Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 21

Vestfirska fréttablaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 21
Reykjavíkurbréf Páll Ásgeir Ásgeirsson. „ ...freistandi að grípa til bersöglismála og segja frá öllu því sem ég komst á snoðir um í starfi mínu sem blaðamaður á Vestfirska fréttablaðinu...“ Það er nebbnilega það. Og um hvað skyldi þetta bréf svo eiga að fjalla? Það er nú það. Um hvað á leikritið að fjalla Eyvindur? Vissu- lega koma nokkrir kostir til greina. Ef bréfið ætti að vera skemmti- legt og hreinskilið og ljóstra upp leyndarmálum um innviði ísfirsks viðskiptalífs, þá myndi ég segja frá hvernig það bar til að ég sam- þykkti að skrifa það. Það voru ein- kennilegir samningar, tímafrekir og í þeim voru brotnar flestar meg- inreglur algengra viðskiptahátta. En það yrði bæði höfundi bréfsins og ritstjóra blaðsins til minnkunar, svo við förum ekki nánar útí þá leiðindasálma. Ég ætti kannski að bera vistina á mölinni hörðu saman við fjalla- faðminn bláa og mjúka. Á hnytt- inn og skemmtilegan hátt gæti ég dregið upp hreint ómótstæðilega mynd af sumarfríi andans í ávaxta- lundum menningarinnar í Reykja- vík. Hér drýpur nefnilega smjör eða einhverjar aðrar fitusýrur af hérumbil hverju strái. Hér eru allt- af allir óskaplega hressir og kátir eins og Jón Hreggviðsson var þeg- ar verið var að hýða hann. En ís- firðingar hafa allir komið til Reykjavíkur og látið sér leiðast þar, svo það gerum við ekki. Annar kostur væri að grípa til heimsósómastílsins og segja Isfirð- ingum ærlega til syndanna. Láta vaða yfir þá hárbeittar og glögg- skyggnar aðfinnslur um allt það sem aflaga hefur farið og er að fara á Eyrinni við Skutulsfjörð. Það er nefnilega útbreiddur misskilning- ur, að allt sé í sómanum og lukk- unnar velstandi þar vestra. Þar eru margir pottar brotnir og sumir al- veg í mél. En ísfirðingar hlustuðu aldrei á mig meðan ég var heima- maður, og gera það trúlega ekki nú. Einnig væri freistandi að grípa til bersöglismála og segja frá öllu því sem ég komst á snoðir um í starfi mínu sem blaðamaður á Vestfirska fréttablaðinu hér áður en mátti ekki eða gat ekki skrifað um af félagslegum, pólitískum, efnahagslegum eða persónulegum ástæðum. En eins og máltækið segir: Sá sem ætlar að vaða í drullupollum skyldi sjálfur klæðast vaðstígvélum. Svo ekki skulum við tala meira um það. Nú síðast en ekki síst, þá gæti ég skrifað í grátklökkum saknaðartón um kosti þess að búa í dreifbýlinu. Ég gæti mært landsbyggðina og fjandskapast útí þéttbýlið þangað til lesendur væru farnir að gráta af heilagri vandlætingu og með- aumkvun með mér. Veslings burt- flogni unginn úr dreifbýlishreiðr- inu. Bittinú, nú varð mér fingra- skortur á lyklaborðinu. Er ísa- fjörður dreifbýli? Samkvæmt skil- greiningu mun svo ekki vera, held- ur telst hann vera þéttbýli og að auki höfuðborg Vestfjarða (að áliti innfæddra). Ég ætlaði auðvitað að segja (eða skrifa) að ég gæti skrifað um kosti þess að búa úti á landi. En það yrði aldrei mjög sannfær- andi lesning, svo við sleppum því. Það endar sennilega með því að ég verð að sleppa því að skrifa þennan árans pistil. Enda er ég ekki viss um að lesendur geri sér almennt grein fyrir því, hvílíka alúð og natni þarf að leggja í pistla- skrif af þessu tagi til þess að læsi- legt sé. Andríki, gáfur, fyndni og ótrúlegt innsæi í þjóðarsálina og líkamann og allt heila klabbið, allt þarf þetta að vera til staðar. Og samkeppnin, maður guðs og lif- andi. Állt frá því að Flosi fór að verða vinsæll að marki fyrir skrif sín í Vilja þjóðarinnar og síðar Blað alþýðunnar, þá hafa velst fram á hinn margfótumtroðna rit- völl óteljandi spámenn sem vaða yfir þjóðina á grútskítugum blek- rosabullunum. Ekki verður svo opnað blað, kveikt á útvarpi eða yfirhöfuð litið í eða á fjölmiðla, að þar sé ekki mættur einn árans pistlahöfundurinn enn. Sjáiði bara nýja sunnudagsmoggann. Þessi hlunkur er ein pistlahrúga frá fyrstu síðu til hinnar öftustu. Ég lýsi ábyrgð á hendur Flosa Ólafs- syni. NiSíir með pistilinn. Ég lýsi því hérmeð yfir að þessi pistill, ef pistil skyldi kalla, er í raun ekki pistill heldur stríðsyfir- lýsing. Ég segi pistlinum (sem slíkum) stríð á hendur og mun eigi af láta fyrr en þetta afstyrmi verður útlægt gjört úr íslenskum blöðum. Og hananú. Hafa íslenskir blaðalesendur einhvern tímann látið það í ljós að þeim þætti gaman að lesa pistla af þessu tagi? Nei, það hafa þeir sko ekki gert. Ég veit ekki betur en að pistlinum (sem slíkum) hafi hrein- lega verið troðið ofan í kok á þeim. Hverskonar nöldur á þetta eig- inlega að verða? Hér fer örugglega að læðast að skynsömum lesendum sá grunur að höfundur sé bara að fylla út í áður umsamið pláss með bévuðum vaðli. Það er að segja, ef skynsamir lesendur eru ekki þegar hættir að lesa þetta kjaftæði og hafa hent blaðinu út í horn eða flett upp á hátíðamat- seðlum eða einhverju slíku sem hagnýtt má teljast þegar jólin eru í nánd. Blessuð jólin. Auðvitað á þessi pistill að fjalla um jólin. Þetta á að vera jólapistill. Ég bið lesendur forláts á því að hafa teygt þá á asnaeyrunum (eða asnaaugunum) til þess að lesa svona langt. Gleym- ið öllu sem stendur hér fyrir framan. Nú hefst jólapistill. Það sem öðru fremur setur svip sinn á jólaundirbúninginn að þessu sinni, bæði á Vestfjörðum og utan þeirra, er örvænting. Kaupmenn örvænta yfir því hvað almenningur er tregur til þess að versla við þá. Almenningur örvæntir yfir því að nýja ríkisstjórnin, sem lofaði að vernda hagi hinna lægst launuðu, hefur þrengt svo að þeim að ör- birgð blasir við. Ríkisstjórnin ör- væntir yfir týndum huldumanni sem hafði lofað að styðja hana í herferðinni til útrýmingar íslensk- um almúga. Fyrrum forseti sam- einaðs Alþingis örvæntir yfir lausmælgi og skilningsleysi núver- andi forseta og fornum áfengis- kaupum. Og nú verður ekki talað meira um brennivín og hver keypti það, hvenær og á hvaða kjörum. Það hefur lítillega verið minnst á þau mál annars staðar. Það hálfa væri nóg. Opinberir starfsmenn öryænta yfir því að þeim verði ef til vill aldrei leyft að kaupa brennivín aftur. ísfirðingar örvænta yfir því að bærinn skuldar ríkissjóði ein- hver ókjör af peningum. Ríkis- sjóður örvæntir yfir misskilningi Isfirðinga sem héldu sig eiga fé hjá ríkissjóði. Allir eru á einhverju rosalegu örvæntingarflippi yfir frekar ómerkilegum hlutum. Og hér verður loksins barinn botn í þetta ómerkilega blaður sem glöggskyggn lesandi er auðvitað löngu búinn að sjá að fjallar ekki um nokkurn skapaðan hlut. En svo flýgur hver sem hann er fiðraður, og læt ég það verða mín lokaorð að sinni. Heilir og sælir. Páll Ásgeir Ásgeirsson. Höfundur var búsettur á ísafirði um sex ára skeið, en fluttist til Reykjavíkur sl. haust. Naumast þarf að kynna hann fyrir mörgum ísfirðingum aðminnsta kosti, enda hefurhann komið víða við, en þess má þó geta að hann starfaði aII- lengi við Vestfirska fréttablaðið. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA VESTFJÖRÐUM Tilsjónarmaður, helst karlmaður, óskast í hlutastarf til að hafa umsjón og eftirlit með einstaklingi á ísafirði. Nánari upplýsingar gefur félagsmálastjóri ísafjarðarkaupstaðar í síma 3722 eða fram- kvæmdastjóri Svæðisstjórnar í síma 3224. Skattstofa Vestfjarðaumdæmis verður lokuð á Þorláksmessu, 23. desember, en verður opnuð að Hafnarstræti 1-3, ísa- firði, á 4. hæð, þriðja dag jóla, 27. desember næst komandi. Framvegis verður opið frá kl. 10:00 - 15:00 mánudaga til föstudaga. Símanúmer skattstofu verða óbreytt. Skattstjórí Vestfjarðaumdæmis. Húsafriðunarsamtök Stofnfundur í framhaldi af undirbúningsfundi í nóvember sl. er boðað til stofnfundar samtaka um húsafriðun og umhverfisvernd á ísafirði og nágrenni. Fund- urinn verður haldinn á Hótel ísafirði miðvikudag- inn 28. desember og hefst kl. 20:30. Öllum er heimil þátttaka. Á dagskrá verður m.a.: Kynning á félögum í bænum með svipað starfssvið. Málefni Eyrarkirkju og nágrennis hennar. Nafn fyrir samtökin og lög til að starfa eftir. Kosin stjórn fyrir samtökin. Önnur mál. Áhugamenn um húsafriðun og umhverfisvernd fjölmennið. Undirbúningsnefnd. Samgönguráðuneytið Stöðugleiki fiskiskipa Endurmenntunarnámskeið fyrir starfandi sjómenn Námskeið verður haldið í Menntaskólanum á ísafirði dagana 27., 28., 29. og 30. desem- ber. Á námskeiðinu verða tekin fyrir helstu atriði varðandi stöðugleika og notkun stöð- ugleikagagna fyrir fiskiskip. Námskeiðið er haldið á vegum samgöngu- ráðuneytisins í samvinnu við Stýrimanna- skólann í Reykjavík og hagsmunaaðila. Starfandi sjómenn eru hvattir til þátttöku. Nánari upplýsingar og skráning í síma 94- 3899. Samgönguráðuneytið.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.