Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1988, Side 4

Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1988, Side 4
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA VESTFJÖRÐUM Svæðisstjórn málefna fatlaðra Vestfjörðum óskar eftir skrif stofuhúsnæði á ísaf irði und- ir starfsemi sína frá n.k. áramótum. Æski- leg stærð u.þ.b. 100 fermetrar. Hentugt íbúðarhúsnæði kemur einnig til greina. Nánari upplýsingar fást hjá framkvæmda- stjóra Svæðisstjórnar í síma 94-3224. Málverkasýning Föstudaginn 2. desember opnar Ásgerður Kristjánsdóttir frá ísafirði málverkasýningu á Hótel ísafirði. Þetta er önnur einkasýning hennar. Ásgerður verður við á föstudögum og laugar- dögum milli kl. 2 og 4. Á sýningunni verða eingöngu olíumálverk. Allir velkomnir. FUNDARBOÐ Almennur félagsfundur verður haldinn í fundar- sal slökkviliðs ísafjarðar fimmtudaginn 1. des- ember kl. 20:30. (Slökkvistöðinni). Dagskrá: 1. Uppsátur fyrir sportbáta. 2. Flotbryggjumál - hafnaraðstaða - tryggingamál. 3. Undirbúningur aðalfundar. 4. Önnur mál. MÆTUM ÖLL Stjórnin. TIL SÖLU af sérstökum ástæöum gullfallegt eintak af Hondu Prelude árg. 1983, ekinn aðeins 77 þús. km. Nánari upplýsingar í síma 4554 eða 3223. Aðalfundur H.F. DJÚPBÁTSINS fyrir árið 1987 verður haldinn að Hótel ísafirði föstudaginn 9. desember kl. 17:00. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjómin. vestfirska TTABLADID Þrautgóðir á raunastund -árin 1972-74 Út er komið hjá Erni og Örlygi 19. og næstsíðasta bindi björgun- ar- og sjóslysasögu íslands, Praut- góðir á raunastund, í samantekt Steinars J. Lúðvíkssonar. Þetta bindi fjallar um árin 1972-74. Á þeim árum gerðust margir stórvið- burðir, og má þar m.a. nefna er togarinn Hamranes sökk út af Jökli sumarið 1972, en mikil réttar- höld fylgdu í kjölfar þess atburðar. Hörmuleg sjóslys urðu í skaða- veðrum í febrúar 1973, en þá fór- ust vélbátarnir María og Sjöstjarn- an með allri áhöfn. Leitin að Sjö- stjörnunni stóð tíu daga og mun vera umfangsmesta leit á sjó við ísland. Þá segir frá strandi breska togarans Port Vale við Lagarfljóts- ósa, og fjölmargar aðrar frásagnir eru í bókinni. Þetta er næstsíðasta bindið í bókaflokknum, a.m.k. í bili. Verið er að vinna að nafnaskrá ritsafns- ins og kemur sú bók út á næsta ári sem tuttugasta bindið. Bolungarvík: Myndbönd á bókasafni Nýlega barst Bókasafni Bolung- arvíkur vegleg gjöf frá Lionsklúbbi Bolungarvíkur, eins og getið var um í síðasta blaði. Gjöf þessi, sem er tíu myndbandsspólur af ýmsu tagi, kemur sér afar vel fyrir safnið. Á myndböndum má nú fá ýmsan fróðleik, og af þeim toga eru myndbönd þau sem Lionsklúbbur- inn gaf. Má þar nefna efni eins og Myndhverf orðtök í umsjá Helga J. Halldórssonar, Aldaslóð Björns Th. Björnssonar, Jarðfræði eftir Ara Trausta Guðmundsson og Halldór Kjartansson, Veður eftir Markús Á. Einarsson, og Portraits of Iceland eftir Ómar Ragnarsson. Stjórn bókasafnsins þakkar Lionsmönnum kærkomnar gjafir, og hvetur bæjarbúa til að notfæra sér útlán á myndböndunum. Bóka- safnið er opið virka daga á eftirfar- andi tímum: Mánudaga kl. 17-19. þriðjudaga kl. 20-22, miðvikudaga kl. 16-19, og fimmtudaga og föstu- daga kl. 17-19. (Frá stjórn Bókasafns Botungarvíkur.) Ný fróðleiksnáma eftir Ásgeir Jakobsson: Siglingasaga Fyrsti formaður Sjómannadagsráðs var isfirðingur að uppruna og lauk pungaprófi hér fyrir vestan (hvað er annars pungapróf?) Út er komin bókin Siglingasaga Sjómannadagsráðs eftir Ásgeir Jakobsson rithöfund. Þetta rit er gefið út í tilefni af 50 ára afmæli Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði, en sjómannafélögin í þessum bæjum stóðu saman að hinum fyrsta Sjómannadegi 6. júní árið 1938. Alla tíð síðan hafa félögin þar haft með sér samtök, sem heita einfaldlega Sjómanna- dagurinn í Reykjavík og Hafnar- firði og lúta stjórn Sjómannadags- ráðs. Reyndar var Sjómannadag- urinn einnig haldinn hátíðlegur á einum stað á Vestfjörðum þennan sama dag árið 1938, þ.e. á ísafirði, og var þess minnst hér í sumar. Síðan bættust önnur pláss á land- inu í hópinn á næstu árum á eftir. Fyrsti formaður Sjómannadags- ráðs var Henry Hálfdansson, og gegndi hann formennskunni allt til ársins 1961. Þess má geta, að Henry var ísfirðingur, fæddur á ísafirði árið 1904 og alinn hér upp; foreldrar hans voru Þórkatla Þor- kelsdóttir og Hálfdan Ágúst Brynjólfsson sjómaður. Henry hóf sjómennsku um fermingu á bátum hér fyrir vestan, og tók fiski- mannapróf á ísafirði 1921, punga- prófið svokallaða. Sú nafngift var dregin af litlum jögtum Ásgeirs- verslunar, stuttum og breiðum, sem kallaðar voru „pungar" eða „Árnapungar“ í höfuðið á faktorn- um. Réttindin dugðu fyrir þessi skip, eða 30 tonn, og því fyrir mestan hluta bátaflotans á þessum tíma. Einar Thoroddsen var síðan formaður Sjómannadagsráðs í eitt ár (1961-62), en þá tekur við for- mannstími Péturs sjómanns Sig- urðssonar, sem enn stendur. Bókin Siglingasaga Sjómanna- dagsráðs er mikil að vöxtum, um 500 blaðsíður, og prýdd geysi- legum fjölda mynda af sjómönnum og skipum. Henni er skipt í fimm hluta. Fyrsti hluti er um aðdrag- andann og fyrsta Sjómannadag- inn, annar hluti segir frá árunum 1939-61, og þriðji hlutinn nær yfir tímabilið 1962-76. Fjórði hlutinn hefst þegar Hrafnista í Hafnarfirði er vígð 1977, og þar er yfirlit um öll fyrirtæki Sjómannadagsráðs sem nú eru í gangi: Hrafnistu í Reykjavík, Hrafnistu í Hafnar- firði, orlofshúsahverfi að Hraun- koti í Grímsnesi, Laugarásbíó, Happdrætti DAS og Sjómanna- dagshaldið sjálft. í fimmta hluta bókarinnar eru síðan skrár um þá sem unnið hafa til verðlauna í keppni á Sjómannadaginn í Reykjavík og Hafnarfirði; um alla þá sem heiðraðir hafa verið í pláss- unum tveimur; um þá sem hlotið hafa afreksverðlaun dagsins í Reykjavík og Hafnarfirði; og loks er fulltrúatal Sjómannadagsráðs í hálfa öld. Inn í þessa frásögn alla er bland- að sjávarútvegssögu tímabilsins, einkum að því leyti sem breytingar í sókn og úthaldi skipa hafa haft áhrif á sögu Sjómannadagsins og sjómannslífsins. Óhætt er að segja, að bók þessi er hin mesta fróðleiksnáma, og lipurlega og skemmtilega skrifuð eins og von er frá hendi Ásgeirs Jakobssonar. Víða skýtur hann inn „athuga- semdum og útleggingum ófræði- mannslegum af sinni náttúru“, eins og hann orðar það sjálfur. Þetta er fimmtánda frumsamda bók Ásgeirs Jakobssonar, sem út kemur á rúmum tuttugu árum. Langflestar þeirra fjalla um sjó, út- gerð eða sjósókn með einum eða öðrum hætti. Þar á meðal eru ævi- sögur Einars Guðfinnssonar, Tryggva Ófeigssonar og Einars Þorgilssonar útgerðarmanns í Hafnarfirði. HÞM

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.