Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 4

Vestfirska fréttablaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 4
4 Isaijarðarkaupstaður ísfirðingar takið eftir Nokkur grænlensk ungmenni eru væntanleg til ísafjarðar í vor og munu dvelja í u.þ.b. 2 mánuði. Tilgangur þeirra með dvöl sinni er að öðlast starfsþjálfun á sviði fiskverkunar, víkka sjóndeildarhring sinn og efla tengslin milli ísafjarðar og vinabæjarins Nanortalik. Þeir sem áhuga hafa og tækifæri til að skjóta skjólshúsi yfir unglingana á meðan á dvöl þeirra stendur vinsamlegast hafið samband við félagsmálastjóra í síma 3722. Félagsmálastjórí. Elliheimili ísafjarðar Starfsfólk óskast nú þegar, hlutastarf kemur til greina. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 3110. Dagmæður Dagmæður óskast strax til starfa á vegum bæjarins. Upplýsingar veitir dagvistarfulltrúi í síma 3722, frá kl. 10.10 - 12.00 daglega. Eyrarskjól Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar: -100% staða á dagheimili, - 67% staða á leikskóla e.h., - staða afleysara með 50% kauptryggingu. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 3685. Viðtalstími bæjarfulltrúa Föstudaginn 20. febrúar n.k. verða bæjarfull- trúarnir Geirþrúður Charlesdóttir og Þuríður Pétursdóttir til viðtals við bæjarbúa í fundar- sal bæjarráðs á annarri hæð í Kaupfélagshús- inu, kl. 17.00 til 19.00. ísfirðingar - ísfirðingar Sundhöllin verður opin fyrir utan auglýstan opnunartíma vegna þess að skólasund fellur niður 23. - 27. febrúar n.k., þannig: Mánudag 7.00-11.00 f.h. og 14.00-16.30 Þriðjudag 7.00 - 11.00 f.h. og 14.00 - 18.00 Miðvikudag 7.00-11.00 f.h. og 14.00-16.30 Fimmtudag 7.00-11.00f.h.og 14.00-18.00 Föstudag 7.00-11.00 f.h. og 14.00-18.00 Komið, syndið, notið pottinn og gufubaðið Það hressir og bætir. íþróttafulltrúi. TIL SÖLU FJÓRHJÓL Til sölu fjórhjólaminkurinn, 15 gírar áfram og 3 afturábak. Með drifi á öllum hjólum. 25 hestöfl og hægt að læsa öllum hjólum. Algert torfærutröll þótt lítið sé. Árgerð 1987, lítið ekið og gott útlit. Ný og stærri dekk undir. Upplýsingar í síma 94-3884 eða 92-4356 vestfirska TTABLADID Valið stendur í eða verðbólgu < — Þorsteinn Pálsson form: Eins og sagt er frá hér annars staðar í blaðinu hélt Þor- steinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins almennan stjórnmálafund á Hótel ísafirði á laugardaginn 14. febrúar s.l. Vestfirska fréttablaðið fékk Þorstein til þess að svara nokkrum spurningum almennt um komandi kosningar og ýmislegt fleira sem lesendur kynni að fýsa að vita. Fyrsta spurningin var auðvitað. Um hvað verður tekist á í komandi kosningabaráttu? „Það er augljóst" sagði Þorsteinn, að það verður tek- ist á um það hvort við eigum að halda áfram á þeirri leið sem mörkuð hefur verið, eða hvort við eigum að fara yfir á gamla vinstristjórnarsporið, með hefðbundinni verðbólgu og kjaraskerðingu. Um þess- ar tvær meginleiðir er kosið. Það hefur tekist að koma hér á stöðugleika og hagnýta batnandi árferði til þess að lækka erlendar skuldir og auka kaupmátt, og við viljum halda áfram á sömu braut. Það gerist ekki nema Sjálf- stæðisflokkurinn verði í lykil- hlutverki að kosningum loknum“. — Nú hafa verið birtar nokkrar skoðanakannanir um afstöðu fólks á undan- förnum vikum. Hvert er þitt álit á skoðanakönnunum. Eru þær marktækar eða geta þær haft mótandi áhrif á skoðanir fólks? „Þær hafa oft gefið vís- bendingar um hugsanir fólks í þessum efnum. Þær hafa líka oft sýnt skekkjur. En ég held að það verði ekki framhjá því horft að þær eru leiðbeinandi um það sem er að gerast í hugum fólks gagnvart stjórnmálaflokk- um. Við höfum tekið þær full- komlega alvarlega og höfðum verulegar áhyggjur af niðurstöðum þeirra í byrj- un vetrar. Síðari skoðanakannanir, einkanlega nú á þessu ári sýna hinsvegar þróun í gagn- stæða átt. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur verið að styrkja stöðu sína. Ég held að það sé í fullu samræmi við málefna- lega mjög sterka stöðu. Ég er alveg sannfærður um það að fólkið í landinu kann að meta þann árangur sem ríkisstjórnin hefur náð og það vill ekki glutra honum niður. Það vill ekki taka áhættuna af því að það komi ný vinstri- stjórn. Eina leiðin til þess að tryggja það er að Sjálfstæð- isflokkurinn komi öflugur út úr kosningum“. — Hvað með möguleika á stjórnarmyndun eftir kosn- ingar? „ Sj álf stæðisflokkurinn gengur með óbundnar hend- ur til kosninganna. Það er tvennt sem ræður úrslitum um það hverskonar ríkis- stjóm verður mynduð. Ann- arsvegar möguleikar tveggja eða fleiri flokka á málefna- legu samstarfi og hinsvegar það sem skiptir ekki minna máli, að valdahlutföllin á Al- þingi þau ráða endanlega úrslitum í þessu efni. Síðast þegar kosið var þá var Sjálf- stæðisflokkurinn í þeirri stöðu að það var nánast ekki unnt að mynda ríkisstjórn án hans. Við keppum auðvitað að því að halda þeim styrk- Þorsteinn Pálsson talar til fundarmani leika. Það er eini möguleikinn til þess að koma í veg fyrir vinstri stjórn." —Áfundinum á laugardag talaðir þú um pólitískt til- gangsleysi Alþýðubanda- lagsins. Þýðir það aðAlþýðu- flokkurinn sé ykkar helsti keppinautur um hylli kjós- enda? „Ég held að það fari ekkert á milli mála að uppá síðkastið hefur keppnin staðið milli okkar og Alþýðuflokksins. Það leit svo út í byrjun vetrar sem Alþýðuflokkurinn væri í verulegri sókn. Það er annað að koma á daginn núna og mér sýnist líka á viðbrögðum fólks við okkar málflutningi og fundahöldum að við fáum góðan hljómgmnn fyrir það sem við bemm fram". — Nú kom glöggt fram á þessum fundi hverja vantrú Vestfirðingar hafa á kvóta- kerfinu. Hvert er þitt áht? Flateyri: Nýtt leikrit Leikfélag Flateyrar frumsýnlr í byrjun næsta mánaðar nýtt ís- lenskt lelkrlt eftlr Brynju Bene- dlktsdóttur sem hún skrlfaði sérstaklega fyrlr Lelkfélaglð. Leikrltlð er byggt á þjóðsög- unni um Þorsteln Karlsson og tónlistln í því er eftir þá Magnús Þór Jónsson (Megas) og Atla Helmlr Svelnsson. Það er Oktavía Stefánsdóttir sem lelkstýrir þessarl uppsetn- Ingu fyrir Lelkfélag Flateyrar. hfil Framsóknarfólk! Opið hús á skrifstofunni að Hafnarstræti 8, ísafirði sunnudaginn 22. febrúar kl. 16.00 - 18.00. Við fáum okkur kaffi og kökur og ræðum við frambjóðendur. Á laugardaginn 21. febrúar verður opið hús að Aðalstræti 3, Bolungarvík kl. 16.00 -18.00. Frambjóðendur mæta. Fundur í framsóknarfélagi Súðvíkinga föstu- daginn 20. febrúar kl. 20.30 í Félagsheimil- inu. Frambjóðendur mæta. Framsóknarflokkurínn.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.