Feykir - 10.04.1981, Síða 6

Feykir - 10.04.1981, Síða 6
„Hleypir skeiði hörðu ur yfir ísa“ Fyrstu ískappreiðar á Sauðárkróki Sunnudaginn 29. mars s.l. efndi hestamannafélagið Léttfeti til fyrstu ískappreiða á Sauðárkróki. Fóru þær fram á Tjarnartjörn. Keppt var í 200 m skeiði, 150 m skeiði og opnu tölti. í 200 m skeiði kepptu 4 hross, en aðeins 1 hestur lá sprettfærið: Lyfting Ingimars Ingimarssonar, Sauðárkróki. Tími Lyftingar var 21,3 sek. í 150 m skeiði kepptu 6 hross og urðu úrslit þar: 1. Bliki, eig. Lúðvík Ásmundsson, Fljótum. Knapi Magni Ás- mundsson, Skr. Bliki hljóp vegalengdina á 18,3 sek. 2. Perla, eig. Steindór Árnason, Skr. Knapi Ingimar Pálsson, Skr. 3. Cesar, eig. Stefanía Guðmunds- dóttir, Skr. Knapi Jón Bald- vinsson, Skr. Úrslit í tölti: 1. Lyfting Ingimars Ingimarsson- ar, Skr. Hlaut hún 83 stig. 2. Móses Björgvins Sveinssonar, Skr. 3. Garpur Hólmgeirs Pálssonar, Skr. í dómnefnd í töltkeppni voru Jóhann Þorsteinsson, Miðsitju, Gísli Geirsson, Sauðárkróki og Sigurður Ingimarsson, Flugumýri. Mótsstjóri var Árni Gunnarsson. Þetta fyrsta mót fór vel fram, enda þótt hestar væru ekki í sem bestri þjálfun. T.d. var Perla frá Reykjum tekin úr haga og járnuð aðeins rúmri viku fyrir mótið. Þó hefði mótið mátt ganga fljótar fyrir sig, ekki síst dómarnir. Veðrið var eins gott og á verður kosið og voru áhorfendur margir. S. Á. H. Bifreiða- og vélaverkstæði rafmagnsdeild, Freyjugötu 9, Sauðárkróki. Sími 95-5200. Raflagnir og heimilistækjaviðgeróir alls konar. Veitum góða þjónustu. Rafmagnsdeild Ingimar Ingimarsson á fljúgandi skeiði á Lyftingu frá Flugumýri. Hekla feykir glóðum og heiðrar blaðið á út- gáfudegi. Óska eftir að kaupa notað Píanó eða flygil. Þeir sem áhuga hafa hringi í síma 5418 eftir kl. 18. ALFA-nefnd á Sauðárkróki Stofnuð hefur verið ALFA nefnd á Sauðárkróki í tilefni af alþjóðaári fatlaðra, ALFA ’81. Nefndina skipa formaður, Frið- rik Á. Brekkan félagsmálastjóri, ritari, Aðalheiður Arnórsdóttir frá félagsstarfi aldraðra, Helga Hannesdóttir og Sigurlína Árna- dóttir frá félagsmálaráði og Lára Angantýsdóttir frá Sjálfsbjörg. Nefndin hefur haldið tvo fundi þar sem rædd hafa verið mál fatlaðra og hvað hægt væri að gera til úrbóta t.d. í feril- og atvinnu- málum. Setjum okkur í spor fatlaðra og hugsum um hvað við getum gert til úrbóta hér í bæ og héraði. Má ekki t.d. létta fötluðum að komast ferða sinna óhindrað? Víða vantar hand- 6 . Feykir rið við tröppur, gangstéttarbrúnir eru of háar, þröskuldar einnig, þá eru hurðir að skólum, verslunum og öðrum byggingum of þröngar. Þetta eru atriði sem ófatlaðir hugsa ekki um en þau geta verið fötluðum óyfirstíganlegar hindran- ir. Einnig þarf að huga að atvinnu- málum fatlaðra. Þar er ástandið alls ekki nógu gott. Þeir eru margir sem geta og vilja vinna, t.d. 2-4 klst. á dag, en finna ekki starf við sitt hæfi. öllum er nauðsyn að umgangast annað fólk. Þarna er verðugt verk- efni fyrir okkur öll. Hjálpumst að. (Frá ALFA-nefndinni). Byggingarfélagið Hlynur h.f. Sæmundargötu — Borgartúni Tökum að okkur: HÚSBYGGINGAR - MANNVIRKJAGERÐ Byggingarefni: SPERRUR - ÞAKJÁRN - STEYPUJÁRN ÞURRKAÐUR SMÍÐAVIÐUR, ýmsar stæróir Unnió: GLUGGAEFNI - PÓSTAR - GLERLISTAR Unnió: MILLIVEGGJAEFNI -LEKTUR og ýmsar geröir af listum PANELL, tvær breiddir á veggi og loft Smíöum á verkstæöi: GLUGGA - ÚTIHURÐIR - INNIHURÐIR INNRÉTTINGAR BYGGINGAFÉLAGIÐ mn SfMI (96) 5211 - 550 SAUÐÁRKRÓKI

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.