Feykir - 10.04.1981, Qupperneq 2
Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki:
TIL FERMINGARGJAFA
HUFUR A LOFTI
Nú líður að lokum annars
starfsárs Fjölbrautaskólans.
Fréttamaður okkar fór á vett-
vang og aflaði nokkurra frétta.
Meistaraskóll
Nú á vorönninni var sú nýjung
helst að meistaraskóli í húsa- og
múrsmíði hóf starfsemi sína. Þar er
um að ræða réttindanám þeirra sem
vilja tryggja sér meistararéttindi.
Kennsla fer fram eftir venjulegan
vinnutíma hvern virkan dag. 13
„meistarar" taka þátt í þessu námi
og er aðalkennari þeirra Bragi Þór
Haraldsson frá Hamri.
Stúdentar vorið 1982
Þeir nemendur sem lengst eru
kornnir á bóknámsbrautum þokast
nú óðum nær stúdentsprófinu. Bú-
ist er við að fyrsti stúdentahópurinn
útskrifist frá skólanum annað vor.
Um tíu nemendur verða í fyrsta
hópnum. Þeir sem hér ryðja braut-
ina höfðu þegar hafið framhalds-
nám þegar skólinn tók til starfa.
Höfðu þeir annaðhvort verið við
framhaldsdeild Gagnfræðaskólans
á Sauðárkróki eða við mennta- og
fjölbrautaskóla í öðrum landshlut-
um en notuðu tækifærið þegar það
gafst að koma aftur í heimabyggð
sína til náms.
Verknámshúsið að rísa
Byggingaframkvæmdir
Frá því í sumar hefur verið unnið
að stækkun heimavistar. í kjallara
er nú búið að fullgera herbergi
handa fjórtán nemendum, og tólf
pláss verða fullbúin nú á næstunni.
Þannig verður vistarpláss fyrir 54
nemendur næsta haust. Þá er unnið
að teikningu nýrrar álmu sem rúma
á um 70 nemendur og stefnt er að
því að hefja framkvæmdir nú í
sumar.
Verknámshúsið er nú að verða
tilbúið undir tréverk og verður það
tekið til einhverra nota næsta
haust.
Af bóknámshúsinu er það að
segja að til stendur að teikna það á
næstu mánuðum. Það er því í mörg
horn að líta í byggingarmálum ekki
síst þegar bygging nýs íþróttahúss
bætist ofan á aðrar framkvæmdir.
Það verður ekki erfitt að koma í lóg
þeim 179 milljónum göntlum sem
ríkið leggur til framkvæmda við
skólann á þessu ári.
Horfur eru á að nemendur skól-
ans verði um 400 innan fárra ára.
Hafnarframkvæmdir
Stóri slátur-
hnífurinn
Ekki blæs byrlega með liafnar-
framkvæmdir nú, fremur en
fyrri daginn. Alþingi setti stóra
sláturhnífinn á áætlanir sem
hljóðuðu upp á 110 millj. —
gamlar auðvitað — og þegar
fjárlagafrumvarpið var afgreitt
stóðu eftir 40 milljónir, en af
þeim fara 20 í það að greiða
skuldir frá síðasta ári. Ekki
verður því mikið framkvæmt
fyrir það sem eftir stendur.
Smábátahöfnin hefur verið á
áætlun síðan ’76 en það er líka
það eina sem skeð hefur í því
sambandi. Til marks um aðstöð-
una má geta þess að í rokinu 17.
feb. sl. skemmdust bæði Stakkfeil
og Týr svo mikið að taka varð
bátana í slipp. Trébryggjan lask-
aðist líka, en þar um má segja að
það sér ekki á svörtu, hún verður
líklega ekki löguð fyrr en hún
losnar svo mikið að það verður
fært að fara með hana í slipp, en
með sama framhaldi verður þess.
ekki langt að bíða. Hilmir.
Skagfirðingar
Eldavélar, ísskápar, frystiskápar,
þvottavélar, ryksugur, kaffivélar
og ýmis önnur heimilistæki.
Veggljós, loftljós, kastarar.
Þekkt vörumerki:
SIEMENS - THERMOR
ELEKTRO HELIOS - TERMEL.
ATHUGIÐ!
Til páska bjóðum við
tilboðsverð á tölvulömpum.
Allt efni til raflagna.
Verslun við fagmenn tryggir örugga þjónustu.
Önnumst eins og undanfarin ár
ALLAR TEGUNDIR RAFLAGNA.
© rafsjá h.f.
Sæmundargötu 1, Sauðárkróki.
Sími 95-5481.
FYRSTAFLOKKS
Innréttingar á hagstæöu verói.
TÖKUM AÐ OKKUR
hverskonar húsbyggingar.
VIÐSKIPTI VIÐ OKKUR ER
trygging fyrir fögru heimili.
Trésmiðjan BORG hf.
Borgarmýri 1 - Sauðárkróki - Símar 5170 & 5570.
2 . Feykir