Vestfirska fréttablaðið - 20.08.1992, Blaðsíða 6
6
Tónleikar
ungs listafólks
N'æstu þrjú fimmtudagskvöld veröa haldnir hér á Isa-
firöi, nánar til tekið í sal Frímúrara, þrennir tónleikar ungs
tónlistarfólks. Þaö eru þeir Siguröur Halldórsson sellóleik-
ari og Daníel Þorsteinsson píanóleikari, sem ríða á vaðið
í kvöld, fimmtudagskvöldið 20. ágúst kl. 20:30. Á efnis-
skrá eru verk eftir Debussy, Sjostakóvitsj, Schnittke og
Martinu.
Fimmtudagskvöldið 27. ágúst verða síðan systurnar
Rannveig Sif Sigurðardóttir sópran og Hólmfríður Sigurð-
ardóttir píanóleikari með tónleika, og fimmtudaginn 3.
september þau Guðrún Jónsdóttir sóþran og Ólafur Vignir
Albertsson píanóleikari.
Daníel og Sigurður.
Mikilar steypuskemmdir
á heimavist MI
Stórkostlegar steypu-
skemmdir hafa komið fram
í útveggjum heimavistar
Mí á Torfnesi og er nú unn-
ið að viðgerð. Að sögn
Þrastar Jóhannessonar,
sem vinnur við viðgerðina,
virðast skemmdirnar vera
bundnar við neðri hæð
suðurálmunnar.
Svo virðist sem steypt
hafi verið í frosti. Einnig
virðist eins og sementið
hafi verið sparað meira en
góðu hófi gegnir, og voru
veggirnir hreinlega að
hruni komnir. Starfsmcnn
Eiríks og Einars Vals sf.,
þeir Þröstur Jóhannesson
og Sveinn Ingi Guðbjörns-
son, eru þarna að setja
nýjar járnabindingar í
veggina.
Hótel ísafjörður
ekki lengur ljótt -
eða þannig
Hótel ísafjörður hefur heldur betur tekið stakkaskiptum
að undanförnu. Húsið, sem er fimm hæðir, hefur hingað
til ekki verið talið með fegurstu húsum norðan Alpafjalla,
hreint út sagt. Á sínum tíma var það hraunað að utan,
dökksvargrátt á lit, ákatlega drungalegt og klunnalegt og
Ijótt og hefur að margra dómi verið eins og illa gerður
hlutur í húsalínunni við Pollinn.
Nú er mikil breyting orðin á. Húsið er að vísu enn þessar
sömu fimm hæðir og enn á sama stað. En nú er það orðið
Ijósleitt, og þvílíkur munur! í staðinn fyrir yglibrúnina og
Ijótleikann er húsið nú orðið allt að því biíðlegt og notalegt
og aðlaðandi ásýndum. Enn er það þó flekkótt og skellótt
vegna viðgerða á þeirri hliðinni sem að Silfurtorgi snýr, en
það er með útlit húsa eins og efnahagsmálin: Þegar gripið
er til nauðsynlegra ráðstafana til úrbóta, þá versnar
ástandið fyrst, áður en það fer að batna, eða þannig...
Fimmtudagur 20. ágúst 1992
VESTFIRSKA
| FRÉTTABLAÐIÐ
Yestfjarðamót héraðssambanda í Sævangi
Héraðssambandið Hrafna-Flóki hlaut flest stig
- Björgvin K. Gunnarsson (HHF) sigraði í fímm greinum
Héraðssambandamót Vest-
fjarða var haldið sl. laugardag
við Sævang í Strandasýslu.
Hér er um að ræða aldurs-
flokkamót 16 ára og yngri í
nokkrum afmörkuðum grein-
um, hlaupagreinum (100 og
800 m hlaupi), köstum og
stökkum (ekki er keppt í
öllum greinunum í öllum
aldursflokkum). Þetta var í
fimmta skipti sem slíkt mót er
haldið, en það er til skiptis hjá
héraðssamböndunum, yfir-
leitt um miðjan ágúst. Síðast
var það haldið á Bíldudal og
þar áður á Þingeyri. Þetta var
í annað skipti sem Stranda-
menn halda mótið.
Að þessum mótum standa
þrjú héraðssambönd, Héraðs-
sambandið Hrafna-Flóki,
Héraðssamband Vestur-Isa-
fjarðarsýslu og Héraðssam-
band Strandamanna (aftur á
móti eru Austur-Barðstrend-
ingar í íþróttasamstarfi við
Dalamenn).
í stigakeppni sambandanna
sl. laugardag hlaut Hrafna-
Flóki flest stig eða 349, HSS
fékk 322,5 stig en HVÍ 276,5
stig.
Hér skulu taldir nokkrir af
sigursælustu einstaklingun-
um. í flokki telpna 10 ára og
yngri sigraði Auður Valdi-
marsdóttir HHF í 60 m hlaupi
og langstökki. í flokki stelpna
11-12 ára sigraði Hildigunnur
Kristinsdóttir HHF í 60 m
hlaupi og 800 m hlaupi og varð
í öðru sæti í langstökki. 1
flokki stráka 11-12 ára sigraði
Friðrik Runólfsson HHF' í 800
m hlaupi og kúluvarpi, varð
annar í langstökki og hástökki
og þriðji í 60m hlaupi. í flokki
stclpna 13-14 ára sigraði Petr-
ína Hjálmarsdóttir HHF í 100
m hlaupi og langstökki. í
flokki stráka 13-14 ára sigraði
Guðjón Daðason HSS í 100 m
hlaupi og langstökki og varð
þriðji í spjótkasti. í flokki
stelpna 15-16 ára sigraði Sæ-
borg Reynisdóttir HVÍ í 100
m hlaupi, langstökki og kúlu-
varpi, og varð þriðja í spjót-
kasti og kringlukasti. I flokki
stráka 15-16 ára sigraði
Björgvin K. Gunnarsson HHF
í 100 m hlaupi, hástökki, kúlu-
varpi, kringlukasti og 800 m
hlaupi, varð annar í spjótkasti
og þriðji í langstökki.
„Þetta mót er smám saman
að vinna sér hefð og menn
leggja meiri metnað í það á
hverju ári að senda sterkasta
liðið. Ég finn það hérna að
krakkarnir hafa miklu meiri
metnað að keppa á Vest-
fjarðamóti en verið hefur. Al-
veg vantar Bolvíkinga og ís-
firðinga í þessa keppni, þeir
eru ekki mikið í frjálsum
íþróttum og virðast ekki hafa
áhuga á þessu", sagði Jón
Ólafsson frá Sandnesi, for-
maður HSS og mótsstjóri í
samtali við Vestfirska.
Að sögn Jóns var þetta mót
það fjölmennasta sem haldið
hefur verið og ekki vantaði
neinn skráðan keppanda.
Vildi hann endilega fá Bolung-
arvík og fsafjörð til þátttöku í
Vestfjarðamótum framvegis
og kvaðst sakna þeirra. Helst
hélt hann að í þessum kaup-
stöðum kæmist ekkert að
nema knattspyrna og sund.
..... r---------
SMÁ
VILTU BÆTA SAM-
VISKUNA?
Um verslunarmannahelg-
ina var tekinn grænn dún-
svefnpoki úr tjaldi í Bjarka-
lundi. Það er ekki of seint að
skila honum.
Hringið í sima 91-45379
(María).
PAR
með eitt barn óskar eftir 2ja
herbergja íbúð frá og með
október.
Uppl. í síma4198.
FYRIR BARNIÐ
Til sölu vagga, burðarrúm
og hókus pókus stóll. Selst
mjög ódýrt.
Uppl. í síma 4178.
ELDAVÉL ÓSKAST
Óska eftir notaðri eldavél í
góðu standi.
S. 3441.
TIL SÖLU
Til sölu er húseignin Hrann-
argata 8.
Uppl. gefur Kristján Pálsson í
S. 3669.
QÐINN BAKARI
BAKARÍ S 4770
VERSLUN S 4707
Mótmælastaða
við Ljónið
-GHj.
„Suðusvæði44
á Suðureyri
Þessir kálfar efndu til mótmælastöðu fyrir framan Verslunar-
miðstöðina Ljónið á Isafírði í gær. Talsvert offramboð er um
þessar mundir á ungnautakjöti, eins og komið hefur fram í
fréttum. I fréttatilkynningu sem kálfarnir sendu frá sér kváðust
þeir vilja mótmæla „ótímabærum og óþörfum slátrunum“, sem
séu andstæðar hagsmunum allra sem hlut eiga að máli, þ.e.
nautgripabænda, sláturleyfíshafa, kaupmanna, neytenda, og
síðast en ekki síst þeirra nautgripa sjálfra sem slátrað er, ,.en
slíkt hefur sem kunnugt er mikil og afgerandi áhrif á líf okkar",
eins og m.a. sagði í tilkynningunni.
Rússarnir vilja
meiri bíla
Unga kynslóðin lætur sig ekki vanta í nýju sundlaugina á Suður-
eyri. Barnalaugin og heitu pottarnir eru á bakkanum og sjást
vel á myndinni.
Rússneska verksmiðjuskip-
ið Aleksey Gmyryov frá
Múrmansk kom til ísafjarðar
í gær og er nú að landa 16(1
tonnum af heilfrystri rækju
sem fer í vinnslu í Niðursuðu-
verksmiðjunni hf. Síðan fer
skipið til Noregs þar sem það
landar 400 tonnum af heil-
frystum þorski.
Gunnar Jónsson skipamiðl-
ari á ísafirði, umboðsmaður
Rússanna, kvað skipstjórann
sérstaklega hafa óskað eftir
hílaviðskiptum við ísfirðinga.
Því er hér með komið á fram-
færi til eigenda gamalla bif-
reiða að hafa nú hraðar hend-
ur og mæta með þá á kajann,
því skipið fer væntar.lega í
kvöld frá ísafirði.
-GHj.
„Við höfum ekki staðið í
öðrum framkvæmdum en við
sundiaugina á þessu ári.
Önnur verk á vegum hrepps-
ins flokkast undir viðhald til
þess að fyrirbyggja meiri
kostnað seinna. Við tókum
þá afstöðu við fjárhagsáætlan-
argerð sl. vetur að ljúka við
laugina. Það hefur gengið upp
og bara smáfrágangur eftir".
sagði Halldór Karl Hermanns-
son, sveitarstjóri á Suðureyri,
í samtali við VESTFIRSKA í
síðustu viku.
„Laugin er þrískipt: Stór
laug, 8 x 16,67 m; barnalaug,
4 x 8 m; og svo tveir heitir
pottar, annar þeirra nuddpott-
ur. Svæðið umhverfis gefur
mikla möguleika og má segja
að þarna verði suðusvæði. Það
er stór og skjólgóð girðing um-
hverfis laugina og þegar sólin
er á sínum besta stað, þá fá
allir sól.
Framkvæmdir hófust sl.
haust. Stóra laugin var tekin í
notkun í febrúarbyrjun.
Seinni hluti framkvæmdanna
hófst 20. júní og iauk í ágúst-
byrjun. Heiidarkostnaður
stefnir í það sem áætlað var
um sl. áramót, 3,8 milljónir,
og það stendur. Áður var
kominn rúmlega 11 millj. kr.
kostnaður þannig að þetta
verða 15 millj. kr.
í sundlaugina er notað heitt
vatn úr borholu við Laugar.
Hún er smíðuð úr flekum og
þess vegna er auðvelt að
stækka hana. Ef hugsað er til
framtíðar með tilkomu jarð-
ganga, þá sé ég ekkert því til
fyrirstöðu að fá fleka til við-
bótar og stækka hana að mun
án teljandi kostnaðar.
Rekstrarkostnaður þessarar
laugar er miklu minni en á
fjörðunum í kring vegna heita
vatnsins hér. Kyndingar-
kostnaðurinn er enginn",
sagði Halldór.
-GHj.