Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 22

Vestfirska fréttablaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 22
22 vestfirska Fyrirhuguð kirkjubygging á ísafirði: Línur að skýrast í lóðarmálinu Bæjarstjórn hefur tekið afstöðu í samræmi við vilja sóknarnefndar NYTT SIMANUMER 688888 l/cJAö/um' fafaiýi's&ms/Hý wvft/aA/. Bílaleiga Car rental '»*' SUÐURLANDSBRAUT 16 (Vegmúlamegin), REYKJAVfK. SÍMI 91-688888. ÞÚ TEKUR VIÐ BlLNUM Á FLUGVELLINUM ÞEGAR ÞÚ KEMUR OG SKILUR HANN EFTIR Á SAMA STAÐ ÞEGAR ÞÚ FERÐ. GEYSIR Bæjarstjórn ísafjarðar hefur óskað eftir þeirri breytingu á aðal- skipulagi bæjarins, að nýrri kirkju verði ætlaður staður sunnan Hafn- arstrætis, í samræmi við vilja sókn- arnefndar. Jafnframt kvartar bæjarstjórn formlega við Skipu- lagsstjórn ríkisins yfir vinnu- brögðum Ingimundar Sveinssonar arkitekts, sem átti að skila drögum að endurskoðuðu aðalskipulagi í nóvember í fyrra en er ekki búinn að því enn. Nú hafa verið tekin af tvímæli um vilja meirihluta bæjarstjórnar ísafjarðar um staðarval fyrir nýja kirkju, en að undanförnu hafa ýmsir verið í nokkrum vafa um af- stöðu sumra bæjarfulltrúa. A bæjarstjómarfundi í síðustu viku var samþykkt með sex atkvæðum gegn einu að óska eftir því við Skipulagsstjórn ríkisins, að hún staðfesti þá breytingu á aðalskipu- lagi kaupstaðarins, að nýrri kirkju verði ætlaður staður á uppfylling- unni sunnan Hafnarstrætis eins og sóknarnefnd hefur vonast eftir og stefnt að. Samkvæmt aðalskipulagi ísa- fjarðar sem staðfest var 1982 er þessi reitur sérstaklega ætlaður fyrir sjúkrahúsbyggingar. Nýlega barst hingað vestur álitsgerð skipu- lagsstjóra ríkisins, dags. 9. des. sl., þar sem hann lýsir tveim leiðum til þess að gera breytingu á aðalskipu- laginu, og eru þær í stuttu máli þessar: A) I hinum veigameiri tilvikum getur breyting á aðalskipulagi tek- ið fjóra til fimm mánuði, allt frá því að bæjarstjórn óskar eftir heimild til hennar og þar til ráð- herra staðfestir hana. Ýmsum formsatriðum þarf að fullnægja, m.a. skal breytingin auglýst ogtek- ið við athugasemdum allt að átta vikum eftir birtingu auglýsingar. B) Óski bæjarstjórn hins vegar að gera breytingar á aðalskipulagi sem hún telur óverulegar, gerir hún um það tillögu til skipulags- stjórnar. „Sé þessi leið farin“, segir í bréfi skipulagsstjóra, „mætti nota tímann til að kynna deiliskipulag reitsins miðað við kirkjubyggingu þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér það og gert athugasemd- ir“. Ef skipulagsstjórn fellst á breytinguna, staðfestir hún hana, og þarf þá ekki samþykki ráð- herra. „Aðalskipulagsbreyting skv. þessu getur tekið 1 mánuð. Þessi leið er einkum valin þegar um smávægilegar breytingar er að ræða án ágreinings“, segir skipu- lagsstjóri í bréfi sínu. Samþykkt bæjarstjórnar ísa- fjarðar, sem nefnd var hér í upp- hafi, er svohljóðandi: „Bæjarstjórn ísafjarðar sam- þykkir að óska eftir því við Skipu- lagsstjórn ríkisins að hún staðfesti þá breytingu á aðalskipulagi Isa- fjarðar að nýrri kirkju sé ætlaður staður á Torfnessvæðinu suðaust- an við nýja sjúkrahúsið, sbr. lið B í bréfi skipulagsstjóra ríkisins til bæjarstjórans á Isafirði hinn 9. desember 1988. Jafnframt samþykkir bæjar- stjórn að bæjarsjóður mun bæta það tjón, er einstakir aðilar kunna að verða fyrir við þessa breytingu á aðalskipulagi. Ennfremur verði kynnt deili- skipulag reitsins þannig að bygg- ingarreitur kirkjunnar komi fram á honum.“ Bestu jóla- og nýárskveðjur til viðskiptavina okkar, starfsfólks og annarra Vestfirðinga, með þökkum fyrir samvinnu á liðnu ári. Sparisjóður Bolungarvíkur Bestu jóla- og nýárskveðjur til viðskiptavina okkar, starfsfólks og annarra Vestfirðinga, með þökkum fyrir samvinnu á liðnu ári. Kaupfélag ísfirðinga útibú Súðavík Við óskum starfsfólki okkar og öðrum ^ Vestfirðingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum samstarfið á líðandi ári. Meginatriði samþykktarinnar kemur fram í fyrsta hluta hennar, en tveir hinir síðari eru formsatr- iði. Með samþykkt þessari voru sex bæjarfulltrúar en á móti var einn, eins og áður sagði, en tveir sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. f beinu framhaldi af afgreiðslu þessrar samþykktar á fundi bæjar- stjórnar kom fram eftirfarandi til- laga, sem samþykkt var samhljóða með níu atkvæðum (sbr. það sem kom fram í síðasta blaði Vestfirska um óhæfilegan drátt á verki Ingi- mundar Sveinssonar, en úthlutun umræddrar lóðar strandar á því): „Með samningi á milli ísafjarð- arkaupstaðar, Skipulagsstjórnar ríkisins og Ingimundar Sveinsson- ar, arkitekts, var samið um endur- skoðun á aðalskipulagi ísafjarðar- kaupstaðar. Samkvæmt þessum samningi átti arkitektinn að skila drögum að endurskoðuðu aðal- skipulagi ásamt greinargerð fyrir 15. nóvember 1987. í dag, 15. des- ember 1988, er þessari vinnu enn ekki lokið, þráttfyrirmargítrekað- ar óskir bæjarstjóra um að vinn- unni yrði hraðað. Þar sem nú liggur fyrir, að bæjarsjóður ísafjarðar og fleiri að- ilar geta orðið fyrir verulegu fjár- hagstjóni og tafir eru orðnar á framkvæmdum vegna þessa dráttar, óskar bæjarstjórn ísa- fjarðar eftir því við Skipulags- stjórn ríkisins, að hún taki að sér að vinna að málinu þannig, að fyrr- nefnd gögn geti legið fyrir hið allra fyrsta.“ Bestu jóla- og nýárskveðjur til viðskiptavina okkar, starfsfólks og annarra Vestfirðinga, með þökkum fyrir samvinnu á liðnu ári. Esso-nesti, Tálknafirði — Patreksfirði Bestu jóla- og nýárskveðjur til viðskiptavina okkar, starfsfólks og annarra Vestfirðinga, með þökkum fyrir samvinnu á liðnu ári. Fiskvinnslan Straumnes, Patreksfirði Bestu jóla- og nýárskveðjur til viðskiptavina okkar, starfsfólks og annarra Vestfirðinga, með þökkum fyrir samvinnu á liðnu ári. Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Hólmavík Suðureyrarhreppur Bestu jóla- og nýárskveðjur til viðskiptavina okkar, starfsfólks og annarra Vestfirðinga, með þökkum fyrir samvinnuna á liðnu ári. Söluskálinn Súðin, Súðavík Óskum viðskiptavinum, starfsfólki og öðrum Vestfirðingum gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýju ári. Þökkum árið sem er að kveðja. Sparisjóður Önundarfjarðar, Flateyri Bestu jóla- og nýárskveðjur til viðskiptavina okkar, starfsfólks og annarra Vestfirðinga, með þökkum fyrir samvinnuna á liðnu árí. Verslunin Bræðurnir Eyjólfsson, Flateyri Óskum viðskiptavinum, starfsfólki og öðrum Vestfirðingum gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýju ári. Þökkum árið sem er að kveðja. Bylgjan h.f. Suðureyri

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.