Vestfirska fréttablaðið - 12.09.1985, Síða 8
Tilboðsverð á garðáhöldum, sláttuvélum,
blómakerum og reiðhjólum LÁTTUR >ermánuð
10% — 15% AFSI Tilboðið stendur út septemt
JON F. EINARSSON
B0LUNGAVIK
SIMI7353 OG 7351
BBQS Q|E3 E3E3|E3
||Ö|E3|E3|E3 MTQE3E3Q
im m rr m m
DDDDDDDD DDDDDDDD
matiinm nnprDPciim
Philip Jenkins
með hliómleika
Philip Jenkins.
Philip Jenkins pianóleikarí efnir
til hljómleika í Alþýðuhúsinu á ísa-
firði þriðjudaginn 17. september
n.k. kl. 21:00. Hann er á tónleika-
ferðalagi vfðsvegar um landið og
mun einnig leika m.a. á Dalvík,
Sauðárkróki, Akureyri og Reykja-
vfk.
Fatasöfnun
Rauða-
krossins
Rauði krossinn gengst fyrir fata-
söfnun fyrir þurfandi Afrfkubúa. Á
Isafirði fer söfnunin fram dagana
12. — 15. september n.k. í Safnað-
arbeimilinu Sólgötu 1.
Óskað er eftir hreinum og heil-
um, karl-, kven og bamafötum og
em bamafötin sérstaklega vel þeg-
in. Ekki verður tekið á móti skóm.
Tekið verður á móti fatnaðinum á
þessum tímum:
Fimmtudag 12. sept. kl. 20 — 22.
Föstudag 13. sept. 20 — 22.
Laugardag 14. sept. 14 — 18.
Sunnudaginn 15. sept. 13 — 15.
Rauðakrossdeildinna vantar
sjálfboðaliða til móttöku fatanna
og einnig til að „flokka” þau. Þeir
sem vilja leggja máhnu lið hafið
samband við Kristínu í síma 3833
eða Geirþrúði í síma 3330.
í sumar hefur verið unnið að
undirbúningi stofnunar Knatt-
spyrnusambands Vestfjarða. Til
stofnfundarins er boðað í félags-
heimilinu í Bolungarvfk kl. 14:00 á
laugardaginn.
Að sögn Kristins Gunnarssonar
sem er einn af aðalhvatamönnum
þessarar stofnunar er megintil-
gangurinn sá að sameina þá krafta
sem vinna að æskulýðsstarfi og
uppbyggingu í íþróttum á Vest-
fjörðum. Ætlunin er að koma á
sérstökum VestfjarðariðU í 4. deild
og einnig í yngri flokkunum, til
þess að minnka þann óhóflega
ferðakostnað sem hefur verið
dragbítur á alla slíka starfsemi
hingað til. Hafa Hólmvíkingar og
Strandamenn sýnt þessu máU mik-
inn áhuga og munu fuUtrúar þeirra
mæta á fundinn. Einnig hafa verið
boðaðir til fundarins formaður KSÍ
og formaður mótanefndar. I fram-
tíðinni er ætlunin að koma á fót
samstarfi dómara, halda þjálfara-
I þessari ferð frumflytur Philip
píanólög eftir Hafliða Hallgrims-
son sellóleikara, en þau eru byggð á
hinum vel þekktu þjóðlögum,
„Sofðu unga ástin mín ” og „Ljósið
kemur langt og mjótt”.
Þá leikur hann einnig Chaconne
eftir Bach, sónötu í g-moll eftir
Schumann, nokkur lög eftir Franz
Liszt og Impromptu í Fis-dúr eftir
Chopin.
Philip Jenkins er nú búsettur í
London og kennir píanóleik við
Royal Academy of Music.
A námsárum sínum við sama
skóla hlaut hann fjölmörg verðlaun
fyrir framúrskarandi árangur og
var m.a.a valinn fulltrúi skólans til
að leika á tónleikum í Paris, Köln,
og Brussel. Hann hlaut 1. verðlaun
í alþjóðlegri keppni píanóleikara,
sem Daily Mirror efndi til.
Philip hefur haldið fjölmarga
Nú hefur verið ákveðið að taka
tilboði frá Eiríki og Einari Val s.f. i
1. áfanga byggingar söluíbúða á
vegum Byggingasamvinnufélagsins
Hlif á Torfnesi. Tilboð þeirra
hljóðaði uppá kr. 36.922.780,00.
Kostnaðaráætlun hljóðaði uppá kr.
36.428.216,00.
Jón Friðgeir Einarsson í Bolung-
arvík átti lægsta tilboð í verkið kr.
35.594.038,00. Halldór Guðmunds-
son framkvæmdastjóri Bygginga-
námskeið og berjast fyrir bættum
knattspymuvöllum á Vestfjörðum
svo eitthvað sé nefnt. Einnig vilja
forráðamenn reyna að efla skilning
almennings á mikilvægi æskulýðs
og íþróttastarfs.
Félagsmið-
stöð unglinga
í Alþýðuhúsi?
Athugun stendur nú yfir á því
hvort hagkvæmt muni reynast að
starfrækja félagsmiðstöð i kjallara
Alþýðuhússins. Að sögn Haraldar
L. Haraldssonar bæjarstjóra mun
hún hefja starfrækslu nú í haust ef
af verður. Undanfarna tvo vetur
hefur verið starfrækt félagsmiðstöð
að Mánagötu 1, og var aðsókn
þangað ágæt.
einleikstónleika, komið fram sem
einleikari með ýmsum hljómsveit-
um, m.a. Sinfóníuhljómsveit ís-
lands, flutt kammertónlist með
ýmsu tónlistarfólki, bæði í Evrópu
og Bandaríkjunum. Hann starfaði
um árabil sem píanókennari við
Tónlistarskólann á Akureyri og
hefur einnig haldið námskeið við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Philip Jenkins er Isfirðingum að
góðu kunnur. Hann hefur nokkr-
um sinnum haldið hér hljómleika á
vegum Tónlistarfélags Isafjarðar,
bæði einn og með öðrum, m.a.
Guðnýju Guðmundsdóttur fiðlu-
leikara, Einari Jóhannessyni klari-
nettuleikara og Douglas Cumm-
ings sellóleikara. Hefur hann jafn-
an fengið hinar bestu viðtökur og
vakið verðskuldaða hrifningu á-
heyrenda.
samvinnufélagsins sagði að ákveðið
hefði verið að ganga til samvinnu
við Eirík og Einar þó svo að þeir
hefðu ekki átt lægsta boð í verkið.
Bridge,
Vestfjarða-
mót
Vestfjarðamótið i tvimenningi,
en það er ákveðin aðferð við að
spila bridge, fór fram 30. og 31.
ágúst síðastliðinn.
Mjög góð þátttaka var, alls tóku
28 pör þátt í mótinu, eða 56 kepp-
endur. Er þetta fjölmennast
bridgemót sem haldið hefur verið á
Vestfjörðum til þessa. Mótið hófst
kl. 13:00 á laugardag og var spilað
til miðnættis, síðan settust menn
við spilaborðin á ný kl. 10:00 á
sunnudag og var mótinu lokið um
kl. 16:00.
Bestum árangri náðu þeir Jakob
Kristinsson frá Akureyri og Júlíus
Sigurjónsson frá Bolungarvík,
ungir og upprennandi spilarar sem
ætla að spila saman í vetur. Þeir
kepptu sem gestir á mótinu þannig
að titil Vestfjarðameistara hrepptu
þeir sem voru í öðru sæti en það
voru þeir Arnar Geir Hinriksson og
Einar Valur Kristjánsson. I þriðja
sæti urðu þeir Sveinberg Ríkharðs-
son og Tryggvi Bjamason báðir frá
Tálknafirði.
Mótið fór fram í húsakynnum
Norðurtangans á ísafirði og kunna
bridgemenn þeim kærar þakkir
fyrir veittan stuðning og auðsýndan
velvilja.
Knattspyrnusamband
Vestfjarða
Eiríkur og Einar
byggja fyrir Hlíf
— Næst lægsta tilboði tekið
vestfirska
FRE7TABLASIS
Strætisvagn á
mánudaginn
Á sfðasta bæjarstjómarfundi var
samþykkt að ganga til samninga við
Ásgeir Sigurðsson f.h. Strætisvagna
Isafjarðar h.f., um að sjá um akstur
strætisvagna.
Ætlunin er að hafa einn strætis-
vagn í förum en fyrst um sinn mun
Ásgeir notast við langferðabifreið-
ar. Stefnt er að því að akstur hefjist
þann sextánda september eftir
áætlun. Ekið verður frá klukkan
tæplega sjö á morgnana þar til
rúmlega sex á daginn, mánudaga til
föstudags. Nánari áætlun er ann-
arsstaðar í blaðinu.
Fegursti garðurinn
Á fundi Garðaskoðunamefndar
nú um dagin veitti nefndin viður-
kenningar fyrir fegursta garð og
fegursta umhverfi vinnustaðar. Það
kemur fram f áliti nefndarinnar að
hún sá ekki ástæðu til að verðlauna
neitt fjölbýlishús sérstaklega, en
hvatti nefndin i búa í fjölbýli til að
huga betur að umhverfi húsa sinna.
Þau sem fengu verðlaun fyrir
fegursta garðinn voru hjónin Anna
Jónsdóttir og Lúðvík Kjartansson
Krók 2. Viðurkenningu fyrir
snyrtilegt umhverfi vinnustaðar
fékk Olíufélagið h.f. fyrir lóð fyrir-
tækisins við Mjósund.
Gæftir hafa verið misjafnar
hjá handfærabátunum, en al-
mennt hefur þó veiðst ágæt-
lega þegar gefiö hefur.
Mannekla hefur eins og
kunnugt er hrjáð sjávarút-
veginn mikið, og mikið er um
að inn sé flutt fólk til fisk-
vinnslu. í Hraðfrystihúsinu á
Patreksfirði er til dæmis um
sjötíu prósent þeirra kvenna
sem þar vinna útlendingar.
GUÐBJARTUR landaði í gær
um 110 tonnum, mest þorsk-
ur.
ORRI mun hefja línuveiðar í
vikunni.
PÁLL PÁLSSON hefur verið í
slipp, en mun halda á veiðar
bráðlega.
GUÐBJÖRG landaði í fimm
gáma á mánudag.
DAGRÚN landaði 105 tonn-
um á mánudag og fóru um 60
tonn í gáma.
HEIÐRÚN landaði á mánu-
dag, um 60 tonnum, helming-
urfór í gáma.
SÖLRÚN kom inn í gær með
um 18 tonn af stórri rækju.
HUGRÚN kom inn um helgina
með 10 tonn af rækju og 4
tonn af þorski.
ELlN ÞORBJARNARDÓTTIR
landaði um 60 tonnum á
mánudag. Af því voru 50 tonn
sett í gáma og fékkst fyrir þá
rúmlega fimmtíu króna með-
alverð.
GYLLIR landaði á þriðjudag
112tonnum.
SLÉTTANES kom inn á
mánudag með rétt um 150
tonn.
FRAMNES landaði á föstudag
20 tonnum af rækju.
SÖLVI BJARNASON landaði
á síðasta fimmtudag tæpum
100 tonnum.
TÁLKNFIRÐINGUR kom inn á
laugardaginn með rúm 100
tonn af því var rúm 40 tonn
koli sem sent var út í gámum.
SIGUREY landaði á þriðjudag
tæpum 100 tonnum.
JÚLlUS GEIRMUNDSSON
var í siglingu og seldi hann
fyrir um það bil 10.4 milljónir.
Aflinn var 219 tonn og meðal-
verð um 46 krónur.
BESSI átti að selja 135 tonn (
dag (Bremerhaven.
BILALEIGA
Nesvegi 5 - Súðavík S 94-4972 - 4932
Vatnsmýrarvegi 34 - V/Miklatorg S 91-25433
Afgreiðsla á Isáqarðarflugvelli s 94-4772
Sendum bílinn
Opið allan sólarhringinn