Vestfirska fréttablaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 8
Málfríður Halldórsdóttir
Frá jólafagnaðí aldraðra á Isafirði 1988
Margir góðir gestir — 160 manns í veislunni!
Félagsstarf aldraðra á ísafirði
hélt sinn árlega jólafagnað síðasta
laugardag, þann 10. desember, og
hófst hann kl. 15:30.
„L/f/u jól“ í Gúttó
Við það tækifæri rifjaðist upp
fyrir mér, er ég fyrir mörgum árum
átti mín fyrstu „litlu jól“ með eldri
borgurum, sem ég var þá farin að
starfa fyrir, eða réttara sagt með.
Ég hafði samband við Kvenfélag
kirkjunnar og sóknarprest, og var
þá ákveðinn jólafagnaður í
„Gúttó“. Tókst sú skemmtun mjög
vel og man ég að Jón Magnússon
stýrði samkomunni af miklu ör-
yggi. Hallgrímur Jónsson frá
Dynjanda fór með þulu, Unnur
Gísladóttir las sögu, sóknarprestur
sýndi myndir af kirkjum landsins,
karlakórinn söng, og einnig var
mikið um almennan söng. Góðar
veitingar voru, þar sem starfsmað-
ur Félagsstarfs aldraðra og Kven-
félag kirkjunnar sáu um að nóg
væri til.
Ánægjuleg samvinna margra
Mjög ánægjulegt er til þess að
hugsa, að þessi ágæta samvinna
skuli hafa haldist öll þessi ár, og
sýndi það best sá jólafagnaður sem
nú er nýafstaðinn. En til þess að
svo geti verið áfram, þarf góðan
vilja til samstarfs og tillitssemi við
þá sem að málum standa.
A hverju hausti er haldinn fund-
ur með Félagsstarfinu og félögum
þeim í bænum, sem hafa verið með
skemmtanir fyrir aldraða, og er
það gert til þess að koma í veg fyrir
að samkomur og skemmtanir rek-
ist á. I samráði við þá sem mættu
var að þessu sinni ákveðið að hafa
jólafagnaðinn 10. desember, og
var það gefið út í dagskrá. Engin
athugasemd var gerð við þessa á-
kvörðun, fyrr en annar aðili í bæn-
um ákvað seinna að hafa uppá-
komu þann 10. desember. Of seint
var að breyta ákvörðun Félags-
starfsins, þar sem fleiri aðilar áttu
hlut að máli, og mikinn undirbún-
ing var búið að leggja í að allt færi
sem best fram. Um tíma leit út fyr-
ir að Sunnukórinn gæti ekki mætt
með söng sinn, en með góðum vilja
stjórnanda kórsins tókst að standa
áætlun, og skulu Beötu Joó færðar
sérstakar þakkir fyrir.
Hátíðarsvipur á salnum og fólk-
inu
En nú skal sagt frá jólagleðinni
sjálfri. Eftir að allt húsið hafði ver-
ið skreytt, var samkomusalurinn í
Hlíf orðinn mjög jólalegur. Stórt
jólatré ljómaði með sínum mörgu
ljósum, alls konar jóla- og greni-
skreytingar settu sinn svip á salinn,
sem var þéttsetinn er hátíðin byrj-
aði.
Allir virtust í hátíðarskapi, enda
er alltaf beðið með eftirvæntingu
eftir þessari aðalhátíð Félags-
starfsins á hverju ári. Séra Jakob
Hjálmarsson flutti hugvekju og
bæn, sungnir voru jólasálmar við
undirleik Hólmfríðar Magnúsdótt-
ur, sem er einn af íbúum Hlífar.
Þar á eftir voru veitingar; súkku-
laði og rjómi samkvæmt gamalli
venju. Meðlæti var fjölbreytt, en
um það sáu í sameiningu Kvenfé-
lag kirkjunnar og starfsmenn Fé-
lagsstarfsins.
Hinn árlegi happdrættisvinning-
ur var eins og venjulega matarkarf-
an vinsæla, og einnig var annar
vinningur, farmiði ísafjörður-
Reykjavík- ísafjörður, sem var
gjöf frá Flugleiðum á ísafjarðar-
flugvelli. Síðan komu jólasveinar
með pakka sína, og fengu þeir góð-
ar móttökur.
Tónlist, upplestur, kórsöngur
Að því loknu voru mætt börn úr
Tónlistarskóla ísafjarðar ásamt
Sigríði skólastjóra og Jónasi Tóm-
assyni. Flutt var fjölbreytt tónlist
og var þeim þakkað með lófataki
og öllum boðnar veitingar.
Ingibjörg Guðmundsdóttir las
upp fallega jólasögu, og fórst
henni vel upplesturinn, eins og
hennar var von og vísa. Sunnukór-
inn söng nokkur falleg lög; einnig
hluti af barnakór Tónlistarskólans,
og stjórnaði Beata af miklum
skörungsskap, en systir hennar,
Agota Joó, spilaði undir. Kórun-
um var vel fagnað og beðið um
meiri söng, og allir sungu saman
Heims um ból. Síðan voru kórfólki
boðnar veitingar, og var ánægju-
legt að sjá hve allir virtust kunna
vel við sig þarna, jafnt ungir sem
aldnir.
Góður vilji og hlýhugur
Jólafagnaðurinn tókst mjög vel
og fóru allir ánægðir heim. Hin
góða samvinna, sem verið hafði
við undirbúninginn, var ekki síðri
við allan frágang, sem var ekki lítill
eftir um 160 manna veislu.
Vil ég nota þetta tækifæri til þess
að þakka alla þá góðu samvinnu
og aðstoð við þessa ánægjulegu
hátíð okkar, því að á góðum vilja
og hlýhug byggist öll vinna í þágu
þeirra sem hennar þurfa með. Veit
ég af eigin reynslu, að aldraðir
kunna að meta það sem þeim er
vel gert.
Ég óska öllum í Félagsstarfinu
og öðrum íbúum bæjarins gleði-
legra jóla og góðs komandi árs,
með þökk fyrir liðið ár.
Félagar, hittumst heil á næsta
starfsári.
F.h. Félagsstarfs aldraðra,
Málfríður Halldórsdóttir.
Hólmfríður Magnúsdóttir íbúi á Hlíf lék undir á orgel þegar sungnir voru
jólasálmar að lokinni hugvekju sr. Jakobs Hjálmarssonar. Á myndinni
er einnig Bjarney Ólafsdóttir, formaður Kvenféiags kirkjunnar.
Frá jólafagnaðinum á laugardag: Þrír jólasveinar komnir í heimsókn.
Þeir voru að sjálfsögðu aldursforsetarnir í samkvæminu.
Málfríður Halldórsdóttir hefur ekki bara unnið að félagsstarfi aldraðra.
í jólablaði Skutuls fyrir hartnær aldarfjórðungi (1964) er sagt frá nýaf-
stöðnu föndurnámskeiði Æskulýðsráðs og birtar margar myndir. Þá var
Malla einmitt einn afkennurunum á námskeiðinu. Með þessari mynd úr
Skutli er eftirfarandi texti: Fjórar stúlkur með jólapokana sína. Talið frá
vinstri: Ólöf Jónsdóttir, Sigrún Skúladóttir, Sigurveig Gunnarsdóttir og
Guðrún Halldórsdóttir.
Frá jólafagnaði aldraðra á ísafirði árið 1981. Á myndinni er jólasveinn
(af Kiwaniskyni), fyrir aftan sitja Guðmundur E. Guðmundsson (sem nú
er látinn) og Liija Halldórsdóttir, en fremst til hægri er Jón Magnússon,
sem stjórnaði samkomunni.
Barnakór Tónlistarskóla ísafjarðar að syngja á Hlífá laugardaginn, við
undirleik og undir stjórn systranna Agotu og Beötu Joó.
Við jóiatréð á Hlíf: Gerður Pétursdóttir, umsjónarmaður Félagsstarfs
aldraðra, og Málfríður Halldórsdóttir, forstöðumaður þess.