Vestfirska fréttablaðið - 15.12.1988, Síða 9
t5
vestfirska
TTABLADID
9
Benedikt Eggertsson framkvæmdastjóri íslax h.f. með tvo væna laxa.
Hilmar Pálsson fylgist ánægður með (Hilmar er kennari í Reykjanesi og
einn afþeim sem standa að fiskeldisstöðinni Hveravík h.f. í Reykjanesi,
sem getið var um í síðasta blaði; auk þess er hann bróðir Þorleifs
Pálssonar sem flutti laxinn til ísafjarðar).
Kirkjulíf
ísafjarðarkapella:
Litlu jól kirkjuskólans sunnudag 18. des. kl. 14.
Suðureyri:
Aðalsafnaðarfundur í Félagsheimilinu sunnudag 18.
des. kl. 14.
íslax h.f. á Nauteyri:
Ný fiskeldisstöð
í Reykjanesi
Rætt við Benedikt Eggertsson
framkvæmdastjóra
Nokkur ár eru liðin síðan íslax
h.f. hóf framkvæmdir við laxeldis-
stöð á Nauteyri við ísafjörð. Nú
eru þar í kerjum um 140-150 þús-
und seiði, sem eru eins og hálfs til
tveggja ára gömul og 100-300
grömm á þyngd. Ætlunin er að ala
þau áfram í matfiskstærð, en pláss-
leysi í kerjunum á Nauteyri er nú
að verða tilfinnanlegt, að sögn
Benedikts Eggertssonar fram-
kvæmdastjóra íslax h.f. Nú er
fyrirtækið að koma sér upp annarri
stöð í Reykjanesi handan fjarðar-
ins, eins og lítillega var vikið að í
síðasta blaði, og ætlunin er að þar
verði mikið af þessum seiðum alið
áfram. Auk framangreindra seiða
eru í stöðinni hátt í 300 þúsund
smáseiði.
„Framkvæmdirnar í Reykjanesi
byrjuðu í september-október, og
verkinu hefur miðað furðanlega
vel miðað við árstíma", sagði
Benedikt Eggertsson í samtali við
Vestfirska fréttablaðið. „í vetur er
ætlunin að koma þar upp fjórum
kerjum, sem hvert um sig verður
1000 rúmmetrar að stærð, og von-
andi getum við komið því fyrsta í
gagnið upp úr áramótum. Síðan
bætast við sex minni ker, og má
búast við að þetta verk standi alveg
fram á næsta haust. Seinna verður
svo hægt að bæta við fleiri kerjum,
ef þörf krefur.“
Benedikt sagði, að stöðin í
Reykjanesi væri einungis ætluð til
frameldis, og mundi hún taka við
seiðum frá stöðinni á Nauteyri.
„Seiðin sem við erum nú með á
Nauteyri verða alin í kerjum fram
á vor, bæði þar og í Reykjanesi, en
þá fer stór hluti af þeim í sjókvíar
við Nauteyri. Þar verða þau fram
að slátrun næsta haust. Nokkur
hluti fisksins verður hins vegar al-
inn í kerjum allt sumarið og fram
á vetur. Síðan verður slátrað smátt
og smátt upp úr þeim allan vetur-
inn og fram á vor, þótt meginslátr-
unin verði úr sjókvíum á haustin. “
Einnig sagði Benedikt, að íslax
myndi hafa möguleika á því að
selja stór seiði á vorin, 700-800
gramma, til sumareldis í sjókvíum
og slátrunar að hausti.
Helstu hluthafar í íslaxi h.f. eru
Engilbert Ingvarsson, sem er
stjórnarformaður, Benedikt Egg-
ertsson framkvæmdastjóri, Hrað-
frystihúsið Norðurtangi h.f. á ísa-
firði, Hjálmur h.f. á Flateyri, og
Einar Guðfinnsson h.f. í Bolung-
arvík.
í síðasta blaði sögðum við frá
laxaslátrun inni í Djúpi á undan-
förnum vikum, bæði hjá íslaxi og
eldisstöðinni Blælaxi í Nauteyrar-
hreppi. Laxinn hefur verið fluttur
til Isafjarðar, þar sem hann hefur
verið slægður hjá Norðurtangan-
um, en síðan hefur ísfang séð um
að flytja hann ferskan flugleiðis á
erlenda markaði. Myndirnar sem
hér fylgja eru frá slátruninni og út-
skipuninni á laxinum inni í Djúpi,
en Þorleifur Pálsson á ísafirði hef-
ur flutt laxinn til ísafjarðar á báti
sínum.
Guðsþjónustur um hátíðarnar
Patreksfjarðarprestakall
Patreksfjarðarkirkja
A ðfangadagskvöld:
Aftansöngur kl. 18.
Jóladagur:
Guðsþjónusta kl. 14.
Annar jóladagur:
Barnasamkoma í kirkjunni kl. 11.
Gamlárskvöld:
Ajtansöngur kl. 18.
Stóra-Laugardalssókn
A ðfangadagskvöld:
Ajtansöngur í kirkjunni kl. 22.
Annar jóladagur:
Guðsþjónusta í kirkjunni kl. 14.
Gamlársdagur:
Barnasamkoma í skólanum kl. 11.
Bolungarvíkur-
prestakall
Hólskirkja
A ðfangadagskvöld:
Aftansöngur kl. 18.
Jóladagur:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.
Annar jóladagur:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Gamlárskvöld:
Aftansöngur kl. 18.
Nýársdagur:
Guðsþjónusta kl. 14.
Sjúkrahúsið í Bolungarvík
Jóladagur:
Guðsþjónusta kl. 16.
Suðureyrarprestakall
Suðureyrarkirkja
A ðfangadagskvöld:
Aftansöngur kl. 18.
Jóladagur:
Guðsþjónusta kl. 14.
Annar jóladagur:
Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Gamlársdagur:
Áftansöngur kl. 18 (ef ekki verður aft-
ansöngur í Staðarkirkju).
Nýársdagur:
Fjölskyldumessa kl. 11.
Staðarkirkja
Gamlársdagur:
Aftansöngur kl. 18 (efveður leyfir kynd-
lagöngu frá Suðureyri).
Badudalsprestakall
Bíldudalskirkja
A ðfangadagskvöld:
Aftansöngur kl. 18.
Jóladagur:
Guðsþjónusta kl. 14.
Isafjarðarprestakall
Isafjarðarkapella
A ðfangadagskvöld:
Náttsöngur kl. 23:30.
Jóladagur:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14 (skírn).
Gamlárskvöld:
Hátíðarmessa kl. 18 (altarisganga).
Súðavíkurkirkja
A ðfangadagskvöld:
Náttsöngur kl. 21:30.
Hnífsdalskapella
A ðfangadagskvöld:
Aftansöngur kl. 18.
Nýársdagur:
Hátíðarmessa kl. 17 (altarisganga).
Þingeyrarprestakall
Þingeyrarkirkja
A ðfangadagskvöld:
Aftansöngur kl. 18.
Jóladagur:
Guðsþjónusta kl. 11.
Gamlárskvöld:
Aftansöngur kl. 18.
Hrafnseyri
Annar jóladagur:
Guðsþjónusta kl. 11.
Mýrakirkja
Annar jóladagur:
Guðsþjónusta kl. 14.
Sæbólskirkja
Annar jóladagur:
Guðsþjónusta kl. 16.
Reykhólaprestakall
Reykhólakirkja
Jóladagur:
Messa kl. 14.
Garpsdalskirkja
Annar jóladagur:
Messa kl. 14.
Gufudalskirkja
Jóladagur:
Messa kl. 17.
Holtsprestakall
Flateyrarkirkja
Jóladagur:
Guðsþjónusta kl. 14.
Holtskirkja
Jóladagur:
Guðsþjónusta kl. 16.
Axel Eiríksson ursmiöur
Oríent úr — Falleg og vönduð
Úrval af fallegum hágæðavörum
frá Orient. Úr er góð gjöf.
Einnig, Casio hljómborð.
Úrsmíðavinnustofa
AxelS EÍríkSSOnar Aðalstræti 22, síml 3023.