Vestfirska fréttablaðið - 19.02.1987, Qupperneq 2
2
■iJ
vestlirska
TTABLADIO
t
2
vestfírska
Vestfirska fréttablaöið kemur út á fimmtudögum kl. 17:30 Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Hafnarstræti 14 er opin virka
daga kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til 17:00. Síminn er 4011. Blaðamaður: Páll Ásgeirsson. Fjármál og dreifing: Guðrún Halldórsdóttir.
Útgefandi og ábyrgðarmaður: Árni Sigurðsson, ritstjóri, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100. Prentun: Prentstofan ísrún hf., (safirði. Verð
í lausasölu kr. 40,00. Áskriftarverð er lausasöluverð reiknað hálfsárslega eftirá.
Oeigingjörn
störf í þágu
annarra
Hið óeigingjama líknarstarf kvenfélaganna
stendur á gömlum merg. I ys hverdagsins verðum
við ekki mikið vör við starf þeirra, enda er það ekki
stundað í auglýsingaskyni, heldur af samúð með
okkar minnstu bræðmm.
Fyrir skömmu var Kvenfélagið Ósk á ísafirði 80
ára gamalt. Það ötula félag hefur í gegnum árin
barist fyrir og einbeitt sér að húsmæðrafræðslu,
enda er hin glæsilega bygging húsmæðraskólans
óbrotgjam minnisvarði um áratuga starf.
Stutt er síðan kvennadeild Slysavamarfélagsins
gaf slysavamarsveitinni Skutli flotbúninga. Það eru
ófáar stórgjafimar sem slysavamarkonur hafa
safnað fé til kaupa á, með frábærri elju og dugnaði.
Konur úr kvenfélaginu Hlíf fara ekki sjaldnar en
einu sinni í mánuði í heimsókn til íbúanna á elli-
heimilinu á ísafirði. Þessar heimsóknir þeirra veita
birtu inn í fábreytta tilveru hinna öldmðu, og em í
sumum tilfellum einu heimsóknimar sem gamla
fólkið fær. Nú styttist í hið árlega Hlífarsamsæti þar
sem eldri borgumm er boðið til veislu.
Vestfirska fréttablaðið ámar Ósk heilla á merk-
isafmælinu. Það er von okkar að við megum um
ókomin ár njóta krafta og óserhlífni kvenfélaganna
við störf að líknarmálum.
Sigurður Líndal
með fyrirlestur
Menningarráð ísafjarðar og
Menntaskólinn á ísafirði hafa á-
kveðið að fá Sigurð Líndal, pró-
fessor við lagadeild Háskóla ís-
lands til að halda almennan fyrir-
lestur á ísafirði laugardaginn 21.
febrúar 1987.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
bókasafni Menntaskólans á ísa-
firði og hefst kl. 15.30 (hálf-
fjögur). Efnið, sem Sigurður ætlar að tala um, nefnist:
„Hvemig er stjómskipun landsins að þróast? Eru tök
Alþingis og ríkisstjómar á stjórnkerfinu að riðlast?"
Eins og margir vita er Sigurður Líndal meðal áheyri-
legustu og skemmtilegustu fyrirlesara þjóðarinnar. Þess
má vænta að hann komi í erindi sínu m.a. að nýlegum
deilumálum t.d. valdsvið bankastjóra og fræðslustjóra
landsins.
Svört skýrsla frá Verðlagsstofniin:
HeUdsöluverð hærra
á ísaflrði
— Lítil samkeppni. Afkoma matvöruverslana rýr.
Verðlagsstofnun gerlr reglu-
legan samanburð á verðlagl í
matvöruverslunum víðs vegar á
landinu. Bygglst hann á verð-
könnun á um 370 algengum
vörutegundum.
[ slíkri könnun á síðasta árl
kom í Ijós að verðlag á ísaflrði
og reyndar í Vestmannaeyjum
var miklu mun hærra en annars
staðar. Þóttl mönnum að mun-
urlnn yrðl ekki skýrður á hefð-
bundinn hátt með flutnings-
kostnaði og meiri kostnaði við
birgðahald í lltlum verslunum.
Því var gerð sérstök rannsókn
á verðlagl og verðmyndun á
þessum tvelmur stöðum og hafa
niðurstðður þeirrar rannsóknar
verið gefnar út.
Athugunin fór þannig fram að
starfsmenn Verðlagsstofnunar
könnuðu heildsölu og smásöluverð
skv. innkaupanótum, áttu ítarlegar
viðræður með stjómendulm fyrir-
tækjanna og gerðu samanburð á
upplýsingum frá ísafirði við upp-
lýsingar annars staðar frá.
Á ísafirði eru starfrækt þrjú um-
boðs- og heildsölufyrirtæki með
mat og hreinlætisvöru. Hvergi á
landinu er jafn umfangsmikil
starfsemi umboðs- og heildsölufyr-
irtækja sé höfð hliðsjón af stærð
markaðarins.
Rekstur þeirra leiðir til margs
konar hagræðis fyrir smásöluversl-
animar. Kostnaður þeirra vegna
birgðahalds er minni og flutnings-
kostnaði haldið í lágmarki vegna
magninnkaupa.
Tekjur umboðsfyrirtækjanna
myndast að mestu sem afsláttur frá
framleiðendum og heildsölum.
Einnig er nokkuð um beinan inn-
flutning erlendis frá á ýmsum
pakkavörum.
Samkvæmt þeim gögnum sem
athuguð voru var erlent innkaups-
verð svipað á þeim vörum sem
fluttar voru beint til ísafjarðar og á
sams konar vörum sem fluttar voru
inn af heildsölum í Reykjavík.
Flutningskostnaður varanna til
ísafjarðar erlendis frá var hins
vegar hærri en til Reykjavíkur
vegna flutningskjara þannig að
hlutfallsleg heildsöluálagning sem
var svipuð og í Reykjavík lagðist á
hærra kostnaðarverð. Heildsölu-
verð var þar af leiðandi hærra á
ísafirði en í Reykjavík.
Flutningskjör munu nú vera
orðin sambærileg á ísafirði og í
Reykjavík sem mun leiða til lægra
kostnaðarverðs innfluttrar vöru á
ísafirði.
Verðlagning á gosdrykkjum á
Isafirði sker sig úr verðlagningu
annars staðar á landinu að Vest-
mannaeyjum frátöldum.
Umboðsmaður gosdrykkja á
Isafirði leggur sérstaka álagningu á
gosdrykkina auk þess sem hann fær
umboðslaun í formi afsláttar frá
verksmiðju. Hin sérstaka álagning
umboðsmannsins veldur því að
gosdrykkjaverð þar var með því
hæsta á landinu á síðasta ári.
Lítil bein verðsamkeppni er á
milli matvöruverslana á ísafirði.
Verðmunur milli verslana er all-
nokkur.
Þrátt fyrir þjónustu sem millilið-
irnir veita sem ætti að geta minnk-
að kostnað smásöluverslana, hefur
álagning ekki lækkað heldur
hækkað í sumum tilvikum.
Þrátt fyrir kostnaðarsparandi
þjónustu milliliða og háa smásölu-
álagningu er afkoma matvöru-
verslana á ísafirði rýr.
Ómarkviss innkaupastefna veld-
ur því í einstaka tilfelli að veltu-
hraði vörubirgða og fjármagns er
lítill. Með öðrum orðum þá er of-
fjárfesting bæði í vörubirgðum og
húsnæði í sumum matvöruverslun-
um á Isafirði.
I niðurstöðum, könnunarinnar
er sagt að fjöldi og stærð þeirra
umboðs- og heildverslana sem
þjóna ekki fleiri matvöruverslun-
um en raun ber vitni, hljóti að hafa
áhrif til hækkunar vöruverðs nema
álagning í smásölu lækki vegna
þjónustu milliliðanna.
7% verðmun-
ur milli mat-
vöruverslana
á ísafírði
Verðkönnun sú, sem Verð-
lagsstofnun lét framkvæma
hinn 15. september s.l. vakti
að vonum mikla athygli og
hafa niðurstöður hennar orðið
tilefni mikillar og þarfrar um-
fjöllunar.
Matvöruverslanir á ísafirði
komu afar illa út úr könnun-
inni og hafa jafnan verið settar
undir einn hatt i umræðum
um hana. Menn hefur þó lengi
fýst að vita hvort jafnt hafi
verið á komið með þeim öll-
um, en upplýsingar um það
hafa ekki legið á lausu.
Vestfirska fréttablaðið hef-
ur nú aflað sér áreiðanlegra
upplýsinga um könnunina og
verð hjá þeim þremur versl-
unum, sem teknar voru til at-
hugunar, þ.e. Bjömsbúð,
Matvömverslun Kaupfélags
ísfirðinga og Vöruval.
I ljós kom við samanburð
þeirra á milli, að 120 vöruteg-
undir af þeim 370, sem athug-
aðar voru, fengust í öllum
þessum þremur verslunum.
Samanlagt verð þessara 120
tegunda hjá Kaupfélaginu var
kr. 14.930, 13. Hjá Bjömsbúð
kostaði pakkinn 15.073,67, en
dýrastur var hann hjá Vöru-
vali, eða kr. 15.929,78.
Björnsbúð var þama nánast
með sama verð og Kaupfélag-
ið, en Vöruval 6,7 % hærra.
182 sömu vörutegundirnar
fengust í Vöruvali og Kaup-
félaginu. Sá pakki kostaði kr.
25.365,47 í Vöravali, en kr.
24.250,11 í Kaupfélaginu. Þar
var Vöruval sem sagt 4,6%
dýrari en Kaupfélagið.
Hótel ísafirði
sunnudaginn
22. febrúar
ki. 14:00
Lárusdóttir
og
Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir,
alþingiskona
ALLIR VELKOMNIR!
UNDIRBUNINGSNEFND.