Feykir


Feykir - 14.01.1987, Síða 2

Feykir - 14.01.1987, Síða 2
2 FEYKIR 1/1987 Óháð fréttablað fyrir Norðurland vestra Feykir ■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón Gauti Jónsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2, Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4, 550 Sauðárkrókur ■ SÍMI: 95:5757 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Hilmir Jóhannesson, Sr. Hjálmar Jónsson, Jón F. Hjartarson, Sigurður Ágústsson, Sæmundur Hermannsson ■ BLAÐAMENN: Haukur Hafstað, Magnús Ólafsson, ■ ÁSKRIFTARVERÐ: 45 krónur hvert tölublað; í lausasölu 50 kr. ■ GRUNNVERÐ AUGLÝSINGA: 165 krónurhver dálksentimetri ■ ÚTGÁFUTÍÐNI: Annan hvern mið- vikudag ■ PRENTUN: Dagsprent hf., Akureyri ■ SETNING OG UMBROT: SÁST sf„ Sauðárkróki. ---------------------------leiðarí— Við verðum að leysa málið Um áramót staldra menn gjarnan við, líta um öxl, vega og meta liðið ár, og reyna e.t.v. út frá því er þá gerðist að geta sér til um framhaldið. í þessu tölublaði Feykis rifja sveitar- og bæjarstjórar þéttbýlisstaðanna á Norðurlandi vestra upp ýmiss málefni, sem einkum tengdust þeirra bæjar- og sveitarfélögum eða kjördæminu í heild sinni. Þótt hjá þeim gæti vissrar bjartsýni með komandi ár og þá einkum vegna þess almenna góðæris, sem ríkt hefur hér á landi í heild sinni í efnahags- og viðskiptalífinu, benda þeir á, að ýmsar blikur séu nú á lofti og afrakstur góðærisins hafi ekki skipst jafnt milli landsmanna. Einna mestar eru áhyggjurnar af ástandinu í landbúnaði og þeim afleiðingum, sem minni búvöruframleiðsla hefur í för með sér fyrir fjölmarga þéttbýlisstaði. Einnig hafa þeir áhyggjur af veiðum, ekki síst staðbundnum veiðum ýmissa tegunda á Húnaflóa og Skagafirði. Þannig segir t.d. Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri á Sauðárkróki í sínum pistli um landbúnað: „Landbúnaðurinn á í vök að verjast og samdráttur hefur orðið í framleiðslu landbúnaðarafurða. Þetta hefur að sjálfsögðu alvarleg áhrif á afkomu bænda. Þar sem stærri hluti íbúa þessa kjördæmis býr í sveitum en í öðrum kjördæmum, hljóta áhrifin að verða alvarlegri hér en annars staðar. Og ekki nóg með það; þessi samdráttur hefur að sjálfsögðu áhrif í þeim þéttbýlisstöðum, þar sem úrvinnsla landbúnaðarafurða og þjónusta við sveitirnar er veigamikill þáttur í atvinnulífinu. Vil ég í þessu sambandi sérstaklega benda á staði eins og Blönduós, Hvammstanga og Sauðárkrók. Þessi áhrif eru þegar farin að koma í ljós og munu koma fram af fullum þunga á þessu ári. Eg óttast að menn hafi ekki gert sér grein fyrir, hve alvarlegt mál er hér á ferðinni. Sem dæmi má nefna að þær hugmyndir hafa vaknað að öll þrjú mjólkurbúin á Norðurlandi vestra verði lögð niður svo og að minnsta kosti einhver sláturhúsanna”. Bráðabirgðatölur um mannfjöldann hér á landi 1. des. sl. liggja nú fyrir. Þar kemur m.a. fram sú staðreynd að íbúum á Norðurlandi vestra hefur fækkað á síðasta ári frá því sem var árið áður um 132 eða um 1,1%. Á sama tíma fjölgaði landsmönnum um 0,8% og íbúum á höfuðborgarsvæðinu um 1,7%. Bein fækkun er í flestum kjördæmum en hlutfallslega mest hér á Norðurlandi vestra. Þá hefur það lengi verið staðreynd að meðaltekjur í þessum landshluta eru lægri en gengur og gerist. Þrátt fyrir þetta má þó ekki örvænta og leggja árar í bát. Það skal vera hægt að snúa dæminu við. Hvernig það verður gert, er hægt að taka undir lokaorð í pistli Snorra Björns bæjarstjóra er hann segir: „Við verðum að leysa þessi mál sjálf, það gerir það enginn fyrir okkur”. (j&i) --------------------------arítuellinum Guðjón Ingimundarson: Um heita potta 1 Feyki frá 17. desember sl. er fréttapistill um „heita potta”, sem koma eiga við Sundlaug Sauðárkróks, og meðferð þessa máls í bæjarkerfinu. Þessa frétt má skilja svo að það eitt sé nú til umræðu að setja upp bráðabirgðapotta á stétt við enda laugarinnar og að það sé raunar lífsspursmál fyrir unn- endur heitra potta að svo verði gert. Málið snýst raunar alls ekki um þetta heldur hitt hvort nú sé réttara, að eyða á aðra milljón króna í að klína upp í þrengslum á stéttunum við laugina heitum pottum, eða að steypa upp og gera fokhelda byggingu fyrir fatlaða ásamt því að fullgera varanlega heita potta fyrir lítið eitt meira fjármagn. Þetta með heita potta er ekkert nýtt mál. Hugmyndir og teikningar hafa verið til á borðum bæjarstjómarmanna allt frá 1980 og byggingarnefndar- teikningar ásamt kostnaðaráætl- unum eru til frá 1982 og endumýjaðar síðan a.m.k. tvisvar sinnum. Það sem skort hefur á er vilji, framtak og fé. Og hvað mikið stórvirki er þetta nú? Grunnflötur byggingar- innar er um 60 ferm. eða álíka og vænn bílskúr. Á neðri hæð er inngangur og aðstaða fyrir fatlaða ásamt möguleikum á að komast beint á útisvæði og þjónustuganga í byggingunni, en á efri hæð pláss fyrir tvo ljósalampa, hvíldaraðstaða og umgangspláss að tveimur heitum pottum, sem tengdir eru þessari viðbyggingu og yrðu steyptir upp jafnframt henni. Nú má auðvitað spyrja: Er nokkur þörf á þessu? Er þetta ekki allt ágætt og fullnægjandi eins og er? Varðandi fatlaða er því til að svara að þeir sem hafa skoðað aðstæður í sundlauginni eru sammála um að breytingar, sem geri fötluðum möguleg afnot af laug, séu vart framkvæmanlegar. Lausn þess sé alfarið bundin einhverri viðbyggingu. Á sínum tíma fylgdust forystumenn fatlaðra með teikningum að þessu leyti og voru þeim samþykkir. Um ljósalampana er það að segja, að nú er talið nauðsynlegt að þeir sé’u fyrir hendi í sambandi við sundlaugar og til afnota fyrir sundlaugargesti. Nú er í sundlauginni einn ljósa- lampi og staðsettur í herbergi, sem ætlað er starfsfólki sund- laugarinnar til fataskipta og afnota. Fyrir ljósabekki vantar því einnig aðstöðu. Það eru víst allir sammála um að þörfin á heitum pottum - setlaugum - sé orðin brýn, og hefur fyrr verið það. Og nú er til umræðu að leysa það mál á næstunni. Sumir virðast ekki sjá annað en bráðabirgðalausn, sem að mínu mati væri hreinn afleikur. Það liggur á borðinu að auðvelt er að leysa málið til frambúðar fyrir lítið eitt meira fjármagn en bráðabirgðalausnin bíður uppá. Ekki síst er þetta hagstætt þegar þess er gætt að varanleg lausn mundi ekki þurfa að taka nema fárra mánaða lengri tíma en bráðabirgða- framkvæmdin. Það eru fjölmargar ástæður fyrir því að nú er nauðsynlegt að halda áfram með þetta mann- virki, sem hefur verið í byggingu í áföngum í meira en 30 ár og enn er þó ólokið. Þessar ástæður verða þó ekki raktar hér að þessu sinni, enda ætti öllum að vera þær augljósar. Hik og bráðabirgðalausnir eru til þess eins að tefja nauðsynleg og varanleg verk um ófyrirsjáanlegan tíma. Samhljóða samþykkt félags- málaráðs og bæjarstjórnar frá 2. apríl 1985 er afdráttarlaus í þessu efni, þar sem samþykkt var að viðbygging við sundlaug fyrir fatlaða og heitir pottar verði næsta verkefni bæjarins á sviði íþróttamála. Þessari sam- þykkt þurfa bæjarfulltrúar nu að sinna.og fylgja eftir og færa sundlauginni þessa framkvæmd á 30 ára starfsafmælinu á þessu ári. Samkvæmt þeirri kostnaðar- áætlun sem til umræðu var hjá íþróttaráði í nóv. sl. og í bæjarstjórn 9. des. sl. er gert ráð fyrir að tveir uppsettir bráða- birgðapottar á laugarpalli kostuðu kr. 1.174.000.- Væru þeir staðsettir sunnan laugar, þá kr. 1.319.000,- Varanleg framkvæmd, sem innifæli fyrrnefnda bygg- ingu fyrir fatlaða og aðra aðstöðu fokhelda ásamt tveimur heitum pottum fullgerðum mundi kosta um kr. 3.120.000.-samkv. framreiknaðri áætlun frá Verk- fræðist. Sig. Thor. Varðandi þessar kostnaðar- tölur verður þó að athuga það, að engar líkur eru á að íþróttasjóður ríkisins taki þátt í kostnaði við bráðabirgðalausn og kæmi því allur kostnaðurinn, um kr. 1,3 milljónir króna í hlut bæjarsjóðs. í varanlegri bygg- ingu væri þátttaka sjóðsins hinsvegar 40% og kæmi því um 1,9 millj. kr. í hlut bæjarsjóðs. Til viðbótar þessu er rétt að minna á, að til er sjóður, Framkvæmdasjóður fatlaðra, sem hugsanlega muni styrkja og lána til þessarar byggingar fyrir fatlaða, og væri auðvitað sjálfsagt að kanna það mál. Þegar þessa alls er gætt getur varla vafist fyrir neinum að taka ákvörðun um hvort heldur skuli farið í varanlegar framkvæmdir eða leitað vafasamra bráða- birgðalausna. Ef alvara er í því að sinna málefnum sundlaugarinnar eru varanlegar framkvæmdir þær einu sem til greina koma. Bráðabirgðalausnir og kyrrstaða bjóða upp á það að hlutskipti hennar verði að grotna niður eins og flestra annarra hálf- byggðra mannvirkja. ►UIA4+ m Frá Öldungadeild og kvöldskóla Innritun stendur nú yfir á vorönn. Kennsla er miðuö við að næg þátttaka fáist í hverjum einstökum áfanga. ( Öldungadeild er m.a. boðið upp á eftirtalda áfanga: íslenska (ÍSL), allir áfangar, þ.á m. fornám fyrir þá sem vilja rifja upp námsefni grunnskóla. Kennari Knútur Hafsteinsson. Enska (ENS), alliráfangar, þ.ám. fornám. Kennari: Björn Magnússon/Þorkell V. Þorsteinsson. Danska (DAN), allir áfangar, þ.á m. fornám. Kennari: Þórdís Magnúsdóttir. Þýska (ÞÝS), allir áfangar, þ.á m. fyrir byrjendur. Kennari: Þórunn Sleight. Franska (FRA), allir áfangar, þ.á m. fyrir byrjendur. Kennari Geirlaugur Magnússon. Stærðfræði (STÆ), allir áfangar, þ.á m. fornám. Kennari: Björn Fr. Björnsson. Tölvufræði (TÖL 1036), fyrir byrjendur. Kennari: Valgeir Kárason. Vélritun (VÉL), fyrir byrjendur og lengra komna. Kennari: N.N. Bókfærsla (BÓK), fyrir byrjendurog lengra komna. Kennari: Gylfi Ambjömsson. Myndmennt (MYN), fyrir byrjendur og lengra komna. Kennari: Margrét Björnsdóttir. Vélsaumur (VÉS 102). Kennari: Fjóla Sveinsdóttir. Fatasaumur og sníðagerð (FAS 102). Kennari: Fjóla Sveinsdóttir. í kvöldskóla er til að byrja með boðið upp á eftirtalin námskeið: Taumálun kennari: María Pétursson. Saumar kennari: Fjóla Sveinsdóttir. Ættfræði sem hefst í lok mars, kennari: Guðmundur S. Jóhannsson. Þátttökugjald og önnur námskeið verða auglýst síðar. Innritun fer fram á skrifstofu skólans og í síma 5488.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.