Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 05.07.1995, Side 8

Vestfirska fréttablaðið - 05.07.1995, Side 8
VESTFIRSKA 8 Vestfjarðamótið í sundi: Ungmennafélag Tálknafjarðar sigraði - en Vestri á ísafirði kom skammt á eftir Vestfjarðamótið í sundi var haldið á Tálknafirði um síðustu helgi. Mótið var mjög fjölmennt, keppendur voru alls 103, frá Bolungarvík, ísafirði, Flateyri og Tálknafirði. Mótið fór í alla staði vel fram í blíðskaparveðri báða dagana. Ungmennafélag Tálknafjarðar, sem keppti undir merkjum Héraðssambandsins Hrafna-Flóka, sigraði í stigakeppninni. Úrslit urðu þessi í keppni einstakra byggðarlaga: 1. Héraðssamb. Hrafna-Flóki (UMFT) 29.524 stig 2. Vestri, ísafirði 28.066 stig 3. UMF Bolungarvíkur 7.232 stig 4. Grettir, Flateyri 3.423 stig Eftirtaldir hlutu afreksbikara einstaklinga: Karlar: Jón Smári Jónsson, Vestra Piltar: Bjarni Snæbjörnsson, HHF Stúlkur: Aðalheiður Gestsdóttir, Vestra Drengir: Atli Sigurðsson, Gretti Telpur: Fríða Hr. Kristinsdóttir, HHF Sveinar: Haukur Sigurðarson, HHF Meyjar: Sandra Guðmundsdóttir, HHF Hnokkar: Guðmundur Bj. Þórsson, HHF Hnátur: Tinna Hermannsdóttir, Vestra Sæunnarbikarinn er veittur fyrir 400 m skriðsund kvenna. Hann hlaut Hildur Sigurðardóttir, Vestra. Engin Vestfjarðamet voru skráð, þar sem gildandi met eru fyrir 18 m laug en sundlaugin á Tálknafirði er 25 m. Á mótinu voru sett 13 ný héraðsmet HHF. Bókin um Jón Sigurðsson Dregið úr rétt- um lausnum Hreppstjóri Þingeyrarhrepps hefur annast útdrátt úr réttum lausnum í verðlaunagetraun sem fylgdi bókinni Jón Sigurðsson forseti, ævisaga í hnotskurn. Eftirtalin hlutu 5.000 króna verðlaun hvert: Sigurbjörn Einarsson, Fögrubrekku, Brú. Linda Osk Guðmundsdóttir, Hamraborg 14, Kópa- vogi. Kristinn Björnsson, Espigerði 4, Reykjavík. Einar H. Heiðarsson, Dalatanga, Mjóafirði. Hjalti Hrafn Hafþórsson, Mjólkárvirkjun, Arnarfirði. Vilborg Guðrún Sævarsdóttir, Eyjabakka 20, Reykjavík. Sigurður Aðalsteinsson, Vaðbrekku, Hrafnkelsdal. Erlendur Jónsson, Hlíðarhvammi 13, Kópavogi. Reynir Hólm Gunnarsson, Víðihvammi 14, Kópa- vogi. Brynjólfur Már Georgsson, Kjörseyri, Brú. Verðlaunin hafa verið send til viðkomandi. (Frá Vestfirska forlaginu). Miðvikudagur 5. júlí 1995 FRÉTTABLAÐH) Skógurinn Finnur M. Gunnlaugsson shrifcir „Því hefur margoft verið hvíslað i eyra mitt síðustu vikur, að öll eyðileggingin hér vestra, harmleikirnir, hafi nú þegar orsakað og eigi eftir að orsaka enn frekar aukinn ferða- mannastraum...“ I okkur, sem þessi síðustu ár rennum endrum og eins á bílum inn í Tunguskóg til þess að kíkja á þennan un- aðsreit framtíðarinnar, tengjast blendnar hugsanir og tilfinningar. Víst erum við „gestirnir“ ekki einir um þá upplifun. Mannslát í slysum skyggja e.t.v. öðrum dauðs- föllum frekar á nauðsynlega sátt við gang lífsins og það sem unnt er að gera til þess að styrkja dýrkun hennar. Simson hinn spaki, garð- yrkjumaður, hafði ekki hug- mynd um nákvæma at- burðarás undanfarinna missera, allt frá eyðilegging- unni inni í Skógi í fyrra. En hann vissi e.t.v. að skynjun á veruleikanum er fallvölt og samfélag siðaðra manna í náttúrunni er hið eina sem stendur af sér mátt harm- leiksins. Ég sé að frá ykkur, sem búið til nýja staði, — ræktið ný tré og nýjan skóg — streymir orka sem við „gestirnir“ verðum áskynja. Það heillar á ný að skynja nútfð og framtíð í senn undir nýjum bjálkum. Njóta ásta; elska. Er til eitthvað yndis- legra en það? Rétt vestan við féll enginn snjór. Austan við féll ekki eitt einasta snjókorn. Við lifðum. Þar féllu geislar samfélags- ins. Féllu og náðu landi. í dag höfum við frábæra þekkingu á mosavöxnu snigladæmi fjallanna. Þau koma vissulega misjafnlega fram við okkur, sem lifum. Mörg okkar flytja dag eftir dag; þrá að vera frjáls frá amstri hversdagsins, fá skjól frá samfélaginu, sem eins og Simson sér fegurð í náttúr- unni. Fallvalta og þannig stabíla. Enginn má skilja mig svo að ég sjái einhverja almætt- isvisku í snjóflóðum. Þau leiða aðeins af sér ótta; verða tákn um sameiginlega óþreyjufulla þrá okkar eftir hamingju. Þau minna á verkefnin framundan og krefjast af okkur alúðar í ást- inni. Því hefur margoft verið hvíslað í eyra mitt sfðustu vikur, að öll eyðileggingin hér vestra, harmleikirnir, hafi nú þegar orsakað og eigi eftir að orsaka enn frekar aukinn ferðamannastraum. Hér er ekki um getgátur að ræða. Ég er aftur á móti vongóður um, að hin geislandi orka, sem nú þegar streymir m.a. um náttúru Tunguskógar, verði með í vegarnesti ferðalangsins, þegar hann heldur suður að nýju. Þá mun jákvæð upplif- un þess forvitna verða yfir- sterkari skjámyndinni af súluritum tryggingafélaga; fréttaviðtölum af karpi úr þeirri innri umræðu sem framtíðarreynsla okkar krefst; skjótfengnum gróða iðnaðarmanna (ímynduðum eða ekki ímynduðum); og óttanum við efnahagslega tortímingu. Ef til vill yrði slík upplifun að jákvæðu „stílbroti“ á þeim „texta“ sem lent hefur alltofofarlega á blaði margra um okkur Vestfirðinga; sem bónbjargafólk, eintrjáninga og aftaníossa ríkjandi sið- menningar í landinu. Er ekki hugsanlegt, að lífskraftur okkar næði þannig að gefa samborgurum okkar eitthvað fleira og betra en gjaldeyrisstreymið í ríkis- kassann (þetta gamla og góða sem allir landsmenn vilja auðvitað líka fá að njóta)? Vegarnesti um sam- félag í og með náttúrunni, lífssýn strandbúans, skyn- semi hans og lífsást...? Hið rétta andlit Agrip af bæjarsögu, 1/10 1. Eyrin Lengst af hefur Skutulsfjarð- areyri verið kaupangur fyrir norðanverða Vestfirði, en í tíð núlifandi fólks einkum útgerðar- staður. Fyrir straumamót hefur malarrif hlaðist upp fram í miðjan fjörðinn. Eftir gömlum ljós- myndum að dæma var það svo mjótt áður en farið var að breikka það, þótt þéttbyggt væri, að í verstu austanveðrum, eins og þeim í vetur, hefur sæúðinn náð yfir það alla leið. Eyrin er bogin í krók. Fjærst er renna fyrir sigl- ingar. Innan við hafnarlægi. Brött fjöll nema í austri, þar er Djúpið og Snæfjallaströndin í fjarska. A undanförnum áratugum hef- ur Skutulsfjarðareyri verið breikkuð á alla vegu, svo mjög að hún hefur breytt stórlega um lög- un. Þó er krókurinn hinn sami og þá hafnarlægið. Það telst til hinna bestu á landinu. Uppgröftur úr húsgrunnum og rusl hefur verið notaður til stækkunarinnar svo að heldur er óþrifalegt á henni sum- staðar, einkum neðan við iðnað- arhverfið á Suðurtanga. Byggðin hefur vaxið upp í hlíðina og inn af tjarðarbotnin- um. En gamli bærinn, miðbær Isafjarðar, stendur enn á Skutuls- fjarðareyri, þétt byggð lágreistra timburhúsa í austur og suður frá tveimur verslunargötum innan- vert. Niður af er iðnaðarhverfi og tvær hafnir, hvor sínum megin eyrarinnar, önnur fyrir báta, hin skip. Flest húsin í brattri hlíðinni eru frá því um og fyrir 1980. Sama gildir um íbúðahverfið inn af fjarðarbotninum. A eyrinni stendur líklega stærsta safn gamalla timburhúsa á einum reit í landinu. Þessi byggð ber þó ekki fremur en eyr- in sjálf upphaflega mynd. Húsin eru flest frá fyrsta fjórðungi ald- arinnar eða eldri, en á gönguferð þarf natni og þekkingu á fyrri tíða fyrirkomulagi til að sjá fyrir sér upprunalegt horf. Byggt hefur verið við mörg þessara húsa, sum oftar en einu sinni, þau hafa verið járnvarin og máluð að síðari tíma hætti, og sum eru fyrir löngu orðin hrörleg á ný. Til skamms tíma voru gömul hús sem þessi á Skutulsfjarðar- eyri einkum talin vitna um niður- lægingu og skort, við hæfi það eitt að fjarlægja þau þegar færi gæfist. Nú er öldin önnur eins og flestir vita. Gömul hús búa yfir sérstæðu lífi sem hægt er að kalla fram öllum til yndis ef á annað borð eru efni eru til þess. En fæst íbúðarhúsin á Skutulsfjarðareyri eru vöknuð til vitundar um sjálf sig.^ Áður fyrr stóðu stöku húskumbaldar í hlíðinni, ofan við prestsetrið á Eyri en nú er allt með öðrum brag. Túnið niður af ber eitt sama svip og á upphafs- árum kaupstaðarins eftir mynd- um að dæma, nema að engin merki um bæjarhúsin á Eyri hafa verið á túninu síðan um 1860 að bæjarhróf stóð í austurjaðrinum þar sem nú er leikskóli. Niður af Eyrartúni er kirkju- garður og kirkja og því næst gamla byggðin. Nú standa tvö frystihús við sjóinn þarna aust- anvert og er spottakorn í milli þeirra. Hafnarumsvif takmarkast við hafnarsvæðin og setja lítinn svip á bæjarlífið. Og allnokkur ár eru síðan reykjarbræla frá verk- smiðju hér í námunda erti skiln- ingavit manna. Við dyr á þrifa- legu verksmiðjuhúsi bregður fyrir hvítklæddum manni að reykja sígarettu. Annar reykur en af útblæstri manna og bíla er jafnvel enn fágætari. Skárri hluta ársins leiddi góð hafnaraðstaða og veðurstillur fólk saman á Skutulsfjarðareyri til verslunar um aldir, en aðeins Eyrarklerkur og fólk hans var heimilisfast á þessum stað fram til ársins 1765 þegar faktorshúsið var reist. Menn bjuggu á sveita- bæjum og lágu í veri nær miðun- um. Á eyrinni voru vöruskemm- ur fyrir kaupmenn. Inni í firði stóðu fleiri bæir. Á Kirkjubóli var hálfkirkja og beiskleiki Eyr- arklerks vegna kirkjutíundar við- loðandi sem um miðja sautjándu öld varð að samviskunagi þegar við bættust óhelgar tilfinningar þáverandi prests í garð fóstur- dóttur sinnar sem sonur Kirkju- bólsbóndans vildi ekta. Af spratt frægt galdramál í anda tímans. Threesome Junior m íim miíitm tmus&imíH umm OmttgbA- T«raa*y*. « po*«Sbi8tl*s. threesorrve NfXttfeais mcuovsTvuJ*'. HJA OKKUR FÆRÐU NYJUSTU MYNDBONOIN mrn 350 Videoúrval Hafnarstræti 11 • ísafirði Sími 3339

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.