Feykir


Feykir - 30.04.1982, Síða 16

Feykir - 30.04.1982, Síða 16
AUGLÝSINGAR DREIFING ÁSKRIFT Margeir Friðriksson Hilmir Jóhannesson Árni Ragnarsson Sími 95-5600 & 95-5752. Sími 95-5133 & 95-5314. Sími 95-5500 & 95-5870. Rétt skal það vera. Mestur járningamaður norðan heiða kennir á Skagaströnd Séra Jón prímus jámaði manna mest og best undir Jökli að sögn Halldórs Laxness. Löngum hafa þeir þótt þarfir menn sem smíðuðu skeifur og jámuðu í sveitum landsins. Oftast var þetta eitt af heimilisverkun- um en nú er öldin önnur. Eftir að hestaeign er orðin almenn í þéttbýli eru margir sem ekki hafa átt kost á því að læra jámingar af feðrum sínum. Mestur jámingamaður norðan heiða nú er án efa Jón Garðarsson bóndi í Neðra-Ási í Hjaltadal. Jón hefur lært jámingar í Danmörku, en þar sem annars staðar í Evrópu teljast jámingar og skeifnasmíði til iðngreina. í vetur hefur Jón kennt jámingar hjá ýmsum hestamannafélög- um frá Langanesi til Stranda og suður i Borgarfirði. Hefur aðsókn allsstaðar verið góð og konur ekki látið sitt eftir liggja og mætt. Fyrir páska hélt Jón sitt áttunda námskeið hjá Snarfara á Skagaströnd. Tólf hestamenn tóku þátt í námskeiðinu og járnaðir vom 20 hestar. Það er ánægjulegt að fólk sýnir jámingum þennan áhuga, því að það er mikið atriði að hirða fætur og járna vel til þess að góður hestur nýtist sem best. Á Skagaströnd eru hestamenn famir að hugsa til komandi sum- ars meðal annars vegna landsmótsins á Vindheimamelum, sem verður haldið í fyrstu viku júlimánaðar. 1 byrjun febrúar hóf Sig- urður Jónsson tamningar og hefur haft nóg að starfa, auk þess temja nokkrir fyrir sjálfan sig og stunda útreiðar. J S P Mikla athygli vakti útvarpsfréttin núna á dögunum um „vatnsátöpp- unarverksmiðju" Hreins Sigurðs- sonar. Sýndist ýmsum eftir á, að allt tal og rifrildi um steinullar- og sykurverksmiðjur væri hégóminn einber, þegar sýnt er að 60 Sauðkrækingar geta fengið fram- tíðar ,,djobb“ við að tappa Mold- uxavati á pyttlur fyrir Reagan. Því urðu þessar vísur til á vömm eins Skagfirðings úr Blöndusýslu: Fer í Króksins forðabúr, fjöllin sést hann span’um. Vindur alla vætu úr veslings Molduxanum. - Hreinsi yfir gróða gín, gleypir margar flugur. Ef hann breytti vatni í vín væri hann almáttugur. - R.G.Sn. Frá Kaupfélagi Austur-Húnvetninga Stjóm Kaupfélags Húnvetn- inga harmar og mótmælir um- mælum Páls Péturssonar al- þingismanns, á Alþingi og i fjölmiðlum, þar sem hann ásakar lánastofnanir í héraði um þvinganir og hótanir við skulduga bændur. Krefst stjórnin þess að þing- maðúrinn lýsi yfir opinberlega, að hann hafi ekki i ummælum sinum átt við Kaupfélag Hún- vetninga á einn eða annan hátt. Að öðrum kosti leggi þing- maðurinn fram sannanir til réttlætingar staðhæfingum sin- um. Kveðja til Halldórs Laxness | Ungur vakti ádeilur óðs og sagna hlynur, nú er hann orðinn áttræður, allra stétta vinur. Hólmfríður Jónasdóttir. Leiðrétting Sigurður Jónsson tamningamaður tekur skeifnasprettinn. Fjölbrautaskólinn Sauðárkróki: Fyrstu stúdentar útskrifast á Skagaströnd núna Þeir eru orönir margir „prímusarnir Hinn 20. maí i vor verður merkur atburður á Sauðárkróki. Fyrstu stúdentar Fjölbrautaskólans munu brautskrást og fyrstu „meistararn- ir“ sömuleiðis. Samtals verður þetta nálægt tuttugu manna hópur. Stúdentsefnin nú er fólk sem hóf framhaldsnám í öðrum skólum en Fjölbrautaskólanum en kom svo þangað eftir að hann tók til starfa. Þannig var Ingi Tryggvason frá Hrappsstöðum í Víðidal tvö ár i framhaldsdeild Reykjaskóla í Hrútafirði áður en hann kom á Sauðárkrók, þar sem hann hefur nú verið í tvo vetur. Við spurðum Inga hvort margir Húnvetningar væru á heimavist Fjölbrautaskólans. Hann kvað svo vera, sérstaklega þó úr Austursýslunni. — Hvers vegna komst þú á Krókinn? „Það lá beinast við vegna nálægðarinnar. Mér líkaði strax vel, og ákvað að ljúka náminu hér.“ — Þú hefur staðið framarlega í félagslífi nemenda. Er það öflugt ef miðað er við aðra framhaldsskóla? „Já, ég held að við getum mjög vel við unað. Heimavistin skapar góðan grundvöll fyrir félagslíf, þar kynnast nemendur vel. Samstarfið við þá sem búa úti í bæ er einnig mjög gott. Þeir koma hingað og við til þeirra." — Hvað tekur svo við eftir stúdentsprófiö? „Ætli maður haldi ekki eitthvað áfram i náminu,“ sagði hinn hóg- væri Vestur-Húnvetningur. Við rákumst á þrjár stúlkur í skólastofu sem voru að lesa leikrit- ið Andorru á frummálinu, þýsku. Þær búa allar á Sauðárkróki og heita Kristín Benediktsdóttir, María Ásbjarnardóttir og Ragna Hansen. Þær útskrifast sem stúdentar í vor — ef þær falla ekki! Þær eiga það sameiginlegt að hafa hætt námi í menntaskólum um sinn, en komu aftur til leiks eftir að skólinn á Sauðárkróki var stofn- aður. Þær stöllur virtust ánægðar með hið svokallaða áfangakerfi, sem er í því fólgið að tekin eru próf eftir hverja önn (sem stendur hálfan vetur) og gilda þau sem hluti loka- prófs. Þær töldu að námið gæti orðið markvissara á þann hátt heldur en með gamla laginu sem legði mest upp úr lokaprófi síðasta vorið í menntaskólanum. Þessar ágætu stúlkur hrósuðu skólanum og kennurum hans og sögðu að hann og þeir stæðut vel samanburð við það sem þær þekktu annars staðar. — Hvers vegna takið þið stúdentspróf? Þegar illa er spurt verða svörin í léttum dúr: „Til þess að vera ekki eftirbátar karlanna.“ Prentvilla slæddist inn í framboðs- lista sjálfstæðismanna á Blönduósi í siðasta tölublaði Feykis. I öðru sæti er Sigríður Friðriksdóttir en ekki Sigurlaug. Beðist er velvirð- ingar á mistökunum. Kristin, Marla og Ragna.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.