Vestfirska fréttablaðið - 08.04.1988, Side 3
I vestfirska ~~l
FRETTABLADIS
Vestfirska fréttablaðið kemur út vikulega. Ritstjórn og auglýsingar:
Aðalstræti 35, ísafirði, sími 4011 og 3223. Heimasími vegna auglýs-
ingaer4057. Útgefandi: Grafíktækni h.f., ísafirði. Ritstjóri og ábyrgð-
armaður: Hlynur Þór Magnússon. Prentun: Prentstofan (srún h.f.,
ísafirði. Verð í lausasölu kr. 70. Áskriftarverð er lausasöluverð reiknað
hálfsárslega eftir á.
RITSTJORN:
Tímamót
Nú um páskana hafa orðið miklar breytingar á högum Vestfirska
fréttablaðsins. Og ekki nóg með það: í vændum eru miklar breytingar
á innihaldi þess og útliti.
Árni Sigurðsson stofnaði Vestfirska fréttablaðið sem óháð viku-
blað fyrir bráðum hálfum öðrum áratug, og byggði það upp og rak
ásamt Guðrúnu Halldórsdóttur konu sinni. Árni var útgefandi blaðs-
ins og lengst af ritstjóri þess, allt þar til á síðasta sumri, er hann fór
ásamt fjölskyldu sinni til námsdvalar í Bandaríkjunum. Hann fól þá
rekstur blaðsins og ritstjórn öðrum í hendur, þótt hann ætti það
sjálfur áfram. Nú hefur hins vegar nýstofnað hlutafélag á ísafirði,
Grafíktækni h.f., keypt Vestfirska fréttablaðið af Árna. Nýr ritstjóri
er einnig kominn til starfa við blaðið.
Aðaleigendur Grafíktækni h.f. eru jafnframt stærstu hluthafar í
Prentstofunni ísrúnu h.f. á ísafirði, þeir Eyþór Hauksson, Hlynur
Þór Magnússon, Hörður Kristjánsson og Rögnvaldur Bjarnason.
Jafnframt eigendaskiptunum hefur Vestfirska fréttablaðið skipt
um aðsetur. Það er flutt úr Hafnarstrætinu og búið að hreiðra um sig
nýrri í skrifstofu í Aðalstræti 35, þar sem Prentstofan fsrún er til
húsa. Síminn er hins vegar hinn sami, 4011, og þangað til fleiri línur
fást inn má einnig notast við síma Prentstofunnar, 3223.
Þetta var um breytingarnar sem þegar eru orðnar á högum Vest-
firska fréttablaðsins. Nú skal geta um væntanlegar breytingar á útliti
og innihaldi blaðsins.
Með öðru tölublaði Vestfirska fréttablaðsins hér frá mun brot þess
minnka nokkuð, úr dagblaðsbroti í tímaritsbrot, en blaðsíðurnar
verða auðvitað miklu fleiri um leið. Mikil áhersla verður á það lögð
að láta blaðið standa undir nafni sem vestfirskt blað en ekki bara
ísfirskt, en stundum hefur nokkuð þótt skorta á það. Komið verður
á föstum fréttatengslum út um allan Vestfjarðakjálkann. Jafnframt
verður útkomu blaðsins flýtt um einn dag til hagræðis við dreifingu.
Það mun koma út síðdegis á miðvikudögum, en ekki á fimmtudögum
eins og tíðkast hefur. Þar með er miklu tryggara að blaðið komist
með skilum hvert á land sem er fyrir helgi, en verði ekki innlyksa í
flutningi fram í næstu viku.
En það verður ekki aðeins reynt að hafa fréttirnar í Vestfirska
fréttablaðinu fleiri og víðar að. Annað efni blaðsins verður fjölbreytt-
ara, einmitt í takt við breytinguna á broti þess í tímaritsform.
En sjón er sögu ríkari. Við biðjurn ykkur að skoða gerbreytt
Vestfirska eftir tvær vikur og leggja dóm ykkar á útkomuna.
Lesendur skrifa:
O sú náð
að eiga skipulag
„ísfirðingur“ skrifar:
Fyrir nokkru mátti sjá í Degi á
Akureyri viðtal við skipulagsstjóra
þeirra Akureyringa. Sá maður ætti
ekki að vera ísfirðingum með öllu
ókunnur, því að þetta er enginn
annar en Finnur Birpisson, sonur
Birgis Finnssonar ísfirðings og
fyrrum alþingisforseta. í viðtalinu
gagnrýnir Finnur ýmislegt í bygg-
ingarlist og skipulagsmálum á Ak-
ureyri. Þar kemur fram það álit
Finns, að ef haldið verði áfram að
byggja ljót hús á Akureyri, þá fari
ekki hjá því að bærinn hætti að
vera fallegur.
Ætli þessar hugleiðingar Finns
eigi ekki eitthvert erindi til annarra
en Akureyringa? Hvað með skipu-
lagsmál á Vestfjörðum til dæmis?
Hafa menn veitt athygli þeirri
stefnu (eða því stefnuleysi) sem
ríkt hefur í byggingarlist á ísafirði
á undanförnum árum og ára-
tugum? Hvað finnst mönnum til
dæmis um nýju sjúkrahúsbygging-
una?
Mörg dæmi mætti telja, en það
verður að bíða betri tíma. Þó væri
vert að geta um eitt atriði sem
varðar skipulagsmál á ísafirði, og
margir virðast ekki hafa leitt hug-
ann að til þessa. Það er varðandi
gömlu kirkjuna og hennar um-
hverfi. Hafa menn hugieitt þá
mynd sem kemur til með að blasa
við vegfarendum sem um bæinn
fara, þegar kirkjan hefur verið
rifin? Gamla kirkjan okkar sem
hefur í gegnum árin sett mikinn
svip á svæðið norðanvert við Hafn-
arstrætið ofan Sólgötu verður þar
að líkindum ekki mikið lengur.
Hvað blasir þá við þeim sem þar
eiga leið um? Það er ljóst: Nötur-
legur baksvipur húsa, nöturlegur
baksvipur sem til þessa hefur verið
falinn á bak við kirkjuna.
Tilkynning um
eigendaskipti
Við undirrituð tilkynnum hér með að við höfum selt
Grafíktækni hf. Aðalstræti 35, ísafirði,
Vestfirska fréttablaðið.
Gekk það í gildi þann 1. apríl.
Frá og með þeim tíma er rekstur blaðsins
á ábyrgð Grafíktækni hf.
Viðskiptavinum blaðsins og lesendum þökkum við
ánægjulega samfylgd undanfarin 13 ár.
Nýjum útgefendum óskum við alls hins besta
og vonum að Vestfirska fréttablaðið megi áfram
hafa hagsmuni Vestfirðinga í öndvegi.
Árni Sigurðsson og Guðrún Halldórsdóttir.
FASTEIGNA-
VIÐSKIPTI
ÍSAFJÖRÐUR:
Einbýlishús/Raðhús:
Mjógata 5: Stórt einbýlishús á
tveimur hæðum, uppgerð að
hluta. Eignarlóð.
Fagraholt 5: Nýlegt einbýlishús
á einni hæð, ásamt bílskúr.
Seljalandsvegur 75: Stórt ein-
býlishús með tveim íbúðum,
ásamt bílskúr.
Tangagata 6: ca 160 fm einbýlis-
hús á tveimur hæðum m/kjallara.
Tvær íbúðir, geta selst sitt í hvoru
lagi.
Miðtún 39: Raðhús á tveimur
hæöum ásamt bílskúr. Laust
strax.
Brautarholt 14:160 fm, einbýlis-
hús á einni hæð ásamt bílskúr.
Sundstræti 11: Lítið einbýlishús
á tveimur hæðum.
Hrannargata 4: 4x80 fm einbýlis-
hús á fjórum hæðum, ásamt
bílskúr. Eignarlóð.
4-6 herb. íbúðir:
Solgata 8: l’búð á eftri hæð í þrí-
býlishúsi. Skipti á minni íbúð
möguleg.
Mjallargata 6: ca 100 fm íbúð í
þríbýlishúsi. Skipti möguleg á
stærri eign.
Sundstræti 30: Rúmgóð íbúð í
þríbýlishúsi.
3ja herb. íbúðir:
Stórholt 11:75 fm íbúð á 2. hæð
í fjölbýlishgúsi. Skipti á stærri
eign möguleg.
Pólgata 6: íbúð á 3. hæð, að
hluta undir súð. Laus strax.
Hreggnasi 3: íbúð á efri hæð i
tvíbýlishúsi, að mestu uppgerð.
Hlíðarvegur 16: 70 fm ibúð á
e.h. í þríbýlishúsi. Skipti á stærri
eign möguleg.
Heimabær 5: Efri hæð í fjórbýlis-
húsi.
Stórholt 11: ca 82 fm íbúð á 1.
hæð í fjölbýlishúsi. Skipti á stærri
ÓKEYPIS
smá-
auglýsingar
PLASTBÁTUR
Til sölu plastbatur, Víkingur,
plastklár (nýsmtði). Verð kr.
430 þús.
Upplýsingar gefur Daði í síma
(94)3806 eða 3555.
SV-600
Til sölu SV-600 plastbátur,
nýsmíði, Mercruiser 145
hestöfl. Verð kr. 600 þús.
Upplýsingar gefur Daði í síma
(94)3806 eða 3555.
BÍLEIGENDUR ATHUGIÐ
Þeir viðskiptavinir sem eiga bíla á söluskrá hjá
okkur síðan fyrir 1. janúar ’88 eru vinsamlega
beðnir að endurnýja skráningu sem fyrst.
Ástæðan er sú, að við viljum hafa sem réttasta
og besta skrá.
eign möguleg.
Hrannargata 9: 100 fm tbúð í
sérbýli. Skipti ástærri eign mögu-
leg.
Smiðjugata 9: 85 fm íbúð á n.h.
i tvibýlishúsi. 50% af kjallara og
lóö.
2ja herb. ibúðir:
Tangagata 8a: ca 50 fm íbúð á
n.h., ásamt Vz kjallara.
Sundstræti 29: 2 íbúðir á n.h. í
tvíbýlishúsi.
Sundstræti 24: ca 60 fm íbúð í
þríbýlishúsi.
Engjavegur 33: íbúð á n.h. í tví-
býlishúsi.
SUMARHÚS
Birkihlíð í Tunguskógi: Stórt
sumarhús á tveimur hæðum, mik-
ið endurnýjað.
BlLSKÚR:
Túngata 22: Bilskúr, að mestu
kláraður.
BOLUNGARVÍK:
Þjóðólfsvegur 14: íbúð í fjölbýl-
ishúsi. Laus fljótlega.
Þjóðólfsvegur 16: íbúð í fjölbýl-
ishúsi.
Stigahlfð 2: (búð í fjölbýlishúsi.
3ja herb. íbúðir.
Skólastígur 13: Sérbýli ríbýlis-
húsi.
Vitastígur 8:90 fm íbúð á 1. hæð
í fjórbýlishúsi. Allt sér.
4-6 herb. íbúðir.
Hafnargata 46:130 fm efri hæð,
ásamt sameign.
Vitastígur 15: ca 70 fm íbúð í fjöl-
býlishúsi. Laus fljótlega.
Einbýlishús/raðhús.
Traðarland 8: 150 fm einbýlis-
hús, ásamt bílskúr.
Hjallastræti 37: ca 100 fm einbýl-
ishús, ásamt bílskúr.
Heiðarbrún 8: 128 fm einbýlis-
hús, ásamt bílskúr.
Hjallastræti 18:120 fm einbýlis-
hús, ásamt bílskúr. Sólstofa í
byggingu.
Kirkjuvegur 2: ca 200 fm einbýl-
ishús, ásamt bílskúr.
Skólastígur 24:130 fm parhús á
tveimur hæðum.
Traðarland 24: 203 fm einbýlis-
hús með kjallara.
Ljósaland 9: 140 fm timburhús,
ásamt bílskúr, >
Tryggvi
Guðmundsson
hdl.
Hrannargötu 2, ísafirði,
sími 3940.