Vestfirska fréttablaðið - 08.10.1987, Blaðsíða 3
ísafjörður:
Hornsteininn vantar
— Menntaskólinn vígður af ráðherra menntamála
Húsnæði Menntaskólans á Torf-
nesi var formlega tekið í notkun á
föstudag af mennta-
málaráðherra, Birgi ísleifi Gunn-
arssyni.
Reyndar var aðeins verið að
taka formlega í notkun neðri hæð
skólahússins en í ræðu Björns
Teitssonar skólameistara kom
fram að aldrei var lagður horn-
steinn að byggingunni og hún því
aldrei formlega vígð á einn eða
annan hátt þó að kennsla hafi farið
fram í húsinu um árabil og heimav-
ist hafi verið í notkun síðan árið
1973.
Björn rakti við þetta tækifæri
stuttlega byggingarsögu skólans og
taldi að dregist hefði úr hömlu að
ljúka framkvæmdum en sam-
kvæmt fyrstu áætlunum átti þeim
að vera lokið fyrir rúmum 11 árum
síðan eða árið 1976.
Björg A. Jónsdóttir formaður
skólafélags Menntaskólans hélt
ávarp fyrir hönd nemenda, Matt-
hí as Bjarnason hélt tölu fyrir hönd
þingmanna, Haraldur L. Haralds-
son bæjarstjóri á ísafirði hélt ræðu
í krafti síns embættis og Birgir ís-
leifur Gunnarsson menntamála-
ráðherra tók húsið formlega í
notkun. Vígsluathöfninni lauk
með þvi að Jónas Tómasson lék
stutt verk á flautu.
Frá vinstri Björn Teitsson skólameistari Menntaskólans, Matthías Bjarnason 1. þingmaður Vestfjarða, Birgir
Isleifur Gunnarsson menntamálaráðherra, Björg A. Jónsdóttir formaður skólafélags Menntaskólans og Haraldur
L. Haraldsson bæjarstjóri.
Matthías Bjarnason:
Kostaöi 20 ára baráttu
— og átta frumvörp voru svæfð í nefnd áður en sigur vannst í kjölfar
áskorunar 2000 Vestfirðinga
„Á þessari stundu þá skulum
við minnast þess, að það kostaði
20 ára baráttu og mikið vatn rann
til sjávar áður en tókst að fá
samþykki stjórnvalda fyrir því að
reistur yrði Menntaskóli á
ísafirði," sagði Matthías Bjarna-
son fyrsti þingmaður Vestfirð-
inga í ræðu sinni, þegar skóla-
hús Menntaskólans var form-
lega tekið í notkun.
„Þau voru átta frumvörpin um
Menntaskóla á ísafirði, sem sofn-
uðu í nefnd eftir að hafa verið lögð
fram á Alþingi,“ sagði Matthías
ennfremur í ræðu sinni.
Hann sagði að það hefðu fleiri
tugir fjölskyldna flutt frá Isafirði og
víðar af Vestfjörðum vegna þess að
ekki tókst að koma skólanum upp
fyrr en raun bar vitni. Ekki hefði
heldur skort úrtölumennina, sem
talið hefðu það vonlaust að berjast
fyrir Menntaskóla á ísafirði.
Það var ekki fyrr en eftir að lögð
hafði verið fram áskorun rúmlega
tvöþúsund Vestfirðinga um að
Menntaskólinn yrði settur á fót, að
skriður komst á málið. Þá tókst loks
að koma málinu í gegnum Alþingi.
„Við verðum að halda áfram
baráttunni fyrir vegi þessa skóla og
engin ástæða er til að láta deigan
síga, þrátt fyrir að þessum áfanga er
náð,“ sagði Matthías Bjarnason
ennfremur.
Hann árnaði skólanum heilla
fyrir hönd allra alþingismanna
Vestfjarða og sagði að þeir mundu
halda áfram að vinna að velferð og
framgangi hans.
Matarhorn
VIÐSKIPTI
ÍSAFJÖRÐUR:
Urðarvegur 45, 135 fm íbúð á
neðri hæð í tvíbýli.
Silfurtorg 1, 3. hæð ásamt risi. Á
hæðinni sem er 100 fm er 4ra her-
berja íbúð. Risið er óinnréttað að
mestu. Laust fljótlega.
Pólgata 4, 5 herbergja íbúð á 2.
hæð ásamt bílskúr.
Raðhús í smíðum, nú eru að-
eins tvö hús eftir óseld af húsun-
um sem Guðmundur Þórðarson
er að byggja að Stakkanesi.
Kynnið ykkur hin hagstæðu
greiðslukjör.
Hjallavegur 8. 4ra herb. íbúð á
neðri hæð. Laus fljótlega.
Aðalstræti 15a, 5 herb. íbúð á
tveimur hæðum. Gæti hentaðfyrir
atvinnurekstur.
Stórholt 11, 4ra herb. íbúð á 2.
hæð ásamt bílgeymslu. Getur
losnað fljótlega.
Seljalandsvegur 30, 175 ferm.
einbýlishús með innbyggðum
bílskúr. 4 svefnherbergi. Húsið er
í góðu ástandi. Veðbanda laust.
Laust fljótlega.
Stórholt 13. Glæsileg 4ra herb.
Íbúðá3. hæðásamtbílgeymslu.
Hlíðarvegur 5, 3ja herb. íbúð á
1. hæð.
Stórholt 7, 3ja herb. íbúð á 3.
hæð.
Hlíðarvegur 7, 3ja herb. íbúð á
2. hæð. Bílskúr.
Stórholt 13,3ja herbergja íbúð á
1. hæð. Laus eftir samkomulagi.
Mjallargata 6, 4ra herb. íbúð á
efri hæð í suðurenda.
Sólgata 5, 3 herb. tbúð. Laus
fljótfega.
Hnífsdalsvegur 1, uppsteyptur
kjallari að einbýlishúsi, sem getur
orðið hvort sem er úr timbri eða
steini.
Sundstræti 24, 2ja herb. íbúð a
1. hæð.
BOLUNGARVÍK:
Skólastígur 13, 5 herb. íbúð í
parhúsí. Góð kjör.
Heiðarbrún 1. Einbýlishús á
tveim hæðum. Um 200 ferm.
Hjallastræti 20. Rúmlega 100
ferm. einbýlishús ásamt bílskúr.
Stigahlíð 2, 3 herb. íbúð á 2.
hæð.
Hlíðarstræti 37, 98 ferm. eínbýl-
ishús ásamt bílskúr.
Vitastígur 8, einbýlishús, hæðog
ris, 4 — 5 svefnherbergi.
Stigahlíð 4, 3 herb. endaíbúð á
3. hæð.
Hafnargata 110. Tæplega 100
ferm. álklætt einbýlishús.
Skólastígur 20, 5 herb. íbúð á
tveimur hæðum í parhúsi.
SÚÐAVÍK:
Túngata 6,120ferm. einbýlishús
ásamt 60 ferm. bílskúr.
ARNARGEIR
HINRIKSS0N, hdl.
Silfurtorgi 1,
ísafirði, sími 4144
Nautnaseggur
Það er Kristín Ólafsdóttir
húsmóðir og kennari á (safirði
sem sér um Matarhornið að
þessu sinni og býður lesend-
um upp á girnilegan fiskrétt
sem nefnist „Nautnaseggur".
Á eftir er vel við hæfi að bjóða
upp á kalóríusnauðan ávaxta-
rétt í eftirrétt.
Kristín varpar boltanum til
Helgu Sigmundsdóttur hús-
móður á ísafirði og skorar á
hana að sjá um Matarhornið
næst og er ekki að efa að Helga
taki þeirri áskorun vasklega.
NAUTNASEGGUR
2 ýsuflök
smjör
karrý
salt
pipar
hveiti
1 egg
soyasósa
11/2 - 2 pelar rjóma
rifinn ostur mildur.
Hveitið kryddað vel með
karrý, salti og pipar. Fiskinum
er velt upp úr egginu og síðan
upp úr karrýkrydduðu hveitinu.
Steikt á pönnu í smjöri og látið
í eldfast mót.
Skvetta af soyasósu látin á
pönnuna og rjómanum hellt
yfir. Suðan er látin koma upp
og mallað í 2 - 3 mín. Því næst
er þessu hellt yfiir fiskinn og
rifnum osti stráð yfir. Hitað í
200° heitum ofni í ca. 20 mín.
Borið fram með soðnum
hrísgrjónum, smjörsteiktum
banönum skornum í bita og á-
vaxtasalati.
ÁVAXTASALAT
1 dós kokteilávextir
1 bikar sýrður rjómi
Safinn er síaður frá ávöxtun-
um og sýrðum rjóma blandað
saman við ávextina, þó ekki
öllum í einu því salatið má ekki
verða of þunnt.
Kristín
Ólafsdóttir.