Feykir - 10.04.1981, Blaðsíða 8

Feykir - 10.04.1981, Blaðsíða 8
Blaðið zerir mönnum fœrt I,* að kallast áyfir fjöll og vötn Feykir 1.TBL. . 1.ÁRG M FÖSTUOAGUR 10. APRÍL 1981 HUGRENNINGAR Vonandi er vorið langþráða á næsta leiti. Ýmis merki vorkom- unnar má þegar sjá á bæjarlífinu á Króknum. Öll eru þau vel þegin, nema eitt. Vélhjólin. „Orginal" Króksarar á unglings- aldri gera sér ekki lengur að góðu að þurfa að ferðast um á tveim jafnfljótum eða bara á venjulegu hjóli. Nei, gangandi fer enginn og hjólin verða annaðhvort að hafa niðursveigt stýri og tíu gíra, eða margrá strokka aflvél og ekkert púströr. Tiu gíra hjólin skaða engan, en vélhjólin geta hæglega ært óstöð- ugan. Allavega sé þeim ekið á þann hátt, sem vejulegum. tápmiklum unglingum er svo tamt. Gefa I, slaka. Gefa í, slaka. Burr, Burrburr, burr, burrburr burr. Hring eftir hring öll hverfi bæjarins. Nú er að sjálfsögðu tilgangslaust að meina unglingunum að kaupa vélhjól og nota. Þau eru sem hvert annað tímanna tákn. En vel væri þegið að lögregluyfirvöld fylgdust með því að útbúnaður hjólanna væri þannig að sem minnstur há- vaði stafaði af þeim. Hljóðkútar á sínum stað, hjólin óútboruð o.s.frv. Félagsmálafulltrúinn hefur haft forgöngu um að stofna félagsskap fyrir mótorhjólagæja — og pæjur. Bæjaryfirvöld verða að útvega Jón Ásbergsson. félagsskap þessum starfsaðstöðu og þá helst þannig að ákveðin lands- spilda verði tekin undir hjóla- brautir. Áhugafólk um vélhjóla- akstur getur þá þar þeytt hjólin sín á beinum brautum og í torfærum. Verið I friði og látið okkur hin í friði. Vorkoman leiðir einnig hugann að öðru sporti sem bæjarbúar stunda af kappi. Hestamennsku. Annað slagið heyrist talað um að ekki sé seinna vænna að koma endanlega öllu hestastússi úr bæn- um. Mikið tekur þó reiðmennskan mótorhjólakeyrslunni fram. Vel má vera að mikill hluti hesthús- anna í bænum sé til lítillar prýði og verði þvi vart saknað. Óneitanlega fylgir þeim þó nokkur sjarmi, og kannski er það tímanna tákn að Reykjavíkurborg hefur nýlega út- „Menning og minjar eiga ekki einungis að vera á söfnum“ hlutað einbýlishúsalóðum í Breið- holtshverfi þar sem hesthús skal byggt á hverri lóð. Sýsluhesthúsin mega þó aldrei hverfa af sínum stað. Þau gegna sögulegu hlutverki og tengja á eðlilegan hátt gamlan og nýjan tíma á Króknum. Menning og minjar eiga ekki einungis að vera á söfnum. Söfn eru vissulega allra góðra gjalda verð, en lifandi menning og lifandi minjar eru ekki síður þess virði að hugað sé að. Og sýsluhesthúsin eru lifandi. Litiu skiptir þó hrossunum verði það annað slagið á að gera þarfir sínar á Faxatorg. Allar frægustu viðskipta- og menningarmið- stöðvar heims — bankar, söfn, óperur og leikhús — eiga það sam- eiginlegt að vaða verður þar dúfnadrit og hundaskít í ökla til að komast inn. Búnaðarbanki og Safnahús setja því ekki ofan, þó gestir verði endrum og eins fyrir því að reka tærnar í hrossatað á leiðinni inn í þær merku stofnanir. Með vorinu verður að líkindum ljóst hvort og hvar steinullarverk- smiðja verður reist hér á landi. Ef opinberir aðilar ætla að hlusta á rök, þá verður verksmiðjan reist hér. Héðan er málið upprunnið, hér hefur það verið brotið til mergjar og hér hefur þeim upplýsingum verið safnað, sem einar duga til að byggja á raunhæfar ákvarðanir um verksmiðju. Hugsanlega duga ofangreindar staðreyndir ekki til þess að „hinu opinbera" þyki sjálfgefið að verk- smiðjan verði reist á Sauðárkróki. En þá verður að benda á að þegar er búið að byggja á suðurhluta landsins: álverksmiðju, málm- blendiverksmiðju, sementsverk- smiðju, áburðarverksmiðju og fyr- irhugað er að reisa þar stálverk- smiðju og saltverksmiðju. Er ekki kominn tími til að eitthvert stór- iðjuver verði byggt norðan heiða? Hugrenningum um vélhjól, hesta og steinull lýkur hér. Blað í mótun? Nokkrir áhugamenn um blaðaútgáfu hafa tekið sam- an höndum og gert þetta fyrsta blað að veruleika. Okkur er Ijóst að til að gefa blað reglulega út þarf stofnun, hiutafé, ritnefnd og ritstjóra. Hann þarf svo aftur breiða fylkingu tíðinda- manna um kjördæmið allt. Hingað til hafa útgefendur blaða hér unnir einir og í hjáverkum störf sín. Hins vegar þarf að ráða mann í heilt eða hálft starf til að sinna útgáfunni og gera hana að föstum lið, svo fólkið geti treyst á útgáfudag þess. Við erum ekki í minnsta vafa um að þétta megi hinar dreifðu byggð á Norðurlandi vestra með útgáfu sameigin- legs vettvangs sem geri mönnum fært að kallast á yfir fjöll og vötn. Útgáfunefndin. Búnaðarbanki íslands Útibúið á Sauðárkróki, sími 5300 Afgreiðslan Hofsósi, sími 6373 Afgreiðslan Varmahlíð, sími 6113 -

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.