Vestfirska fréttablaðið - 05.07.1995, Qupperneq 2
VESTFIRSKA
2
Miðvikudagur 5. júlí 1995
--- ------------- \ FRÉTTABLAÐH)
Hrannargötu 2
ísafirði
E 456 3072
Nú fer GSM
farsímakerfið
að ná til
ísafjarðar.
Þá er GSM
farsími
frá
PIONEER
góður
kostur!
PIONEER
PSD 710
kr. 71.900,-
staðgreitt.
PIONEER
PCD 700
kr. 59.900,-
staðgreítt.
GSM
W
I
HLJÓMBORG
Ein stelpa. Tveir strá-
kar. Þrír möguleikar.
Þegar Alex (Boyle) skráöi
sig á heimavist skólans
var kyn hennar skráð
rangt inn í tölvuna sem
geröi það að verkum að
henni var úthlutað her-
bergi í þeirri álmu sem
strákarnir áttu einir að
vera.
TOPP TÍU
1. Pulp Fiction
2. The jungle book
3. Trapped in Paradise
4. Threesome
5. Airheads
6. SFW, So fucking what
7. Blow away
8.1 love trouble
9. Næturvörðurinn
10. The Specialist
Ættarmól Gromsara í Sælingsdal:
Fjölmennasta ættarmót til þessa
- segir Ingólfur Haraldsson, hótelstjóri Edduhótelsins á Laugum í Dalasýslu
Gromsarar teljast nú um 900 manns, en þarna í brekkunni fyrir ofan Laugaskóla má sjá rúmlega fjögur hundruð sem komnir
voru á þetta fyrsta ættarmót Gromsara, en annað mun vera í bígerð að fimm árum liðnum í Bolungarvík.
Afkomendur Hálfdáns Örn-
ólfssonar, fyrrum hreppsstjóra
í Hólshreppi og útvegsbónda
með meiru, og konu hans Guð-
rúnar Níelsdóttur, héldu sitt
fyrsta ættarmót um síðustu
helgi. Var mótið haldið í Sæl-
ingsdal í Dalasýslu, en þar er
boðið upp á ágæta aðstöðu
í Laugaskóla. Afkomendur
þeirra hjóna munu oftast hafa
gengið undir nafninu Groms-
arar, sem fest mun hafa við
Hálfdán og allt hans fólk af litlu
tilefni.
Ein sagan segir að hann hafi
boðið skipsmönnum sínum
heim í groms eftir erfiðan dag
á sjónum, en með gromsi mun
hann að sjálfsögðu hafa átt við
kaffisopa. Ekki þurfti meira til
í þá daga til að finna mönnum
viðurnefni og hafa afkomendur
Hálfdáns æ síðan verið kallaðir
Gromsarar. Trúlega eru til fleiri
skýringar á tilurð þessarar
nafngiftar, en þessi er sjálfsagt
eins góð og hver önnur.
Yfir 400 manns komu á þetta
fyrsta ættarmót Gromsara, en
það mun vera langstærsti hópur
sem haldið hefur ættarmót í
Sælingsdal til þessa.
Til að forvitnast rneira um
ættarmótshald og hótelrekst-
urinn í Laugaskóla höfðum við
samband við Ingólf Haraldsson
hótelstjóra Edduhótelsins sem
þar er rekið á sumrin, en hann
rak fyrir einum tveim árum
Edduhótel í Reykjanesi við
Isafjarðardjúp.
Ingólfur sagði að í Sælings-
dal væri æitarmótshald nánast
um hverja helgi yfir sumarið.
Sagði hann að það væri t.d.
aðeins ein helgi í júlí sem yrði
þar undanskilin. Ingólfur sagði
að í sumar væri reyndar óvenju
mikið um ættarmótshald hjá
þeim. Vildi hann meina að
helsta skýringin á því hversu
vinsæll staðurinn væri til slíks
mótshalds væri góð aðstaða og
það hversu staðurinn væri vel
í sveit settur. Sælingsdalur væri
t.d. mjög miðsvæðis fyrir fólk
sem ættir ætti að rekja til Vest-
fjarða.
Sem dæmi um aðstöðu í
Laugaskóla má nefna að þar
tekin í notkun ný útisundlaug í
ágúst í fyrra og eru við hana
tveir heitir pottar, og er notaður
jarðhiti til að hita laugina.
Þá er gott íþróttahús við
skólann sem rúmað getur fjöl-
mennar veislur. Skólinn er
heimavistarskóli og að sögn
Ingólfs geta þau tekið um 100
manns í herbergi auk þess sem
hægt er að taka um 50 til við-
bótar í svefnpokaplássi í
kennslustofum líkt og gert var
um síðustu helgi. Þá er við
skólann stórt og gott tjaldstæði
með ágætri aðstöðu.
Fyrir utan ættarmót er margt
um manninn flesta daga vik-
unnar í Sælingsdal. Sagði Ing-
ólfur að íslendingar væru svo-
lítið að taka við sér núna til
ferðalaga innanlands, en ann-
ars væru þeir með tvo til fjóra
hópa útlendinga í hverri viku.
Sagði hann að fólki sem ferð-
aðist til og frá Vestfjörðum
þætti þægilegt að nota Lauga-
skóla sem áningarstað á báðum
leiðum. Sennilega væri þó öllu
meira um að fólk staldraði
þarna við þegar það kæmi úr
ferð unt Vestfirðina. Þarna væri
bæði um einstaklinga, fjöl-
skyldur og stærri hópa að
ræða.
Rúmlega tíu stöður eru við
Edduhótelið í Sælingsdal yfir
sumarið. VinsæidirLaugaskóla
í Sælingsdal til ættarmótshalds
hafa mjög spurst út. Sagði Ing-
ólfur sem dæmi að í fyrra hafi
verið búið að panta pláss fyrir
þrjú ættarmót í sumar strax um
haustið áður en Edduhótelið
lokaði. Sagðist hann reyndar
geta verið með miklu fleiri
ættarmót, það vantaði bara
fleiri helgar á dagatalið yfir
sumarið. Ekki verður næsta
helgi ættarmótslaus í Sælings-
dal frekar en aðrar helgar sum-
arsins, því Ingólfur og starfs-
fólk hans eiga von á 300 manna
hópi að þessu sinni.
-hk.
Þarna má sjá hluta ættarmótsgesta á hátíð Gromsara að snæðingi í íþróttasal Lauga-
skóla.
Að sjálfsögðu var sungið hástöfum við þetta tækifæri...
...og spili og söng haldið áfram úti á tjaldstæði fram undir morgun.
GAMANMYND