Vestfirska fréttablaðið - 09.04.1992, Qupperneq 8
8
Hvítasunnukirkjan
Komið og hlustið á lifandi boðskap í tali og
tónum. Samkomur okkar eru sem hér segir:
Sunnudaga:
KI. 11.00 Sunnudagaskóli.
Kl. 17.00 Almenn samkoma (barnapössun).
Fimmtudagar:
KI. 20.30 Bænasamkoma.
Allir hjartanlega velkomnir - biðjum fyrir
sjúkum sérstaklega.
Hvítasunnukirkjan.
Silfurhúðun
Framnesvegi 5, Reykjavík
Verðum stödd í Gullauganu
þriðjudagogmiðvikudag 14. og 15. apríl.
Veitum ráðleggingar varðandi silfur-
húðun á gömlum munum.
Höfum einnig til sýnis brenndu
Iinuna okkar.
Arný og Logi.
Hópferðabílar
Guðna G. Jóhannessonar
Hópferðabílar
til leigu
í styttri og lengri ferðir
utan bæjar sem innan.
25, 30 og 45 sæta bílar í boði.
Upplýsingar í símum 94-4136
og 985-32714 og hjá Ferðaskrifstofu
Vestfjarða símar 3457 og 3557.
SOLUFOLK
Sölufyrirtæki af Norðurlandi
óskar eftir sölufóiki á ísafirði.
GÓÐ VARA
NÆG VINNA
GÓÐ SÖLULAUN
Umsóknir léggist inn til Vestfirska, Aðalstræti 35,
ísafirði, pósthólf 116, þar sem komi fram nafn, sími,
aldur og fyrri störf,
§Sjávarútvegsstefnan
og Evrópumál
Opinn fundur í Kratahöllinni, ísafirði, sunnudag-
inn 12. apríl kl. 16.00.
Þröstur Ólafsson aðstoðarmaður utanríkisráð-
herra og formaður nefndar ríkisstjórnarinnar um
endurskoðun sjávarútvegsstefnunnar, ræðir
stjórnmálaviðhorfið með skírskotun til sjávarút-
vegs- og Evrópumála.
Allir velkomnir.
Alþýðuflokksfélögin á norðanverðum Vestfjörðum.
Fimmtudagur 9. apríl 1992
Tónlist í dymbilviku:
••
Fyrstu einleikstónleikar Guðrúnar Onnu Tómas-
dóttur, sonardóttur Jónasar heitins Tómassonar
tónskálds og bóksala á Isafírði
í dymbilviku (öðru nafni
kyrruviku, vikunni næstri á
undan páskaviku) cr mikið um
að vera á öllum sviðum mann-
lífsins á ísafirði. Það gildir
einnig um tónlistarlífið. Fram-
lag Tónlistarfélagsins að þessu
sinni eru tónleikar með ungum
píanóleikara af ísfirskum
ættum, sem nú er að stíga sín
fyrstu spor sem einleikari.
Það er Guðrún Anna Tóm-
asdóttir (sonardóttir Jónasar
heitinsTómassonar tónskálds,
organista og bóksala), en hún
heldur píanótónleika í sal
Grunnskólans á Isafirði mið-
vikudagskvöldið 15. apríl kl.
20.30.
Guðrún Anna er fædd í
Reykjavík árið 1962 og hóf
snemma nám í píanóleik við
Barnamúsíkskólann í Reykja-
vík. Hún var nemandi Stein-
unnar Steindórsdóttur (móður
Jóns Sigurpálssonar safna-
varðar á Isafirði), uns hún fór
í Tónlistarskólann í Reykja-
vík, þar sem hún naut leið-
sagnar Margrétar Eiríksdótt- Guðrún Anna Tómasdóttir píanóleikari.
ur. Guðrún lauk burtfarar-
prófi vorið 1985 og dvaldist
síðan einn vetur við fram-
haldsnám í Lyon í Frakklandi.
Þá fluttist hún til Hollands og
hefur síðan stundað tónlistar-
nám við Sweelinck í Amster-
dam, þaðan sem hún lýkur
píanókennaraprófi í vor.
Aðalpíanókennari hennar þar
hefur verið Willem Brons,
sem kenndi á hinu velheppn-
aða Sumarsólstöðunámskeiði
á ísafirði sl. sumar, en hann
var einnig aðalkennari ísfirsku
píanóleikaranna Margrétar
Gunnarsdóttur og Vilbergs
Viggóssonar.
Guðrún Anna hefur tekið
þátt í fjölda tónleika sem með-
leikari söngvara og hljóðfæra-
leikara, en þetta eru fyrstu
einleikstónleikar hennar.
A efnisskránni eru verk eftir
Bach, Haydn, Chopin, Fauré,
Skrjabín og Moszkowski. Að-
göngumiðar eru seldir við inn-
ganginn, en nemendur Tón-
listarskólans tvítugir og yngri
fá ókeypis aðgang eins og að
öðrum tónleikum Tónlistar-
félagsins.
Sjávarútvegsráðuneytið hafnar
umskipun rækju á Isafirði
„Nýju lögin afturför frá þeim gömlu“, segir Gunnar Jónsson skipamiölari
Skipaafgreiðsla Gunnars
Jónssonar á Isafirði sótti um
leyfi til Sjávarútvegsráðuneyt-
isins fyrir norska rækjuveiði-
skipið Jan Mayen til að koma
til ísafjarðar dagana 13. eða
14. apríl n.k. og losa 130-140
tonn af fullunninni Japans-
rækju til áframhaldandi flutn-
ings til Japan. Um er að ræða
afla sem veiddur er á Dohrn-
banka, handan miðlínu milli
Grænlands og íslands. Fyrir
nokkrum árum veitti Gunnar
Jónsson mikla þjónustu græn-
lenskum rækjuskipum sem
umskipuðu rækju til Dan-
merkur um Isafjarðarhöfn.
Sú þjónusta færðist svo til
Hafnarfjarðar af ýmsum
ástæðum.
Sj ávarútvegsráðuneytið
neitaði að veita leyfi til um-
skipunar rækjunnar úr Jan
Mayen á þeirri forsendu, að
ljóst sé „að rækja sú sem sótt
er um heimild til löndunar á,
er veidd úr stofni sem sameig-
inlegur er með Islandi og
Grænlandi. Ennfremur að
ekki hefur tekist samkomulag
milli landanna um nýtingu
þess stofns", eins og segir í
bréfi ráðuneytisins.
Gunnar Jónsson sagði í við-
tali við Vestfirska að neitunin
hefði komið sér mjög á óvart.
Hann hefði haldið að Alþingi
hefði með nýjum lögum um
rétt til veiða í efnahagslögsögu
íslands liðkað fyrir því að
erlend skip gætu landað afla
sínum á fslandi og þar með
aukið viðskipti. Þrátt fyrir
ákvæði laganna sem getið er í
bréfi ráðuneytisins sem
ástæðu neitunar handa Jan
Mayen, væri sjávarútvcgs-
ráðherra heimilt að víkja frá
ákvæði þeirrar málsgreinar.
„Fessi lög eru greinilega
afturför frá gömlu lögunum
frá 1922. í nýju lögunum hefur
enn ekki verið tekin afstaða til
þess, í hvaða tilvikum megi
víkja frá banninu. Á sama
tíma er verið að leyfa græn-
lenskum skipum að landa í
Hafnarfirði. Þetta er
þversögn. Þeir ná ekki sam-
komulagi við Grænlendinga
um rækjuveiðar úr sameigin-
legum stofni en leyfa þeim
samt að landa, en ekki Norð-
mönnum sem veiða úr sama
stofni. Þjónustufyrirtæki á Isa-
firði tapa miklu á þessu dæmi
með Jan Mayen. Skipið hafði
pantað kost hér fyrir um 800
þús. til 1 miljón króna. ísa-
fjarðarhöfn missir tekjur upp
á 200 þús. kr. a.m.k. Þetta eru
innkomugjöld fyrir skipið og
aflagjald og vörugjald. Svona
mætti lengi telja. Skip þurfa
ol íu. vatn og viðge rði r svo það
getur tapast mikið á hverju
skipi sem við missum. Jan
Mayen siglir nú til Noregs með
aflann. Það skondnasta við
þetta allt er það, að þetta sem
menn voru að tala um að
breyta til þess að meiri við-
skipti næðust til íslands, það
virðist ekki hafa náð fram að
ganga með nýju lögunum. Þau
eru jafnvel verri en gömlu
lögin, og það er aðalatriðið",
sagði Gunnar.
Vestfirska tekur undir með
Gunnari, að það getur ekki
gengið að þjónustufyrirtæki
hér í bænum skuli missa
miljónatekjur á því þröngsýn-
issjónarmiði að banna er-
lendum skipum að umskipa
afla. Það verður að marka af-
stöðu strax til þess, í hvaða til-
vikum sé heimilt að víkja frá
banninu.
-GHj.
Gunnar Jónsson skipamiðlari í símanum.
Næstu sýningar
hjá LL
Ættarmótið, 3. sýning föstudag 10/4 og
4. sýning sunnudag 12/4 í Félagsheimilinu í
Hnífsdal. Sýningarnar byrja kl. 20.30.
SJÁUMST!
Litli leikklúbburinn