Vestfirska fréttablaðið - 17.01.1985, Side 1
2. tbl. 11. árg.
vestfirska
17. jan. 1985
FRÉTTABLAi
Alla le,| Sími 3126 *
15tegundir
af fallegum
ungbarna
skóm
Stæröir frá 17 til 27.
oinarQuhfjinnsson k ý
£ími 7200 - IflS Sol untja’iOílz
Hlöðuþak fauk burt í heilu lagi
— í rokinu á laugardaginn
Á laugardaginn gekk mikið
hvassviðri yfir ísafjörð og
mældist vindhraðinn um og yfir
12 vindstig í verstu hviðunum.
Nokkurt tjón varð af völdum
veðursins og þá sérstaklega í
Hnífsdal. Þar fauk þak af hlöðu
í heilu lagi og hluti þaksins
losnaði af Rækjuverksmiðjunni
hf.
Bragi Beinteinsson yfirlög-
regluþjónn sagðist hafa verið á
heimili sínu í Hnífsdal þegar
hann heyrði heljarmikinn há-
vaða og þegar hann leit út um
gluggann til að athuga hvort
hann sæi hvað ylli, sá hann hvar
þakið af einni hlöðunni á
Búðatúni þyrlaðist í heilu lagi
upp og út eftir hlíðinni og sagði
hann að það hefði farið upp
undir klettabelti. Nokkrir bílar
skemmdust þegar á þá fauk
ýmislegt lauslegt og skemmdist
a.m.k. einn mjög mikið. Ein-
hverjir óttuðust að flotbryggjan
í Sundahöfn myndi liðast sund-
ur í öllum látunum en hún stóð
það af sér í þetta skiptið.
Starfsmenn Rækjuverksmiðjunnar í Hnífsdal gera við þakið á verksmiðjunni.
Innanlandsfargjöld:
Flugleiðir bjóða 40% lækkun með Apex
Flugleiðir bjóða fram Apex
fargjöld á innanlandsleiðum, frá
og með föstudeginum 12. jan-
úar. Afsláttur frá venjulegu far-
gjaldi er 40%. Apex fargjald
verður þó ekki í gildi til og frá
Akureyri, heldur mun Hopp-far-
Eldur kom upp í togaranum
I Heiðrúnu frá Bolungarvík á
1 þriðjudaginn klukkan 15:30.
2 Eldurinn var í skorsteins-
| húsinu og tókst skipverjum að
■ ráða niðurlögum hans á u.þ.b.
2 einni klukkustund.
Skipið var á leið til Njarð-
I víkur í skoðun, en því var
■ snúið aftur til Bolungarvíkur
L______________________________
gjald verða áfram í boði á flug-
leiðinni milli Akureyrar og
Reykjavíkur.
Ámi Sigurðsson sölustjóri
innanlandsflugs sagði í samtali
þegar eldurinn kom upp. Eitt-
hvað af varahlutum var í
skorsteinshúsinu og skemmd-
ust þeir í eldinum. Skipið
leggur aftur af stað til Njarð-
víkur á morgun þar sem það
verður tekið í slipp á mánu-
daginn og verður væntanlega
gert við skemmdir, af völdum
eldsins þar.
við Vf að Flugleiðir hefðu farið
útí það að bjóða lægri fargjöld á
flugleiðinni milli Akureyrar og
Reykjavíkur, þ.e. svokölluð
hoppfargjöld.'Ekki væri hægt
að koma því við á ýmsum leið-
um öðrum og hefði því verið á-
kveðið að bjóða Apex-fargjöld
til reynslu og gefa þannig öðr-
um kost á ódýrum flugferðum.
Reglur um Apex fargjöld eru
fáar og auðskildar. Sem fyrr
segir er afsláttur 40% af venju-
legu fram og til baka fargjaldi,
en ekki er hægt að kaupa Apex
miða aðra leið. Börn innan tólf
ára fá helmingsafslátt.
Bóka þarf far fram og til baka
og kaupa farseðil minnst sjö
dögum fyrir brottför. Gildistími
farseðils er 21 dagur frá upphafi
ferðar, en lágmarksdvöl er
fimm dagar. Hætti farþegi við
flugferð eða mætir ekki til flugs,
er heimilt að endurgreiða 50%
af andvirði farseðils. Ef veður
hamlar flugi þá ferð sem Apex
farseðill gildir í, má nota hann í
næsta flug eða fá hann endur-
greiddan að fullu. Hamli veður
J heimflugi, má nota næsta flug
eða fá 50% af andvirði farseðils
endurgreitt. Sætafjöldi er tak-
markaður.
Sem dæmi um verð má
nefna, að venjulegt fargjald frá
ísafirði fram og til baka er kr.
3.232.00, en Apex kostar kr.
1.939.00.
Apex fargjöld gilda til og frá
þessum stöðum á eftirtöldum
dögum og kosta eftirfarandi:
Egilsstaðir, fimmtudaga og
laugardaga kr. 2.773.00
Hornafjörður, mánudaga og
miðvikudaga kr. 2.445.00.
Húsavík, mánudaga og mið-
vikudaga kr. 2.352.00.
Patreksfjörður, mánudaga og
miðvikudaga kr. 1.877.00.
Sauðárkrókur, þriðjudaga og
sunnudaga kr. 1.866.00.
Vestmannaeyjar, miðvikudaga
og laugardaga kr. 1.349.00.
Isafjörður, þriðjudaga og laug-
ardaga kr. 1.939.00.
Þingeyri, mánudaga' kr. 1.856
.00.
Norðfjörður, laugardaga kr.
2.862.00.
Flugvallarskattur er ekki inni-
falinn í þessu verði.
Eldur um borð
í Heiðrúnu
Atvinnulíf
hér er of
einhæft
— segir Haraldur
L. Haraldsson
bæjarstjóri
Norður á Siglufirði hafa bæj-
aryfirvöld gert samning við
danskt ráðgjafafyrirtæki um að
það geri úttekt á atvinnulífi
bæjarins og möguleikum á að
stofna til einhvers smáiðnaðar
þar.
Fyrirtækinu er ætlað að skila
inn hugmyndum um einhvern
smáiðnað sem einstaklingar eða
félög gætu hagnýtt sér, væntan-
lega í samráði við bæjaryfirvöld
og danska ráðgjafafyrirtækið
sem heitir Scan key. Siglufjarð-
arbær greiðir fyrir þessa könn-
un eitthvað á milli 200 og 300
þúsund krónur, að sögn Óttars
Proppé, bæjarstjóra á Siglufirði.
í tilefni af ofansögðu hafði Vf
samband við Harald L.
Haraldsson bæjarstjóra á ísa-
firði og spurði hann um hans
álit á því hvort ísafjörður eða
önnur sveitarfélög hérna á
Vestfjörðum gætu farið inn á
svipaðar brautir við uppbygg-
ingu nýrra atvinnutækifæra.
„Mér finnst þetta mjög
athyglisvert,“ sagði Haraldur og
taldi að með því að koma upp
einhverri framleiðslu á neyslu-
vörum hér í stað þess að flytja
þær frá Reykjavík mætti ná
Haraldur L. Haraldsson.
niður vöruverði með því að
losna við eitthvað af þeim
flutningskostnaði sem er býsna
stór þáttur í vöruverði hér á
Vestfjörðum. Einnig væri það
mjög mikilvægt að auka fjöl-
breytni í atvinnulífi hér. Har-
aldur kvaðst ætla að fylgjast
með því hver útkoman yrði í
könnun Scan key á Siglufirði og
sagðist vera áhugasamur um að
þessi mál yrðu athuguð hér fyrir
vestan, enda væru það ekki
miklir peningar sem þetta kost-
aði.