Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 05.07.1995, Síða 7

Vestfirska fréttablaðið - 05.07.1995, Síða 7
VESTFIRSKA —| FH^TTABLAPm |-- ---- Leiðsögn um land allt: íslenska vegahandbókin í nýjum búningi - frá hendi Örlygs Hálfdánarsonar fslenska bókaútgáfan hf. (áður Bókaklúbbur Arnar og Örlygs) hefur sent á markað nýja og gjörbreytta útgáfu Vegahandbókarinnar, sem nú nefnist íslenska vegahandbókin. Hún er liðlega 500 blaðsíður í mun stærra broti en fyrri útgáfur og öll litprentuð. Ritstjórar eru þeir Örlygur Hálfdánarson og ívar Gissurarson. Bókinni fylgja úr hlaði þeir Halldór Blöndal sam- gönguráðherra, Magnús Oddsson ferðamálastjóri og Oli H. Þórðarson framkvæmdastjóri Umferðarráðs, en í tilefni útgáfunnar efna Umferðarráð og íslenska bókaútgáfan til hugmyndasamkeppni um umferðar- öryggismál. í formála segir Örlygur Hálfdánarson ritstjóri m.a.: „Með þessari útgáfu tekur fslenska vegahandbókin miklum stakkaskiptum, bæði að útliti og innra skipu- lagi. Breytingarnar miðast allar við það að gera bókina sem auðveldasta í notkun. Hún er nú prýdd fjölda Ijósmynda, nýrra og gamalla, sem ætlaðar eru til þess að laða fólk að athyglisverðum náttúrufyrirbærum og sögulegum minjum í byggðum og óbyggðum. Hinn merki fræðimaður og skólameistari, Steindór Stein- dórsson frá Hlöðum, samdi á sínum tíma hinn kjarn- mikla texta bókarinnar. Sá texti er enn meginuppi- staðan, þótt ýmsu hafi orðið að breyta í tímans rás. Sá sem nýtur þessarar leiðsagnar Steindórs um landið á ekki völ á fróðari ferðafélaga." Eins og að framan segir er hér um gjörbreytta bók að ræða. Öll kort hafa verið endurskoðuð og unnin í tölvu, sem gerir þau skýrari aflestrar. Tekið hefurverið upp tilvísunarkerfi milli vegnúmera í bókinni, sem gerir mönnum kleift að finna samstundis þann veg sem þeir vilja fara. Aftast í bókinni er þess utan ítarleg staða- nafnaskrá, sem einnig auðveldar notkun hennar. Gatnakort eru af öllum helstu þéttbýlisstöðum lands- ins, þ.á m. öllu höfuðborgarsvæðinu. Á vega- og bæjakortunum er að finna fjölda merkja, sem tilgreina hvers konar þjónustu er að fá á hverjum stað. Á hverri blaðsíðu er að finna útvarpsrásir Ríkisútvarpsins og Bylgjunnar fyrir viðkomandi svæði. Við bókina er fest spjald þar sem tilgreindir eru fjölmargir aðilar víða um land sem veita eigendum bókarinnar umtalsverðan afslátt af viðskiptum. Óhætt er að segja að íslenska vegahandbókin hin nýja sé öll hin glæsilegasta og vandaðasta, eins og tíðkast hefur um bækur frá hendi Örlygs Hálfdánar- sonar. Til sölu Konica U-BIX115 Z. Vél sem tekur A4 og A3 og minnkar um 50% og stækkar um 200%. ÍSPREISTHF. Fjarðarstræti 16 • ísafirði Sími 456 3223 • Fax 456 5225 Miðvikudagur 5. júlí 1995 7 Brúðkaup við Blámýrafljót Óvenjulegt brúðkaup var haldið inni í Laugardal við Isa- fjarðardjúp sl. laugardag. Bæði athöfnin og brúðkaupsveislan fóru fram undir berum himni, vígslan sjálf á bökkum Laugar- dalsár, rétt við veiðistað í ánni sem nefnist Blámýrafljót, en veislan uppi við Blámýrar. Prestur var sr. Magnús Er- lingsson á Isafirði og gaf hann saman brúðhjónin Ingibjörgu Einarsdóttur og Harald Júlíus- son, sem búsett eru á ísafirði. Þau Ingibjörg og Haraldur hafa átt margar góðar stundir í Laugardalnum á sumrin og Blámýrafljót er uppáhalds veiðistaðurinn þeirra. Athöfn með þessu sniði hef- ur ekki verið haldin þarna um slóðir áður, svo elstu menn viti til. Ekki er gefið upp, hvert brúðkaupsferðinni er heitið. Séra Magnús Erlingsson fremur embættisverkiö. Brúðkaupsveislan var haldin úti í guösgrænni náttúrunni, enda viðraöi heldur betur til þess. Þarna má meðal annarra þekkja þá Guðmund Guðmundsson útgerðarmann og Skúla Þ. Skúlason. Svaramenn og merkisberar voru þeir Helgi Steinarr og Ulfar Önundarson. Hér ganga þeir á undan brúðhjónunum til athafnarinnar. Katrín Kjartansdóttir leikur á þverflautu en Þórarinn Snæfeld aðstoðar. Þau eru frændsystkin Haraldar Júlússonar. Brúðarkoss við Blámýrafljót. Svaramennirnir halda uppi rauðum borða sem á stendur NÝGIFT, en hjá brúðhjónunum standa börnin þeirra, þau Ármann og Júlíana. SÍMI 456 4011 FAX 456 5225 VESTFIRSKA I FRÉTTABLAÐIB | Tilboð órsins Einhleypur maður á besta aldri óskar eftir að hitta konu sem á trillu með krókaleyfi, með nánari kynni af trillunni í huga. Lysthafendur leggi inn svar með mynd af trillunni á skrifstofu Vestfirska, merkt „Trilla“.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.