Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1988, Page 6

Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1988, Page 6
6 AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ! Til að hægt sé að gera auglýsingum góð skil á síðum Vestfirska fréttablaðsins fyrir jólin, þá er æskilegt að auglýsingahandrit berist tímanlega. Næsta blað kemur út miðvikudaginn 7. des- ember. Jólablað 1 kemur út miðvikudaginn 14. des- ember og jólablað 2 miðvikudaginn 21. des- ember. Síðasta blað ársins kemur svo út fimmtudag- inn 29. desember. Ívestfirska I Jólakveðjur í jólablaði Vestfirska Þeim sem vilja senda Vestfirðingum jólakveðjur er bent á að hafa samband við skrifstofu blaðsins í síma 4011. Blað Vestfirðinga um land allt. Frá Vestfirska fr&ttaJbladirru. Að grefnu tilefni viljum við taka fram, að reikningar sem Ólafur Geirsson hefur verið að senda út að undanförnu í nafni 'Vestfirska fréttablaðsins eru rekstri blaðsins í dag með öllu óviðkomandi. f vestfirska ~l FRETTABLAÐID Grafíktækni hf. Aðalfundur Aðalfundur Styrktarfélags vangefinna verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu 2. hæð mánudaginn 5. desember kl. 21.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin. / \ ^Ijl<lþBR0SUM/ ||UMFEROAfl Æ' jj OCJ W (J§J,J\ alltgengurbetur ^ S / NÝTT SÍMANÚMER 688888 l l/cJ'Aöfam' 6rfbn*t/s&fns/>ý' iMfUiaA/. \ GEYSIR Car rental I SUÐURLANDS8RAUT16 (VBgmútamegin), REYKJAVfK. SÍMI 91-688888. ÞÚ TEKUR VIÐ BÍLNUM Á FLUGVELLINUM ÞEGAR ÞÚ KEMUR OG SKILUR HANN EFTIR Á SAMA STAÐ ÞEGAR ÞÚ FERÐ. ■ö: vestfirska TTABLADID SÚÐAVÍK BESSI landaði síðastliðinn mán- udag 55 tonnum. HAFRÚN sem er á rækju í ísafjarðardjúpi var með um 1.700 kg. eftir fimmtudag og föstudag. HAF- FARI var væntanlegur að landi í gær með um 12 til 13 tonn af úthafsrækju. ÍSAFJÖRÐUR GUÐBJARTUR landaði í gær um 60 tonnum af karfa. Af þess- um afla var sett í fjóra gáma á Þýskalandsmarkað. Guðbjartur er nú búinn að fara þrjá karfatúra. Ekki var ákveðið í gær hvort hann yrði enn sendur á karfa í næsta túr, en hann á töluvert eftir af karfakvótanum. Sæmilegasta verð er fyrir karfa á Þýskalands- markaði. Línubátar hafa verið með mis- jafnan afla, allt frá fimm tonnum upp í tíu tonn, en meðaltalið er þó um 7 til 8 tonn f róðri. Ein- dæma veðurblíða hefur verið á miðunum undanfarið og bátar komist á sjó upp á hvern dag. JÚLÍUS landaði í gær um 100 tonnum, mest þorski, en um 12 tonn af kola. Sett var í þrjá gáma af afla Júlíusar f þetta skiptið. GUÐBJÖRG er á karfa fyrir sunnan land. PÁLL PÁLSSON landaði á mánudag um 45 tonnum af þorski og fór allur aflinntil vinnslu hjá Hraðfrystihúsinu í Hnífsdal. Hjá Bakka hf. í Hnífsdal hafa rækjubátar sem eru á úthafs- rækju verið að landa þetta um þremur tonnum á dag. Þar eru menn nú að klára að vinna þau 110 tonn af frosinni norskri rækju sem fyrirtækið keypti til vinnslu. ÞINGEYRI SLÉTTANES landaði rúmum 25 tonnum á laugardaginn, en þá kom það inn vegna bilunar sem reyndist þó ekki alvarleg. DÝR- FIRÐINGUR landaði 1.840 kíló- um og TJALDANES 1.520 kíló- um þann 24. þessa mánaðar. FRAMNES selur f dag í Hull. BÍLDUDALUR SÖLVI BJARNASON er á veið- um, en er væntanlegur á föstu- dag. Góð rækjuveiði er í Arnar- firði og rækjan stór og falleg. Nú er unnin fjörtíu stunda vinnu- vika í frystihúsinu og vonast er til að hægt verði að halda uppi at- vinnu til jóla, en heldur er farið að saxast á kvótann hjá togaranum. TÁLKNAFJÖRÐUR TÁLKNFIRÐINGUR landaði f gær um 100 tonnum. Línubátar hafa verið með þetta um sex til sjö tonn í róðri. Gefið hefur upp á hvern dag og er aflinn þvf nokkuð drjúgur þegar upp er staðið eftir vikuna. Fiskurinn í afla bátanna er góður. Þrátt fyrir allan barlóminn, þá er nokkuð gott hljóð í Tálknfirðing- um. Telja sumir þar á bæ að á- standið f landsmálunum sé full svart málað á vegginn, og slíkt geri bara illt verra, ekki sfst fyrir landsbyggðina. Sveiflur í at- vinnulífi fslendinga eru ekkert nýmæli, en vandamálið nú telja menn fyrst og fremst því að kenna að fólk hefur ekki kunnað sér hóf. Kaupæði og utanlands- ferðir sem aldrei fyrr, og þvf fer sem fer. PATREKSFJÖRÐUR SIGUREY selur í dag um 160 tonn í Bretlandi. ÞRYMUR hefur verið á skrapi, en lítið að hafa. Afli línubáta á Patreksfirði hefur verið á svipuðu róli og annars- staðar á Vestfjörðum. Góðar gæftir og vænn fiskur. Ef eitthvað er, þá telja menn fiskinn í afla bátanna stærri og betri nú en oft áður á þessum árstíma. SUÐUREYRI ELÍN ÞORBJARNARDÓTTIR kom með um 100 tonn á mánu- dagskvöld. Aflinn var að mestu þorskur. INGIMAR MAGNÚS- SON hefur fiskað ágætlega og er kominn með rúmlega 50 tonn í þessum mánuði. BJARNVEIG hefur einnig fiskað vel, eða 4-5 tonn í róðri. Ekkert hefur gefið á sjó fyrir SÓLEY. BOLUNGARVÍK Á mánudag og þriðjudag lönd- uðu togararnir DAGRUN og HEIÐRUN afla sínum í Bolung- arvík. Dagrún vár með 80 tonn rúm og setti í tvo gáma, en Heiðr- ún 40 tonn og setti líka í tvo gáma. Fjórir loðnubátar lönduðu á sunnudag og mánudag. VÍKUR- BERG var með um 570 tonn, ÍS- LEIFUR landaði um 690 tonnum, ÖRN var með 760 tonn og GULLBERG með um 600 tonn. Lfnuafli hefur verið þetta upp undir fimm tonn. Frekar treg rækjuveiði hefur verið hjá þeim bátum sem veiða á ísafjarðar- djúpi, eða svona sex til átta hundruð kílóa meðalafli á bát yfir daginn og rækjan frekar smá. FLOSI er að byrja á línuveiðum og fer trúlega í sinn fyrsta róður á morgun. SÓLRÚN sem er á úthafsrækju landaði um 28 tonnum á laugar- dag. Af þeim afla fóru 18 til 19 tonn til vinnslu í landi, en annað var stórrækja á Japansmarkað. (gær var skipað út um 500 tonn- um af mjöli frá Síldar- og fiski- mjölsverksmiðjunni í Bolungar- vík. FLATEYRI GYLLIR landaði í gær um 75 tonnum af ufsa og karfa, en togarinn mun hafa haldið sig í Víkurálnum. Afli línubáta var þokkalegur í gær og í fyrradag, um 8 til 9 tonn á bát. ( síðustu viku var afli heldur minni hjá línubátunum eftir góða viku þar áður. Sölustopp á rjúpu? Happdrættisalmanak Þroskahjálpar fyrir 1989 komið út Sölufólk gengur í hús á næstunni Út er komið listaverkaalmanak Landssamtakanna Þroskahjálpar fyrir árið 1989. Almanakið er unn- ið í samvinnu við félaga í íslenskri grafík, eins og þrjú undanfarin ár, og prýða það þrettán grafíkmyndir eftir íslenska listamenn, ein fyrir hvern mánuð, auk forsíðumyndar. Almanakið er jafnframt happ- drættismiði sem er í gildi allt árið, og eru vinningar dregnir út mánað- arlega. í vinning að þessu sinni eru þrír bílar af gerðinni Toyota Cor- olla og níu Sony sjónvarpstæki. Sl. þrjú ár hefur upplagið nær selst upp og væntanlega verður svo einnig nú. Því eru litlar líkur á að vinningar komi á óseld almanök, Tólf ár að baki Landssamtökin Þroskahjálp hafa nú starfað í tólf ár, en þau voru stofnuð í því skyni að sam- eina í eina heild þau félög sem vinna að málefnum fatlaðra, sem ekki geta barist fyrir hagsmunum sínum sjálfir. Samtökin eru í senn baráttuaðili fyrir rétti fatlaðra og samstarfsaðili við ríkisvaldið um málefni þeirra. Einnig sinnir Þroskahjálp fræðslu- og útgáfustarfi og stendur fyrir hópstarfi þroskaheftra. Þá reka samtökin gistiheimili í Kópa- vogi fyrir foreldra utan af landi, sem þurfa að sækja til höfuðborg- arinnar með fötluð börn sín til at- hugunar og meðhöndlunar. Almanakshappdrættið er helsta fjáröflunarleið Þroskahjálpar. Sölufólk mun ganga í hús um land allt næstu vikurnar. Róbert Schmidt, Suðureyri. Rjúpnaveiðin hefur verið ansi misjöfn undanfarnar vikur. Aðra vikuna er snjór til fjalla, en hina er snjólaust með öllu. Þetta er hvimleitt fyrir rjúpnaveiðimenn, enda ber veiðin merki þess. Hér á Suðureyri er ákveðinn kjarni rjúpnaskyttna, sem skreppa annað slagið upp til fjalla, en aflinn hefur dinglað í fimm til tíu í ferð. Þrjátíu rjúpur veiddust þó einn daginn, og nokkrum sinnum hafa menn komist í fimmtán til tuttugu í ferð. Tveir menn fóru héðan inn í ísafjarðardjúp og veiddu sextíu rjúpur á tveimur dögum, sem er ágætisveiði. Margir eru komnir með á ann- að hundrað rjúpur, og eru því dálítið að spá í verðið sem fæst fyrir þær. í Miklagarði og Hag- kaupum í Reykjavík fengust þær upplýsingar, að þar væri rjúpan keypt á kr. 270 stykkið staðgreitt. Þetta þykir rjúpnaskyttum held- ur í lægri kantinum, því að 300 krónur fengust fyrir stykkið í fyrra. Þess vegna er við því að búast að rjúpnaskyttur um land allt taki sig saman um að selja ekki fyrr en um miðjan desem- ber. í rjúpnaleysinu verður við- skiptavinurinn þá farinn að leita á önnur mið en í búðirnar.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.