Feykir - 26.03.1982, Blaðsíða 6
FeykÍR
ÚTGEFANDI: FEYKIR H.F.
Rltstjórl og AbyrgSarmaSur:
BALDUR HAFSTAD.
Auglýalngar:
MARGEIR FRIÐRIKSSON,
Slml 05-5600 og 05-5752.
Draiflng:
HILMIR JÓHANNESSON,
Siml 05-5133 og 05-5314.
Askrlft:
ARNI RAQNARSSON,
Siml 05500 og 05-5870.
Rltstjórn:
ÁRNI RAGNARSSON, HILMIR JÓHANNESON, HJALMAR JÓNSSON,
JÓN ÁSBERGSSON, jón f. hjartarson.
Rltnsfnd A Slgluflrfil:
BIRGIR STEINDÓRSSON, SVEINN BJÖRNSSON, GUNNAR RAFN
SIGURBJÖRNSSON, KRISTJÁN MÖLLER, PÁLMI VILHJÁLMSSON.
Rltnefnd A Hvsmmstsnga:
HÓLMFRÍDUR BJARNADÓTTIR, EGILL GUNNLAUGSSON, HELGI
ÓLAFSSON, ÞÓRVEIG HJARTARDÓTTIR, HAFSTEINN KARLSSON,
MATTHÍAS HALLDÓRSSON.
Ritnefnd A Blönduósi:
MAQNÚS ÓLAFSSON, SIQMAR JÓNSSON, BJÓRN
SIGURBJÖRNSSON, ELlN SIGURÐARDÓTTIR,
SIQURDUR EYMUNDSSON.
Ritnefnd A Sksgaströnd:
ELlN NJÁLSDÓTTIR, SVEINN INGÓLFSSON, JÓN INGI
INGVARSSON, MAGNUS B. JÓNSSON, ÓLAFUR BERNÓDUSSON.
Rltnefnd A Hofsósi:
FJÓLMUNDUR KARLSSON, GUDMUNDUR INGI LEIFSSON, PÁLMI
RÖGNVALDSSON, BJARNI JÓHANNSSON, Sr. SIGURPALL
ÓSKARSSON, RÓSA ÞORSTEINSDÓTTIR, BJÖRN NÍELSSON,
ÞÓRDÍS FRIDBJÖRNSDÓTTIR.
Útllt: REYNIR HJARTARSON.
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F.
AKUREYRI 1982
Feykir er hálfsmánaðarblað.
Áskrlft 10 kr. A mAnufll.
Lausasala 8 kr.
Steinull
Þegar þetta er ritafl, hinn 24. mars
1982, er enn ekki séð í hvaða höfn
steinullin margfræga lendir. Iðnaðar-
ráðherra hefur upplýst að hann muni
leggja til við ríkisstjórn að verksmiðja
rísi á Sauðárkróki. Þá ber svo við að
vegið er að honum úr öllum áttum.
Fréttamenn ríkisfjölmiðla og sumra
dagblaða keppast um að ala á
tortryggni, og út úr spurningum
þeirra og blaðagreinum virðist mega
lesa að ráðherra hafi orðið á hroðaleg
mistök í staðarvali verksmiðjunnar.
Vantað hefur málefnalegan og
breiðan fréttaflutning af forsögu
steinullarmálsins sem til ákvörðunar
ráðherra leiddi. Ríkisfjölmiðlar
ræddu ekki við heimamenn nyrðra
sem árum saman hafa unnið mark-
ivisst brautryðjendastarf. Hins vegar
var rætt við hvern Sunnlendinginn á
fæturöðrum.
Rétt er að rifja upp þrennt sem máli
skiptir þegar staðsetning er ákveðin:
1. Ótvírætt er frumkvæði norðan-
manna í öllum undirbúningi, sem
m.a. tók til markaðsrannsókna og
leiddi til niðurstöðu um litla verk-
smiðju sem aðeins framleiddi fyrir
innanlandsmarkað.
2. Ef eingöngu á að taka tillit til
flutningskostnaðar þegar verksmiðja
á borð við þessa er staðsett, þá ætti
að reisa allar verksmiðjur í Reykjavík
og hafnarbæjum hennar. Ef á hinn
bóginn verksmiðja, sem framleiðir
m.a. fyrir höfuðborgarsvæðið, rís
annars staðar, þá styrkir hún sam-
göngukerfi okkar og stuðlar að
jafnvægi í byggð þessa lands.
3. Sunnlendingar hafa úr fleiri
jarðefnum að moða en við og ættu að
geta unniðgott starf í nýtingu þeirra
ef þá brestur ekki kjark og þol.
Það er leitt til þess að vita að stóru
fjölmiðlarnir skuli ala á ágreiningi
milli landshluta með einhliða frétta-
flutningi. Ekki leynir sér hvar á
landinu miðlar þessir eru niður
komnir. Tekið er mið af Reykjavík.
Við þurfum að auka kynni milli
landshluta með sem flestu móti, og
með hjálp fjölmiðla. Efla þarf einingu
landsmanna. Norðanmenn gætu
margt af Sunnlendingum lært,
skoðað virkjanir þeirra og steypta
vegi sem ná langt austur fyrir Hellu.
Sunnlendingar gætu m.a. skoðað
reiðgötur okkar og fengið léða góða
hesta.
„I Stundarfriði er aldrei
farin samningaleiðin
Rætt við hjónin og leikarana Guðmund Sigurðsson
og Hrönn Albertsdóttur
Leikflokkurinn á Hvammstanga
sýnir nú leikritið Stundarfriður
eftir Guðmund Steinsson. Þetta
leikrit var sýnt í Þjóðleikhúsinu ár-
ið 1979 og vakti þá verulega at-
hygli. Síðan hefur það verið sýnt
víða í Evrópu á alþjóðlegum leik-
listarhátíðum auk þess sem leikhús
í Svíþjóð og Danmörku hafa tryggt
sér sýningarrétt á því. Leikflokkur-
inn er fyrsta áhugaleikhúsið sem
tekur þetta leikrit til sýninga. Af því
tilefni spjallaði fréttaritari Feykis á
Hvammstanga við aðalleikarana,
hjónin Guðmund Sigurðsson og
Hrönn Albertsdóttur.
Eigum við ekki að byrja á að
spyrja um leikferilykkar?
Hrönn: Nú, ég byrjaði eiginlega
strax og ég kom hingað 1978. Ég fór
fyrst á námskeið sem var hérna og
svo var ég með í leikritinu árið eftir.
Það var Höfuðbólið og hjáleigan,
lélegt stykki.
Guðmundur: Það voru skiptar
skoðanir um hvort það hefði verið
misheppnað eða ekki.
Hrönn: Og svo vorum við bæði
með Sunnevu og syni ráðsmanns-
ins ánð þar á eftir.
Guðmundur: Síðan tekur hún
sér barnseignarfrí og ég var með í
Deleríum búbonis. Þá stfðu leikar
tvö tvö......
Hrönn: ... og ég átti að fá að
vera núna.
Guðmundur: Svo æxluðust bara
málin þannig að við urðum bæði
með.
Það fer mikill lími í þetta ekki
satt?
Hrönn: Það eru um það bil sjö
vikur frá 10. janúar og þangað til
við byrjuðum að sýna, (26. febrú-
ar), og ekki nema tvö fríkvöld og
svo var líka æft um helgar, á laug-
ardags- og sunnudagsmorgnum:
Guðmundur: Þetta er svolítið
erfitt með barn á öðru ári og 12 ára
gamla stúlku.
Ykkar fjölskylcla hefur þá
kannski líkst fjölskyldunni í Stund-
arfrið?
Guðmundur: Sko, í Stundarfrið
er aldrei farin samningaleiðin.
Hrönn: Það var gert hér. Leik-
nefndin bauð okkur konu sem gæti
verið heima þegar á þyrfti að halda
og auðvitað notuðum við okkur
það stundum.
Guðmundur: Að ástandið hafi
verið eins mikið kaos og í Stundar-
frið, það er náttúrlega af of frá.
Hvernig finnst ykkur leikritið?
Hrönn: Svona heimili eru mjög
trúlega til í dag, þó að lýsingin sé
kannski svolítið ýkt.
Guðmundur: Það er sannleiks-
korn sem stendur í leikskránni:
„Stundarfriður er eins konar speg-
ill, við lítum í spegilinn og sjáum
dálítið skoplega mynd, þó er þetta
spegilmynd okkar. Er ekki ráð að
huga að myndinni og útlitinu."
Þetta stykki á feikilega vel við núna
á ári aldraðra. Þarna er dreginn
upp skuggaleg mynd af meðferð
samfélagsins á þeim sem hafa rutt
brautina fyrir okkur. Fjölskylda
Haralds hefur nóg pláss, hún hefur
nóg af öllu en vantar þó allt þegar
það vantar tilfinningarnar. Enginn
má vera að því að sinna gömlu
hjónunum og heimili Haralds er
áfangastaður á leiðinni á elliheim-
ilið.
Hrönn: Á þessu heimili skortir
ekkert. Það er til nóg af peningum,
nóg af tækjum, en tilfinningamar
eru ekki of miklar.
Guðmundur: Það kemur berlega
í ljós, þegar Guðrún brýtur vasann.
Henni finnst yfirgengilegt að móðir
hennar fæst ekki til að hætta jóga-
æfingum þegar hún fréttir að
tengdapabbi hennar er fluttur á
spítala með heilablæðingu. Hún
rýkur aftur á móti upp þegar vasinn
brotnar. Guðrún gefur þá skýringu
að þetta sé dauður hlutur en það er
afi hennar aftur á móti ekki.
Hrönn: Það eru til tilfinningar
hjá þessu fólki og það er kannski
kjarni málsins að enginn er tilfinn-
ingalaus. Það þarf bara að kafa
misdjúpt eftir þeim.
Hvernig hafa œfingar gengið?
Hrönn: Þetta er ofsalega erfitt
stykki. Alveg ofboðslega erfitt i
œfingum.
Guðmundur: Og það er ekki
laust við að það hafi ekki verið
stundarfriður oft i tíðum á œfing-
um. Þetta stykki krefst alveg
afskaplega mikils. Það er erfitt að
lœra þetta.
Hrönn: Lítið um beinar setning-
ar. Slitið i sundur hvert af öðru,
einn að tala ísímann, annar að tala
á bakvið og svo framvegis.
Hvað með tœknilegu hliðina?
Hrönn: Hljóðin voru að koma
undir það síðasta og til dæmis kom
hljóðið í sjónvarpinu í 12. þætti
kvöldið fyrir generalprufuna.
Guðmundur: Það er nú kannski
ekki nema von. Hljóðin í sjónvarpi,
síma og fleiru leika stórt hlutverk.
Sáuð þið sýningu Þjóðleikhússins
á leikritinu?
Hrönn: Nei, enginn leikaranna
sá þá sýningu. Það má segja að það
sé kostur, þá fer maður ekki að
stæla neinn ákveðinn leikara. Ég
segi fyrir mig að ég var lengi að
komast inn í þessa ákveðnu per-
sónu og kannski ekki búinn að
finna hana enn þá, því að hún er
alveg sérstaklega erfið hún sýnir
svo mörg geðbrigði.
Guðmundur: Við fyrsta lestur
fannst mér Haraldur vera óskap-
lega mæddur maður, en svo fór ég
að skynja að þetta var stress og þá
þurfti ég að hífa mig upp til að ná
stressinu.
Eruð þið áinœgð með sýninguna?
Hrönn: Það sem mér finnst
ánægjulegast við þetta stykki er það
hve fólk er ánægt með verkið og
leikinn og allt saman.
Guðmundur: Maður hefur heyrt
skiptar skoðanir um framsetningu
höfundar. Sumum finnst þetta yf-
irgengilegt. En er þetta ekki notað
þegar lýsa á einhverjum hlut og
maður vill vera viss um að það
komist til skila? Ef menn hugsa um
efni leikritsins eftir sýningar hjá
okkur, þá held ég að við höfum náð
okkar marki.
H.K.
Guðfaðir
Vorvökunnar
Hugmyndin að Vorvökunni er
runnin undan rifjum Sigurðar H.
Þorsteinssonar fyrrverandi skóla-
stjóra á Hvammstanga. Hann tjáði
fréttaritara Feykis að hann hafi
komið hugmynd sinni á framfæri í
lionsklúbbnum Bjarma 1976ogvar
henni strax vel tekið þar. Þeir
lionsmenn höfðu samband við
ungmennafélagið Kormák og
skipuðu þessi tvö félög fyrstu Vor-
vökunefndina. Sú nefnd skipulagði
Vorvökuna 1977. Það eru því fimm
ár síðan fyrsta Vorvakan var hald-
in. Sigurður sagði að þetta hefði átt
að vera menningarvaka í gamla
stílnum, listsýningar og upplestur á
kvöldin. Svo mun hafa verið hing-
að til og má búast við að svo verði
einnig í framtíðinni. Sigurður var
formaður Vorvökunefndar þrjú
fyrstu árin og voru gárungarnir
farnir að kalla Vorvökuna
„Sigurðarvöku". Það er því ekki
undarlegt að Sigurður er af mörg-
um sagður vera guðfaðir Vorvök-
unnar. H.K.
6 . Feykir
Hrönn Albegsdóttir i hlutverki Ingunnar. Á bakvið eru: Páll Sigurðsson, Vilhelm V.
Guðbjartsson, Annie Mary Pálmadóttir og Berglind Magnúsdóttir.
Vorvakan verður sett fimmtudag-
inn 8. apríl klukkan 14. Þá verða
málverkasýningarnar opnaðar.
Þeir sem sýna eru Gunnar Guð-
jónsson, Salome Fannberg, Marinó
Bjömsson og Torfhildur Stein-
grímsdóttir. Ennfremur sýna ýmsir
Hvammstangabúar leirmuni. Mál-
verkasýningarnar verða opnar til
21. Þá hefst kvölddagskrá. Þar
koma fram: Ragnar Björnsson og
Pétur Þorvaldsson flytja tónverk,
Pjetur Hafstein Lárusson og Geir-
laugur Magnússon lesa úr verkum
sinum, blandaður kór syngur undir
stjórn Helga S. Ólafssonar, Svein-
björn Beinteinsson kveður rímur.
Föstudaginp 9. apríl verða listsýn-
ingar opnar frá 14-17. Laugardag-
inn 10. aprO verða listsýningar
opnaðarklukkan 14, ogklukkan 16
hefst dagskráin á kórsöng blandaða
kórsins. Þá verður ljóðalestur, les-
ari er Ingibjörg Jónsdóttir. Símon
ívarsson leikur á gítar og vísnavinir
skemmta með hljómlist og söng.
Kaffisala verður fimmtudag og
laugardag og rennur ágóði í orgel-
sjóð Hvammstangakirkju. H.K.
Pjetur H. Lárusson les upp
Pjetur Hafstein Lárusson er einn
þeirra sem kemur fram á Vorvök-
unni. Hann er nú búsettur á Laug-
arbakka í Miðfirði og stundar þar
kennslu auk ritstarfa. Hann hefur
sent frá sér sjö ljóðabækur og kom
sú fyrsta út 1972 og sú síðasta „I
hringnum“ kom út á Þorláksmessu
á síðasta ári. Pjetur skrifaði enn-
fremur bókina „Fjallakúnstner segir
frá“, samtalsbók við þann. merka
mann Stefán frá Möðrudal.
Pétur ætlar að lesa upp úr glæ-
nýjum hugverkum sínum,sem ekki
hafa birst áður. Það gustar í kring-
um Pjetur, hann er fastmæltur og
ákveðinn í skoðunum og þ'að verð-
ur áreiðanlega alláheyrilegt sem
hann flytur okkur á Vorvökunni.
Héraósvatnabrúin nýja. Hún er 9,2 m á breidd og 188 m löng. Undirstöðurnar hvfla á steyptum staurum 11-12 metra löngum.
Hvað verður gert í sumar?
Jónas Snæbjörnsson segir frá hvað áformað er að vinna í ár
Vegáætlun sú, sem samþykkt var á
Alþingi vorið 1981, nær yfir árin
1981 til 1984. Fjárveitingar fyrir
árið 1982 eru nú til umfjöllunar á
Alþingi einkum hvað varðar bætur
vegna vanáætlaðra verðhækkana
og vegna niðurskurðaráforma rík-
isstjórnarinnar.
Ekki er gert ráð fyrir að verk-
efnaröðun áætlunarinnar verði
breytt hér á Norðurlandi vestra.
Áætlað er að leggja bundið slit-
lag, svokallaða klæðingu, á Norð-
urlandsveginn frá Hrútatungu að
Stað um 2,9 km, frá Tjarnarkoti að
Miðfjarðará um 6,7 km, frá Þing-
eyrarvegi að Reykjabraut um 7,2
km og frá Sólvöllum um nýju
brúna á Héraðsvötn að Miðhúsum
um 4,5 km, eða alls um 21 km.
Bundið slitlag verður þá samtals
komið á um 64 km af Norður-
landsvegi í umdæminu en lengd
hans er rúmir 180 km. Þá verður
einnig lögð klæðning á Skaga-
strandarveg næst Norðurlandsvegi
um 1,5 km og á Sauðárkróksbraut
um 7 km.
Lögn klæðningarinnar í Húna-
vatnssýslum verður boðin út nú á
næstunni en Vegagerðin mun sjálf
annast útlögnina í Skagafirði.
Ætlunin er að byggja upp Norð-
urlandsveginn frá Gljúfurá að
Vatnsdalshólum þannig að hægt
verði að leggja klæðingu á hann
næsta sumar. Haldið verður áfram
uppbyggingu Sauðárkróksbrautar í
Sveitarstjórnar
ráðstefna
Kjördæmisráð AB á Norður-
landi vestra hélt sveitarstjórn-
arráðstefnu í Siglufirði 13. og
14. mars s.l.
Á fundinn mætti margt sveit-
arstjórnarmanna AB í kjör-
dæminu svo og ráðherrarnir
Svavar Gestsson og Ragnar
Amalds. Ráðstefnan varfjölsótt
og fór hið besta fram. Fjallað
var um marga þætti sveitar-
stjómarmála og kosningaslag-
inn sem í vændum er.
Laugardaginn 13. mars var
almennur fundur í Alþýðuhús-
inu þar sem Svavar Gestsson
hafði framsögu. Fundurinn var
fjölsóttur og urðu umræður líf-
legar og málefnalegar. Ekki er
að efa að ráðstefna sem þessi er
mjög þarflegt fyrirtæki, ekki
einasta þeim flokki sem að
henni stendur heldur hafa þær
vafalaust mikið gildi í almennri
umfjöllun um sveitarstjómar-
mál í kjördæminu og samvinnu
sveitarstjórna. GRS.
framhaldi af því sem gert var síð-
astliðið sumar, þ.e. frá Útvík til
norðurs. Haldið verður áfram með
nýja veginn í Mánárskriðum og
vonast er til að hægt verði að keyra
nýju leiðina næsta vetur, en nú er
ljóst að mikil frágangsvinna verður
að bíða til næsta árs. Gangur þessa
verks mun að verulegu leyti ráðast
af veðurfarinu. Verði vætusamt
sumar óttast vegagerðarmenn að
illa geti gengið að vinna í Úlfsdöl-
um.
í Skagafirði verða byggðar þrjár
brýr í sumar þ.e. yfir Jökulsá hjá
Nýlega var stofnuð á Norðurlandi
vestra Bókaútgáfan Blanda. í
fréttatilkynningu frá útgefendum
segir svo: „Tilgangurinn með bóka-
útgáfu þessari er sá, að koma á
framfæri vandaðri blöndu af bók-
menntum sem efla megi menning-
arstrauma á Norðurlandi vestra.
Teljum við útgefendur að Blanda
muni f tfmans rás verða ljósgjafi
norðlenskra menningarvita, og er
það von okkar að Ijós þeirra megi
skína á hverju heimili.“
Fyrsta bókin sem út er gefin hjá
Blöndu er smásagnasafnið „Bresta
hjónabönd“ eftir Bjama Halldórs-
son. Er þetta fyrsta bók höfundar,
en hann hefur áður skrifað fjöl-
margar greinar undir dulnefni f ýmis
dagblöð.
Á blaðamannafundi sagðist
Bjarni einkum fjalla um karlmenn f
nútimaþjóðfélagi og þær byrðar
sem samfélagið leggur þeim á herð-
ar. Kvað Bjarni vandamálum karla
ekki hafa verið gerð nægileg skil á
þessum siðustu og verstu tfmum.
Feyki hefur verið send til birting-
ar fvrsta saga bókarinnar. Ber hún
nafnið Kisturaunir og fer hér á eftir.
Kisturaunir
Konan mín er dásamlegur kokkur.
Á hveitibrauðsdögum okkar var
hún fádæma iðin við bakstur og
bakaði þá ýmist hjónabandssælu
eða sæta kossa. Þá vorum við svo
hamingjusöm að aðrar tegundir
komu ekki til greina.
En síðar fór kossunum fækkandi
og tók konan þá til við formkökur.
Kökur þessar voru ákaflega form-
fastar til að byrja með en konan
•mín gafst ekki upp og stóð nú við
bakstur öllum stundum. Ég tók
þetta tiltæki ekkert illa upp, en
hafði þó orð á því að ég saknaði
hjónabandssælunnar. Konar brást
þá hin versta við og setti upp snúð.
Goðdölum, yfir Svartá hjá Gilhaga
og yfir Hrútá í Vesturdal. Nýja
brúin yfir Jökulsána verður byggð
skammt ofan gömlu brúarinnar og
verður hún mun þægilegri aðkomu
heldur en sú gamla, sem getur verið
mjög hættuleg einkum á vetrum.
Brúin á Hrútá er á þjóðveginum
heim að Giljum, en þangað er nú
yfir óbrúaða á að fara, og er það
eini bærinn á Norðurlandi vestra
sem svo er ástatt um.
Á Skagavegi mun verða unnið
fyrir fé til jaðarbyggða. Gert er ráð
fyrir allt að 1,5 m.kr. og verður
Um þessar mundir gerðist hún
ákaflega döpur og spurði ég hvað
ylli. Kvaðst hún þá óttast um kökur
sínar þar eð hún ætti enga frysti-
kistu. „Munu þær nú allar mygla
sakir nísku þinnar“, sagði hún
tregafullum rómi og brast í grát. Ég
lét loks undan bónum hennar en
þegar ég sé hvílíkt ferlíki var komið
í mitt hús daginn eftir, hraus mér
hugur við afleiðingunum. Ég kom
að máli við konu mína og sagðist
óttast að kista þessi myndi draga
dilk á eftir sér. „Mikill kálfur ertu,“
svaraði hún þá og hvarf á braut.
Stundu síðar kom hún aftur, móð
og másandi, og dró þá dilka á eftir
sér, eigi færri en þrjá. Voru þeir
kistulagðir samdægurs.
Eftir komu kistunnar fór sam-
band okkar hjónanna kólnandi.
Konan mín bakaði nú margfalt
meira en áður og dró þess á milli
dilka í búið svo kistan liði ekki
skort. — Árin liðu og lömbin sem
forðum voru lögð í kistu voru orðin
seigustu gamalær þegar við loksins
átum þau.
En konan mín lét ekki deigan
síga við matargerðina. Dag nokk-
um kvaðst hún þurfa á annarri kistu
að halda þar eð verðhækkun á kjöti
væri yfirvofandi. Fortölur mínar
báru engan árangur svo kista þessi
var keypt með kuldalegu samþykki
mínu. En mikið varð hún mér dýr-
keypt. Hún gleypti við þrefalt
vegurinn utan við Stórhól byggður
upp á 5-7 km. kafla.
Enn eru ótaldar þær fram-
kvæmdir, sem kannski verða um-
fangsmestar, en það eru fram-
kvæmdir á Svínvetningabraut
vegna fyrirhugaðrar Blönduvirkj-
unar. Hins vegar hefur engin
ákvörðun verið tekin enn um þær,
en það er ljóst að svo umfangs-
miklar framkvæmdir sem talað er
um, þyrfti að ákveða með góðum
fyrirvara, svo hægt sé að undirbúa
þær á viðunandi hátt.
stærra hrossastóði en hin fyrri og
pútnafjölda ógurlegum. Ekki
nægði þetta þó til þess að fylla
gímaldið og var ég því sendur á
laxveiðar, nauðugur viljugur.
Stangastökk þetta kostaði mig
óhemjufjárútlát en konan varð æf
af bræði, ef kistan fékk ekki fylli
sína. Deilur okkar hjónanna voru
nú daglegt brauð en eftir að
sambúð okkar fór að versna hafði
konan mín sérhæft sig í stríðstert-
um.
Um síðir gerði ég mér ljóst hví-
líkt tjón þessi kona hafði bakað
mér. Ég var skuldum vafinn eins og
skrattinn skömmunum og allt sem
ég átti var nú fryst, —einnig inni-
stæða mín í bankanum. Ég varð
gjaldþrota og við það fór hjóna-
bandið í vaskinn.
Síðan ég yfirgaf konu mína og
kistu hef ég átt erfitt með svefn. Á
næturnar dreymir mig kistulagn-
ingu og kaldur hrollur fer um mig.
Ég er dauðans matur.
Feykir hefur verið beðinn að koma
því á framfæri við lesendur sína að
með því að útfylla pöntunarseðil-
inn og senda hann til Feykis innan
viku gefst þeim kostur á að fá bók-
ina með 50% afslætti, þ.e. á kr.
105,00. Mun Feykir þá senda bók-
ina til lesenda sinna ásamt gíró-
seðli.
Ég undirritaður lesandi Feykis æski þess að fá senda bókina
Kisturaunir
með þeim afslætti sem getið er í blaði yðar.
Nafn: ----------------------------------------------------
Heimilisfang: --------------------------------------------
NÝ BÓKAÓTGÁFA
Feykir . 7