Feykir - 06.02.1985, Qupperneq 2
2 FEYKIR 3/1985
umræður
Sauðárkróksbær kaupir víðtæka
ábyrgðartryggingu af Brunabótafélagi
Um hækkun hitaveitugjalda á Sauðárkróki
- álit K-listans
Við á K-listanum höfnum ó-
sanngjörnum álögum á íbúa
bæjarins. Af þeim sökum var
gerð svofelld bókun við af-
greiðslu á liækkun hitaveitu-
gjalda á bæjarstjórnarfundi 22.
janúar s.l.
„Eg fellst ekki á hækkun
hitaveitugjalda um 15% um-
fram byggingavísitölu sem þýðir
26,5% hækkun gjalda frá og
með 1. febrúar n.k.
Astæður fyrir þessu áliti eru
margar, þær helstu skulu
tilgreindar. Bæjarsjóður skuldar
Hitaveitunni a.m.k. l,7m.kr. án
allra fjármagnsgjalda. Sam-
kvæmt yfirliti um vanskilastofn
að upphæð 584.800:- fyrir árin
1984 og fyrr, eru nú
dráttarvextir orðnir 2.095.856:-
vanskilin nema því 2.680.656:-
Til þessara vanskila hefði ekki
þurft að koma, ef bæjarsjóður
hefði staðið í skilum við
Hitaveituna. Það er því augljóst
að, ef bæjarsjóður gerði upp
skuldir sínar við Hitaveituna
myndi afkoma veitunnar verða
mjög góð miðað við þær áætlanir
sem fyrir liggja. Þá þyrfti ekki að
koma til þeirrar 15% auka-
hækkunar umfram almenna
verðlagsþróun sem samþykkt
veitustjórnar gerir ráð fyrir.
Slaklegri fjármálastjóm Hita-
veitunnar er með öllu óeðiilegt
að velta yfir á neytendur, eins og
rík tilhneiging hefur verið til
síðustu tvö árin. Engin trygging
er fyrir því að vanskilastefnu
núverandi meirihluta verði
aflétt á þessu ári. Fremur ber að
álykta sem svo að menn standi i
sömu sporum í lok þessa árs og
núverandi valdhafar gefi sér
sömu forsendur og nú um
verðlagningu á Hitaveitugjöld-
um fyrir árið 1986.
Að nota sér Hitaveituna að
hluta til að afla almennra skatt
peninga til sveitarfélagsins er
með öllu óeðlilegt. Notendur
Hitaveitunnar verður að verja
fyrir ósanngjarnri skattheimtu.
Skattbyrðarnar eiga að
leggjast á íbúana með öðrum
hætti.”
Forsendur
I framlögðum gögnum um
tekju- og greiðsluáætlun Hita-
veitu Sauðárkróks fyrir árið
1985 kemur fram að heildarút-
gjöld eru áætluð 17.306.000 þús.
(sjá meðf. töflu). Tekjur eru
hinsvegar áætlaðar samkvæmt
hækkunartillögu no. 4 og gefa
niðurstöðuna 17.805.868:-rekstr-
arafgangur því 499.868:-
Okkar tillögur
K-Iistinn gat hinsvegar fallist á
tillögu no. 1 sem er hækkun
samkvæmt spá um bygginga-
vísitölu, sem gefur af sér
15.714.689:- í tekjur. Mismunur
tekna og gjalda því 1.591.311:-
Þennan mismun átti að okkar
SAMEIGINLEGUR KOSTNAOUR.
REIKNUÐ LAUN V. FRftMKVltMOA -150000
DATTTAKA ÓATNSV. I STJ. UE. -250000
LAUN ÖEITU- OG ÖERKSTJORA. 1150000
EFTIRLAUN. 80000
OhMUR LAUNi <INNHEIMTA)i 15000
FítOISPENINGAR. 25000
LAUNATENGD GJULD. 90000
PRENTUN,PAPPIR,RITFUNG. 30000
HREINLÆTI SVUR'JR OG HLIFOARF 5000
SMAÖERKFÆRI OG AHULD. 10000
SIMI OG POSTUR. 18000
AUGLYSINGAR. 10000
BIFREIOASTYRKIR. 5000
FEROAKOSTNAOUR. 50000
ENDURSKOOUN. 80000
SKYR8LLWELAÞ J0NU8TA. 20000
TRYGGINGAR. 80000
ÞATTTAKA I S**1EIGINL. KOSTN 420000
DATTAKA I REKSTRI AHALDAH. 320000
At'#>4AR KOSTNAOUR. 80000
SAMTALSl 2088000
DÆLUSTUÐL*AR OG ÖIRKJANASÖ. 2200000
DREIFIKERFI. 500000
FJARMAGNSKOSTN. 1996000
REKSTUR SrFREIOA. 330000
SAMTALS. 5026000
GJULD SAMTALS 7114000
VTBORGANIRi
OGREIDDIR VEXTIRi . 2150000
GJALDFALLNAR AFÐORGANIR. 585000
BIRGOAAUKNING. 0
BYGGING AHALDAHU8S. 72000
NY AHOLD OG TfCKI . 100000
BIFREIOAKAUP-ENDURNYUN i 350000
TIL BÆJAR6JOÐ8i 0
GAMLI BÆRINN. 2530000
HLIOARWJERFI. 150000
HLIOARWERFI 8T0FNLUGN. 250000
IÐNAOAR9JC01. 80000
IÐNAOARS»Ji€OI 8T0FNLUGN. 50000
TUNAHUERFI. 150000
TUNAHVERFI STOFNLÖGNi 0
EYRIN. 100000
NYR MIOBÆR OG SKOLAtWW. 100000
FRAGANGUR DtELUST. OG VIRKSU 1100000
AFÐORGANIR LANA. 2425000
8AMTAL8I
10192000
GJDLD OG UTB. SAMTALSi 17306000
mati að greiða með þeim
skuldum er Bæjarsjóður hefur
stofnað til við Hitaveituna,
aðallegaáárunum 1982 og 1983.
Að réttu lagi hefði Bæjarsjóð-
ur átt að greiða allan
fjármagnskostnað vegna van-
skila skulda Hitaveitunnar sem
augljóslega hafa orðið til vegna
þeirrar áráttu að taka peninga
Hitaveitunnar traustataki til
almennra nota í Bæjarsjóði.
Væru þessar skuldir uppreikn-
aðar á föstu verðlagi með
almennum lánakjörum yrði
þessi skuld Bæjarsjóðs ekki um
1,7 m.kr., hún yrði a.m.k. milli 3
og 4 m.kr.
Samtrygging???
Það vekur óneitanlega mikla
athygli að Framsóknarflokkur-
inn og Alþýðubandalagið með
fulltingi Sjálfstæðisffokksins skuli
treysta sér til af litlum ástæðum
að hækka hitaveitugjöld um
15% umfram verðtryggingu,
eins og kjörum fólks er háttað
um þessar mundir.
Varnir okkar
Vel rekin og ódýr hitaveita er
eitt andsvar okkar við
fólksflótta til Faxaflóasvæðis-
ins. Hitaveitan er einn af
hyrningasteinum þessaðbærinn
okkar vaxi og dafni svo sem
verið hefur að undanförnu. Víða
horfir illa hér á Norðurlandi
vegna fólksfækkunar bæði í
dreifbýli og þéttbýli. Höldum
vöku okkar og snúum bökum
saman og gerum fólki fýsilegt að
búa betra lífi á landsbyggðinni.
Sauðárkrókur hefur alla
möguleika á að vera eitt helsta
vígi öflugrar landsbyggðar-
stefnu. Það vígi stendur enn, en
rjúfum ekki óþarfa skörð í
varnir okkar.
Hörður Ingimarsson
Nýlega var gengið frá samningi
milli bæjarstjórnar Sauðárkróks
og Brunabótafélags íslands um
alhliða vátryggingavernd félags-
ins fyrir kaupstaðinn. Er hér um
að ræða svokallaðan „sveita-
stjórnarpakka BÍ”.
Auk hefðbundinna trygginga
á fasteignum, lausafé og
starfsfólki, er í pakkanum
víðtæk ábyrgðartrygging gagn-
vart atvikum, sem bærinn kann
að vera skaðabótaskyldur
gagnvart þriðja aðila. Þá felur
pakkinn í sér það nýmæli, að öll
skólabörn í bænum eru
slysatryggð á skólatíma og á leið
úr og í skóla. Nær sú
tryggingavernd einnig til þeirrar
starfsemi, sem er á vegum
bæjarins á sumrin fyrir börn á
skólaskyldualdri. Með samningi
þessum er Sauðárkrókur kom-
inn í hóp þeirra fjölmörgu
sveitarfélaga, sem gert hafa
slíkan vátryggingasamning við
Brunabótafélagið.
A fundi, sem haldinn var 10.
janúar með bæjarstjórn Sauðár-
króks gerði Ingi R. Helgason,
forstjóri BI, grein fyrir þeirri
endurskoðun, sem gerð var á
brunabótamati fasteigna á
Sauðárkróki á s.l. hausti. Voru
þá endurskoðaðar vátrygginga-
fjárhæðir allra fasteigna í
bænum og leiddi það til
verulegra leiðréttinga á mörgum
húseignum. Við þetta lækkaði
heildarmat til brunabóta um
18.6%. Má segja að með þeirri
endurskoðun og hinum nýja
samningi séu vátryggingarmál
þau, sem snúa að bæjarstjórn, í
góðu horfi. (Fréttatilkynning)
r
Afengi selt fyrir tæpar 26
milljónir króna árið 1984
Mikill samdráttur hefur orðið í áfengissölu á Siglufirði eftir að
ÁTVR opnaði vínbúð á Sauðárkróki 19. október 1983. Það má m.a.
lesa út úr nýbirtum tölum um áfengissölu 1. október til 31. desember
1983 og 1984.
Meðalsöluauknning yfir allt landið er 31.64%, var um 310.247
þús. kr. fyrra tímabilið en það seinna um 408.391 þús. kr. Séu hins
vegar útsölur á landsbyggðinni einungis teknar, er söluaukningin
þar 61.4%. Skýringin á þessum mun er, að í raun er um samdrátt að
ræða í Reykjavík vegna þess að útsölum fjölgaði, t.d. var ný vínbúð
opnuð á Selfossi. (Athugið, ekki er tekið tillit til verðbólgu í tölunum).
Söluaukningin á Sauðárkróki milli tímabilanna 1983 og 1984 er
71.86%, en á Siglufirði aðeins 25.44%. Heildarsala áfengis frá
ÁTVR á Sauðárkróki árið 1984 nam tæpum 26 milljónum króna,
aðeins ÁTVR á Siglufirði seldi minna, eða fyrir tæpar 13 milljónir.
Islendingar keyptu áfengi fyrir tæpan einn og hálfan milljarð
króna árið 1984, eða kr. 1.408.541.116 kr. Til samanburðar má geta
þess að heildarframlög til heilbrigðismála skv. fjárlögum íslenska
ríkisins er árið 1985 kr. 2.267.839:-
Kona skipuð hreppstjóri
í fyrsta sinn í Skagafirði
Kona hefur í fyrsta sinn verið skipuð
hreppstjóri í Skagafirði. Það er Sigrún
Aadnegaard húsfreyja á Bergstöðum í Skarðs-
hreppi sem var nýlega skipuð í það embætti af
Halldóri Þ. Jónssyni sýslumanni Skagfirð-
inga. Sigrún tekur við hreppstjórastarfi af
Ólafi Lárussyni á Skarði, en hann hefurgengt
þessu embætti í yfir hálfa öld.
Feykir sneri sér til Sigrúnar og spurði hvað
bæri til að kona væri skipuð til þessa starfs.
— Þvi get ég nú varla svarað. Kannski það,
að karlar hafa áttað sig á því að konur eru líka
menn!
— Svo það er ekki vegna skorts á
karlmönnum að þú ert skipuð í þetta embætti?
— Nei, síður en svo.
— Hvað fylgir því að vera hreppstjóri?
— Hreppstjóri er umboðsmaður sýslu-
manns í viðkomandi hreppi. Hann annast t.d.
uppboð ef einhver eru og þar fram eftir
götunum. Mörg þeirra starfa sem hreppstjór-
ar önnuðust áður hafa nú færst yfir á aðra, s.s.
innheimta opinberra gjalda. Hreppstjórinn
fer einnig með nokkurs konar lögregluvald þó
öll almenn löggæsla og meðferð mála sé í
höndum lögreglu og sýslumanns.
— Hvernig er staðið að tilnefningu hrepp-
stjóra?
— Sýslunefnd tilnefnir þrjá úr viðkomandi
hreppi og síðan skipar sýslumaður einn þeirra
í embættið.
Feykir óskar Sigrúnu velfarnaðar í embætti.
Nýr byggingafulltmi
Jón Örn Berndsen bygginga-
verkfræðingur hefur verið
ráðinn byggingafulltrúi Sauðár-
króksbæjar frá 1. janúar s.l.
Jón lauk byggingatækni-
fræðiprófi frá Tækniskóla
íslands árið 1978 og starfaði hjá
verkfræðistofunni Fjarhitun í
Reykjavík árin 1978-1981.
Hann stundaði síðan framhalds-
nám í byggingaverkfræði við
háskólann í Lundi í Svíþjóð og
lauk þaðan prófi vorið 1984.
Jón Örn hefur starfað á
tæknideild Sauðárkróksbæjar
þar til nú að hann tekur við starfi
byggingafulltrúa. Hann er
kvæntur Elínu Sæmundsdóttur.
Feykir óskar Jóni Erni
velfarnaðar í nýju starfi.
Afmælishátíð Leikfélags Blönduóss
Leikfélag Blönduóss hélt upp
á 40 ára afmæli sitt s.I. haust.
Var félögum boðið upp á
súkkulaði og tertur og undir
borðum voru fluttar gamlar
upptökur af leikritum sem
félagið hefur sýnt. Þar mátti
heyra raddir ýmissa félaga, sem
nú eru löngu hættir að láta í sér
heyra á leiksviði og sumir
horfnir yfir móðuna miklu.
Þá voru í afmælishófinu
sungin lög úr leikritum og rakin
var saga félagsins og sitthvað
fleira var þar til skemmtunar.
Alls sóttu um 120 manns
afmælishófið, sem þótti takast
með ágætum.
Öháð fréttablað
fyrir Norðurland vestra
Feykir
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Guðbrandur Magnússon ■ ÚTGEFANDI: Feykir
hf. ■ SKRIFSTOFA: Aöalgötu 2, Sauöárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4, 550 Sauöárkrókur
■ SÍMI: 95:5757 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Hilmir Jóhannesson, Sr. Hjálmar Jónsson, Jón
Ásbergsson, Jón F. Hjartarson, Siguröur Ágústsson ■ BLAÐAMENN: Hávar Sigurjónsson og
Magnús Ólafsson ■ ASKRIFTARVERÐ: 28 krónur hvert tölublaö; í lausasölu 30 kr.
■ GRUNNVERÐ AUGLÝSINGA: 120 krónur hver dálksentimetri ■ ÚTGÁFUTfDNI: Annan
hvern miövikudag ■ PRENTUN: Dagsprent hf., Akureyri ■ SETNING OG UMBROT:
Guðbrandur Magnússon, Sauöárkróki.