Vestfirska fréttablaðið - 13.06.1985, Page 1
23. tbl. 11. árg.
vestfirska
13. |ún( 1985
FRETTABLASID
Farþegaþjónusta—Vöruþjónusta
Sumaráætlun, í viku hverri: ÆB0
16 ferðir til Reykjavíkur FLUGLEIÐIR
8 ferðir til Akureyrar Símar 3000 - 3400 - 3410
VORUMAÐ TAKA UPP
NÝJA SENDINGU
AFVÖRUM
Verslunin
ísafiröi sími 3103
Verkamannabústaðir:
Frávikstilboði Eiríks
og Einars Vals tekið
Bæjarstjórn fsafjarðar hefur
ákveðið að ganga tíl sanminga
við Eirik og Einar Val sf. um
byggingu 9 íbúða verkamanna-
biokkar að Fjarðarstrætí 55
(fyrir ofan íshúsfélagið). Tekið
var frávikstilboði fyrirtækisins
sem hljóðaði upp á 16.199.150
eða 87,8% af kostnaðaráætlun. í
frávikstilboði þessu var gert ráð
fyrir að milliveggir yrðu úr
tímbri i stað grjóts og svört
miðstöðvarrör yrðu notuð í stað
eirröra.
Meirihluti stjómar verka-
mannabústaða á ísafirði hafði
mælt með að tilboði Guð-
mundar Þorðarsonar yrði tekið,
en það var 88,4% af kostnaðar-
áætlun. Þegar máhð kom fyrir
bæjarstjóm var hins vegar vak-
in athygli á því að ekki hafði
Atvinnu-
tæki útvegs-
bóndans
—sýnd á
byggðasafni
Byggðasafnið á ísafirði var
opnað s.l. mánudag. Þar er
margt gimilegt að sjá og alls
ekki vitlaust að fara í leiðangur
þangað með fjölskylduna. Safn-
ið er tíl búsa á efstu hæð Sund-
hallarinnar við Austurveg og er
opið aila daga nema sunnudaga
frá kl. 14:00 tíl 16:00.
í einum hluta safnsins hefur
verið komið fyrir sýningu á at-
vinnutækjum útvegsbóndans.
Jón Sigurpálsson, safnvörður,
sagði þetta ekki vera tæmandi
sýningu, heldur væri stiklað á
stóm, nokkrir athyglisverðir
munir tíndir til. Hann sagði
safnið í raun ekki tilbúið til að
halda nema ófullkomnar sýn-
ingar, því þó nóg væri til af
munum vantaði að koma reglu
á þá svo hægt væri að ganga
beint að þeim. Jón var þeirrar
skoðunar að safnið ætti að gera
sem mest af því að vera með
svona sýningar og var með
hugmyndir að sýningu á göml-
um námsgögnum í haust þegar
skólamir fæm af stað. Kennar-
ar gætu þá hugsanlega farið í
leiðangur á safnið með nem-
endur. Þegar nálgaðist jól væri
síðan hægt að setja upp sýningu
verið tekin afstaða til frávikstil-
boðs Eiríks og Einars Vals, sem
í raun gerði tilbð þeirra lægst.
Var síðan samþykkt með 8 at-
kvæðum að ganga til samninga
við fyrirtækið. Kristján Jónas-
son sat hjá.
Sex tilboð bámst í verkið og
vom þrjú þeirra mjög áþekk.
Svo virðist sem verktakar hafi
ekki áttað sig á þeim möguleika
að gera sams konar frávikstil-
boð og Eiríkur og Einar Valur
við opnun tilboðanna, eins og
leyfilegt mun vera. Eftir það
mega þeir hins vegar ekki nýta
sér hugmyndir annarra.
Ekki er ljóst hvenær fram-
kvæmdir hefjast, en húsinu á að
skila fullfrágengnu í október
1986.
Þessi áhöld eru meðal þeirra at-
vinnutækja útvegsbóndans sem til
sýnis verða á Byggðasafni Vestfjarða
í sumar.
tengda þeim, sagði Jón og hélt
áfram að merkja munina á sýn-
ingunni um útvegsbóndann.
Trillukariar á ísafirði eru ó-
hressir. Á þá hefur verið sett
helgarveiðibann og svo vill eng-
inn hirða af þeim fiskinn. Þeir
hafa þvi orðið að landa afla sín-
um í gáma og selja erlendis.
Þessar aðstæður koma ekki ein-
ungis illa við pyngju margra
triliukarla, sem voru kannski
nýbúnir að fjárfesta í trillu,
heldur líka við sál þeirra, þvi
trillubátaútgerð ku vera ólækn-
andi ástríða sem menn verða að
fá útrásfyrir.
Svo sem kunnugt er hafa farið
fram jarðfræðiathuganir á berg-
lögunum í fjöllunum milli Skut-
ulsfjarðar, Súgandafjarðar, ön-
undarfjarðar og Bolungarvíkur.
Að sögn Gísla Eiríkssonar, um-
dæmisverkfræðings hjá Vega-
gerðinni, var hér mun ódýra
framkvæmd að ræða og tilgang-
urinn að fá eins skýra mynd af
berglögunum og hægt væri, svo
menn gætu farið að ræða þessi
mál af viti, Það þýddi lítíð að
benda á eitthvert fjall og segja:
„Hér skulum við gera göng.“
Sagði Gísli niðurstöður ekki
hafa komið mönnum á óvart og
væri það góðs viti.
Trillukarlar á ísafirði hafa nú
tekið sig saman og skrifað sjá-
varútvegsráðherra svohljóðandi
bréf:
Undirritaðir trillubátaeig-
endur á ísafirði mótmæla harð-
lega þeim veiðitakmörkunum
sem nú gilda á handfæraveið-
um og felast í helgarveiðibanni
frá kl. 24:00 á föstudegi til kl.
24:00 á sunnudegi. 1 fyrsta lagi
er slíkt bann algerlega óþarft,
þar sem handfæraveiðar trillu-
báta yfir blíðasta og besta sum-
Samkvæmt niðurstöðunum
er bergið mjög lagskipt en til-
tölulega reglulegt. Viss vanda-
mál fylgja slíkri lagskiptingu við
jarðgagnagerð, en ný vandamál
urðu menn lítið varir við.
Fyrir 15 — 20 árum voru
tekin kjamasýni úr berginu
beggja vegna Kinnarinnar í því
skyni að kanna möguleika á
jarðgöngunum þar. Niðurstað-
an úr þeim rannsóknum var sú,
að bergið væri of laust í sér
þannig að allt of dýrt yrði að
gera þar göng. Hefði líklega
þurft að fóðra þau að mestu.
Gísli sagði að berglögin þar
hefðu verið afar þunn, en þegar
artímann, geta ekki skipt sköp-
um í þeirri viðleitni stjómvalda
að hindra ofveiði á fiskistofnum
landsmanna. í öðru lagi, hindr-
ar helgarveiðibann sjósókn við-
komandi báta í mun meira mæli
en sem nemur þessum 2 dögum.
Þar sem fæstir eða engir bátar er
róa frá ísafirði landa daglega
vegna fjarlægðar við miðin,
nást ekki nema í mesta lagi 4
veiðidagar í viku hverri. Við
Framhald á bls. 2
komið væri neðar yrðu lögin
þykkri og í dag væru allar at-
huganir miðaðar við jarðgöng
undir 200 m hæð. Það þýddi
ekki að vera að fara með svona
göng hærra upp í loftið ef menn
væm að þessu á annað borð.
„Þama er að finna ákveðin
lög sem eru fremur laus í sér og
ljóst er að þau verður að forðast.
f fljótu bragði virðast vera
þama færar leiðir án stór-
vandamála. Samt þarf að fara í
gegnum nokkur lög og vandinn
er að fara á milli laga. Þetta
verður hins vegar aldrei gott
jarðgangnaberg.
Fyrst yrði farið til Súganda-
fjarðar og þaðan yfir í önund-
arfjörð. Ef það virðist mun
betra að fara á milli Súganda-
fjarðar og Bolungarvíkur held-
ur en Súgandafjarðar og Skut-
ulsfjarðar, þá er sjálfsagt að
gera það. Ef við hugsum okkur
leiðina fsafjörður — Flateyri þá
geta menn alveg eins farið
gegnum Bolungarvík eins og
Bolvíkingar gegnum fsafjörð.
Mér finnst þó langlíklegast að
farið yrði úr Tungudal yfir í
Súgandafjörð og þaðan yfir í
Önundarfjörð.
Það gæti orðið úr þessu fyrir
næstu aldamót. Nú þegar er
ákveðið að gera ein löng göng,
þ.e. gegnum Ólafsfjarðarmúla,
og verður byrjað á þeim
1988/1989. Framhaldið fer
mikið eftir því hvemig það
gengur.“
Á kortinu sjást þeir möguleikar sem koma til greina við gerð jarðganga á norðanverðum Vestfjörðum. Líklegast
er þó talið að farið verði úr Tungudal í Skutulsfirði yfír í Botn í Súgandafírði og þaðan yfír í Þverdal eða Langdal
í Önundarfírði.
Jarðgangnagerð virðist
vera möguleg
Trillukarlar óhressir
— Senda Halldóri bréf