Feykir


Feykir - 18.07.1984, Blaðsíða 8

Feykir - 18.07.1984, Blaðsíða 8
14/1984 ÍEYKIR NORÐURLANDAMOT drengja í knattspymu Sauðárkróksvöllur: Þriðjudagur 24. júlí kl. 17: Færeyjar - ísland Föstudagur 27. júlí kl. 17: Danmörk - Færeyjar Föstudagur 27. júlí kl. 18.45: Noregur - Svíþjóð Mikil atvinna á Sauðárkróki í sumar Rœkjuvinnslan Dögun hf. Blm brá undir sig betri fætinum einn daginn í síðustu viku og heimsótti nokkra vinnustaði á Sauðárkróki í því skyni að forvitnast um atvinnuástand og horfur. Varð ekki annað séð af þessari stuttu yfirreið en yfrið nóg væri að gera víðast hvar. Fyrst bárum við niður i hinni nýju rækjuvinnslu Sauðárkróks, Dögun hf. sem við kynntum hér í maí um það leyti erstarfscmin fór í gang. Nú lék okkur forvitni á að vita hvering vinnslan hefði gengið síðan og hvort nóg væri að gera. Verkstjórinn Hermann Agnars- son sagði að óhætt væri að segja að hér væri nóg að gera Aldrei væri unnið skemur en til 7, oft til 10 á kvöldin, flesta laugardaga og síðastliðna helgi hefði verið unnið bæði laugardag og sunnudag. Sannarlega engin grið gefin á þeim bæ. Haraldur Hákonarson fram- kvæmdastjóri og einn eigendanna tók í sama streng, nóg að gera en hins vegar væri verðið á rækjunni ekki nógu gott um þessar mundir. Þarna vinna um 14 manns, handtökin eru mörg og unnið á miklum hraða svo stúlkurnar við færibandið gáfu sér tæpast tíma til að líta upp er við smelltum af þeim mynd. iv ' / Frystihúsið Skjöldur hf ”Það hefur verið mjög mikið að gera hérna undanfarnar vikur. Hér er byrjað að vinna klukkan 4 á nóttunni og unnið til 5 á daginn, einnig vinnum við laugardaga og sunnudaga jafnvel líka. Þetta er mikill fiskur sem berst á land, nú eigum við von á togara með um 140 tonn og af þeim fáum við um 50 tonn til vinnslu hér I húsinu. Rækjubátarnir sem leggja upp hjá rækjuvinnslunni landa hér þeim þorski og þeirri grálúðu sem kemur með rækjunni. Það má segja að hér hafi verið unnið allar helgar síðustu tvo mánuði.Okkur vantar fólk í snyrtingu og pökkun, hér eru um 50 manns í vinnu en þyrftu að vera fleiri.” Þetta sagði Jón Þorsteinsson verkstjóri. Að fengnu leyfi til myndatöku rölti blm aðeins um húsið og spjallaði við þá starfsmenn sem urðu á vegi hans. Við eitt borðið stóðu tvær konur og ormhreinsuðu þorsk og þærvoru spurðar hvernig þeim líkaði þessf mikla vinna. "Þetta er erfitt. Við höfum unnið ýmist frá 4 á nóttunni eða 7 á morgnana til 5 á daginn. Stundum hafa komið nokkrir dagar í röð þar sem byrjað hefur verið 4. Síðan vinnum við alla laugardaga og reynum að vinna af okkur sunnudagana.” Skilar þessi mikla vinna sér í launum? ”Það er varla. Maður þreytist af svona mikilli vinnu og þá minnkar bónusinn. Þetta hefur allt áhrif hvað á annað.” Við eitt borð stóð ein kona útaf fyrir sig og virtist vera að fara aftur yfir þann fisk sem þegar hafði verið hreinsaður. ”Já, þetta er nokkurs konar eftirlit. Það er svo mikið af ormi í fiskinum að ekki veitir af.” Svo sannarlega er handagangur í öskjunni á Sauðárkróki í sumar á hinum ýmsu vígstöðvum, mikið unnið og mikið framkvæmt. Viðmælendum þökkum við fyrir spjallið og vonandi ná menn einhverju útúr sumrinu af sól og blíðu þrátt fyrir stritið. Steinullar- verksmiðjan hf Næst lá leiðin út á athafnasvæði Steinullarverksmiðjunnar, þar sem óskabarn Sauðkrækinga um þessar mundir, rís af grunni. Að sögn Braga Haraldssonar byggingarstjóra vinna þar nú hátt í 50 manns, verkamenn og iðnaðar- menn og bera myndirnar þess ljósastan vottinn að mikið er unnið og mörg handtökin. Bragi bætti því við að undanfarið hefði verið alveg botnlaus vinna, oft unnið fram á kvöld og alla laugardaga. Gott ef ekki sunnudaga líka. Og þar með var Bragi rokin af stað og fékkst ekki meira uppúr honum. Bragi Þór Haraldsson byggingar- eftirlitsmaður sagði að fram- kvæmdum miðaði samkvæmt áætlun, á tímabili hefði virst sem eitthvað ætlaði að verða um tafir en þá hefði mannskapurinn sett kraft í þetta og nú gengi allt eftir klukku. Starf sitt sagði Bragi felast í þvi að fylgjast með framkvæmdum fyrir hönd verkkaupa þ.e. Steinullar- verksmiðjunnar, og væri þar meðal annars um að ræða eftirlit með steypu og að unnið væri nákvæmlega samkvæmt teikningum. Við járnabekkinn stóðu þessir ungu menn og beygðu járn í gríð og erg. Þeir sögðu að mikið færí unnið, fastur vinnutími til kl. 7 á kvöldin og oft unnið lengur. Tíu tímar á laugardögum væru fastir hjá þeim og þetta líkaði þeim vel, því mikil vinna þýddi gott kaup. Einföld en góð vinnusiðfræði það.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.