Feykir


Feykir - 30.04.1982, Side 14

Feykir - 30.04.1982, Side 14
Ill l»J Frambjóðendakynning Á lista Sjálfstæöisflokksins, sem fram er lagöur við bæjar- stjómarkosningamar hér á Sauðárkróki í maí n.k., skipa ungar konur tvö af fimm efstu sætunum. Þessar konur eru AÐALHEIÐUR ARNÓRSDÓTTIR snyrtifræðingur og ELÍSABET KEMP hjúkrunarfræðingur. Þar sem hvorug þeirra hefur áöur verið í framboði til trúnaðarstarfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn þykir „D-síðunni“ full ástæða til þess að kynna þessa tvo frambjóðendur og nokkur viðhorf þeirra til bæjarmála. Aðalheiður Arnórsdóttir sem skipar annað sætið á listanum er snyrtifræðingur að mennt. Hún er fædd 23. aprQ 1944, á Akranesi. Foreldrar hennar eru Amór Svein- björnsson kaupmaður og Guðrún Sigurðardóttir. Aðalheiður lauk prófi sem snyrtifræðingur 1967. Hingað til Sauðárkróks fluttist hún ásamt manni sinum Óskari Jóns- syni lækni árið 1974. Þau eiga 3 börn. Elisabet Kemp hjúkrunarfræð- ingur skipar fimmta sæti listans. Hún er fædd á Sauðárkróki 17. aprfl 1945, dóttir Stefáns Kemp verk- stjóra og konu hans Áslaugar Bjömsdóttur. Hún lauk prófi hjá Hjúkrunarskóla Islands áríð 1971. Fluttist aftur til Sauðárkróks 1979. Maður hennar er Jón Hjartarson skólameistarí, og eiga þau tvö böm. Þær Aðalheiður og Elisabet vom inntar eftir því, hvemig á framboði þeirra til bæjarstjómar stæði og hver viðhorf þeirra væru til hinna ýmsu málaflokka sem hæst ber f dag og framundan eru í bæjarmál- unum. Fara svör þeirra hér á eftir. AÐALHEIÐUR: Af hverju förum vip í framboð, eða hefjum afskipti af bæjarmálum yfirleitt? Fyrir því em eflaust margar og ólíkar ástæður. Flest okkar hafa eflaust einhverntíma sagt ljótt um götumar á Sauðárkróki, hrósað uppbyggingu skóla hér undanfarin ár, eða kvartað yfir plássleysi á leikskólum, svo eitthvað sé nefnt — og þannig skipt okkur óbeint af bæjarmálum. — En aldrei hafði það hvarflað að mér að fara í framboð eða skipta mér af stjóm- málum yfirleitt, og þegar þetta var nefnt við mig, fannst mér það frá- leitt og alls ekki koma til greina. En eftir að hafa hugsað málið vand- lega og ráðfært mig við fólk sem ég þekki og treysti og ekki síst mann og böm, þar sem þetta hlýtur að hafa mikla breytingu í för með sér fyrir þau, ekki sist vegna þess að undanfarin ár hef ég mest unnið heima, og eftir að hafa fengið stuðningsyfirlýsingu frá þeim — fannst mér ég ekki geta annað en tekið því trausti sem mér var sýnt. ELlSABET: Ég skal í stuttu máli gera grein fyrir helstu atriðunum sem réðu því að ég skipa 5. sæti á lista Sjálf- stæðismanna við bæjarstjómar- kosningamar 22. mai n.k. og reyna jafnframt að svara þvi hvers vegna ég styð Sjálfstæðisflokkinn. Þegar þess var farið á leit við mig að ég tæki sæti á listanum, þá tók ég mér góðan umhugsunarfrest. Fyrst og fremst vafðist fyrir mér reynsluleysi mitt i stjómmálum og hélt sú vitn- eskja aftur af mér i fyrstu. En það er haldlitil röksemd fyrir konur að stefna að aukinni hlutdeild í opin- berum málum, ef þær hafa ekki áræði til að takast á við ný verkefni. „Eru konur fengnar á lista, vegna þess aö þcer eru konur?" Sú umræða, heldur Elfsabet áf- ram — sem hefur farið fram und- anfarið um þátttöku kvenna i stjómmálum hefur eflaust ýtt við mér eins og svo margri annari kon- unni, og aldrei hef ég efast um dugnað og hæfileika kvenna til jafns við karla. „En þekking ykkar á bœjarmál- um ?“ AÐALHEIÐUR: Mér er það ljóst að það er margt í bæjarmálunum sem ég veit lítið um, en þannig hlýtur það jú að vera með flesta er þeir hefja af- skipti af þessum málum. — Það AÐALHEIÐUR: Mér hefur verifi sýnt miklð traust með þvi að sctja mig i 2. sæti á lista Sjálfstœðismanna, og ég heitl þvi að gera mitt besta til að verfiskulda þaö traust. kann að vera að einhverju leyti ókostur að ég er ekki „orginal“, en ef til vill jafnoft kostur því eins og sagt er — glöggt er gests augað. „Þú áttir raunar eftir aö svara því Elísabet, hvers vegna þú slyöur Sjálfstœðisflokkinn, og tókst nú sœti á framboðslista hans. “ Fólk tekur oft afstöðu til fram- boðs i bæjarstjómarkosningum á grundvelli þeirra persóna, sem skipa framboðslistana, meira en samkvæmt afstöðu sinni til stjóm- málakenninga. Best er þegar þessi tvö sjónarmið fara saman. — Það skiptir mig máli annars vegar, að á listanum er fjölhæft fólk, sem með störfum sínum hefur vakið tiltrú mína, og hins vegar, að meginatriði i stefnu Sjálfstæðisflokksins — og viðhorf min fara saman. Til að nefna eitt framar öðru er það meg- inatriði í stefnu Sjálfstæðisflokks- ins að einstaklingurinn hafi svig- rúm og frelsi til athafna og sé hæfur til að stjóma sér sjálfur, — hæfur til að velja og hafna, en sé ekki hnepptur i fjötra ofskipulags og ofstjómar. „Málaflokkar sem ykkur eru hugleiknir?" Elfsabet Kemp og AðalheiAur Amórsdóttir. AÐALHEIÐUR: I ár er ár aldraðra, og ég hef undanfarið unnið með félagi eldri borgara hér á Sauðárkróki, bæði í opnu húsi á sunnudögum og einnig með föndur og fleira. Það hefur verið mér mikils virði að kynnast þessu fólki og um leið hef ég sann- ELfSABET: Þ*6 skiptir mig máli ann»n vegar, aó á llstanum er fjölhæft fólk, sem meó störfum sínum hefur vakió tlltrú mína, og hins vegar aó meginatriói í stefnu Sjálfstæðis- flokksins —og viðhorf mín fara saman. færst um nauðsyn þess, að dvalar- heimilið sem nú er í byggingu, komist upp sem fyrst. Ekki er þó nægilegt að byggja dvalarheimili, heldur er hitt ekki siður mikilvægt að gefa því eldra fólki, sem það vill, tækifæri til að geta dvalist á eigin heímilum sem lengst t.d. með þvi að auka heimilishjálpina, og einnig að koma á heimahjúkrun. Það er áreiðanlega ósk okkar flestra að fá að dvelja sem lengst á eigin heimilum. ELÍSABET: Sauðárkókur er ört vaxandi bær, — og þó ég líti ekki lengra aftur en til ársins 1968 er ég flutti héðan, þá dylst ekki hvilík uppbygging hefur átt sér stað hér og finnst mér nú hilla undir góða framtíð fyrir Sauðárkrók. AÐALHEIÐUR: I útivistarmálum almennings þarf að gera verulegt átak, m.a. með fjölgun grænna svæða inni 1 bænum, — benda má á Flæðamar norðan sundlaugar, sem skipu- leggja þarf og fegra. Viða í bænum eru smáir og stórir blettir, sem henta ágætlega til þessa, og geta orðið íbúunum til verulegrar ánægju og bænum til mikillar prýði. Þetta eru verkefni sem gætu hentað vel í unglingavinnu, en einnig gætu þeir sem að þessu ynnu, séð árangur af sumarstarfinu um ókomin ár. ELÍSABET: Atvinnumálin eru um þessar mundir í brennidepli. Steinullar- verksmiðja er ekkert lokatakmark, heldur verðum við að halda áfram að leita að nýjum atvinnumögu- leikum. Því forsenda þess að hér sé hægt að rækta fjölskrúðugt og blómlegt mannlíf, hlýtur að vera sú að atvinnumálin séu í lagi. AÐALHEIÐUR: Við þurfum einnig að halda áf- ram uppbyggingu á mörgum öðr- um sviðum en atvinnumálum. Ef til vill verður mér fyrst hugsað til þeirra mála sem næst mér standa sem foreldris — til uppeldis- og skólamála og annara réttinda bama okkar. ELÍSABET: Sem starfsmaður í heilbrigðis- þjónustunni, hlýt ég að minnast á hana, en þar með er ekki sagt að áhugi minn beinist ekki að öðrum málefnum bæjarins t.d. samgöngu- og skipulagsmálum, svo eitthvað sé nefnt, og sem Sjálfstæðismaður skorast ég ekki undan að eiga hér hlut að máli. AÐALHEIÐUR: Það væri hægt að telja upp ótal margt sem þarf að gera og gaman væri að gera, eða ræða það sem gert hefur verið, en það eftirlæt ég þeim sem tekið hafa þátt ístjóm bæjarins undanfarin ár. öll vitum við að bæjarsjóður hefur ekki ótakmark- að fé til ráðstöfunar og því hlýtur að verða að komast að samkomu- lagi hverju sinni; hvaða fram- kvæmdir skuli hafa forgang, og í ört vaxandi bæ eins og okkar, hlýt- ur það val oft að vera erfitt. „Hvernig leggst kosningabarátt- an íykkur?“ ELlSABET: Eins og ég sagði áðan, tel ég að listinn sé skipaðiur góðu fólki. Þess vegna leggst þessi kosningabarátta vel í mig, og ég tel að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi góðan meðbyr í kosningunum þann 22. maí n.k. AÐALHEIÐUR: Ágætlega; allt það fólk sem við mig hefur rætt tekur mér vel og þess vegna er ég bjartsýn, en mér er það ljóst að mér hefur verið sýnt mikið traust með því að setja mig í annað sætið á lista Sjálfstæðis- manna, og ég heiti því að gera mitt besta til að verðskulda það traust. ID 19 19 ■ 9 •9 19 Tryggjum D-listanum þrjá menn 22. maí 14 . Feykir

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.