Vestfirska fréttablaðið - 08.10.1987, Blaðsíða 4
4
vestfirska
TTABLASID
Höfnin á ísafirði var troðfull af
skipum á mánudaginn. Flotinn leit-
aði vars undan vonskuveðri sem
ekki linti fyrr en á þriðjudag. Við
þetta tækifæri kom enn einu sinni
í Ijós að brýn þörf er á að auka
viðlegupláss í höfninni á Isafirði.
NÚ ER FROST Á FRÓNI
„Nú er frost á Fróni, frýs í
æðum blóð"
Þessar Ijóðlínur eiga vel við
Vestfirði þessa dagana þegar
fyrsta sýnishorn vetrarins hellir
úr skálum reiði sinnar yfir íbúa
þessa harðbýla fjórðungs. En
veðrið deilist ekki jafnt yfir alla.
Á ísafirði hefur verið norðan-
garður og snjór í byggð og ekki
gefið til flugs í tvo daga. Á sama
tíma er 20 cm þykkur snjór á
Flateyri, snjóföl og þokkalegt
veður með sólskinsköflum á
Nýtt fiskverð
á Vestíjörðum
Á miðvikudag var samið um
nýtt fiskverð á Vestfjöröum.
Það voru útvegsmenn og fisk-
seljendur sem gerðu sam-
komulag við sjómenn sem gilda
á frá 1. október til 31. janúar.
Konráð Eggertsson sagði í
samtali við Vestfirska frétta-
blaðið að verðið ætti að gilda
fyrir alla Vestfirði frá Djúpi og
suður um til Patreksfjarðar.
Meðalhækkun er um það bil
6%. Nokkrar tegundir eins og
lúða, koli, langa, hlýri og keila
hækka ekkert að þessu sinni.
Mest er hækkunin á ýsu og
stórum ufsa sem hækka um
12%. Tveggja kílóa ýsa með
kassauppbót gefur nú 40,66
krónur fyrir hvert kíló. Smáufsi
hækkaði um 3%.
Þorskur hækkaði um 6,3% og
fást nú 31,42 krónur fyrir kílóið
af tveggja kílóa þorski með
kassauppbót.
Fyrir þessa hækkun tíðkaðist
að greiða sjómönnum 5%
hærra verð á þeim stöðum þar
sem ekki er settur fiskur í gáma.
Er búist við að það fyrirkomu-
lag haldist óbreytt.
Ætlar að
smíða 23
feta
Daði Hinriksson á ísafirði hef-
ur í hyggju að hefja framleiðsiu á
23 feta plastbátum.
„Ég er búinn að fá mót af bát
frá Noregi og um leið og ég fæ
kaupanda er mér ekkert að van-
búnaði að hefja smíðar" sagði
Daði í samtali við Vestfirska
fréttablaðið.
Hér er um að ræða báta sem eru
23 fet að lengd og eru seldir undir
nafninu Tramp 685. Með í kaup-
unum fylgdi framleiðsluréttur á
bátunum á Islandi.
„Þetta er hægt að framleiða
hvort heldur sem er sem skemmti-
báta eða fiskibáta“ sagði Daði.
„Það verður hinsvegar að ákveða
báta
strax því það er krafist meiri styrk-
ingar í fiskibátum en
skemmtibátum.“
Bátar eins og þessir rista 0,55
metra, eru 6,85 metrar á lengd og
2,58 metrar á breidd. Hámarks-
ganghraði þeirra er 35 sjómílur.
Notkun hraðskreiðra báta til
handfæraveiða hefur talsvert færst
í vöxt á seinustu árum og nægir að
benda á Sómabátana sem notið
hafa mikilla vinsælda. Tramp 685
mun vera sambærilegur að stærð
við Sóma 700.
Auðvelt er að lengja bátana án
mikils aukakostnaðar og ná þeir þá
svipaðri stærð og Sómi 800.
Þingeyri og á Bíldudal hefur
ekki sett niður snjókorn enn
sem komið er.
Afladálkur sá er hér fer á eftir
mun draga nokkurt dám af
veðurfarinu. Bátar hafa legið í
landi síðan fyrtr helgi. Togarar
hafa einhverjir reynt að eiga við
veiðar. Bátarnir sem eru á út-
hafsrækjunni hafa legið í höfn í
nokkra daga. Þegar þetta kem-
ur fyrir augu lesenda verður
flotinn vonandi haldinn til hafs
á ný.
Súðavík:
ORRI kom inn 3. október og
landaði 12 tonnum af rækju og
er þar með hættur rækjuveið-
um að sinni. Hann fer í klössun
á Akureyri og eftir það á línu-
veiðar frá (safirði.
BESSI kom inn 5. október með
80 tonn af blönduðum afla. 40
tonnum af því var skipað út í
Anne Lise til sölu á erlendum
markaði.
HAFFARI landaði á mánudag
13 tonnum af rækju.
ísafjörður:
PÁLL PÁLSSON kom inn til
löndunar 5. október 79,1 tonn.
Aflinn var að mestu leyti þorsk-
ur, ásamt 14 tonnum af ufsa.
JÚLÍUS GEIRMUNDSSON átti '
að selja í Hull í gær. Hann var
með 170-80 tonn. Aflinn var að
mestu leyti þorskur en ein-
hverjir tugir tonna af kola og
ýsu flutu með. Ekki fengust
fregnir í tíma af sölu Júlíusar.
GUÐBJARTUR kom inn á
mánudag með rétt 50 tonn af
kola og ýsu. 20 tonn af því voru
sett um borð í Anne Lise sem
lagði úr höfn á ísafirði um há-
degi á þriðjudag. Vonast var til
þess að fiskurinn næði á mark-
að erlendis á föstudag en
vegna tafa af völdum veðurs
verður trúlega ekki selt úr Anne
Lise fyrr en á mánudag. Af-
gangurinn af afla Guðbjarts fór
til vinnslu í Hraðfrystihúsi
Norðurtangans á (safirði.
GUÐNÝ fór í sinn fyrsta línu-
róður í gær.
VIKINGUR lil er í slipp á Akur-
eyri.
Þeim fækkar stöðugt bátun-
um á úthafsrækjunni og margir
þeirra lögðu upp í síðasta skipti
að sinni. Reynslan sýnir að erf-
itt er að sækja á rækjuna þegar
komið er fram á þennan tíma.
Bæði hamla veður og langar
siglingar. í síðasta afladálki
sögðum við frá því að SIG-
URJÓN ARNLAUGSSON færi á
loðnuveiðar. Það var auðvitað
rangt og hið rétta er að bátur-
inn er að hefja línuveiðar. Hann
iandaði 7 tonnum af rækju í
síðasta túr. Aðrir bátar sem
lögðu upp rækju á ísafirði voru,
HILMIR með 7 tonn, DRÖFN 4
tonn en hún heldur eitthvað á-
fram á rækju. SVANUR13 tonn,
FÍFILL 14 tonn, GÍSLIÁRNA 19
tonn, VÍKINGUR AK 16 tonn,
ISLEIFUR 9 tonn, ARNAR 7
tonn, GAUKUR 8 tonn, GEIR-
FUGL 6 tonn, ÓSKAR HALL-
DÓRSSON 8,1 tonn, ALBERT
13,3 tonn HARPA RE 10,5 tonn
og SÆBORG 4,5 tonn.
Suðureyri:
ELÍN ÞORBJARNARDÓTTIR
kom inn á laugardag vegna bil-
unar í spili. Eftir helgina var
landað úr henni tæpum 40
tonnum. Elín liggur enn í landi á
Suðureyri og er unnið að við-
gerð á spilbúnaðinum. Aðrir
bátar frá Suðureyri hafa ekki
farið á sjó undanfarna daga.
„Hér hefur verið norðan-
garður og ekki hundi út sig-
andi, hvað að nokkur maður láti
sérdetta í hug að róa til fiskjar"
sagði fremur úriliur viðmælandi
blaðsins á Suðureyri.
Svona líta þeir
út bátarnirsem
Daöi ætlar að
hefja smíði á,
um leið og
kaupandi fæst.