Feykir - 09.01.1985, Page 4
Miðvikudagur 9. janúar 1985
4 FEYKIR
AKUREYRI
skemmtanalíf
Örn Ingi, leikmyndahönnuður, Sveinn Einarsson, höfundur og leikstjóri, og Theodór
Júliusson, leikari, með torfuna frá Keldum í kassa. Mynd. ÓHT
r
Eg er gull oggersemi
Þann 28. des. s.l. frumsýndi Leikfélag
Akureyrar nýtt leikrit eftir Svein Einars-
son. Sveinn leikstýrði sjálfur verkinu,
sem hann kallar „Ég er gull og gersemi”
eftir einni af fleygustu vísum listamanns-
ins, flakkarans og „heimspekingsins”
Sölva Helgasonar (1820-1896).
Ég er gull og gersemi
fþmsteinn elskuríkur.
Ég er djásn og dýrmæti
drottni sjálfum líkur.
Skagfirðingurinn Sölvi dró þannig
ekkert úr eigin ágæti. Þó hefur hann
varla fengið uppreisn æru fyrr en á
þessari öld. Hann kom þó fyrir í leikriti í
Theodór Júlíusson leikari við vörðuna á
Fellinu i Sléttuhlið. Mynd. ÓHT
Svarfaðardal, „Gestakomunni” eftir
Kristján Fjallaskáld á meðan Sölvi varenn
á lífi og á fjórða áratugnum stóðu
Tryggvi Guðlaugsson frá Lónkoti í
Sléttuhlíð og fleiri að leikriti um Sölva,
sem sýnt var í Skagafirðinum. Frægastur
er líklega Sölvi þó af einu skáldsögu
Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi
„Sólon Islandus”.
Sveinn byggir leikrit sitt einkum á
sögu Davíðs ásamt kvæðum hans og
annarra. Atli Heimir Svinsson hefur
samið sönglög við nokk ur kvæði Daviðs,
sem notuðeru í sýningunni auk annarrar
tónlistar eftir hann. Örn Ingi, myndlist-
armaður á Akurcyri hannaði leikmynd,
Freygerður Magnúsdóttir búninga og
David Walters Iýsingu og myndvörpun.
Theodór Júlíusson leikur Sölva.
Þetta er fjölmenn sýning. í henni eru
leikarar á öllum aldri auk tónlistar-
manna. Mörgum hefur komið áóvart að
leikurinn er ekki myndskreyting á sögu
Sölva heldur gerist hann einnig í
jólaboði á Akureyri í dag. Sveinn tengir
þarna saman nútíð og fortíð á mjög
óvenjulegan hátt. Sýningunni hefur
verið mjög vel tekið og fengið góða
aðsókn og það er von Leikfélags
Akureyrar að Norðlendingar heimsæki
nú leikhúsið á Akureyrieins og þeir voru
svo ötulir við á síðasta ári, einkum á
söngleikinn My Fair Lady.
Þann 20októbers.l. er vika var liðin af
æfingum á „Ég er gull og gersemi” fór
hópur starfsfólks frá Leikfélagi Akur-
eyrar i vettvangskönnun í Skagafjörðinn
á slóðir Sölva Helgasonar.
Var fyrst haldið í Sléttuhlíðina. Þar
tók oddviti Slétthlíðinga, Stefán Gests-
son á Arnarstöðum á móti hópnum og
leiðbeindi þeim um sveitina. Meðal
annars var farið á Fellið og reist varða
þar sem Sölvi Helgason vildi láta reisa
sér 5000 manna höll og að Keldum, þar
sem Sölvi bjó áður en hann missti föður
sinn. Þar var rist torfa þar sem álitið var
að gamli bærinn hefði staðið og tekinn
þar steinn til minja. Þessir helgu munir
eru nú til sýnis t leikhúsinu. Rennt var
augum heim að Skálá þar sem hrepp-
stjórinn hafði oft skotið skjólshúsi yfir
Sölva og að lokum buðu hjónin á
Arnarstöðum öllum hópnum til kaffi-
veislu. Þótti ferðalöngunum mikið tilum
gestrisni þeirra hjóna.
Síðan var haldið að Sauðárkróki. Þar
tók Kristmundur Bjarnason skjalavörð-
ur á móti hópnum og sýndi klippimynd-
ir og handrit eftir Sölva sem varðveitt
eru í Safnahúsinu. Jafnframt fræddi
hann þessa forvitnu gesti um ýmislegt
varðandi Sölva.
Leikhópurinn frá Akureyri vareinkar
þakklátur Skagfirðingum fyrir móttök-
urnar, þegar ekið var heim og höfðu
fengið nýja innsýn í þá frægu sögu-
persónu, sem þau eru að fást við, eftir að
hafa staðið „á ströndinni við ysta haF’.
S.P.
Skagfirðingar
Húnvetningar
í tengslum við sýningar Leikfélags Akureyrar á
leikritinu Ég er gull og gersemi bjóðum við
nú hópum og einstaklingum í hinar vinsælu
leikhúsveislur.
Sérstakt tilboð: Þríréttuð veislumáltíð
fyrir kr. 475:- og að lokinni sýningu bjóðum
við upp á kaffiveitingar áður en haldið er
heimleiðis.
Veitum hópafslátt fyrir 10 eða fleiri.
Leitið upplýsinga í símum 96-21818
eða 96-26818.
Kaupvangsstræti 3, Akureyri.
„Ég er gull
og gersemi”
eftir Svein Einarsson, byggt á
„Sólon (slandus” eftir Davið
Stefánsson.
Leikstjóri: Sveinn Einarsson.
Aðalhlutverk:
Theódór Júlíusson.
SÝNINGAR:
föstudag kl. 20.30
laugardag kl. 20.30
sunnudag kl. 15.00
Miðasale í Turninum við
göngugötuna virka daga kl.
14-18 og laugardaga kl. 10-16.
Sími 96-24073.
Skagfirðingar, Húnvetningar,
missið ekki af einstæöri
leiksýningu!
—............. ..........
Vegna sýninga á leikritinu
„Ég er gull
og gersemi“
bjóðum við upp á kvöldverði
fyrir sýningar frá kl. 18.00
Tileinkað Sólon íslandus verða eingöngu kertaljós á borðum og
munir frá gamalli tíð á veggjum.
Auk þess ljósmyndir úr umræddu leikriti.
Hafa matreiðslumeistarar Sjallans veg og vanda
af matreiðslu kvöldsins.
Matseðill:
Sjávarréttasúpa m/Drangeyjarbragði
98
grillaðir kjötréttir á teini að hætti flakkaranna kr. 640,-
eða
alheimsbuffsteik m/kryddsmjöri. bökuðum kartöflum, gufusoðnu rósenkáli
og ristuðum sveppum kr. 850,-
Opið eftir sýningar til kl. 01. Léttar veitingar.
Borðapantanir í síma 26680 eða 22644milli kl. 17 og 19 alla daga.
LAXMENN SF.
--------------------
^ Fjölbrautaskólinn
| | JJ á Sauðárkróki
Öldunaadeild
Kvöldskóli
Innritun stendur yfir í öldungadeild og náms-
flokka og fer nú hver að verða síðastur að láta
skrá sig á vorönn.
Enn vantar herslumuninn á að hægt séð að
hefja kennslu í nokkrum áföngum og einnig er
hægt að bæta við í aðra.
Sérstakur kynningarfundur fyrir væntanlega
nemendur og þá sem áhuga hafa á að láta skrá
sig, verður haldinn í verknámshúsi Fjölbrauta-
skólans laugardaginn 19. janúar kl. 13.30.
Meðal kennslugreina eru:
íslenska, danska, þýska, enska, franska, saga,
félagsfræði, tölvufræði, myndmennt, sauma-
námskeið, taumálun, Ijósmyndun og framköllun.
Grunnáfangar í rafiðnum og verklegt námskeið í
málmiðnaðargreinum. Og margt fleira. Sérstök
athygli er vakin á byrjunar- og upprifjunar-
áföngum í tungumálum, m.a. verður „Hildur”
lesin í dönsku með nemendum.
SKÓLAMEISTARI
Panasonic
CÆÐI VARANLEG CÆÐI
í mjög umfangsmikilli könnun sem gerö var á
vegum bresku neytendasamtakanna um
bilanatíðni myndsegulbandstækja, kemur í
ljós að PANASONiC BILA LANG MINNST
ALLRA VHS TÆKIA og eru því áreiðanlegustu
tækin á markaðinum að mati bresku
neytendasamtakanna. Breski markaðurinn er
stærsti vídeómarkaðurinn í Evrópu.
verdlækkun.
Til aö mæta áhrifum síöustu gengisfellingar hefur PANASONIC
ákveðið aö gefa okkur kost á einni sendingu af hinu frábæru NV-370
myndsegulbandstækjum á stórlækkuöu verði.
0 Framhlaðiö 43 cm breitt (Passar i hl|ómtæk|askápa)
• Upptokuminm til daglegrar upptöku t d er hægt
aft taka 10—12 fréttatima (ram i timann.
• S|álfspólun til baka
• Fin Editeríng. Klippir saman truílanalaust nýtt og
gamalt efm.
• Tækjð byggt á álgrind.
• Fjölvisir Multi Function Display
verd-flasoft-s.,,
Nýtt verð39.900.“
Panasonic gæði. Varanleg gæði.
@ rafsjá hf
Sæmundargötu 1
Sauðárkróki
Sími 95-5481
ORÐSENDING
til skattgreiðenda á Sauðárkróki
og í Skagafjarðarsýslu
Lögtök eru hafin hjá þeim gjaldendum, sem ekki
hafa gert full skil á þinggjöldum 1984.
Skorað er á alla þá, sem ekki hafa gert full skil
að gera það nú þegarog komast þannig hjá þeim
óþægindum og aukakostnaði, sem fylgir lögtök-
um og uppboði.
Fyrsti gjalddagi fyrirframgreiðslu þinggjalda
1985 er 1. febrúar n.k.
Sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýslu
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki
• 8 hóa l|arstýhrig
• Cfúarts stirðir bemdrilriir mótorar
• Quarts klukka
• 14 daga upptökuminni
• 12 slöðva mmni
• OTR (One touch tlmer recording)
• Rafelndateljan
• Myndleitari .
• Hraðspólun með mynd áfram
• Hraðspólun með mynd afturábak
0 Kyrrmynd
0 Mynd skerpu stilling
0 Mynd mmm