Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Blaðsíða 9

Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Blaðsíða 9
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ J- Fimmtudagur 28. apríl 1994 9 Sérfræöingar á FSÍ: Bæklunarskurölækn- ingar, kvensjúkdóm- ar og fæöingarhjálp Ríkharður Sigfússon, sérfræðingur í bæklunar- skurðlækningum, verður starfandi á FSÍ dagana 2.-8. maí nk. Benedikt Ó. Sveinsson, sérfræðingur í kvensjúk- dómum og fæðingarhjálp, verður starfandi á FSÍ dag- ana 9.-15. maí nk. Tímapantanir í síma 94-4500 alla daga frá kl. 8.00 til 17.00. Við getum eytt öllu atvinnuleysi Pétur Sigurðsson forseti ASV tók sæti á Alþingi í tíu daga fyrr í þessum mánuði sem varamaður Sighvats Björgvins- sonar. Þar flutti Pétur (ásamt Gísla S. Einarssyni frá Akra- nesi) tillögu til þingsályktunar um endurheimt tapaðra starfa við fiskvinnslu. Tillagan hljóð- ar svo: „Alþingi ályktar að fela rfk- isstjórninni að láta meta hve mörg störf hafa tapast frá land- - segir Pétur vinnslu sjávarafla vegna „sjáv- arfrystingar“ og útflutnings á óunnum ftski. Ríkisstjórnin láti enn fremur kanna með hvaða hætti megi endurheimta þau störf." í samtali við Vestfirska full- yrðir Pétur að til sé lausn á því atvinnuleysi sem ríkir hérlend- is. „Ráðamenn þjóðarinnar einblína svo mjög á frelsið í útflutningi á okkar einu afurð að þeir sjá ekki skóginn fyrir Sigurðsson trjánum. Ef við flyttum ekki svona mikið út af óunnum fiski, ef við minnkuðum útflutning- inn um meira en helming, þá gætum við haldið uppi stöðugri atvinnu hringinn f kringum landið. Það myndi síðan eyða atvinnuleysinu í þjónustugrein- um á Reykjavíkursvæðinu, en þær eru fóðraðar af tekjum fólksins í sjávarpiássum úti um allt land og hafa alltaf verið. Þess vegna er lítt skiljanlegt að ráðamenn skuli ekki grípa í taumana, þar sem við virðumst eiga full tök á því að eyða at- vinnuleysinu. Þeir vísa hins vegar alltaf til „hinna Norður- landanna“ og virðast telja eðli- legt að hafa atvinnuleysi á Is- landi úr því að það er atvinnuleysi annars staðar“, sagði Pétur Sigurðsson. h.þór Messa og kirkju- kaffi ís- firðinga í Reykjavík 1. maí - óskað eftir gömlum myndum til birtingar í Vestanpóstinum ísfirðingafélagið í Reykjavík (og um land allt) hefur ákveðið að gang- ast fyrir messu og kirkjukaffi 1. maí kl. 14 (klukkan tvö) í Breiðholts- kirkju í Mjódd, Þangbakka 5 í Reykjavfk. Séra Örn Bárður Jónsson messar, en hann er fæddur og uppalinn á Isa- firði. Guðrún Jónsdóttir sópransöng- kona, einnig af ísfirsku bergi brotin, syngur einsöng. Þau Herdís Jóns- dóttir, Sveinbjörn Bjamason og Guðrún hafa náð saman brottfluttum ísftrðingum og myndað kirkjukór sem leiða mun sönginn. Kirkjukaffið verður strax eftir messu, þar sem selt verður kafft. Að öðru leyti er ókeyp- is. TENGT BANKAREIKNINGI 5KORTí7 Ritstjórar Vestanpóstsins verða á staðnum og vonast til að fólk korni með gamlar myndir til birtingar í blaðinu. Jafnframt því að hlusta á Guðs orð er þetta kjörið tækifæri fyrir brott- flutta ísfirðinga að hittast og spjalla saman að messu lokinni. Kirkjunefnd Isfirðingafélagsins skipa Una Halldórsdóttir, formaður, Sveinn Elíasson og Rannveig Mar- geirsdóttir. Formaður ísfirðingafélagsins er Einar S. Einarsson. ÁBYRGÐARKORT í tékkaviðskiptum HRAÐBANKAKORT heima og erlendis ► BANKAKORT í bankaviðskiptum ^ STAÐGREIÐSLUKORT í rafrænum búðarviðskiptum innanlands og utan ► PERSÓNUKORT traust persónuskilríki meðmynd Vísu- korn Oft á klettum kúra selir, § kemur í fréttum allt sem ber við. 1 Oft í fötum finnast melir, færð á götum reynist erftð. VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík, simi 91-671700 Mörður.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.