Vestfirska fréttablaðið - 25.07.1985, Page 1
FRETTABLASIS
Farþegaþjónusta
Sumaráætlun, í viku hverri:
16 ferðir til Reykjavíkur
8 ferðir til Akureyrar
—Vöruþjónusta
FLUGLEIDIR
Símar 3000 - 3400 - 3410
ÚTSALA
Nú fer hver að verða síðastur !
Utsölunni lýkur á morgun
Verslunin t>öUO ísafirði sími 3103
Aldursflokkamótið í sundi:
Vestf irðingar höfðu yf irburði
— Bolvíkingar sigruðu, ísfirðingar í öðru sæti
Alagningarskrár lagðar fram
Það gleður mig
— sagði Heiðar Sigurðsson, gjaldhæsti
einstaklingurinn á Vestfjörðum
Það er óhætt að segja að Vest-
firðingar hafi borið höfuð og herðar
yfir keppinauta sína á aldurs-
flokkamótinu í sundi sem fram fór á
Akureyri um síðustu helgi. Þar
keppa 16 ára og yngri og báru Bol-
víkingar sigur úr býtum í annað
skipti í röð. Fengu þeir 178 stig, en
Vestri á Isafirði varð í öðru sæti
með 160 stig, 33 stigum á undan
næsta félagi, HSK. Flateyringar
létu heldur ekki sitt eftir liggja,
kræktu sér i 4 stig og 13. sætið.
Þetta er í fyrsta skipti sem þeir taka
þátt í móti sem þessu, þannig að
þetta er vel af sér vikið. Það er
annars til marks um yfirburði Vest-
firðinganna að samanlögð stig
Reykjavíkurliðanna hefðu aðeins
skilað þeim i 3. sætið.
Hannes Már Sigurðsson, 14 ára,
var drýgstur Bolvíkinganna, kom
heim með 6 gull og 1 silfur. Hannes
setti íslandsmet í einni greininni,
100 m flugsundi. Sjálfur átti hann
eldra metið.
Símon Þór Jónsson, Heiðrún
Guðmundsdóttir og Guðmundur
Amgrímsson unnu sína greinina
hvert. Margir aðrir Bolvíkingar
stóðu sig vel en hér er því miður
ekki rúm til að geta þeirra allra.
Ljóst er að Bolvíkingar voru vel að
sigrinum komnir.
Helsti keppinautur Bolvíking-
anna var Vestri á ísafirði og þegar
minnstu munaði skildu einungis 4
stig liðin að. Vestri kom heim með
8 gull og vann Ingólfur Arnarson 5
þeirra, Pálína Bjömsdóttir 1, Þur-
íður Pétursdóttir 1, og síðan gerðu
stúlkumar sér lítið fyrir og settu Is-
landsmet í 4 x 100 m fjórsundi. Þar
voru að verki Martha Jörundsdótt-
ir, Þuríður Pétursdóttir, Helga Sig-
urðardóttir og Sigurrós Helgadótt-
ir. Helga Martha, Sigurrós og
Pálína settu einnig Islandsmet í 4 x
100 m skriðsundi, en sú grein var
aukagrein á mótinu og gaf því ekki
stig.
Næsta mánuðinn fá sundkrakk-
„Það er alveg óhætt að segja það
um þann fisk sem hefur farið héðan
að slæm meðferð á honum hafi verið
undantekning frekar en regla,“
sagði Ólafur Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Isfangs á fsafirði í
tilefni framkominna efasemda um
gæði gámafisks. „Frá því í vor höf-
um við alltaf sent einangraða gáma.
Ýmist hafa það verið gámar frá
Eimskipi, einangraðir af þeim, eða
við höfum einangrað sjálfir. Við
höfum einfaldlega fengið einangr-
unarplast í Bolungarvík og klætt
gámana með því. Árangurinn af
þessu hefur orðið mjög góður. Söl-
urnar hjá okkur hafa verið jafnar og
góðar. Siðan í maf höfum við flutt
út um 180 gáma og aðeins f einum
þeirra hefur verið skemmdur fiskur.
Ég held að það teljist ekki hátt
hlutfall,“ sagði Ólafur.
„Það að mikill munur sé á
skemmdum fiski og góðum á
markaði í Bretlandi er 50 ára gam-
all sannleikur,“ sagði Ólafur. „Á-
stæðumar fyrir því að skemmdur
fiskur kemur á markað eru ósköp
augljósar líka. 1 sumum tilfellum er
fiskurinn orðinn of gamall þegar
hann fer af stað og kannski vanís-
aður. Veðráttan hefur líka talsvert
að segja. Og þegar eitt skip flytur
mikið magn á markað í sömu vik-
unni reyna sölumennirnir aö dreita
arnir frí frá æfingum, en í sept-
ember verður farið að synda af
fullum krafti á nýjan leik.
honum á vikuna, þannig að hann
verði ekki allur seldur sama dag-
inn, og þá bíður náttúrulega hluti
af fiskinum og slaknar. —
Það er alltaf að ske að menn fái
mismunandi verð á mörkuðunum.
En það vandamál verður ekki leyst
með nýjum reglugerðum. Ég er al-
veg sammála því sem fram hefur
komið hjá Guðjóni Kristjánssyni
og fleirum að fræðsla og leiðbein-
ingar séu miklu vænlegri leiðir til
árangurs heldur en enn ein
reglugerðarsmíðin," sagði Ólafur.
Ólafur sagði menn verða að gera
sér grein fyrir því að verið væri að
selja vöru á markaði sem væri mjög
háður framboði og eftirspum. „Þó
maður sé með góðan fisk er ekki
alltaf hægt að treysta því að fá gott
verð. Það getur verið offramboð á
markaðnum. Menn vita ekki alltaf
fyrirfram t.d. hve miklu breskir,
írskir og danskir bátar landa,
þannig að hátt verð er nokkuð sem
aldrei er hægt að gefa sér. Reynsla
okkar er samt sú að góður fiskur
hefur fengið þama þokkalegt
verð.“
— Þú ert þá ekki sammála þeirri
röksemd að hægt væri að fá miklu
hærra verð fyrir þennan fisk?
„Ég held það sé ákaflega vara-
samt að vera með fullyrðingar um
það. Auðvitað eru tilfelli þar sem
Álagningarskrár fyrir Vest-
fjarðaumdæmi voru lagðar fram í
gær og liggja frammi til 7. ágúst.
Samkvæmt þeim er Heiðar Sig-
urðsson, ísafirði, gjaldhæsti ein-
staklingurinn á Vestfjörðum með
rúma 1,1 milljón kr. í allt. Gjald-
hæsta fyrirtækið er Norðurtanginn
hf. á Isafirði með rúmar 4,6 millj.
kr.
Hvemig leggst það svo í Heiðar
Sigurðsson í Ljóninu að vera hæsti
gjaldandi opinberra gjalda á Vest-
fjörðum?
„Það gleður mig,“ sagði Heiðar
og kvaðst alls ekki hafa reiknað
með að verða hæstur.
— En bjóstu við þessari upphæð?
„Já, einhverju fram undir þetta,
þannig að þetta kemur ekki sem
reiðarslag."
— Hefurðu kannski lengi stefnt að
þessu?
„Það má segja það. Þetta er
svona ákveðinn áfangi. En skýr-
ingin á þessum háu gjöldum nú er
sú að reksturinn er í einkaformi í
stað sameignarforms áður, þannig
að gjöldin koma öll á mitt nafn
núna.“
vanda hefði mátt fiskinn betur og
enginn efast um að þá hefði fengist
hærra verð fyrir hann. En ég held
að allir hafi getað unað vel við þau
verð sem fengust þá viku sem meiri
fiskur fór á markaðinn en nokkurn
tíma áður í sögunni, eða um 1700
tonn. Þá voru engar lélegar sölur og
þrátt fyrir offramboð á markaðn-
um féll verðið aðeins lítillega og
bendir það til þess að fiskurinn þá
vikuna hafi verið nokkuð
þokkalegur.“
— Mundu gæðin aukast verulega
ef notaðir yrðu kæligámar við út-
flutninginn?
„Já, það er engin spuming. Við
erum einmitt að athuga hvers kon-
ar kæling er heppilegust á
gámunum,“ sagði Ólafur Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri Isfangs
á Isafirði.
Því má svo bæta við að í gær
seldist gámur úr Páli Pálssyni á
hæsta verði sem fengist hefur í
Belgíu til þessa. Meðalverðið var 56
kr. og fékkst það fyrir blandaðan
afla, en mest var af þorski, ufsa, ýsu
og karfa. í skeyti frá umboðsmanni
ísfangs í Oostende segir: „It must
be said that quality was excellent,”
sem útleggst: Það verður að segjast
að gæðin voru framúrskarandi.
— Þú átt ekki von á því að fara á
hausinn vegna þessara gjalda?
„Nei, þetta er það sem lagt er á
reksturinn og þessu verður hann að
skila. Þessi gjöld hafa því alltaf
verið inni í dæminu,“ sagði Heiðar
Sigurðsson.
Heildargjöld í umdæminu nema
415,986 millj. kr.
Fjöldi gjaldenda í umdæminu er
7.270, en var 7.288 í fyrra. Fjöldi
tekjuskattsgjaldenda er nú 3.557,
en var 3.750 á síðasta ári.
Meðaltalsálagning í Vestfjarða-
umdæmi er 57.019 kr. Meðaltalsá-
lagning er hæst í eftirfarandi sveit-
arfélögum:
1. ísafjörður 69.916 kr.
2. Bíldudalur 65.756 kr.
3. Bolungarvík 65.600 kr.
4. Tálknafjörður 63.465 kr.
5. Patreksfjörður 57.922 kr.
Álagður tekjuskattur er 192,085
m. kr. og hefur hækkað um 26,5% á
milli ára. Útsvar er 183,092 m. kr.
og hækkar um 32,58%.
Fimm hæstu einstaklingar á
Vestfjörðum eru:
1. Heiðar Sigurðsson, ísaf.
1.131.638 kr.
2. Ægir Ólafsson, ísaf.
719.754 kr.
3. Guðfinnur Einarsson, Bol.
698.660 kr.
4. Einar Hjaltason, ísaf.
690.285 kr.
5. Eyjólfur Þorkelsson, Bíldudal
659.683 kr.
Sjá nánar á bls. 3
Loksins
sigur
ísfirðingar unnu kærkominn
sigur á Fylki í 2. deildinni á
þriðjudagskvöld. Vannst leikur-
inn með tveimur mörkum gegn
einu og voru okkar menn með
hressara móti. Leikurinn byrjaði
þó ekki gæfulega því Fylkis-
menn urðu fvrri til að skora.
ömólfur Oddsson jafnaði síðan
og Jóhann Torfason skoraði
sigurmarkið þegar langt var lið-
ið á seinni hálfleikinn. Þrjú dýr-
mæt stig í höfn.
Strákunum gekk ekki eins vel
gegn Skallagrími á laugardag-
inn. Þrátt fyrir að þeir ættu
meira í leiknum tókst þeim ekki
að skora. Það tókst andstæð-
ingunum hins vegar. illu heilli,
og fóru þeir því með þrjú stig í
farteskinu heim í Borgarnes, en
okkar menn sátu eftir með sárt
ennið.
Gámafiskur:
Slæm meðferð sjaldgæf
—segir Ólafur Halldórsson, framkvæmdastjóri ísfangs á ísafirði