Vestfirska fréttablaðið - 05.07.1995, Síða 1
| FRÉTTABLAÐH)
PIZZA
456 3367
I SJALLANUM ISAFIRÐI
Miðvikudagur 5. júlí 1995 • 26. tbl. 21. árg.
0 456 4011 • FAX 456 5225
Verð kr. 170 m/vsk.
1/estur Barðastrandarsýsla:
Enn má sjá skafla niður í fjöru
Þó nú sé kominn júlí má enn
sjá snjóskafla í sjó fram í
sumum fjörðum við norðan-
verðan Breiðafjörð.
Blaðamaður átti leið um
Kjálkafjörð um síðustu helgi
þar sem 25 metra hái snjó-
skaflinn var fyrr í vor. Þó snjór
sé mikið til horfinn úr firð-
inum, þá er enn mikið eftir af
skaflinum góða eins og sjá má
af myndinni hér til hliðar.
Ætla má að síðastliðinn
föstudag hafi hann verið allt að
15 metrar að hæð þar sem hæst
bar ofanvert við veginn.
Það er óneitanlega svolítið
sérkennileg sjón að sjá þennan
mikla snjóskafl í hlíðinni sem
annars er loksins að taka á sig
liti sumarsins íjúlíbyrjun.
- hk.
Sjallinn
tekur við
Pizza 67
á ísafirði
Sjallinn á (safirði [Dúi og Gróa] hefur tekið við umboði og
rekstri Pizza 67 á ísafirði og verður reksturinn algerlega ó-
viðkomandi fyrri umboðsaðilum Pizza 67 hér vestra. Stefnt er
að því að opna Pizza 67 að nýju i Sjallanum síðdegis á
föstudaginn, 7. júlí. „Pizzurnar hjá okkur verða eins og pizzur
eiga að vera og fólk á að geta prófað þær um helgina“, sagði
Dúi í samtali við blaðið í gærkvöldi.
Á ísafjarðarflugvelli var
opið hús sl. sunnudag og hald-
ið upp á 25 ára afmæli Flugfé-
lagsins Emis hf. Þar var boðið
upp á kaffi og afmælistertur og
fínirí og allan daginn var
straumur af gestum og gang-
andi (ekki fljúgandi; það var
stíf sunnanátt svo að Flugleiðir
gátu ekki lent) að heilsa upp á
hjónin Hörð og Jónínu og
starfsmenn þeirra.
Ekki ætti að þurfa að hafa
hér mörg orð um Flugfélagið
Erni á Vestfjörðum og ómet-
anlegt starf Harðar Guð-
mundssonar flugmanns í þágu
Vestfirðinga, allt frá því að
hann byrjaði að fijúga hér
vestra fyrir liðlega aldarfjórð-
ungi.
Þó skal þess getið, að Flug-
félagið Ernir flýgur að jafnaði
um 200 sjúkraflug á ári, ýmist
frá Vestfjörðum til Reykjavík-
ur eða með sjúklinga á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á ísafirði. Það
jafngildir einu flugi hvern
virkan dag ársins. Því fer þó
vissulega fjarri að spurt sé að
degi eða nótt, hvort virkur
dagur sé eða helgur, þegar
bregða þarf við fyrirvaralaust
í hvaða veðri sem er, enda er
félagið með opna vakt allan
sólarhringinn, allt árið um
kring. Vegna hinna erfiðu
samgangna á Vestfjörðum
gegnir Flugfélagið Ernir lykil-
hlutverki í öryggismálum og
samgöngumálum Vestfirðinga.
Utsýnisflug og flug með ferða-
fólk um Vestfirði er sívaxandi
þáttur í starfi Flugfélagsins
Ernis, en vélar þess taka frá 6
og upp í 19 farþega.
Vestfirska fréttablaðið tekur
undir með öllum þeim mörgu
sem óska Flugfélaginu Emi,
eigendum þess og starfsfólki til
hamingju með afmælið og
biðja því blessunar og farsæld-
ar um ókomin ár.
Hjónin Jónina og Höröur ásamt
flugmönnum sínum inni á
ísafjarðarflugvelli á sunnudaginn,
þegar haldið var upp á afmælið.
Talið frá vinstri: Gunnar Örn
Hauksson, Egill Ibsen Óskarsson,
Jónína Guðmundsdóttir, Hörður
Guðmundsson, Bjartmar
Arnarson og Jóhannes
Magnússon. Eins og sjá má á
skiltinu fyrir ofan er
ísafjarðarflugvöllur nálega einum
áratug eldri en Flugfélagið Ernir.
PÓLLIHN
HF, S 456 3092 Sala & þjónusta
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki
©
PÓLLINN HF
símar og fylgihlutir
Höfum umboð m.a. fyrir SIEMENS • PHILIPS
ERICSSON • MOBIRA • SONY • NOKIA
Kynnið ykkur málið!
Daglegt áætlunarflug
um Vestfirði. Leiguflug
innanlands og utan,
fimm til nítján farþega
vélar.
FLUG'rÉLAGIO SUMARÁÆTLUN:
i? Brottför frá ísafirði
» kl. 10 alla virka daaa.
ISAFIROI Sjúkra- og
Sírni 94-4200 neyðarflugsvakt
^— allan sólarhringinn
ERNIR