Vestfirska fréttablaðið - 29.08.1985, Síða 8
KYNNINGARVEISLA Laugardag og sunnudag kl. 13:00 — 17:00 Sjá einnig auglýsingu á miðopnu blaðsins. &
vestfirska
FRETTABLADID
a
JON F. EINARSSON
BOLUNGAVIK
SIMI7353 OG 7351 im
s
H
S[S|Q|QE3Q[Q|
©
S S (U S Q Q B
mMII III I II I 111 III
TfflGQ
miaihíiiaim
□ODDDOOO
DOOODDOO
| t ■ i i i i » i »’i'i i i !■ i ii i'»m
nn pfd qm itm
Innan allra alkalímarka
— segir Eyjólfur Bjarnason, forstöðumaður tæknideildar
um steypuefni steypustöðvar K. í.
Það hefur vakið athygli f sumar,
að á stórstraumsf jörum hefur mikiil
bflafioti ásamt ámoksturstækjum
unnið að malarnámi á leirunum
neðan við Skeiði. Þarna hefur veríð
á ferðinni vinnuflokkur á vegum
steypustöðvar Kaupfélags ísfirð-
inga að ná upp steypuefni f næstu
hrærur.
I samtali við Vf. sagði Valur
Valdimarsson hjá steypustöð K.I.,
að þeir hefðu fengið leyfi hjá bæn-
um til að taka þama 8000 rúm-
metra af efni. Sagði hann, að þeir
kæmust út á leirumar á stærri
straumnum einu sinni í mánuði og
næðu þá 800 — 1400 rúmmetrum.
Þetta væri efni sem í væri mjög lítið
salt, en þó hefðu þeir sprautað yfir
binginn að ráði Rannsóknarstofn-
unnar byggingariðnaðarins. „Það
er meira reglugerðaratriði, því í
reglugerðinni segir, að allt það efni
sem tekið sé úr sjó skuli skola. Það
er hins vegar ákaflega teygjanlegt
hvað það er að skola. Eftir þessa
skolun okkar um daginn létum við
mæla saltmagnið og var það langt
fyrir neðan þau mörk sem sett eru.”
Valur sagði, að þegar þeir hefðu
fengið leyfið hefði verið samið um
að þeir greiddu 10 krónur fyrir
hvem rúmmetra, en það hækkaði
líklega með byggingarvísitölu.
„Það er dýrt að taka efni þama
upp, ekki ódýrara en að dæla því
upp með skipi, því það er mikil
næturvinna í þessu. Þannig er þetta
ekki hagstætt að öðru leyti en því,
að þessir peningar verða eftir í
bænum”, sagði Valur Valdimars-
son.
Við bámm undir Eyjólf Bjama-
son, forstöðumann tæknideildar
bæjarins, hver hann teldi gæði
þessa steypuefnis vera. „Þetta er
sambærilegt við annað steypuefni,
sem tekið er upp víðs vegar um
landið. Þessa stundina er í gangi
langtímaprófun á alkalívirkni
efnisins og kemur það ágætlega út,
er innan allra alkalímarka”, sagði
Eyjólfur.
Steypustöð K.í. á Grænagarði.
Fjórðungs-
Vest-
Þing
firð
firðinga
Fjórðungsþing Vestfirðinga
verður að þessu sinni haldið að
Reykhólum dagana 30. og 31.
ágúst.
Að sögn Jónasar Clafssonar,
formanns stjómar Fjórðungs-
sambandsins, verður aðalmál
þingsins atvinnuástand og at-
vinnuþróun á Vestfjörðum og
verða flutt þrjú framsöguerindi
um þau mál. Einar K. Guð-
finnsson, Bolungarvík, flytur
erindi um sjávarútveg og fisk-
vinnslu, Engilbert Invarsson,
Mýri.flytur erindi um landbún-
að og erindi um iðnaðinn flytur
Sturla R. Guðmundsson, deild-
arstjóri hjá Iðntæknistofnun Is-
lands. Þá mun Bjami Einarsson,
formaður samgöngunefndar
Vestfjárða, kynna skýrslu
nefndarinnar.
Jónas
Ólafsson
form.
stjómar
Fjórðungs-
sambands
Vestfirð-
inga.
Slæmar heimtur:
Aðeins 40%
bæfargjalda
á Isafirði
innheimt
— Vanskil langtímaskulda bæjar-
sjóðs 15,3 m. kr.
Staða innheimtu bæjargjalda hjá
Isaf jarðarkaupstað er afar slæm um
þessar mundir, verrí en hún hefur
veríð lengi.
Að sögn Magnúsar Reynis Guð-
mundssonar, bæjarritara, má lfk-
lega rekja það tÚ minni greiðslu-
getu hjá fólki, en fleira komi til.
Afkoma rækjuverksmiðjanna var
slæm í fyrra, en þær væm nú famar
að rétta úr kútnum og sagðist
Magnús vonast til, að það færi eitt-
hvað að skila sér á næstunni. Þá
hefði innheimta bæjarfógeta verið
harðari en undanfarið og riki og
bær væru jú að slást um sömu
krónumar.
Magnús sagði, að verið væri að
endurbæta fyrirkomulag inn-
heimtunnar og að innheimtuher-
ferð væri í undirbúningi á vegum
bæjarins.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins munu aðeins hafa náðst inn um
40% af álögðum gjöldum og nema
vanskil langtímaskulda bæjarsjóðs
nú 15,3 milíjónum, sem ætla má að
sé bein afleiðing þessarar slæmu
stöðu.
Við höfðum samband við menn í
öðmm sveitarfélögum á Vestfjörð-
um og var á flestum stöðum sömu
sögu að segja. Þó var ástandið betra
á Suðureyri og Tálknafirði en í
fyrra.
Jón Friðgeir með
lægsta boð í Hlíf
— 35,5 m. kr. í uppsteypt hús
Fimmtudaginn 15 ágúst s.l. voru
opnuð tilboð í 1. áfanga byggingar
söluibúða á vegum Byggingasam-
vinnufélagsins Hlífar, Torfnesi.
Þrjú tilboð bárust. Lægsta til-
boðið var frá Jóni Friðgeir Einars-
syni, Bolungarvík, að upphæð
kr. 35.594.038,28. Næstlægsta til-
boðið kom frá Eiríki og Einari Val
s.f., ísafirði, að upphæð
kr. 36.922.780,00. Hæsta tilboðið
kom frá Form s.f., Isafirði, að upp-
hæð kr. 37.480.125,00. Kostnaðar-
áætlun hönnuða byggingarinnar
hljóðaði upp á kr. 36.428.216,00.
Er nú verið að yfirfara og sann-
reyna tilboðin reikningslega.
Iðnskólinn:
Er bjartsýnn á
að skólastarf
hefjist á tíma
— segir Einar Hreinsson,
formaður skólanefndar
Eitthvað virðist vera að rætast úr
málefnum Iðnskólans á Isafirði, en
eins og kunnugt er hefur gengið
erfiðlega að ráða starfslið að skól-
anum.
I viðtali við Vf. sagði Einar
Hreinsson, formaður skólanefndar,
að heldur væri að rofa til og væri
hann bjartsýnn á að skólastarfið
hæfist á réttum tíma. Taldi hann
góðar horfur á að skútan yrði full-
mönnuð um það leyti. Aðsókn
nemenda að skólanum er svipuð og
í fyrra. Starfsemi skólans verður
áfram til húsa í fsfirðingshúsinu, en
vonir eru bundnar við að þetta
verði síðasti veturinn. ötullega er
unnið að því að flytja starfsemi
skólans í húsakynni M.I. á Torf-
nesi.
Við spurðum Einar um sann-
leiksgUdi klausu sem birtist í Helg-
arpóstinum fyrir skömmu. Þar var
staðhæft, að húsnæðisskortur hefði
orðið þess valdandi, að fyrrverandi
skólastjóri fluttist á brott. Einar
sagði þessar getgátur Helgarpósts-
ins úr lausu lofti gripnar.
BESSI er á veiöum og mun
sigla með aflann til Þýska-
lands.
GUÐBJARTUR landaði á
þriðjudag 150 tonnum af
karfa.
PÁLL PALSSON landaði 117
tonnum á fimmtudag í síðustu
viku, þar af 50 tonnum af
karfa sem fór í gáma.
JÚLfUS landaði 88 tonnum af
þorski á fimmtudag í síöustu
viku og er nú á veiðum og
mun sigla með aflann á Eng-
land.
GUÐBJÖRG kom úr mettúrn-
um á sunnudagskvöld og fór
út í gær og mun landa heima
næst.
HUGRÚN kom inn í gær með
7 tonn af rækju.
HEIÐRÚN landaði 60 tonnum
á fimmtudag í síöustu viku.
DAGRÚN kom heim í síöustu
viku úr siipp í Þýskalandi og
er væntanleg í vikulokin.
SÓLRÚN kom inn á mánudag
vegna bilunar og landaði 16
tonnum af rækju.
ELfN ÞORBJARNARDÖTTIR
var væntanleg í gær með 40
tonn af kola sem fer í gáma til
Grimsby.
GYLLIR var á veiðum og var
væntanlegur inn í vikulokin.
FRAMMNES landaði 18.5
tonnum af rækju á laugardag.
SLÉTTANES landaði 125
tonnum á mánudag og var
uppistaðan karfi.
SÖLVI BJARNASON landaði
á mánudag 111 tonnum af
blönduðum afla.
TALKNFIRÐINGUR landaði
20. ágúst 132 tonnum og var
væntaniegur af karfaveiöum í
morgun.
SIGUREY landaði á föstu-
daginn 96 tonnum, mest ufsa.
BILALEIGA
Nesvegl 5 - Súðavík S 94-4972 - 4932
Vatnsmýrarvegl 34 - V/Mlklatorg s 91-25433
Afgreiðsla á Isafjarðarflugvelli s 94-4772
Sendum bílinn
Opið allan sólarhrlnglnn