Sá
fiskur sem þeir hafa komið með
lausan hefur alltaf fallið miklu
verr í mati. Það er þjóðarhagur
að þessi vara komist óskemmd í
land og manni finnst þetta ó-
hæfileg græðgi að vera að ausa
upp meiru en frystihúsin geta
tekið á móti og meir en skipin
hafa ílát undir. Þetta er ekkert
nema græðgi og engum um að
kenna öðrum en skipstjórnar-
mönnum. Þegar skip koma með
svona lausan fisk og mikið berst
að landi, þá þarf að byrja að
vinna þennan lausa fisk og á
kostnað annars fisks sem þyrfti
að komast í vinnsluna fyrr, elsta
fisksins úr skipinu."
Konráð Jakobsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss-
ins í Hnífsdal sagði að þeir væru
ekki hrifnir af að fá ókassaðan
fisk í land til vinnslu í Hrað-
frystihúsinu. Ekki ef hann væri
umfram það sem eðlilegt gæti
talist.
Einar K. Guðfinnsson út-
gerðarstjóri hjá Einari Guð-
finnssyni hf. kannast ekki við að
það hafi gerst í seinni tíð að
komið hafi verið í land með
lausan fisk öðruvísi en í stíum í
lest á togurunum Einars Guð-
finnssonar
Jón Páll Halldórsson í Norð-
urtanganum kannaðist ekki við
að neinar kærur hefðu komið
fram vegna lauss fisks úr Guð-
bjarti og sagði enda að engin
brögð hefðu verið að því að
Guðbjartur fiskaði meira en í
kassana.
Blaðið hafði samband við
Bjarna Elíasson hjá Fiskiðjunni
Freyju á Suðureyri. Hann
sagðist ekki kannast við neinar
kærur eða að þeirra skip kæmu
með lausan fisk að landi.
Ásgeir Guðbjartsson skip-
s'tjóri á Guðbjörgu IS 46 sagði
að það hefði hent að þeir kæmu
með lausan fisk að landi, en
taldi að hann félli í mati við
löndunina sjálfa en ekki fyrir
það að illa væri farið með hann
um borð.
ÐILALEIGA
Nesvegi 5 — Súöavík — 94-6972-6932
Grensásvegi 77 — Reykjavík — 91-37688
Sendum bílinn
Opið allan sólarhringinn