Vestfirska fréttablaðið - 08.10.1987, Page 12
MYNDARAMMAR
Smellurammar
Trérammar
Álrammar
PLAKATRAMMAR
Bókaverslun
Jónasar Tómassonar
Sími3123 ísafirði
T//M
v
VEGAGERÐIN
Símsvarar með
upplýsingum um færð:
Patreksfjörður: 1348
ísafjörður: 3958
Hólmavík: 3105
tvestfirska
hefur
heyrt
Að það sé ekki einleikið hvað
sumir menn geta verið utan
við sig og gleymnir.
Gott dæmi um þetta er
maðurinn sem á fimmtudegi
keypti sér miða á árshátíð
sem var haldin á laugardags-
kvöld. Umræddur maður er
hinsvegar svo utan gátta að
hann steingleymdi að mæta á
skemmtunina þegar til kom.
Um þennan mann hefurverið
sagt að hann láti Landsímann
hringja í sig klukkan sex á
aðfangadag til þess að minna
sig á jólin.
Hann er og eini maðurinn
sem vitað er til að hafi starfs-
mann í vinnu hvers megin-
verkefni er að passa skjala-
tösku yfirboðara síns sem
hann að sjálfsögðu gleymir
hvar sem hann kemur. Gallinn
er bara sá að hér er aðeins um
hálfa stöðu að ræða og þess
vegna er taskan alltaf týnd.
Að flest sem birtist í þessum
dálki sé orðum aukið.
Að landafræðikunnáttu ís-
firskra menntaskólanema sé
nokkuð ábótavant. Þetta
komst upp á dögunum þegar
kennari ávítaði eina af náms-
meyjunum fyrir að hafa slegið
slöku við heimanámið og fyrir
að hafa mætt seint í skólann.
Stúlkan gaf þau svör að
hún hefði ekki mætt fyrr en
raun bar vitni því hún hefði
dvalist í útlöndum með for-
eldrum sínum og ekki komið
til landsins fyrr en nokkru eftir
að skólastarfið hófst.
„Þér var nær að vera heima
og læra heldur en að vera úti
á flandri" sagði þá kennarinn
í hálfkæringi.
Við þessi orðaskipti greip
annar nemandi fram í fyrir
kennaranum og sagði: „Já en
hún var ekki úti á flandri, hún
var úti á Spáni.“
Að um væntanlegt formanns-
kjör í Alþýðubandalaginu og
framboð Ólafs Ragnars
Grímssonar til þess embættis
hafi ónefndur hagyrðingur ort
þessa spádómslegu vísu sem
Gísli Hjartarson ritsjóri Vest-
firðings heyrðist raula fyrir
munni sér á dögunum.
Úti í kulda flokkur frýs,
fána sviptur rauðum.
Ólafur Ragnar Grímmsson
grís
gekk af honum dauðum.
Og nú segja menn Ólaf
Ragnar „einu von Alþýðu-
bandalagsins".
Grunnskólinn í Hnífsdal:
Fær höfðinglega
gJOf
— Jóakim Pálsson færir skólanum óútfyUta ávísun
Otibúi Grunnskóla ísa-
fjarðar í Hnífsdal barst höfð-
ingleg gjöf á dögunum þegar
Jóakim Pálsson skipstjóri og
útgerðarmaður í Hnífsdal
kom að máli við kennara og
kvaðst hafa heyrt að skólann
gæti vantað einhver „tól og
tæki“ eins og hann orðaði
það.
Skipaði hann forráðamönn-
um skólans að kaupa það sem
þeir teldu helst að vantaði fyrir
skólann og mætti kostnaðurinn
fara í rúm 200 þúsund.
Ekki mun endanlega ákveðið
hvað verður keypt til skólans
fyrir atbeina Jóakims en for-
ráðamenn skólans munu vera
að íhuga tölvukaup af einhverju
tagi.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Jóakim Pálsson lætur höfðing-
legar gjafir af hendi rakna til
skólans í Hnífsdal og er þess
skemmst að minnast er hann á
síðasta ári færði skólanum að
gjöf vandað myndbandstæki,
skjá og upptökutæki.
t .v V
HFLGAfiíWAí^
Spáð er norðlægum
áttum með éljagangi
næstu daga. Því má búast
við einhverri röskun á
flugí til ísafjarðar.
Góða ferð.
Vetur
konungur
heílsar
Vetur konungur settist að völdum á
nokkuð hranalegan hátt á mánudag-
inn. Sumum kom hann í opna skjöldu.
Tvö minniháttar umferðaróhöpp urðu
á Hnífsdalsvegi á mánudag, og vöru-
bfll með fisk rann útaf Skutulsfjarð-
arbraut.
En lífið gengur áfram sinn vanagang
þó veðrið yggli sig örlítið. Þessa mvnd
tókum við af starfsmönnum Isafjarð-
arkaupstað þar sem þeir unnu við að
skipta um þekju á hluta hafnarinnar á
mánudaginn. Ekki varð hjá því kom-
ist eftir að vörubíll valt á hliðina þarna
á dögunum eftir að þekjan hafði gefið
sig undan þunga bQsins.
hljómtækjasamstæður
á frábæru verði
POLLINN hf.
POLLINN
VERSLUN
RAFÞJÓNUSTA
SÍMI 3092
ÐILALEIGA
Nesvegi 5 • Súðavík S 94-4972 - 4932
Vatnsmýrarvegi 34 • V/Miklatorg S 91 -25433
Afgreiðsla á ísafjarðarflugvelli S 94-4772
SENDUM ÐÍLINN
Opið allan sólarhringinn