Feykir - 09.01.1985, Side 5
Miðvikudagur 9. janúar 1985
FEYKIR 5
Hvað segja þeir
í upphafi ársins?
Páll Dagbjartsson
skólastjóri
í Varmahlíð:
—Ef við lítum fyrst til þess sem
að kennurum snýr, þá er mér
efst í huga hversu lítið fékkst út
úr þessum verkfallslátum og hve
allt situr við það sama í
kjaramálum kennara. Ég er
eiginlega sannfærður um að það
breytist ekkert fyrr en að kenn-
arar geta boðið upp á einhverjar
nýjungar, t.d. í vinnutilhögun
og skipulagningu. Það sem ég
vildi sjá gerast er að sveitarfélög-
in tækju við grunnskólahaldinu
og sæju þá um ráðningar kenn-
ara og hver kennari gæti þá
mótað sína ráðningarskilmála.
En þetta eru kannski dálítið
róttækar breytingar sem ekki er
hægt að útskýra í stuttu máli. En
ég er sannfærður um að meðan
kennarar eru í BSRB þá situr allt
við það sama og breytist ekkert.
Þessi tími þegar skólahald féll
niður í verkfallinu er að mínu
áliti tími sem einfaldlega hefur
dottið úr kennslu. Það er ekkert
hægt við því að gera. Ég hef ekki
hugsað mér að vera með auka-
kennslu vegna þess að það er
alltaf erfitt að meta hverjir eigi
að fá aukakennslu og hverjir
ekki. Það yrði aldrei neitt
verulegt vit í því. Varðandi 9.
bekk þá er hægara um vik þar
sem próf hafa verið færð fram til
vors og því meira svigrúm.
Skólagangan styttist um mánuð
en það verður bara að taka það
með í reikninginn. Reddingar
fyrir horn yrðu bara kák út í
loftið og tóm vitleysa!
Ég hef áhyggjur af þeirri
framtíð sem blasir við unga
fólkinu sem nú er að vaxa úr
grasi. Við horfum á eftir því
burtu héðan af svæðinu ár eftir
ár, það leitar annað eftir atvinnu.
Mjög aðkallandi er að fara að
athuga þetta eitthvað. Núna
stefnir allt suður og ég hef alltaf
haldið því fram að til að snúa
þeirri þróun við þurfi sveitar-
félögin og byggðarlögin að taka
mun meira af verkefnum í eigin
hendur, fá meira sjálfsforræði
og sjálfsákvörðunarrétt, án i-
hlutunar ríkisvaldsins í hin og
þessi mál.
Hvað varðar nýja árið þá
myndi ég vilja heita á alla íbúa
dreifbýlisins að fara að hugsa
alvarlega um stöðu sína og
dreifbýlisins i heild. Mér hefur
virst þenslan vera svo svakaleg
og fjármagnsstreymið til Reykja-
víkur svo ofboðslegt á meðan
kreppir að öllu hér á lands-
byggðinni. Því er nú verr og
miður. Og fólkið fylgir á eftir
suður. Það þarf ekki að vera
lengi í Reykjavík til að sjá að þar
eru peningarnir í umferð. Ég tel
ákaflega brýnt að menn fari að
hugsa um þetta í alvöru.
Spurningin er hvort hin ýmsu
félög og samtök, ópólitísk og
pólitíísk, ættu ekki að mynda
einhvers konar samstöðu um
leiðir til úrbóta, samstöðu sem
yrði óflokkspólitísk.
Að öðru leyti þá er ég feginn
að lausn á upprekstrarmálum
bænda hér í sveitinni virðist vera
í sjónmáli og það segir sína sögu
að lausnin felst í því að treysta
bændum sjálfum fyrir farsælli
tilhögun beitar á afréttinni og
skiptingu milli sauðfjár og hrossa.
Það ber allt að sama brunni
með það að heimamenn eiga að
stjórna sínum málum sjálfir. Það
fer oftast best á því.
r
Ami Jóhamsson
kaupfélagsstjóri
á Blönduósi:
— Það má náttúrulega fyrst
telja að síðasta ár var ljómandi
gott, sérstaklega svona til sveit-
anna og tíðarfar ágætt.
Kannski er manni efst í huga
að fjármálastefna ríkisstjórnar-
innar virðist vera farin í vaskinn,
a.m.k. í bili. Við horfum fram á
mjög mikla verðbólgu nú um
tíma, en hvort það síðan tekst að
ráða við þessa verðsveiflu mun
tíminn skera úr um. Hins vegar
er ljóst að það er við mikla
erfiðleika að etja víða í sveitum,
rekstrarafkoma í landbúnaði er
ákaflega misjöfn og sums staðar
mjög slæm. Veltuaukning hér
hjá okkur hefur aukist meira en
nemur verðhækkunum á vörum,
þannig að neyslan virðist aukast.
Atvinnuástand hér á staðnum
er nokkuð gott. Það eru að vísu
ýmsar blikur á lofti í því efni,
þay sem fyrirtæki hér á staðnum
eiga við vissa erfiðleika að etja.
En maður vonar að það náist að
ráða framúr því. Til þessa hefur
atvinna verið góð, þó menn séu
alltaf hræddir við síðari hluta
vetrar, iðnaðarmenn og aðrir
slíkir. Það er ekki útlit fyrir að
farið verði útí stórar fram-
kvæmdir hér á Blönduósi næsta
sumar.
Ég hygg að, hvað varðar
fólksfjölda, hafí orðið nokkur
fjölgun hér. Það virðist vera
meira aðstreymi af fólki en
staðurinn getur tekið við vegna
húsnæðisskorts, þrátt fyrir nokk-
uð miklar framkvæmdir við
íbúðarbyggingar.
Rekstrarafkoma Kaupfélags-
ins hefur gengið skár en maður
þorði að vona. Hins vegar er
staðan slæm, það er ósköp
einfalt mál. En ég er kannski
ánægðari núna en ég þorði að
vera síðari hluta ársins 1984.
Hagur bænda er ákaflega mis-
jafn og mjög slæmur hjá nokkr-
um hóp manna. Það er eitt af
aðalvandamálum í landbúnað-
inum í dag, þessi hávaxtastefna.
Landbúnaðurinn þolir hana ekki
og reyndar mörg atvinnufyrir-
tæki úti á landi ekki heldur,
vegna þess hversu hæg umsetn-
ingin er. Það er alveg ljóst að það
hljóta einhverjir bændur að
hætta búskap á þessu nýja ári.
Það fóru 5-6 jarðir í eyði hér á
síðasta ári og ég á von á að
svipað verði í ár. Ég sé ekki
hvernig þeir sem eru í verulegum
vandræðum eiga að geta bjargað
sér, nema þá að ríkistjórnin geri
það sama og hún er að gera í
sjávarútveginum, að kaupa tog-
ara fyrir þrjá fjórðu af því sem á
þeim hvílir og gefa fyrri eigend-
um kost á að kaupa þá aftur á
þessu verði, kannski þá með
betri lánskjörum. Þetta myndi
gjörbreyta aðstöðu þeirra sem
mest eiga í baksinu.
— Hvaða atburður er þér
minnisstæðastur frá liðnu ári?
— Þar rekur þú mig alveg á
gat. Það er í sjálfu sér enginn
atburður mér öðrum minni-
stæðari. Arið var ánægjulegt
fyrir mig þó það væri að mörgu
leyti erfitt, og samstarf mitt við
starfsfólk og viðskiptamenn
Kaupfélagsins gott og
ánægjulegt.
/ tilefni áramóta var rætt við
nokkra menn á Norðurlandi
vestra. Vegna plássleysis verður
hluti viðtalanna að bíða til næsta
blaðs.
Búta- og
lýmingarsala
á metravöru
UTSALA
Útsala á hljómplötum
og kassettum hefst
fimmtudaginn 10. janúar.
afsláttur!
Kjarakaup:
óðraðir kuldaskór (gallon)
Svali V* ........:.......7,90
Gosi 'A..................8,00
Floridana 'A............20,00
Trópí 'A................21,05
River hrísgrjón 2 Ibs ... .44,95
River hrísgrjón 5 Ibs ... .68,00
Snapp kornflögur 500 g.60,65
Snapp kornflögur 1 kg 115,35
Iva þvottaefni 5 kg.... 230,35
Vex þvottaefni 5 kg ... 228,20
Þrif þvottalögur 4150 g 150,70
Þrif þvottalögur 1600 g .68,75
Plus mýkingarefni 3.8 I 105,35
Dún mýkingarefni 5 I . 115,95
KJ grænar baunir 'k ... .22,35
KJ rauðkál heild........60,50
fkagfírðingabúð
Þú þarft ekki annað!