Feykir


Feykir - 26.03.1982, Qupperneq 12

Feykir - 26.03.1982, Qupperneq 12
AUGLÝSINGAR Margeir Friðriksson Sími 95-5600 & 95-5752. DREIFING Hilmir Jóhannesson Síml 95-5133 & 95-5314. ÁSKRIFT Árni Ragnarsson Síml 95-5500 & 95-5870. Húnavaka í undirbúningi Nú stendur yfir undirbúningur Húnavöku USAH sem haldin verður á Blönduósi. í stuttu spjalli sem Feykir átti við formann USAH, Björn Sigurbjömsson, kom fram að búið væri að ganga frá samningum við hljómsveitina Upplyftingu til að sjá um dans fjögur kvöld. Á Húsbændavöku föstudaginn 23. apríl skemmtir Ómar Ragnars- son, og Páll S. Pálsson frá Sauða- nesi mun spjalla við gesti. Á laug- ardaginn mun Kór Rangæinga- félagsins í Reykjavík og Söng- félag Skaftfellinga halda söng- skemmtun. Leikfélag Blönduóss mun sýna „Kristnihaldið", og ýmislegt fleira verður boðið upp á. Nánar verður fjallað um Húna- vöku í næsta blaði Feykis Nýr kaupfélagsstjóri boðinn velkominn í Skagafjörð Eins og fram hefur komið í Feyki hefur Ólafur Friðriksson verið ráðinn Kaupfélagsstjóri Kaup- félags Skagfirðinga. Ólafur er fæddur 5. júní 1953 á Kópaskeri, og ólst hann þar upp. Eftir að hann lauk prófi frá Samvinnuskóla Is- Ólafur Friöriksson, Friðrik Ingi og F reyja T ryggvadóttir lands var hann um tíma við nám í Bretlandi, en var ráðinn kaup- félagsstjóri Kaupfélags Langnes- inga á Þórshöfn haustið 1974. Þar var hann í tæp tvö ár, eða þar til hann gerðist kaupfélagsstjóri Kaupfélags Norður-Þingeyinga i fæðingarbæ sínum á Kópaskeri. Kona Ólafs er Freyja Tryggva- dóttir frá Þórshöfn og eiga þau tvö börn, Friðrik Inga, 5 ára og önnu Guðnýju, eins árs. Feykir hitti þau hjónin sem snöggvast á dögunum þegar þau komu í kynnisferð til Sauðárkróks. Ólafur sagði að það legðist vel í sig að koma í Skagafjörðinn. K.S. væri að vísu stærra fyrirtæki en það kaupfélag sem hann kæmi nú frá, en vandamálin sem tekist er á við væru af svipuðum toga. Auðvitað tæki tíma að kynnast fólkinu og staðháttum en sér litist vel á hvort tveggja. Feykir býður hina ungu Þingey- inga velkomna í Skagafjörð. Saumastofan tíu ára Saumastofa Kaupfélags Skag- firðinga á Hofsósi tók til starfa 2. desember 1972 og á því 10 ára afmæli á þessu ári. Saumastofan var stofnsett til að sauma íslenska fánann fyrir þjóðhátíðarárið 1974, og er þetta eina saumastofan á land- inu, sem saumar fána. Það kom reyndar fljótlega í ljós, að það eitt var ekki nóg til að halda saumastofu gangandi og var þá farið að sauma vinnusloppa af öllum gerðum, t.d. fyrir frystihús, sláturhús, kjörbúðir og verkstæði. Sauma- konurnar grípa þó í fánasaum- inn annað slagið, og hafa þær einnig saumað erlenda þjóð- fána fyrir opinberar heimsóknir hingað til lands. Saumastofan hefur nokkurt samstarf við Fataverksmiðjuna Heklu á Akureyri, sem hefur séð um sölu á hluta framleiðsl- unnar. Fyrstu starfsár sauma- stofunnar var einnig allt efni sniðið í Heklu, en seinna fóru konurnar að sníða sjálfar og sagði Svanhildur Guðjónsdótt- ir, verkstjóri saumastofunnar að því fylgdu bæði kostir og gallar: Þær hefðu ekki verið verkefna- lausar síðan, en lagerinn hleðst upp. 1 því taldi hún reyndar að fælust aðal erfiðleikamir í rekstrinum. Siðastliðið sumar var húsnæði saumastofunnar stækkað, vélar endurnýjaðar og sníðaaðstaða bætt. Þær eru sjö sérlega hressar, konurnar á Saumastofunni og segja að þar ríki góður andi og voru sammála um að aðrir mættu taka þær sér til fyrir- myndar. Rósa Um páskana mun Ásta Pálsdóttlr sýna um 40 vatns- lltamyndlr 1 Safnahúsinu á Sauðárkrókl. Myndlrnar eru frá Sauðárkrókl, Skagafirðl og vfðar, af fólkl þar, landslagi og húsum og raunar ~sæklr Asta fyrri myndir víða í verk sín. - Ásta er fædd á Sáuðárkróki 2. febrúar 1938, dóttlr Sigrúnar Fann- land og Páls Sveinbjðmssonar. Hún fluttl til Kefla- vfkur 1954 og hefur búlð þar sfðan. Par hefur Ásta komlð mjðg við sðgu Myndllstardelldar Baðstofunn- ar og veitt henni forstððu sfðustu 7 árin og Jafnframt stundað myndlistarnám hjá Elrfkl Smith og fleirum. Ásta hefur tekið þátt f mörgum samsýnlngum hér á landi og elnnig f Krlstiansand f Noregl árlð 1974. Sýningln á vatnslitamyndum Astu f Safnahúsinu hefst á skfrdag, 8. apríl, og stendur yfir tll 13. april. Þetta verður fyrsta elnkasýnlng Ástu og um lelð fyrsta elnkasýning, sem kona heldur á myndverkum sínum á Sauðárkróki. B.P./ ár— STEINULLARVERKSMIÐJA: Enneru ljón í veginum Svo sem kunnugt er hefur iðnaðar- ráðherra Hjörleifur Guttormsson lagt fram tillögu í ríkisstjórn um að Steinullarverksmiðja risi á Sauðár- króki. Einnig er kunnugt að enn eru ljón í vegi. Feykir náði tali af Þorsteini Þorsteinssyni bæjarstjóra á Sauð- árkróki þar sem hann var staddur í hringiðu atburðanna fyrir sunnan. — Hvað er að frétta af máli mál- anna, steinullarmálinu? Þegar á allt er litið er ég frekar bjartsýnn á jákvæðar undirtektir þrátt fyrir hinn neikvæða frétta- flutning fjölmiðla. Það mætti halda að iðnaðarráðherra hafi drýgt glæp með því að leggja til að steinullar- verksmiðja rísi á Sauðárkróki, eins og mál eru kynnt nú. — Er ekki unnt að leiðrétta þetta? Við höfum nú alltaf lagt meiri áherslu á tækni- og viðskiptalegan undirbúning en fjölmiðlafleip- ur. Nú er þó svo komið að við erum tilneyddir að leiðrétta mestu rang- færslurnar sem fram hafa komið. Ég er núna að undirbúa blaða- mannafund sem haldinn verður á miðvikudaginn (24. mars). Auk þess hef ég kynnt sjónarmið okkar í þingflokki Álþýðuflokks, en þar var fjallað Itarlega um málið í dag. — En hvar stendur stjórnin? Mér sýnist að staðsetning á Sauðárkróki hafi mikinn stuðning í ríkisstjórninni. Hjörleifur iðnaðar- ráðherra, eins nákvæmur og vand- virkur maður og hann er, fer tæp- lega að flytja tillögu í ríkisstjórn- inni nema hann hafi fyrirfram tryggt sér þar öruggan stuðning við hana. — Þú ert þá bjartsýnn? Já, Það er ekki hægt að vera annað. Ég vona að ríkisstjórnin af- greiði málið bráðlega. Ég lít á til- löguflutning þeirra Sunnlendinga á alþingi sem neyðaraðgerð þeirra til Hannes Baldvinsson flutti nýlega á Alþingi frumvarp um niðurfellingu söluskatts á snjómokstri á vegum sveitarfélaga. Hannes hefur áður hreyft þessu máli á Alþingi en án árangurs. Nú eru taldar líkur á því að málið nái fram að ganga á þessu þingi. Hér er á ferðinni sjálfsagt jafnréttis- og hagsmunamál þeirra sveitarfélaga sem verða að verja stórfé til þess að halda opnum samgönguleiðum innan sinna sveitar marka. Sem dæmi má nefna að á árinu 1981 var varið rúmri 1 millj. kr. til þessara þarfa á Siglu- firði og um 2 millj. kr. á Akureyri. Hér fer á eftir greinargerð Hannes- ar með frumvarpinu: „Það hefur lengi verið þymir í augum sveitarstjórna í snjóþungum héruðum landsins, að þeim er gert að greiða söluskatt af þeirri óhjá- kvæmilegu þjónustu að ryðja snjó af götum í þéttbýli að vetrarlagi. Gildir þar einu hvort notaðar eru að fría sig gagnvart kjósendum sinum eftir að ljóst var hvernig landið lá. Hvernig því verður svar- að er „taktískt“ mál sem þingmenn okkar munu sjá um í samráði við okkur heimamenn. — Ekkert neikvœtt? Jú það versta er að maður missir sennilega af sæluvikunni út af öll- um þessum gauragangi. vinnuvélar í eigu viðkomandi sveitarfélags eða verktaka sem lög- um samkvæmt ber að innheimta söluskatt af leigu vinnuvéla sinna. Skattheimta þessi kemur mjög misjafnlega þungt niður á hinum ýmsu sveitarfélögum og er óréttlát vegna þess að hún kemur þyngst niður á þeim er búa fyrir við veru- leg óþægindi og aukakostnað, sem óhjákvæmilega hlýtur að fylgja byggð í snjóþungum landshlutum. Tilraunir sveitarstjórna til að ná fram leiðréttingu þessara mála hafa fram til þessa ekki borið árangur og því borið við meðal annars, að til þess skorti heimildir í lögum. Með frumvarpi þessu, ef að lög- um verður, er opnuð leið til að endurgreiða sveitarfélögum sölu- skatt, sem sannanlega hefur verið goldinn af kostnaði við snjómokst- ur, og með því móti stigið skref í átt til þess að jafna skilyrði til búsetu hvar sem er á landinu." GRS. Söluskatti aflétt ískalt Seven Up. Hressir betur.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.