Vestfirska fréttablaðið - 08.10.1987, Qupperneq 5
5
Fyrsta loðnan
komin til
Bolungarvíkur
Á sunnudagskvöld barst
fyrsta loðnan á þessari vertíð til
Bolungarvíkur þegar Skarðs-
víkin landaði þar 250 tonnum af
loðnu.
DAGRÚN kom inn á mánudag
með rúm 55 tonn af blönduðum
afla, mest þó af kola og ýsu. 15
tonn af þorski fóru í vinnslu hjá
íshúsfélagi Bolungarvíkur, en
40 tonn voru sett um borð í
Anne Lise.
HEIÐRÚN landaði á mánudag
52 tonnum. 20 tonn af því voru
Flateyri:
GYLLIR er kominn heim úr
slipp í Englandi. Hann lá úti a
höfninni á Flateyri í tollskoðun
þegar Vestfirska leitaði tíðinda
frá Flateyri.
JÓNÍNA for ítvo róðra með línu
frá Flateyri í síðustu viku og
fékk alls tæp sex tonn.
Á Flateyri er 20 cm jafnfallinn
snjór.
sett í tvíbytnuna Anne Lise sem
nú baksar með ferskan fisk á
erlendan markað. Afli Heiðrún-
ar var blandaður, mikið af kola
og ýsu.
Þeir fáu færabátar sem enn
eru að í Bolungarvík hafa lítið
sem ekkert fiskað að undan-
förnu enda veður verið válynd.
Tveir litlir bátar stunda línu-
veiðar frá Bolungarvík og hafa
mest fengið 2 tonn í róðri.
HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR er á
netum og hefur fengið lítið.
Þingeyri:
FRAMNESIÐ landaði 30. sept-
ember 58 tonnum af þorski og
ufsa.
SLÉTTANESIÐ er væntanlegt
til heimahafnar úr slipp f Noregi
á þriðjudag í næstu viku.
MÝRAFELL, MÁNI, og GUÐ-
MUNDUR B. ÞORLÁKSSON
róa með dragnót frá Þingeyri
og fengu alls 4,9 tonn í síðustu
viku.
Einn handfærabátur iandaði
110 kílóum í vikunni.
DÝRFIRÐINGUR og GÍSLI
PÁLL róa með línu og fengu
samtals 1435 kftó í síðustu viku.
Bfldudalur:
SÖLVI BJARNASON landaði á
mánudag 25 tonnum sem voru
mestmegnis þorskur. Sölvi er
farinn til veeða á ný. Ekki hefur
gefið sérlega vel fyir skelbáta
sem leggja upp hjá Rækjuveri.
Tálknafjörður:
TÁLKNFIRÐINGUR kom inn á
mánudag með 53 tonn af
blönduðum afia. 13 tonn voru
sett í gáma til sölu erlendis en
það er alla jafna ekki gert mikið
af því á Táiknafirði. Það mun
hafa verið mest koli sem settur
var í gámana. 25 tonn af aflan-
um voru þorskur.
Smærri bátar frá Tálknafirði
hafa lítið komist á sjó.
Patreksfjörður:
SIGUREY landaði 28. fyrri
mánaðar 101 tonni og var um
það bil helmingur þorskur en
hitt blandað. Hún kom síðan
aftur inn á þriðjudaginn vegna
veðurs og landaði þá um 20
tonnum.
Skipverjarnir á Sæborgu RE notuðu tækifærið í bræiunni og unnu við að dytta að troilinu. Dálítið kuldaiegur
starfi, en íslenskir sjómenn kaiia ekki allt ömmu sína í þeim efnum.
UTFLUTT
FRYST RÆKJA
1982-1986
2102
Stærsta ævintýrið
Þróun rækjuveiða og rækjuvinnslu og markaðs-
setning rækjuafurða er stærsta ævintýrið í ís-
lenskum sjávarútvegi hin síðari ár. Frá 1982 til
1886 fjórfaldaðist rækjuafli landsmanna. Á
sama tíma sjöfaldaðist rækjufrysting hjá fram-
leiðendum Sjávarafurðadeildar.
Stóraukinn útffutningur
Framleiðendur Sjávarafurðadeildar og deildin
sjálfhafa því tekið virkan þátt í þessu ævintýri.
Kemur þetta fram á súlnaritinu hér að ofan sem
sýnir útflutning okkar af frystri rækju, bæði pill-
aðri og heilfrystri, á fimm ára tímabilinu frá 1982
til 1986.
Við þökkum framleiðendum okkar góðan
og vaxandi stuðning. Á móti leggjum við
brautryðjendastarf í vöruþróun og eftirliti
með vörugæðum; og sölukerfi sem teygir
sig hvert þangað sem vænta má markaðs-
möguleika fyrir frysta rækju. g
ro
Sambandshúsið f
101 Reykjavík 5
Sími 91-28200 f
Telefax 91-28314
Telex 2023 sís ís
ísafjörður:
Lolla
sýnir á
neðri
hæð M.í.
Um þessar mundir stendur yfir
málverkasýning Alfhildar Olafsdótt-
ur (Lollu) á neðri hæð Menntaskól-
ans á Isafirði. Þar sýnir Alfhildur ol-
íumálverk og ættu margar fyrir-
myndirnar að koma ísfirðingum og
Vestfírðingum kunnuglega fyrir
sjónir.
Sýningin er opin frá kl. 18 - 22
virka daga, en frá 14 - 22 um helgar.
Sýningunni lýkur 11. október.