Feykir - 24.07.1981, Blaðsíða 7

Feykir - 24.07.1981, Blaðsíða 7
Ný þjónusta fyrir Norðurland Skrifstofuval h.f. Akureyri auglýsir: Mikið úrval af flestum skrifstofutækjum og skrif- stofuhúsgögnum. Svo sem reiknivélar, ritvélar, Ijósritunarvélar, vasatölvur og einnig mikið úrval af peningaköss- um. Skrifborð, vélritunarborð, stólar og hljóð- einangraðar veggeiningar og fylgihlutir sem hægt er að festa á einingarnar. Að sjálfsögðu bjóðum við einnig viógerðarþjónustu á flestum gerðum skrifstofutækja. Skrifstofuval h.f. Kaupangi 602 Akureyri Sími: 96-25004 Skjólhöfn á Blönduósi Útlit er fyrir að skriður sé að komast á hafnargerð á Blönduósi en aðstaðan hefur lítið breyst í áratugi. Á s.l. ári vann dýpkunar- skipið Grettir að dýpkun hafnarinnar. Auk þess var unnið við rannsóknir og mælingar vegna vaæntan- legrar skjólhafnar. Áætlað er að vinna fyrir 1 milljón nýkróna í ár og er undirbúningur hafinn. Á meðfylgjandi inyndum má sjá núverandi hafnarað- stöðu Blönduósinga og ná- granna. Augljóst er að átaks er þörf í hafnargerð á Blönduósi, þannig að hafn- leysi hindri ekki eðlilega byggðaþróun. Svipmyndir frá Sjómannadegi 1981 Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki Kennarastöður í dönsku, stærðfræöi, og sérgrein- um tréiðna lausar til umsóknar. Upplýsingar gefur skólameistari í síma 95-5418. Fréttatilkynning frá ferðamálanefnd Sauðárkróks Tjaldstæðið á Sauðarkróki cr opið. Tjaldstæðið er i miðbænum. við hliðina á sundlauginni. gegnt banka og matvöruverzlun. Ágætis aðstöðuhús er á tjald- stæðinu. tvö WC' og fjórir vaskar inni. með heitu og köldu vatni. Tjaldstæðið tekur 25 tjöld. en auk þess má tjalda utan hins af- markaða svæðis. þegar plásslevsi er. I 'crtíin IVXI cru />essí: Kr. 6.00 fyrir hvert tjald pr. gistinótt. Kr. 6.00 fvrir hvern fullorðinn. Hörn undir I2 ára ókevpis. Verð fvrir hjólhýsi og tjaldvagna er kr. I2.00 auk gjalds fyrir einstaklinga. í nágrenni Sauðárkróks er 9 holu golfvöllur. auk Hóla. Glaumbæjar. Varmahlíðar. svo og hinna fallegu evja. Drangey og Málmev. Margt er að sjá í Skagafirði og ferðamenn ávallt velkomnir. Frá Bændaskólanum á Hólum Bændaskólinn á Hólum mun starfa í tveim bekkjar- deildum næsta vetur. Takmörkuöum fjölda nem- enda veróur gefinn kostur á að Ijúka búnaðarnámi á einum vetri. Þeir nemendur, sem bestan undir- búning hafa, og þá einkum verklegan, njóta for- gangs að þeirri deild. Tekiö verður inn í skólann til eins vetrar náms 1. október. Hin bekkjardeildin tekur til starfa 1. nóv- ember. Verða nemendur teknir í hana samkvæmt námsskrá til 2ja ára búfræðináms. Nánari upplýsingar um skólavist gefur skólastjór- inn, Jón Bjarnason, Hólum, sími um Sauðárrkók. Umsóknir um skólavist sendist Bændaskólanum á Hólum fyrir 1. ágúst n.k. SKÓLASTJÓRI. Skagfirðingar, Sauðárkróksbúar Eftirstöövar þinggjalda samkvæmt álagningu skattstjóra 1981 skulu greiðast mánaðarlega á tímabilinu ágúst til desember 1981 meö gjalddög- um 1. hvers mánaðar. Gjaldendur eru vinsamlega beðnir að gera skil á gjalddögum þannig að komist veröi hjá dráttarvöxtum og óþarfa kostnaði og fyrirhöfn. Jafnframt eru launagreiðendur alvarlega áminntir um að gera skil á þinggjöldum starfsmanna. BÆJARFÓGETINN Á SAUÐÁRKRÓKI. SÝSLUMAÐURINN í Skagafjarðarsýsiu. ^Í/OÁR^ Vantar húsnæði Vegna gífurlegrar aösóknar aö skólanum auglýsir skólinn hér með eftir leiguhúsnæði fyrir utanbæj- arnemendur á Sauðárkróki. Skólinn ábyrgist greiðslu. Væntanlegir áhugamenn hafi samband viö skrif- stofu skólans í síma 5488. Athugið að nemendur geta veriö á mötuneyti heimavistar. SKÓLAMEISTARI. Feykir . 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.