Feykir - 10.04.1981, Page 6
„Hleypir skeiði hörðu
ur yfir ísa“
Fyrstu ískappreiðar á Sauðárkróki
Sunnudaginn 29. mars s.l. efndi
hestamannafélagið Léttfeti til
fyrstu ískappreiða á Sauðárkróki.
Fóru þær fram á Tjarnartjörn.
Keppt var í 200 m skeiði, 150 m
skeiði og opnu tölti.
í 200 m skeiði kepptu 4 hross, en
aðeins 1 hestur lá sprettfærið:
Lyfting Ingimars Ingimarssonar,
Sauðárkróki. Tími Lyftingar var
21,3 sek.
í 150 m skeiði kepptu 6 hross og
urðu úrslit þar:
1. Bliki, eig. Lúðvík Ásmundsson,
Fljótum. Knapi Magni Ás-
mundsson, Skr. Bliki hljóp
vegalengdina á 18,3 sek.
2. Perla, eig. Steindór Árnason,
Skr. Knapi Ingimar Pálsson,
Skr.
3. Cesar, eig. Stefanía Guðmunds-
dóttir, Skr. Knapi Jón Bald-
vinsson, Skr.
Úrslit í tölti:
1. Lyfting Ingimars Ingimarsson-
ar, Skr. Hlaut hún 83 stig.
2. Móses Björgvins Sveinssonar,
Skr.
3. Garpur Hólmgeirs Pálssonar,
Skr.
í dómnefnd í töltkeppni voru
Jóhann Þorsteinsson, Miðsitju,
Gísli Geirsson, Sauðárkróki og
Sigurður Ingimarsson, Flugumýri.
Mótsstjóri var Árni Gunnarsson.
Þetta fyrsta mót fór vel fram,
enda þótt hestar væru ekki í sem
bestri þjálfun. T.d. var Perla frá
Reykjum tekin úr haga og járnuð
aðeins rúmri viku fyrir mótið. Þó
hefði mótið mátt ganga fljótar fyrir
sig, ekki síst dómarnir.
Veðrið var eins gott og á verður
kosið og voru áhorfendur margir.
S. Á. H.
Bifreiða- og
vélaverkstæði
rafmagnsdeild,
Freyjugötu 9,
Sauðárkróki.
Sími 95-5200.
Raflagnir og
heimilistækjaviðgeróir
alls konar.
Veitum góða
þjónustu.
Rafmagnsdeild
Ingimar Ingimarsson á fljúgandi skeiði á Lyftingu frá Flugumýri.
Hekla
feykir
glóðum og
heiðrar
blaðið á út-
gáfudegi.
Óska eftir að kaupa
notað
Píanó eða flygil.
Þeir sem áhuga hafa
hringi í síma 5418 eftir kl.
18.
ALFA-nefnd á
Sauðárkróki
Stofnuð hefur verið ALFA nefnd á
Sauðárkróki í tilefni af alþjóðaári
fatlaðra, ALFA ’81.
Nefndina skipa formaður, Frið-
rik Á. Brekkan félagsmálastjóri,
ritari, Aðalheiður Arnórsdóttir frá
félagsstarfi aldraðra, Helga
Hannesdóttir og Sigurlína Árna-
dóttir frá félagsmálaráði og Lára
Angantýsdóttir frá Sjálfsbjörg.
Nefndin hefur haldið tvo fundi
þar sem rædd hafa verið mál
fatlaðra og hvað hægt væri að gera
til úrbóta t.d. í feril- og atvinnu-
málum.
Setjum okkur í spor fatlaðra og
hugsum um hvað við getum gert til
úrbóta hér í bæ og héraði. Má ekki
t.d. létta fötluðum að komast ferða
sinna óhindrað? Víða vantar hand-
6 . Feykir
rið við tröppur, gangstéttarbrúnir
eru of háar, þröskuldar einnig, þá
eru hurðir að skólum, verslunum
og öðrum byggingum of þröngar.
Þetta eru atriði sem ófatlaðir
hugsa ekki um en þau geta verið
fötluðum óyfirstíganlegar hindran-
ir.
Einnig þarf að huga að atvinnu-
málum fatlaðra. Þar er ástandið alls
ekki nógu gott.
Þeir eru margir sem geta og vilja
vinna, t.d. 2-4 klst. á dag, en finna
ekki starf við sitt hæfi.
öllum er nauðsyn að umgangast
annað fólk. Þarna er verðugt verk-
efni fyrir okkur öll.
Hjálpumst að.
(Frá ALFA-nefndinni).
Byggingarfélagið Hlynur h.f.
Sæmundargötu — Borgartúni
Tökum að okkur:
HÚSBYGGINGAR - MANNVIRKJAGERÐ
Byggingarefni:
SPERRUR - ÞAKJÁRN - STEYPUJÁRN
ÞURRKAÐUR SMÍÐAVIÐUR, ýmsar stæróir
Unnió:
GLUGGAEFNI - PÓSTAR - GLERLISTAR
Unnió:
MILLIVEGGJAEFNI -LEKTUR
og ýmsar geröir af listum
PANELL, tvær breiddir á veggi og loft
Smíöum á verkstæöi:
GLUGGA - ÚTIHURÐIR - INNIHURÐIR
INNRÉTTINGAR
BYGGINGAFÉLAGIÐ
mn
SfMI (96) 5211 - 550 SAUÐÁRKRÓKI