Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 5

Vestfirska fréttablaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 5
ts vestfirska TTAELASID 5 Lim markaða leið okkar [>g kj araskerðingu þeirra aður Sjálfstæðisflokksins í viðtali ia á Hótel ísafirði á laugardaginn. Til vinstri: Óli M. Lúðvíksson, fundarstjóri. „Þetta sjórnarmið Vest- firðinga er náttúrulega ekk- ert nýtt af nálinni. Yfirlýsing- ar gegn kvótakerfinu hafa komið frá öllum þing- mönnum stjórnarflokkanna af Vestfjörðum. Ég studdi þessa skipan mála á sínum tíma. Ég taldi þá og tel enn að það sé óhjá- kvæmilegt að hafa ákveðnar takmarkanir á sókn í þessa mikilvægu auðlind og um það held ég að sé ekki deilt. Við tókum þá afstöðu að atvinnugreinin sjálf ætti að hafa sem mest um það að segja hvernig þessar tak- markanir ættu sér stað. Það var víðtækust samstaða um þetta kerfi á meðal útgerð- armanna og sjómanna. A þeirri forsendu byggðist okk- ar afstaða. Nú ekkert kerfi er galla- laust eða endist til eilífðar og það þarf vafalaust að huga að því hvernig þessum mál- um verður best komið í fram- tíðinni". — Það var talsvert rætt um byggðamál á þessum fundi og Vestfirðingar virtust hafa vaxandi áhyggjur af þeirri þróun sem átt hefur sér stað. Hvað er til ráða? „Ríkisstjórnin hefur tekið þá ákvörðun að fela Byggða- stofnun að kanna þessi mál frekar og setja fram hug- myndir eða tilllögur til þess að spyrna megi við fótum. Það er ekki til framdráttar íslensku þjóðfélagi ef stór- kostleg byggðaröskun verð- ur og byggðin þjappast sam- an í of ríkum mæli á suðvest- urhorninu. Þess vegna er það keppikefli manna að við- halda eðlilegu jafnvægi í byggð. Eflaust eiga þéttbýl- isstaðirnir úti á landi eftir að styrkjast. Menn verða líka að hafa það hugfast að það er ekki atvinnubrestur á lands- byggðini sem þessu veldur. Þvert á mót þá er víða veru- legur uppgangur í atvinnu- lífi. Þarna koma til ýmsir aðrir þættir eins og samgöngur, félagsleg þjónusta, heil- brigðisþjónusta og mennt- unaraðstaða sem horfa verð- ur á í þessu sambandi. Ég held að þetta sé mjög víðtækt verkefni og vafalaust ekki eins einfalt úrlausnar eins og menn hafa haldið. Það fer ekki á milli mála að þetta er gífurlegt verkefni en hitt má líka vera ljóst að for- sendan fyrir því að hægt sé að spyrna við fótum er að stöðugleiki haldist í' þjóðfé- laginu og verðbólgan fari ekki af stað á nýjan leik. Ef að það gerist þá er ljóst að voðinn er vís“. — Að lokum Þorsteinn. Heimild sem er að finna ífjár- lögum til ráðherra að ábyrgj- ast lán til tækjakaupa fyrir Fjórðungssjúkrahúsið. Hvenær verður þessi heimild nýtt? „Það er gert ráð fyrir því að hún verði hagnýtt. Það hefur ekki enn verið ákveðið með hvaða hætti eða hversu um- fangsmikil þau kaup verða. En heimildin verður hagnýtt". —Ekki erað efa aðmörgfleiri málefni hefði mátt ræða við Þorstein Pálsson, formann Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra. En tími manns í hans stöðu er dýr- mætur og eftirspurnin meiri en framboðið og því látum við þetta gott heita og þökkum fyrir. Margir Vestfírðingar tóku til máls á fundinum með Þorsteini á laugardaginn. Halldór Hermannsson, ísafirði. Guðmundur B. Jónsson, Bolungarvík. Theodór Norðkvist, ísafirði. Magnús Reynir Guð- mundsson, Isafirði. Ólafur Krístjánsson, Bolungarvík. Af vettvangi bæjarmála Bæjarstjórn ísafjarðar heldur fund á Hótel (saflrði í kvöld kl. 20.00. Meðal þess sem bæjarstjórn þarf að taka afstöðu til eru ýmsar sam- þykktir og ályktanir bæjarráðs. Bæjarráð hefur óskar eftir því við stjórn og framkvæmdastjóra Fjórðungssjúkrahússins að gerð verði úttekt á launamálum á Sjúkrahúsinu. Hjúkrunarfræðingar við Fjórðungssjúkrahúsið hafa staðið í viðræðum við stjórn og framkvæmdastjóra um bætt launa- kjör. Stjómin ákvað á fundi 10. fe- brúar að undangengnum viðræð- um við bæjarráð að hafna þeirri málaleitan, enda væri ekki hægt að semja um launauppbætur til hjúkrunarfræðinga nema slíkir samningar væru gerðir af hálfu ríkisvaldsins eða með samþykki þess. Þá hefur bæjarstjóri lagt fram tillögu þess efnis að D.A.S. verði boðin gjaldfrí lóð til byggingar fyrir aldraða á ísafirði. Með þeirri til- lögu fylgdi kostnaðaráætlun Ingi- mundar Sveinssonar arkitekts að breyttri nýtingu gamla sjúkra- hússins. I tillögu bæjarstjóra segir að bæjarstjóm sé einnig tilbúin til viðræðna um að afhenda D.A.S. gamla sjúkrahúsið til breytinga, svo þar megi starfrækja dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn. 1 bókun með tillögunni segir að þetta sé sett fram til þess að fá umfjöllun um það hvað gert verði við húsið þar sem ljóst sé að það losni í lok þessa árs. Bæjarráð hefur fallist á beiðni í- þróttafulltrúa Bjöms Helgasonar um launalaust leyfi í eitt ár. Bæjarráð hafnar forkaupsréttar- tilboði að húsinu Smiðjugötu 8. Ráðið óskar eftir að ræða við Pétur Bjamason varðandi umsókn hans um aukið landrými fyrir lax- eldisstöð í Reykjanesi. Bæjarráð samþykkir að boða fulltrúa Tónlistarfélagsins til við- ræðna 2. mars n.k. Bæjarráð frestar afgreiðslu á umsókn Guðmundar Páls Krist- jánssonar um lóð undir loðdýrabú í Engidal. A fundi bæjarráðs 17. feb. kynnti Guðmundur H. Ingólfsson verk- efni varðandi byggðaþróun á Vest- fjörðum sem hann hefur hafið vinnu að á vegum Byggðastofn- unar. Óskaði Guðmundur eftir að TILBOÐ Óskum eftir tilboði í húseignina að Ljósalandi 4 Bolungarvík, sem er 2X140m2 Upplýsingar í síma 7466 eða á staðnum komið yrði af stað umræðum í bæjarstjóm um þessi mál. Stefnt er að því að taka árs- reikning fyrir árið 1986 til fyrri umræðu á fundi í mars. Kristján Jónasson hefur verið kjörinn formaður nefndar sem undirbýr stofnun sparisjóðs á ísa- firði. Með gætni skal um götur aka UXER0AB

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.