Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Blaðsíða 1

Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Blaðsíða 1
1 FRÉTTABLAÐH) j SÉRVERSLUN MEÐ REIÐHJÓL F^yicjiM Icr tir —1saraMluitir w ÞJOTUR • Skeiði • ísafirði • Sími 5059 Fimmtudagur 28. apríl 1994 • 17. tbl. 20. árg, © 94-4011 • FAX 94-4423 VERÐ KR. 170 m/vsk. FERD TIL FJÁR ÁTÁLKNA Björgunarsveitin Blakkur á Patreksfirði efndi tii fjáröflunarferðar síðastliðinn sunnudag. Gafst Patreks- firðingum þar kostur á að kaupa sér ferð með bílum og vélsleðum af Kili, veginum á milli Patreksfjarðar, og Tálknafjarðar, fram á fjallið Tálkna. Við vörðu mikla sem sést á myndinni var stoppað og boðið upp á kaffi, kleinur og aðra hressingu. IVIikið og gott útsýni er frá vörðunni á Tálkna yfir Patreksfjörð og vítt og breitt um sunnanverða Vestfirði. Alls munu um 60 manns hafa nýtt sér þetta tækifæri á sunnudaginn og rituðu af þessu tilefni nöfn sín í dagbók sem varðveitt er í vörðunni góðu. Vestur-Barðastrandarsýsla: Samkeppni um nafn á nýja sveitarfélagið - smekkleysi, heimska og ruddaskapur unnu sigur á Suðurnesjum Á blaðsíðu 10 hér í blaðinu er auglýst samkeppni um nafn á hið nýja sveitar- fólag sem senn verður til í Vestur- Barðastrandarsýslu við sameiningu Barða- strandarhrepps, Rauðasandshrepps, Patrekshrepps og Bíldudalshrepps. Ekki er að efa að margar góðar tillögur berist. Ekki er nein ástæða til að óttast að Vestfirðingar falli í þá gryfju smekkleysis og heimsku sem henti við hliðstæða nafngjöf á Suðurnesjum fyrir skömmu. Ákveðið hefur verið að sameina þrjú af sveitarfélögunum á Suðurnesjum og hefur verið ákveðið að hið nýja sveitarfélag beri nafnið Suðurnes, enda þótt meirihluti sveitarfélaga á Suðurnesjum standi utan þess. Auk þess að vera smekkleysi og heimska og auk þess yfirgangur og ruddaskapur við aðra Suðurnesjamenn er þetta gróf misþyrming á málvenju. Þetta er nákvæmlega hliðstætt því ef hið nýja sveitarfélag í Vestur- Barðastrandarsýslu yrði látið heita Vestfirðir, sveitarstjórinn þar nefndur sveit- arstjórinn á Vestfjörðum o.s.frv. Þetta virðist nokkuð augljóst — nema á Suður- nesjum. h.þór Listi óháðra á Flateyri lagður fram Listi óháðra við sveitarstjórnarkosningarnar í vor hefur verið lagður fram. Hann er þannig skipaður: 1. Sigurður Hafberg, útgerðartæknir. 2. Herdís Egilsdóttir, húsmóðir. 3. Guðmundur Sigurðsson, bifreiðastjóri. 4. Ágústa Guðmundsdóttir, verslunar- og verkamaður. 5. Einar Æ. Hafberg, verkamaður. 6. Sigurbjört Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri. 7. Sigurður H. Garðarsson, útgerðarmaður. 8. Ragnar Már Gunnarsson, sjómaður. 9. Anna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustúlka. 10. Eggert Jónsson, skipstjóri. Súðvíkingar vilja fá Djúpbátinn - bjóðast til að smíða ferjubryggju og koma upp viðunandi aðstöðu og bækistöð fyrir Fagranesið í Súðavík - ekkert við því að segja, segir bæjarstjórinn á ísafirði Vestfirska hefur fengið staðfest að Súðvíkingar hafi fyrir skömmu sent þau skila- boð inn á fund í stjórn Hf. Djúpbátsins, að þeir væru til- búnir til þess að skapa bílaferj- unni Fagranesi viðunandi að- stöðu í Súðavík. Er þá átt við að Súðavíkurhreppur byggi ferju- bryggju í Súðavík og sjái um að flytja viðlagasjóðshusið, sem hýsir skrifstofur Hf. Djúpbáts- ins við Isafjarðarhöfn, til Súðavíkur. Blaðið bar þessa frétt undir Smára Haraldsson, bæjarstjóra á ísafirði, og kvaðst hann hafa heyrt af þessu tilboði. „Ef fyr- irtækið telur þetta henta sér, þá er ekkert við þessu að segja“, sagði bæjarstjórinn. „Auðvitað er það missir að missa Fagra- nesið ef það fer til Súðavíkur. Mér skilst að ákvörðun verði tekin um það hvort ferjubrygg- ur verði byggðar núna allra næstu daga", sagði Smári. Ef af flutningi fyrirtækisins verður flytjast a.m.k. tíu störf frá ísafirði til Súðavíkur. Talið er að a.m.k. tíu fjölskyldur hafi lifibrauð sitt af skipinu, fyrir utan ýmsa aðila sem veita því þjónustu. Má búast við að það fólk flytji til Súðavíkuref stjórn Djúpbátsins gengur að þessu Djúpbáturinn Fagranes. Flytjast bækistöðvar hans til tilboði Súðvíkinga. Súðavíkur ásamt lifibrauði fyrir tíu fjölskyldur og ýmsum -GHj. verkefnum fyrir þjönustufyrirtæki á staðnum? Vestfirska á miðvikudögum Næsta mánuðinn er stefnt að því að Vestfirska fréttablaðið komi út síðdegis á míðvikudögum, degi fyrr en venjulega. Á- stæðan er vinnuhagræðing í prentsmiðjunni (Isprenti hf.) vegna mikils annríkis þennan mánuð, en því veldur ekki síst þróttmikil blaðaútgáfa og önnur vinna fyrir stjórnmálaflokkana í kosn- ingabaráttunni. Auglýsendur eru beðnir að gæta að þessu og hafa samband tímanlega. Tekið er á móti smáauglýsingum a.m.k. fram á þriðjudagskvöld í blað sem kemur út á miðvikudegi. Þeir sem vilja koma greinum í Vestfirska fréttablaðið í kosn- ingabaráttunni eru beðnir að stilla lengd þeirra í hóf, en öllum framboðum og frambjóðendum er vissulega velkomið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í blaðinu. Verðlaunadráttur Vestfirska og P/zza '67 - sjá bls. 4 PÓLUNN HF. ® 3092 Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Sala & þjónusta Siglingatæki Kælitæki PÓLLINN HF ■ ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ LEITA SUÐUR - það fæst hjá okkur á sama verði M.a. SIEMENS • PHILIPS • SANYO • PANASONIC • SONY • TECHNICS • BLAUPUNKJ • CASIO • PHILCO • GRAM • EMIDE • HUSQUARNA • NILFISK • KOMDU OG KYNNTU ÞÉR MÁUÐ! FLUGFÉLAGIO ERNIR P ÍSAFIRÐI Sími 94-4200 Daglegt áætlunar- flug um Vestfirði. Leiguflug innan- lands og utan, fimm til nítján far- þega vélar. Sjúkra- og neyðarflugsvakt allan sólarhringinn

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.