Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Blaðsíða 6

Vestfirska fréttablaðið - 28.04.1994, Blaðsíða 6
^ Fimmtudagur 28. apríl 1994 VESTFJARÐARAPPIPERLUNNI Vestfirðingar voru mjög áberandi', eins og þeirra er von og vísa, á sýningunni „Ferðaiög og útivist“ sem haldin var í Perlunni í Reykjavík fyrir og um síðustu helgi. Á sýningunni voru margvíslegar kynningar á ferðamöguleikum, gistingu, veitingum og afþreyingu úti um allt land. Ljósmyndari Vestfirska var á sýn- ingunni og fylgja hér nokkrar myndir þaðan. Fyrir utan þá aðila sem eru á myndunum má nefna sumarhótelið að Laugarhóli í Bjarnarfirði og bændagist- inguna að Bæ í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu, sem einnig voru þarna Álfhildur Jónsdóttir á ísafirði (dóttir Jóns á Gerðhömrum, ættuð úr Álfadal á Ingjaldssandi) er að taka við rekstri Djúpmannabúðar við Mjóafjörð og hyggur á ýmsar breytingar þar í sumar. Mikill fjöldi gesta kom á básinn til Álfhildar á sýningunni og hér virðist einn þeirra vera að rappa kynn- ingarbæklinginn hennar, og hún jafnvel sjálf að taka undir. Básinn hjá Tryggva Gunnarssyni í Flatey vakti mikla athygli. Tryggvi er með skoðunarferðir um Breiðafjörð á báti sínum, en gestum sínum á sýningunni gaf hann hangikjöt. Það hlaut svo góðar viðtökur að birgðirnar kláruðust áður en sýningunni lauk. Meira um það í næsta blaði. Tvö í ferðamannabransanum: Björg Aðalheiður Jónsdóttir frá Ferðamálafélagi ísafjardðarsýslu og Gunnar Egilsson sem rekur veitingataðinn á Hópið á Tálknafirði Álfhildur Jónsdóttir leiðir Sigurð J. Jóhannsson, aðstoðar- svæðisstjóra hjá Landsbanka íslands í Reykjavík, í allan sannleika um það sem verður á boðstólum í Djúpmannabúð í sumar. Sigurður var lengi skrifstofustjóri hjá Landsbank- anum á ísafirði, eins og menn vita. Hann mun eflaust koma akandi vestur á æskuslóðirnar í sumar ásamt Sæunni konu sinni, sem einnig var á sýningunni í Perlunni. Vilborg Guðnadóttir frá Reykhólum í bás Ferðamálafélags Dala og Reykhólahrepps. Það er engu líkara en sýningar- gesturinn til hægri sé líka að rappa eitthvað uppi á vegg og Vilborg sé að stjórna. með kynningar. Strandir: Aaö fara að opna norður í Árnes- hrepp „Það er búið að moka til mín1', sagði Guð- mundur á Munaðarnesi í samtali við blaðið. „Það opnaðist á sumardaginn fyrsta og ég er búinn að vera lokaður inni síðan í lok febrúar. Það þykja nú ekki tíðindi hér. Það á að fara að huga að mokstri til Hólmavíkur. Við erum venjulega lokaðiraf firnm til sex mánuði á ári.“ -GHj. „Eg er degi yngri en Ólafur Helgi" - segir Þórólfur Halldórsson lögmaður, sem tekur við sýslumannsembættinu á Patreksfirði á sunnudaginn „Ég er ekki búinn að fara vestur ennþá, ég er að fara í fyrramálið", sagði Þórólfur Halldórsson, nýskipaður sýslu- maður á Patreksfirði í samtali við Vestfirska fréttablaðið í morgun, en hann tekur við embættinu á sunnudaginn, þann 1. maí. Þórólfur var skipaður í stað Stefáns Skarphéðinssonar, sem tók við sýslumannsembætti í Borgarnesi 1. mars sl. A meðan hefur Sölvi Sölvason sýslufull- trúi verið settur sýslumaður á Patreksfirði. „Ég er degi yngri en Olafur Helgi“, svaraði Þórólfur að bragði þegar hann var spurður á hefðbundinn hátt um „aldur, menntun og fyrri störf‘ og átti þar að sjálfsögðu við kollega sinn, Ólaf Helga Kjartansson sýslumann á ísafirði. Þeir urðu báðir fertugir í byrjun septem- ber á síðasta ári. Þórólfur Halldórsson, nýskipaður sýslumaður á Patreksfirði. Sonurinn fetar í spor föðurins Þórólfur er héraðsdómslög- maður og hefur lengst af stund- að fasteignasölu jafnframt öðr- um lögmannsstörfum. Hann var í tvö ár varaformaður Félags fasteignasala og síðan formaður þess í sjö ár, á mesta breytinga- skeiði sem orðið hefur í þeirri starfsgrein. Eiginkona Þórólfs er Kristín Jónsdóttir. Yngri sonurinn kemur með foreldr- um sínum vestur en eldri son- urinn fetar í spor föður síns og stundar nám í lagadeildinni. Nýr sýslumannsbústaður „Þetta leggst mjög vel í okkur“, sagði Þórólfur. „Ég hlakka mikið til að koma vest- ur og taka við þessu verk- efni.“ Eitt af síðustu verkum Stef- áns Skarphéðinssonar í emb- ætti á Patreksfirði var að kaupa nýjan sýslumannsbústað við Aðalstræti 122, innst í bænum. „Reyndar er ekki búið að af- henda það hús ennþá þannig að maður verður að koma sér einhvers staðar fyrir til bráða- birgða", sagði Þórólfur. I\ mmm [\ 1 FRÉTTABLAÐIÐ 1 Hvers vegna í fjandanum... ...getur Ríkisútvarpið ekki verið með fréttir af hitastigi á vestari helmingi landsins í morgunútvarpinu? Af hverju bara helmingurinn af landinu? Það er föst venja í morgunútvarpinu, og hefur verið lengi, að segja frá hitastigi á nokkrum stöðum á landinu. Þessir staðir eru Reykjavík, Akureyri, Egilsstaðir og Höfn í Hornafirði. Á tfmabili hélt ég að þetta gilti bara um Rás tvö, en svo lagði ég það ég eitt sinn á mig í svefnrofunum að hlusta á tvær-þrjár sinfóníur og annað eins af óperuaríum, sinfóní- ettum, skertsóum (allegrettó ma non troppó), etýðum, rondóum (vivace con pomodoro e ma sugo di carne), ó- vertúrum og fínölum í morgunútvarpi Rásar eitt. Og viti menn: Inn á milli tokkötu eftir Vívalda og fúgu í G-dúr Ópus/Allt eftir Sigvalda (Kaldalóns) var skotið hitastiginu — í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og Höfn í Horna- firði! Eru ekki til neinir hitamælar á vesturhluta landsins? Þegar Vegagerðin getur verið með sjálfritandi og jafnvel sjálflýsandi hitamæla uppi á heiðum um allt land, sem senda hitastigið á tíu mínútna fresti suður í textavarp, af hverju er þá ekki hægt að fá hitastig á vestari helmingi landsins í morgunútvarp? Vestfirðingar eru ekki allir með textavarp, ekki einu sinni allir með sjónvarp. Og þeir sem eru með textavarp búa ekki uppi á Steingrímsfjarðarheiði eða Breiðadalsheiði. Ég bara spyr. Betúel. G L E R EINANGRUNARGLER - 5 ÁRA ÁBYRGÐ ÖRYGGISGLER í vinnuvélar o.fl. HAMRAÐ gler SPEGLAGERÐ INNRÖMMUN Speglar skornir eftir máli Speglar í römmum Sendum út um land ef óskað er GLERSLÍPUN AKRANESS HF. Ægisbraut 30 - sími 93-12028 ATVINNA! Rekstraraðili óskast að gistiheimilinu Gestahúsinu, Bolungarvík. Möguleiki á rekstri söluturns og/eða myndbandaleigu o.fl. Gott tækifæri fyrir duglegt og hugmyndaríkt fólk. Upplýsingar veita Ásgeir Þór og Jón Friðgeir í símum 7350 og 7351.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.