Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 10

Vestfirska fréttablaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 10
Bækur — Blöð — Tímarit — Eyðublöð Allskonar litprentun Tölvupappír, eigin framleiðsla _ Prentstofan Isrún hf. Aðalstræti 35 ■ 400 ísafjörður ■ Sími 94-3223 * r y Ur togaraskýrslu LIU: Guðbjörg aflahæst ísfísktogara í togaraskýrslu L(Ú sem nú er nýlega komin út má lesa marg- víslegan fróðlelk um afla togar- anna á síðasta árl. Mest aflaverðmæti á hvern út- haldsdag hafði Akureyrln, tæp 554 þúsund. úrvar HU var í öðru sæti með 541 þús. Þá Sigurbjörg ÓF með 480 þús., Hólmadrangur ST með 404 þús., Guðbjörg ÍS með 378 þúsund krónur á hvern úthaldsdag. Þá koma Siglfirð- ingur Sl með 356 þús., Hafþór RE 349 þús., Páll Pálsson (S 326 þús. Akureyrin var jafnframt með mestan afla á úthaldsdag eða 17 tonn en Guðbjörg fylgdi fast á eftlr með 16,9 tonn. úrvar og Sturlaugur Böðvarsson eru með 16 tonn að jafnaðl á dag og Harðbakur EA með 15,8. Aflahæsta sklplð í flotanum var Harðbakur með 5.230 tonn, Guðbjörg varð þar í öðru sæti með 5.146 tonn og þá Akureyrin með 5.034 tonn. Eru þessl þrjú sklp þau elnu sem fara yflr 5000 tonn í helldarafla. Til samanburðar er rétt að geta þess að meðalskiptaverð- mæti á úthaldsdag í flotanum var rúmar 195 þúsund krónur og meðalafli á úthaldsdag var rúm 10,8 tonn. Af þessu má ráða að Guðbjörg virðist hafa nokkra sérstöðu því hún er eina skipið sem stundar ísfiskveiðar sem hefur í fullu tré og vel það við frystitogarana. Vestfirska fréttablaðiö hefur á- kveðið að taka upp þá nýbreytni ( afladálki blaðsins að birta með reglulegu miliibili tölur um skipt- ingu afla hjá skuttogurum á Vest- fjörðum. Verður þá reynt að t(- unda hve mikið af afla togaranna fer í frystingu og hve mikið fer til sölu á erlendum markaði í gámum. Sl (kar tölur fyrir nokkra af togur- unum verða birtar hér í dag en flestir aðrir útgerðarmenn hafa lofað að láta okkur hafa slíkar tölur til birtingar í næstu viku. BESSI hefur landað frá ára- mótum 136 tonnum til vinnslu heima og er verðmæti þeirra rúm- ar 3 milljónir. Á sama tíma hefur Bessi landað 134 tonnum í gáma að verðmæti rúmar 7 milljónir. Bessi landaði á mánudag 78 tonnum og setti f 2 gáma. Aflinn var að mestu leyti þorskur. HAFFARI var að koma úr fyrsta rækjutúmum með um það bil 15 tonn. GUÐBJÖRG landaði á þriðjudag 150 - 155 tonnum og setti í 7 gáma. Aflinn var þorskur. JÚLIUS GEIRMUNDSSON land- aði á mánudag 52 tonnum og setti að auki f 2 gáma. Júlíus fór svo til Reykjavíkur vegna smávægi- legrar bilunar. GUÐBJARTUR landaði á þriðju- dag 65 tonnum af þorski og setti (3 gáma. Línubátar sem leggja upp hjá Norðurtanganum hafa aflað þokkalega og gæftir hafa verið mjög góðar. Hefur ekki fallið úr dagur það sem af er febrúar. DAGRÚN iandaði í gær í Boiung- arvík og var sögð vera með um 100 tonn af þorski. HEIÐRÚN landaði á mánudag 100 tonnum og setti í 6 gáma. Aflinn var að mestu leyti karfi. SÓLRÚN landaði á þriðjudag 60 tonnum af blönduðum afla og setti í einn gám. FLOSI hefur mest fengið 13 tonn á línuna og HALLDÓRA JÓNS- DÓTTIR hefur skást fengið 7 tonn. Minni bátar sem róa með línu frá Bolungarvík hafa mest fengið 3 tonn. Að undanförnu hefur verð á ís- lenskum fiski sem seldur hefur verið úr gámum erlendis verið fremur lágt, hefur farið niður í 40 kr. fyrir kílóið. PÁLL PÁLSSON landaði á mánudag 118 tonnum mest þorski og setti af því í 4 gáma. Páll landaði 224,5 tonnum í janú- ar. Verðmæti þess var 5,2 milljón- ir. Aflinn í janúarfór allurtil vinnslu heima EL(N ÞORBJARNARDÓTTIR er á karfaveiðum. Frekar tregt hefur verið hjá línu- bátum frá Suðureyri eða þetta 5 - 7 tonn (róðri. GYLLIR landaði á mánudag 160 tonnum og setti í 6 gáma. Aflinn var að mestu leyti karfi. Gyllir het- ur frá áramótum landað 279 tonn- um í vinnslu á Flateyri og 50 tonn hafa veriðsend erlendis í gámum, og er þá þessi síðasta veiðiferð ekki talin með. Línubátarfrá Flateyri hafa verið að fá 3 - 6 tonn í róðri. SLÉTTANESIÐ landaði 3. febrú- ar 76 tonnum í vinnslu heima og setti í 4 gáma í Bolungarvík. FRAMNESIÐ er væntanlegt heim til Þingeyrar um mánaðamótin eft- ir viðgerð í Þýskalandi. SÖLVI BJARNASON landaði á mánudag 128,8 tonnum af ufsa og karfa eftir 5 daga veiðiferð. Sölvi hefur landað 480 tonnum frá áramótum og hefur það alltfar- ið í vinnslu heima. Aflaverðmæti 10-11 milljónir króna. Mokveiði er af rækju ( Arnar- firði. Dagsafli hefur verið allt að 2,5 tonnum. VESTRI fékk 38,5 tonn í síðustu viku og PATREKUR 57 tonn. SIGUREY frá Patreksfirði hefur fengið alls 330 tonn frá áramótum og hefur það allt farið í vinnslu heima. ÞRYMUR hið nýja skip Patreks- firðinga fer á netaveiðar í næstu viku á meðan beðið er eftir spil- búnaði. Skipstjóri verður Þor- steinn Jónsson. TÁLKNFIRÐINGUR landaði 150 tonnum á miðvikudaginn. aflinn var að mestu leyti karfi. MARÍA JÚLÍA frá Tálknafirði hef- ur byrjað netaveiðar og fékk 15 tonn eftir nóttina í Víkurál. Skip- stjóri er Þór Magnússon frá Tálknafirði. vestfirska FRETTABLASID Alþýðuflokkurinn: Fullar sættir — á auka kjördæmisþingi Aukakjördæmlsþing Alþýðu- flokksins á Vestfjörðum var haldið á (safirði um síðustu helgi. Verkefni þingsins var að ganga frá skipan framboðslista Alþýðuflokksins á Vestfjörðum í komandi kosningum. Ekki var því verki endanlega lokið en á- kveðið hefur verið að Karvel Pálmason skipi fyrsta sætið í samræmi við nlðurstöður próf- kjörs. Sighvatur Björgvinsson skipar annað sætið og í þriðja sæti listans verður Björn Gísla- son húsasmíðameistari á Pat- reksfirði. Að sögn Ægis Hafbergs for- manns Kjördæmisráðs var hér um tímamótafund að ræða því fullar sættir tókust með þeim Sighvati Björgvinssyni og Karvel Pálmasyni sem áður höfðu deilt nokkuð í kjölfar nlðurstaðna prófkjörs. Á fundinum gerðu þeir með sér samkomulag um náið samstarf og að vinna saman að því að Alþýðu- flokkurinn á Vestfjörðum fái tvo þingmenn kjöma, sem þeir telja að raunhæfir möguleikar séu á. Skipan framboðslista flokksins að öðru leyti verður ákveðin næstu daga. Þingið samþykkti samhljóða eft- irfarandi ályktun.: „Kjördæmisráð Alþýðuflokksins á Vestfjörðum ályktar að helsta undirrót þeirra erfiðleika og byggðaröskunar sem orðið hefur á landsbyggðinni, og spáð er að fær- ast muni í vöxt, að óbreyttum að- L. L.: Stoppard og Frayn Hjá Litla leikklúbbnum á ísafirði eru nú að hefjast æfingar á vor- verkefni klúbbsins sem að þessu sinni verða tveir einþátt- ungar. Það er Guðjón Ólafsson sem hefur þýtt báða einþáttungana úr ensku og er hann jafnframt leik- stjóri. Fyrri einþáttungurinn er eftir Tom Stoppard og hefur hlotið nafnið „Hinn eini sanni Seppi.“ Seinni einþáttungurinn er eftir Michael Frayn og heitir „ Svart og silfrað." Þótt hér sé um kunna höfunda að ræða hefur hvorugur einþáttung- anna verið sýndur hérlendis áður. Tom Stoppard er mörgum leik- húsáhugamönnum að góðu kunn- ur, en Michael Frayn er trúlega þekktastur hér fyrir leikritið „Skvaldur" sem sýnt var í Þjóð- leikhúsinu í fyrra. Alls eru 10 hlutverk í þáttunum tveimur og er skútan að heita full- mönnuð. stæðum, sé kvótakerfið í fiskveið- um. Fyrir Vestfirðinga er það lífs- nauðsyn að þessu kerfi verði breytt. Kjördæmisráðið lýsir þessvegna yfir fyrir kosningar að Alþýðu- flokkurinn á Vestfjörðum muni ekki styðja neina þá ríkisstjóm sem ætlar sér að viðhalda óbreyttu kerfi í stjómun fiskveiða." I vestiirska ~~l FRETTABLADID hefur fieyrt Að hart hafi verið lagt að Jónu Valgerði Kristjánsdóttur að taka efsta sætið á lista landshluta- samtakanna sem ætla að bjóða fram í fyrsta skipti í vor. Engum sögum fer hinsvegar af svörum Jónu við þessari málaleitan. VEGNA AUGLÝSINGAR! í síðasta tölublaði Vestfirska fréttablaðsins birti ég auglýs- ingu um fasteignagjöld ísfirð- inga. Tilefnið var það, að menn greindi á um það hve mikil hækkun hefði orðið á fast- eignagjöldum bæjarbúa. Því var haldið fram af fulltrúum meirihluta bæjarstjórnar að hækkun gjaldanna væri á bilinu 23 til 35%. Hinsvegar taldi ég að hækkun gjaldanna væri meiri, eða jafnvel 44 til 46%. Því tók ég mig til og auglýsti eftir gjaldendum, sem ekki hefðu orðið fyrir meiri hækkun fasteignagjalda en 23 til 35%. Einnig eftir öðrum, sem gjöld hefðu hækkað hja um 44% eða meira. Margir urðu til þess að hafa samband við mig og ræða um fasteignagjöld. Enginn með 23% hækkun. Minnsta hækkun, sem ég var látinn vita af var 33% og þá 33,8%. Það voru þeir einu fyrir neðan 35%. Einn var með 35,8%, annar með 37%. Þá kom 41%, síðan 45%, og 46%, þá 84% og loks einn með 101%. Auðvitað er hér ekki um ne- ina tæmandi úttekt að ræða, enda ekki til þess stofnað að þessu sinni. Þetta átti að vera ofurlítil viðvörun til bæjarfulltrúa meirihlutans og ábending um að tileinka sér heiðarlegan og óvilhallan málflutning ( stað þess að ásaka andstæðinga sína um að fara frjálslega með staðreyndir, eins og þeir leyfðu sér að gera oftar en einusinni á síðasta fundi bæjarstjórnar (safjarðar. Árni Sigurðsson. BÍLALEIGA Nesvegi 5 Súðavík S 94-4972 - 4932 Vatnsmýrarvegl 34 - V/Mlklatorg S 91-2S433 Afgrelðsla á ísafjarðarflugvelli S 94-4772 Sendum bílinn Opið allan sólarhrlnginn

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.