Vestfirska fréttablaðið - 14.03.1985, Blaðsíða 1
10. tbl. 11. árg.
vestfirska
14. mars 1985
FRETTABLASID
BACON
í heilu og hálfu . . .
niðursneitt .
kr. 120,00 pr. kg.
kr. 150,00 pr. kg.
3 kg. í poka.................kr. 160,00
Þetta frábæra tilboð stendur
aðeins út þessa viku
Sinarffuðfjinnsson
gími 7200 - ///5 Sol uvujaioík
Verður einn sameinaðurgrunnskóli á ísafirði?
— Nefnd til að gera endanlegar tillögur að framtíðarskipulagi skólamála á ísafirði, hyggst leggja það til
Almennur borgarafundur var
haldinn í Hnífsdal síðastliðið
mánudagskvöld. Nefnd til að
gera endanlegar tillögur að
framtíðarskipulagi skólamála á
ísafirði boðaði til fundarins og
var fundarefnið að kynna
Hnífsdælingum störf nefndar-
innar og fá fram álit þeirra á
hugmyndum hennar.
í grunnskólamálum eru hug-
myndir nefndarinnar í sem
stystu máli þær að sameina
skuli alla grunnskóla á ísafirði
undir eina stjórn, fækka þannig
skólastjórum úr þremur í einn,
en áfram yrði rekið útibú í
Hnífsdal þar sem 3 til 4 yngstu
bekkirnir yrðu við nám. Það
sem nefndin telur vinnast við
þessar breytingar er að húsnæði
Geirþrúður Charlesdóttir.
skólanna muni nýtast mun bet-
ur og hægara yrði um vik með
samnýtingu á kennslukröftum
og búnaði. Eftir að Geirþrúður
Charlesdóttir formaður nefnd-
arinnar hafði kynnt áðurnefnd-
ar hugmyndir voru almennar
umræður og fyrirspurnir. I máli
allra þeirra íbúa í Hnífsdal sem
tóku til máls, kom fram hörð
andstaða við að flytja kennslu
þá sem nú fer fram í Hnífsdal,
eða hluta hennar, inn á ísafjörð.
Þeir vildu halda börnunum í
Hnífsdal og sleppa við skóla-
akstur, sem flestum virtist koma
saman um að væri slæmur
kostur. Meðal annars var
nefndin spurð að því hvað það
væri sem áynnist við það að
sameina skólana svona í stað
þess að halda sama skipulagi og
nú er við líði. Þuríður Péturs-
dóttir, annar tveggja bæjarfull-
trúa í nefndinni, sagði að það
væri fyrst og fremst spurning
um peninga sem því réði. Með
því að sameina skólana þyrfti
minna að kosta til þess að
byggja við skólana þannig að
nægilegt húsrými og aðstaða
fengist. Með því að nota viðmið
(norm) sem Menntamálaráðu-
neytið hefur gert, vantar, með
óbreyttu skipulagi skólamála á
ísafirði, 1500 ferm. við Barna-
skólann á ísafirði, rúma 500
ferm. við Barnaskólann í
Hnífsdal og 1000 ferm. við
Gagnfræðaskólann. Þó að
Barnaskólinn í Hnífsdal stæði
utan við þetta, sem hún sagðist
vel geta hugsað sér, þá vantaði |
2500 ferm. skólahús á Eyrinni. I
Ekki er pláss fyrir það hús á því *
svæði þar sem skólarnir standa |
en ef þeir yrðu sameinaðir I
þyrfti. með því að nota sömu I
viðmið, aðeins að bæta við um !
1700 ferm. kennsluhúsnæði og|
það væri mögulegt innan þessl
svæðis þar sem skólarnir eru nú. J
Fundurinn var vel sóttur, |
umræður miklar og fjörugar ogl
sagði Geirþrúður CharlesdóttirJ
í lokaorðum sínum að nefndin!
hefði haldið þennan fund til|
þess að kanna hug Hnífsdæl-I
inga og það yrði tekið fullt tillit!
til óska þeirra við gerð endan-|
legra tillagna nefndarinnar um I
framtíðarskipulag skólamála áj
ísafirði.
Stærsti straumur ársins var á
föstudaginn var. Á árdegisflóð-
inu bættist það við, að loft-
þrýstingur var með lægra móti
og stóð sjórinn því alveg
óvenjulega hátt. Ekki er kunn-
ugt um neinar skemmdir af
völdum flóðs, en víða flaut
drasl langt upp á land og var t.
d. Skipasmíðastöð Marsellíus-
ar alveg umflotin vatni.
Þessa mynd tók Halldór Svein-
björnsson af lóðsinum við
bryggju á föstudagsmorgun-
inn. Það stóð ekkert upp úr
nema pollarnir.
Hver á uppfyllingar
í Pollinum?
Lóðareigendur höfða mál gegn ísafjarðar-
kaupstað
Eigendur hússins að Hafnar-
stræti 11 á ísafirði hafa höfðað
mál gegn ísafjarðarkaupstað og
Kaupfélagi ísfirðinga vegna
lóðarréttinda við Hafnarstræti
11.
Tálknafjörður:
Viðbætur á
hafnar-
mannvirkjum
Málshöfðunin byggir á
gömlum lögum sem segja að
þeir sem eiga land að sjó eigi
jafnframt rétt til þess lands sem
kann með einhverju móti að
myndast þar framan við. í
málshöfðuninni er gerð krafa
um eignarrétt, 75 metra frá
gamla fjöruborðinu út í Pollinn.
Á þessu svæði er mikil uppfyll-
ing sem bæjarsjóður hefur látið
gera og úthlutað KÍ lóð þar á.
Vf hafði samband við Brynjólf
Gíslason, sveitarstjóra á
Tálknafirði og spurði hann
frétta.
Hann sagði fátt eitt að frétta,
það væri að komast vorhugur í
menn og ýmis áform á lofti t.d.
varðandi laxeldi en ekkert
formlegt gerst í þeim málum
enn. Á vegum hreppsins er fyr-
irhugað að steypa þekju á nýja
hafnargarðinn og setja upp
löndunarkrana. Einnig er verið
að hugleiða að setja upp
varmadælu við grunnskólann
til að nýta heita vatnið, en það
hefur þó ekki verið ákveðið.
Ráðstefna um æskulýðsmál
— á ísafirði dagana 22. og 23. mars
íþrótta- og æskulýðsráð ísa-
fjarðar, í samvinnu við Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga,
boðar til ráðstefnu á Hótel ísa-
firði dagana 22. — 23. mars n.k.
Markmið ráðstefnunnar er
að fjalla um æskulýðs- og
íþróttamál og að sveitarfélög á
Vestfjörðum sameinist um eitt
ákveðið markmið í tilefni Al-
þjóðaárs æskunnar, t.d. með því
að skipuleggja æskulýðsmót á
komandi sumri og einnig að
skiptast á skoðunum um æsku-
lýðsmál í fjórðunginum. Að
sögn Björns Helgasonar,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa á
ísafirði er með þessu verið að
reyna að koma á einhverju
sameiginlegu verkefni allra
þeirra sem að æskulýðsmálum
starfa í fjórðungnum. Á fund
þennan er boðið tveimur full-
trúum frá hverju sveitarfélagi á
Vestfjörðum og fulltrúum ým-
issa sérsambanda og félaga sem
starfa að æskulýðsmálum.,
Björn sagði einnig að stefnt
væri að því að senda æskufólk
frá ísafirði á vinabæjamót í
Joensu í Finnlandi í sumar.